Morgunblaðið - 09.05.1987, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAI 1987
Borgarleikhúsið:
Sýníng á hjálp
artækjum fyr-
ir fatlaða
í anddyri Borgarleikhússins hef-
ur verið opnuð sýning á hjálpar-
tækjum fyrir fatlaða og stendur
hún til sunnudagsins 10. maí. Þar
verða flutt erindi um málefni
fatlaðra og boðið upp á skemmt-
dagskrá.
Við opnun sýningarinnar í gær,
flutti Kent Ericsson frá Svíþjóð,
erindi um viðhorf samfélagsins til
fötlunar og þátttöku fatlaðra í sam-
félaginu. Leikhópur frá Sólheimum
í Grímsnesi sýndi leikþáttinn: Æv-
intýri.
I dag flytur Magnús Ólafsson
orku- og endurhæfingalæknir erindi
um vöðvagigt, ný viðhorf í verkja-
meðferð og hefst erindið kl. 11.
Sveinn Már Gunnarsson bama-
læknir flytur erindi kl. 13, um
MBD-böm og Márta Tikkanen rit-
höfundur og foreldri MBD-bams
segir frá og les upp, kl. 14. Einar
Hjörleifsson sálfræðingur, flytur
erindi um álag á fjölskyldur fatl-
aðra kl. 15.
Skemmtidagskrá með tónlist,
tískusýningu og dans hefst kl. 16
og kl. 18, er erindi Keith Hump-
hreys gestakennara við Kennara
háskóla íslands um val foreldra á
skóla fyrir fatlað barn sitt. Kvik-
myndin „Þeim mun fyrr, því betra"
varður sýnd kl. 19.
Sigríður Bjömsdóttir myndlistar-
þerapisti, flytur fyrirlestur kl. 11 á
sunnudagsmorgun um myndlista-
Frá sýningu á hjálpartækjum fyrir fatlaða í anddyri Borgarspítalans.
Morgunblaðið/Sverrir
þerapíu. George Wilson, forstöðu-
maður Royal Association for
Disability and Rehabilitation í Lon-
don flytur erindi kl. 13, um tölvur
sem hjálpartæki á sviði atvinnu,
menntunar, ferlimála, frístunda og
tjáskipta. Þa flytur Sveinn Már
VEÐUR
I DAGkl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi í gær: Um 400 km norðaustur af Langanesi er
994 millibara djúp lægð sem þokast austur. Dálítill hæðarhryggur
er yfir vestanveröu Grænlandshafi og fer einnig austur.
SPÁ: Hæg norðlæg átt á landinu. Léttskýjað verður sunnan lands
og vestan en él á norðausturlandi. Hiti á bilinu 1 til 4 stig norðan-
lands en 5 til 10 stig syðra.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
SUNNUDAGUR og MÁNUDAGUR: Hæg breytileg átt eða suðvest-
an gola víðast hvar á landinu og fremur svalt í veðri, einkum þó
vestanlands. Víðast skýjað og sums staðar lítilsháttar rigning.
TAKN:
Heiðskírt
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-| 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 ígær að ísl. tíma
Akureyri hhl 2 voður alskýjað
Reykjavlk 4 skýjaö
Bergen 8 skýjaft
Helsínki 12 léttskýjað
Jan Mayen 2 súld
Kaupmannah. 14 léttskýjaft
Narssarssuaq 6 skýjaft
Nuuk 6 rignlng
Osló 12 léttskýjaft
Stokkhólmur 12 lóttskýjað
Þórshöfn 8 skýjað
Algarve 22 léttakýjað
Amsterdam 13 lóttskýjað
Aþena 18 hálfskýjað
Barcelona 18 mistur
Berlfn 14 hálfskýjað
Chicago 11 helftskfrt
Feneyjar 19 léttskýjaft
Frankfurt 16 lóttskýjað
Hamborg 10 skýjaft
Lss Palmas 21 skýjað
London 16 léttskýjað
LosAngeles 17 þokumóða
Lúxemborg 15 heiðskfrt
Madrfd 22 léttskýjað
Malaga Mallorca 23 vantar léttskýjað
Miami 23 þoka
Montreal 8 léttskýjað
NewYork 11 alskýjað
París 17 heiðskfrt
Róm 18 hálfskýjað
Vín 14 skýjað
Washlngton 14 skýjaft
Winnipeg 9 léttskýjað
Gunnarsson bamalæknir erindi um
skipulag hjálpartækjaþjónustu við
fatlaða kl. 14.
