Morgunblaðið - 09.05.1987, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 09.05.1987, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987 Ágreiningur um gildi kauptilboðs í hlutabréf Frosta hf: Tel víst að staðið verði við tilboðið - rifti hreppsnefndin kaupunum, segir Guðmundur Heiðarsson AGREININGUR er um hvort kauptilboð 20 ára gamals Sam- vinnuskólanema í 20% hlutabréfa Frosta hf. á Súðavík hafi verið gilt. Tilboð þetta barst í símskeyti og átti hlutur þessi að seljast fyrir 30 milljónir. „Ágreiningurinn er það stór að ég stend í höndunum með afrit af símskeytinu frá pósthúsinu í Reykjavík. Þar er skeytið staðfest og sent laugardaginn 28. febrúar. Aftur á móti er það ekki mér að kenna þótt enginn sé á skrifstofu Frosta hf. til að taka á móti sendum símskeytum,“ sagði Guðmundur Heiðarsson í samtali við Morgun- blaðið. Guðmundur sagði að á bakvið tilboð sitt stæðu allmargir íbúar Súðavíkur sem hann vildi ekki nafn- greina. Guðmundur sagðist gera fastlega ráð fyrir að þeir væru til- búnir til að standa við þetta tilboð og að það gildi áfram ef hrepps- nefndin fær kaupum á hlutabréfum í Frosta hf. rift. Guðmundur sagði aðspurður að sér þætti í rauninni ekkert óeðlilegt þótt tilboði sínu væri hafnað en sér þætti það afskaplega óeðlilegt að tilboði sínu skuli ekki hafa verið svarað og enn óeðlilegra að á mót- tökudegi skeytisins, 3. mars, skyldi foður sínum hafa verið sagt upp störfum sem verkstjóri hjá Frosta hf. Þegar ummæli Guðmundar voru borin undir Auðunn Karlsson stjómarformann Frosta hf. sagði hann að skeyti Guðmundar hefði verið óstaðfest þegar það barst. Þegar Guðmundi hefði verið bent á það sagðist hann ætla að athuga málið en síðan hefði ekkert heyrst frá honum frekar. Varðandi uppsögn föður Guð- mundar sagði Auðunn að fyrri eigandi Frosta hf. hefði fengið við- komandi mann til að gegna verk- stjórastöðunni til bráðabirgða meðan leitað var að nýjum verk- stjóra. Þegar búið var að ráða nýjan hefði verið óskað eftir því að afleys- ingaverkstjórinn færi í sitt fyrra starf sem hann hefði ekki sagt sig við og viljað hætta hjá fyrirtækinu. MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi athugasemd frá Gunnlaugi M. Sigmundssyni, framkvæmdastjóra Þróunarfé- lags íslands hf.: „í ritstjómargrein Morgunblaðs- ins (leiðara) í dag 6. maí, er fjallað um fyrirhugaða byggingu tækni- garðs við Háskóla Islands. Veru- legrar ónákvæmni gætir í frásögn blaðsins af því hveijir standi að byggingu umræddra tæknigarða, en þar segir: „Fyrir skömmu var frá því greint hér í blaðinu að Reykjavíkurborg, Háskóli íslands, Félag íslenskra iðnrekenda og nokkrir forsvars- menn í atvinnulífinu hafi ákveðið að sameinast um stofnun tækni- garðs við Háskóla íslands. Framlag Reykjavíkurborgar verður 25 millj- ónir króna á þessu ári ...“ Bygging tæknigarða við Háskól- ann á sér stað á vegum hlutafélags Þróunarfélag’ið er stærsti hluthafinn í byggingu tæknigarða þar sem Þróunarfélag íslands hf. er lang stærsti hluthafinn með 40% eignarhlut. Reykjavíkurborg og Háskóli íslands eiga hvor aðili um sig 20%. Hlutafélagið Tækniþróun hf. sem er að stærstum hlut í eigu Háskóla íslands á 15% í félaginu og Félag íslenskra iðnrekenda á 5%. Engir einstaklingar eiga hluta í fé- laginu og er því beinlínis rangt með farið að segja að „nokkrir forsvars- menn í atvinnulífi hafi ákveðið að sameinast um stofnun Tækni- garðs“, en sleppa jafnframt að geta um þann hluthafa sem leggur fram 40% hlutafjár. Hvað varðar 25 m.kr. „framlag" Reykjavíkurborgar eins og það er kallað í greininni, þá er hið rétta, ef menn vilja vera nákvæmir í fréttaflutningi, að Reykjavíkurborg lánar hlutafélaginu 25 m.kr. á þessu ári.“ Meðal þeirra tækja sem smíðuð hafa verið sérstaklega vegna leitarinnar að gullskipinu er hamarinn á myndinni til vinstri. Á hægri myndinni eru mennimir að eiga við öfluga vatnsdælu, sem upphaf- lega kom til landsins vegna gossins á Heimaey. Tíu slíkar dælur komu þá og hafa gullskipsmenn tvær þeirra undir höndum. Gullskipsmenn sækja stálþil á Skeiðarársand Gullskipsmenn héldu á Skeiðarársand í gær þar sem tvíþætt verkefni liggja fyrir í sumar. Næstu daga munu þeir hefjast handa við að ná upp járaþilinu í kringum þýska tog- arann, en þeir hafa orðið að sérsmiða tæki til þess að ná þilinu upp. Þeir náðu á sínum tíma nokkr- um skúffum af liðlega 150 sem eru í 160 metra langri þilgirðing- unni, en hún er 15 metra djúp. Verðmæti þilsins á fjörukambin- um er 