Morgunblaðið - 09.05.1987, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.05.1987, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, símí 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 550 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 50 kr. eintakiö. Hækkun tryggingabóta - réttlætismál Islenzkt þjóðfélag hefur bæði kosti og gaila, rétt eins og önnur samfélög. Sem betur fer eru kostimir verulega fleiri, þó að enn standi margt til bóta. Ef kostir samfélagsins eru metnir á mælikvarða þeirrar heilbrigðisþjónustu, sem til reiðu er, sem og meðalævi ein- staklinga, skipum við íslend- ingar háan sess. Aðeins ein þjóð, Japanir, státar af jafn- langri meðalævi og við íslend- ingar. Breytt aldursskipting þjóð- arinnar, það er ört hækkandi hlutfall þeirra landsmanna sem komnir eru yfir vinnualdur, kallar hinsvegar á margháttuð viðbrögð samfélagsins. Það hefur ekki lagað sig að breytt- um aðstæðum, að þessu leyti, nema að hluta til. Hér blasir við margþætt svið, sem spann- ar m.a. öidrunarþjónustu og öldrunarhjúkrun, bæði í heima- húsum og á stofnunum, hluta- störf o g tómstundaiðkun fullorðinna, félagsleg samskipti — og síðast en ekki sízt af- komuöryggi. Varðandi síðasta atriðið er komið að íhugunar- verðum þætti, þegar kostir og gallar samfélagsins eru metnir. Aldraður einstaklingur, sem hefur ekki aðrar tekjur en bæt- ur almannatrygginga og á ekki húsnæði, státar til dæmis vart af viðunandi afkomuöiyggi. Engu að síður hafa þessi mál þróast verulega til réttrar áttar næstliðin ár. Bætur al- mannatrygginga hækkuðu umfram vísitölu kauptaxta verkafólks 1985-1986. Á sl. ári var fjárveiting úr sameiginleg- um sjóði landsmanna 10.200 milljónir króna, eða 27,2% fjár- laga. Ragnhildur Helgadóttir, heilbrigðis- og tryggingaráð- herra, hefur nú ákveðið að hækka elli- og örorkulífeyri. Lífeyrisgreiðslur til fólks með fulla tekjutryggingu hækka um 2.000 krónur á mánuði. Gildir hækkunin frá 1. maí sl. Hækk- un maímánaðar kemur með næstu greiðslu í byrjun júní. EHi- og örorkulífeyrir með fullri tekjutryggingu og heimilisupp- bót nær umsömdum lágmarks- launum eða tæpum 25.000 krónum. Þessi ákvörðun heilbrigðis- ráðherra er réttlætis- og sanngimismál. Hún er spor áleiðis að réttu marki. Það var eitt sinn sagt að bezti mælikvarðinn á menningu þjóðar væri sá, hvem veg hún býr að öldruðum. Þann mæli- kvarða mættum við hafa vel í huga. Undirstaðan: Þorskurinn Hvert sem litið er í íslenzku samfélagi blasa við vel- megun og verðmæti. Velmegun í lífsmáta fólks. Verðmæti í opinberum byggingum, íbúð- um, atvinnutækjum, bifreiðum og svo framvegis. Að drýgstum hluta eru verðmætin og vel- megunin sótt í sjó, en sjávar- vörur eru um 70% af útflutn- ings- og gjaldeyristekjum þjóðarinnar. Auðlindir sjávar hafa hins- vegar nýtingarmörk, sem ekki má yfír fara, ef við viljum búa að velmegun og efnalegu sjálf- stæði til frambúðar. Dæmið um Norðurlandssíldina, stofninn sem hrundi vegna ofveiði, þarf að vera okkur víti til vamaðar. Gjöfulasta sjávarauðlindin er þorskurinn. Hann er megin- efniviður undirstöðunnar, sem velmegunin er reist á. Það eru því alvarleg tíðindi, sem físki- fræðingar færa, að hrygning- arstofn þorsksins sé mjög lítill orðinn; að þorskstofninn sé illa nýttur (þorskurinn veiddur of ungur og of smár); að veruleg hætta geti verið á ferðum, ef ekki verði gengið fram með gát. Skiptar skoðanir eru um það, hvem veg skuli staðið að skipu- lagi sóknar í nytjafíska. Um hitt em flestir sammála, að ekki megi ganga í þorskstofn- inn umfram fískifræðilegar niðurstöður um eðlilega stofn- stærð tegundarinnar. Sem og um hitt, að nýtingu stofnsins megi enn bæta, t.d. með því að leyfa stærri hluta hvers ár- gangs að vaxa upp í meiri þyngd og verðmæti. Keppikeflið á að vera að veiða það magn, sem físki- fræðileg rök standa til, með sem minnstum kostnaði, og vinna í sem verðmætasta sölu- vöm. Þorskurinn er í vissum skiln- ingi einn meginhomsteinn velmegunar okkar. Þennan homstein verðum við að um- gangast með tilhlýðilegri virð- ingu. VETRARVERTÍÐ netabáta