Skemmtidagskrá hefst kl. 15
með leikþætti, leikhóps Sólheima í
Grímsnesi: Ævintýri. Þá er dans,
tískusýning og tónlist. Erindi og
pallborðsumræður um skipulag með
tilliti til fötlunar hefst kl. 17. Þar-
taka þátt fulltrúar Arkitektafélags
íslands og félags íslenskra lands-
lagsarkitekta. Kvikmyndin „Þeim
mun fyrr, því betra" verður endur-
sýnd kl. 19, en sýningunni lýkur
kl. 20.
Erlendu erindin verða túlkuð á
íslensku og túlkað verður á tákn-
máli fyrir heymarlausa. Á laugar-
dag og sunnudag verður
bamagæsla á sýningunni milli kl.
13 og 20. Í myndbandahominu
verður sýnt bama efni, kl. 13 og
aftur kl. 18. Enginn aðgangseyrir
er að sýningunni.
Sparisjóður
Hafnarfjarðar:
Nýr aðstoð-
arspari-
sjóðsstjóri
JÓNAS Reynisson viðskipta-
fræðingur, var í gær ráðinn
aðstoðarsparisjóðsstjóri og stað-
gengill sparisjóðsstjóra, Þórs
Gunnarssonar, hjá Sparisjóði
Hafnarfjarðar, en Guðmundur
Hauksson lét af störfum spari-
sjóðsstjóra 30. apríl sl., er hann
var ráðinn bankastjóri Útvegs-
banka íslands hf.
Jónas Reynisson er 26 ára gam-
all. Hann lauk_ stúdentsprófi frá
Verslunarskóla íslands vorið 1981,
og fjórum ámm síðar lauk hann
prófi frá viðskiptadeild Háskóla ís-
lands. Að því loknu var hann ráðinn
í hagdeild hjá Eimskipafélagi Is-
Jónas Reynisson
lands hf. og starfaði hann þar í um
níu mánuði. í byijun árs 1986 var
hann ráðinn forstöðumaður hag-
deildar hjá Sparisjóði Hafnarfjarð-
ar. Eiginkona Jónasar er Hanna
Lára Helgadóttir.
Salmonellasýkingin í kjúklingum:
Kjúklingar frá viðkom-
andi búi ekki á markað
Unnið að innköll-
un kjúklinga og
rannsóknum
STARFSMENN heilbrigðiseftir-
litsins um allt land og starfsmenn
ísfugls unnu að því í gær að taka
af markaðnum alla kjúklinga frá
bóndanum sem framleiddi kjúkl-
ingana sem ollu hastarlegri
matareitrun í Búðardal eftir
páskana. Kjúklingum úr þeirri
slátrun sem sýktu kjúklingarnir
komu úr, verður eytt. Aðrir
kjúklingar frá viðkomandi fram-
leiðanda verða rannsakaðir.
Halldór Runólfsson, deildarstjóri
hjá Hollustuvemd ríkisins, sagði að
ekki færu kjúklingar frá þessum
framleiðanda á markað fyrr en nið-
urstöður rannsókna úr seinni slátr-
unum frá honum lægju fyrir og
allt hefði reynst í lagi með vöruna.
Hann sagði að þeir kjúklingar sem
bóndinn léti slátra þangað til yrðu
settir í frysti og rannsakaðir sérs-
taklega. Halldór sagði að dýralækn-
ar væru búnir að athuga búið og
setja sýni þaðan í rannsókn. Hann
sagði að húsið hefði verið hreinsað
nokkrum sinnum síðan salmonell-
akjúklingarnir voru framleiddir og
ættu menn því alveg eins von á því
að búið væri orðið hreint af þessum
sýkli.
Alfreð Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri alifuglasláturhússins
ísfugls, sagði að héraðsdýralæknir-
inn tæki sýni úr kjúklingum í hverri
einustu slátrun hjá fyrirtækinu, en
þessi salmonellategund hefði aldrei
fundist. Bændumir héldu einnig
nákvæmar skýrslur um hvem kjúkl-
ingahóp í uppeldi og ef eitthvað
óeðlilegt væri við heilsufar fuglanna
kæmi dýralæknirinn strax til skjal-
anna og athugaði málið. Alfreð
sagði að af þessu tilefni yrði eftir-
lit og hreinlæti í sláturhúsinu enn
hert, þó menn teldu að salmonella-
sýkingin væri einangruð við þessa
slátmn frá þessum eina framleið-
anda af mörgum sem leggja inn
hjá ísfugli.