6—7 millj. kr. Þá munu gullskipsmenn halda áfram leit- inni að Het Vapen van Amsterd- am í byijun næsta mánaðar og þá ráðgera þeir að leita á 27 ferkflómetra svæði með ýmiskon- ar tækjabúnaði, m.a. sérsmíðuð- um hamar og torfærubfl sem er enn ein nýjungin í tækjaflota gull- skipsmanna. Krani, grafa, ýta og önnur tæki gullskipsmanna verða notuð til þess að ná upp bryggjuþilinu á Skeiðarársandi, en 5—6 menn munu vinna við verkið og eru búðir þeirra sem fyrr á Lækjar- bakka. Vestari búðir gullskips- manna á sandinum eru við Rauðamel, en frá þeim búðum verður leitin gerð út í sumar. Fyrst munu leitarmenn kanna 1700 metra breitt ósasvæði og verður leitað um 1 km inn í landið, en einnig munu leitarmenn mæla sandinn á 5 km löngum kafla með sjónum og 5 km inn í landið en það er mun lengra inn í landið en þeir hafa gert áður. Mælingar fara fram eftir línum sem 20 m eru á milli, en siðan eru 6 metrar á milli mælipunkta. Reiknað er með að leitin standi yfír fram í júlímánuð. Fiskifræðiiigarii- ir eru varfærnir - segir Kristján Ragnarsson um loðnutillögurnar „FISKIFRÆÐINGAR hafa nú lagt til verulega minna aflamark fyrir upphaf loðnuvertíðar í haust en á síðasta ári. Ég tel að þetta sé gert af nokkurri varfærai vegna þess, að fiskifræðingar komust ekki á uppeldisslóðir loðn- unnar i rannsóknum sínum í vetur. Þá greindu þeir strax frá því að þeir myndu leggja til minni Seltjarnarnes: Stuðrangsmannafélag' stofnað við Gróttu Liður í baráttu Lionsklúbbs Seltjarn- arness fyrir vímuefnalausri æsku LYON SKLÚBBUR SeHjamar- ness hefur boðað til almenns borgarafundar í dag um stofn- um stuðningsmannafélags við íþróttafélagið Gróttu á Selt- jarnaraesi. Stofnun þessa félags er liður í baráttu Lions fyrir vimuefnalausri æsku og telur Lyonsklúbbur Seltjaraar- ness að slíkt forvaraarstarf verði best unnið með því að efla allt unglinga og æslulýðs- starf og til þess þurfi Seltira- ingar að sameinast um stofnun öflugs stuðningsmannaf élags við Gróttu. í samtali við Morgunblaðið sagði Teitur Lárusson félagi í Lyonsklúbbi Seltjamamess að fullorðnir þyrftu nauðsynlega að styðja við það félagslíf sem þrífst innan íþróttafélagsins Gróttu og raunar annara íþrótta og tóm- stundasamtaka á Seltjamamesi, til þess að áhugi ungmennanna haldist og starfíð blómgist. Einnig væri fyrirhugað að reyna að tengja þessa félagsstarfsemi sam- an og láta hana mætast á miðpunkti í Gróttu. „Við þurfum að laða fram „þjóðemisrembing" hjá Seltimingum og láta þá Morgunblaðið/Bjami Teitur Lárusson og Steingrímur Ellingsen, félagar í Lyonsklúbbi Seltjaraaraess sem stendur fyrir opnum fundi i dag um stofnun stuðningsmannafélags við iþróttafélagið Gróttu. fínnast að það sé einhvers virði að vera Gróttari," sagði Teitur. Steingrímur Ellingsen félagi í Lyonsklúbbnum sagði við Morg- unblaðið að borið hefði verið bréf í öll hús á Seltjamamesi þar sem borgarafundurinn er auglýstur og hefði þetta hlotið mjög góðar und- irtektir bæjarbúa. Borgarafund- urinn verður haldinn í Félags- heimili Seltjamamess í dag, laugardag, klukkan 14 ogerfyrir- hugað að halda stofnfund stuðn- ingsmannafélagsins strax að loknum þeim fundi. kvóta en árið áður, en jafnframt, að sú tillaga myndi ná til takmark- aðs tíma en ekki vertíðarinnar allrar eins og þeir hafa áður lagt til,“ sagði Kristján Ragnarsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, i samtali við Morgunblaðið. „Þótt ég ali þannig nokkra von í bijósti um að heildarveiði vertíð- arinnar verði meiri, en þeir hafa nú lagt til, vil ég undirstrika að við getum alltaf gert ráð fyrir nokkrum sveiflum á loðnuafla. Við höfum ríka ástæðu til að hyggja að því hvemig þessum málum er komið hjá Norð- mönnum. Þar hefur verið um að ræða ofveiði úr stærsta loðnustofni heims. Hann er nú svo illa kominn vegna ofveiði, að þar má ekki veiða eina einustu loðnu á þessu ári og líklega ekki á næstu áruim Slíkt vilj- um við ekki að gerist á íslandi og reynslan frá árunum 1982 og 1983, þegar við máttum ekki veiða loðnu, er okkur vonandi enn í fersku minni. Við viljum ekki að það gerist aftur. Mér finnst menn þó vera ótrúlega fljótir að gleyma fyrri erfíðleikum í þessu efni. Menn ráðgera skipakaup og mikla fjárfestingu með hliðsjórt af því, sem bezt hefur gerzt að und- anfömu. Ég held að menn verði að muna að loðnuveiðar eru breytingum háðar og menn geti ekki alltaf búizt við því bezta," sagði Kristján Ragn- arsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.