er nú að ljúka, síðasti dagurinn er á þriðjudaginn og er það samdóma álit sjómanna að ver- tíðin hafi verið með allélegasta móti að þessu sinni, sérstak- lega hjá þeim sem stunda sóknina frá Grindavík og Vestmannaeyjum. Fiskleysi er um að kénna að sjálfsögðu og eru menn ekki á eitt sáttir hvað valda muni. Algengt er að menn nefni ofveiði en það þarf að fara ofan i saumana á orsökum hennar og leita leiða til að rétta úr kútnum. Morgun- blaðið var á ferðinni á Suðurnesjum í vikunni og tók tali nokkra sjómenn og útgerðarmenn í Grindavík, hugleiðingar þeirra og álit koma hér á eftir. Jón Guðjónsson skipstjóri: Bókstaflega engin veiði eftir páska Dauft hljóð í bátasjó Grindavík eftir slæ FLESTIR vertíðarbáta Grindavíkur voru á sjó þegar Morgunblaðið bar að garði og það var ekki annað að gera en að bíða þeirra og það var ógleym- anleg sjón að sjá þá koma að utan og renna inn í innsigling- una, enda kraumaði sjórinn og himinháir sjóskaflar, hvítfyss- andi, helltu sér yfir bátana. Jón Guðjónsson skipstjóri. Fyrstur inn var „Máni“, en skip- stjóri hans heitir Jón Guðjónsson. „Þetta var heldur dauft núna, aðeins 5—6 tonn, þannig að hljóðið hefur ekkert breyst frá því sem verið hefur alla þessa vertíð. Þetta hefur verið afar lélegt og bókstaf- lega ekkert að hafa nú eftir páska. Ef á heildina er litið er þetta með lakari vertíðum sem ég man eftir, a.m.k. hjá flestum bátum,“ segir Jón og dæsir við. En hefur engin glæta verið á vertíðinni Jón? „Ja, ég get svo sem sagt að þetta hafí verið sæmilegt í mars, en þá er það líka upptalið, lélegt fram að því og nánast ördeyða eftir það. Ég get nefnt ansi sannfærandi dæmi þessu til stuðnings. Við höf- um fengið 38 tonn af físki á sóknarkvóta eftir páska, en um svipað leyti í fyrra höfðum við hins vegar veitt 134 tonn. Að vísu gátum við þá veitt fleiri daga, en munurinn er samt of mikill til þess að það sé hin eina skýring á aflamuninum." En hver er skýringin? Jón Guð- jónsson, skipstjóri á Mána frá Grindavík: „Það er engin önnur skýring en að um ofveiði sé að ræða, hveijum svo sem um það er að kenna. Sennilega er um ofveiði á mörgum sviðum að ræða. Togar- amir drepa fískinn áður en hann kemur upp í hrygninguna og mikið Afla landað úr Mána frá Grindavík af smáfísknum drepst um leið. Svo veiðum við okkar skammt. Svo virð- ist sem stofninn hafí ekki þolað þetta og full ástæða sé til þess að kanna málið ofan í kjölinn. Það má til, því það nær ekki nokkurri átt að vera að sækja í jafn rýran Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ: Verkfallsrétturimi er neyðarréttur Kemur ekki til greina að gera samningfyrir næsta ár án kaup- máttartryggingar „Kjarasamningar fyrir næsta ár eru einfaldlega allt annað mál,“ sagði Ásmundur Stefáns- son, forseti Alþýðusambánds íslands, er hann var inntur álits á þeim ummælum Þórarins V. Þórarinssonar, framkvæmda- stjóra Vinnuveitendasambands íslands, að endurskoðun á gild- andi samningum þurfi að ná til næsta árs líka, þar sem opinberir starfsmenn hafi samið til tveggja ára. „Við erum að tala um endur- skoðun á samningum, sem við höfum gert fyrir þetta ár. Samn- ingamir, sem gerðir hafa verið á vettvangi opinberra starfs- manna fyrir næsta ár, era að mestu tryggðir með viðmiðun við þær hækkanir sem nást munu fram á okkar vettvangi. Það kemur ekki til greina að ASÍ geri samning fyrir næsta ár, þar sem engar tryggingar eru um kaupmátt. Endurskoðun gildandi samninga og samningar fyrir næsta ár eru tvö aðgreind mál,“ sagði Ásmundur ennfremur. Hann sagði að ef hækkun lægstu launa í desembersamningunum væri metin til 4% fyrir heildina, þá jafngilti hækkun ASÍ-félaga frá desember til desember um það bil 9,3%, en til viðbótar kæmu ýmsir fastlaunasamningar, sem myndu leiða af sér einhveija hækkun til viðbótar. Meðaltalshækkun launa opinberra starfsmanna á sama tímabili væri væntanlega nálægt 20%. Ásmundur sagði að ASÍ vildi taka á þessu máli í fastlaunasamningum, en í þeim ætti að byggja upp taxta- kerfíð, sem lagt var í rúst í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.