Morgunblaðið - 09.05.1987, Síða 37

Morgunblaðið - 09.05.1987, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAI 1987 37 ALBERT GUÐMUNDSSON: „Of sterkir og víðsýnir til að vera í stjórnarsamstarfi“ FUNDUR þcirra Alberts Guð- mundssonar, formanns Borgara- flokksins, og Vigdísar Finnbogadóttur, forseta íslands, í gær stóð í 53 minútur, eða tveimur mínútum lengur en fundur forsetans með Steingrími Hermannssyni. Albert sagði að afloknum þeim fundi að hann væri sama sinnis og áður, Borg- araflokkurinn ætti að vera í stjórnarandstöðu. Hann sagði að enginn fulltrúi annarra flokka hefði rætt við sig um stjómar- samstarf og kvaðst hann telja skýringuna á því vera þá að aðr- ir flokkar væra hræddir við Borgaraflokkinn. Albert var spurður hvort Borg- araflokkurinn væri svo illa undirbú- inn málefnalega, að hann treysti sér ekki til þátttöku í ríkisstjóm: „Hann er vel undirbúinn, en það er ýmislegt sem þarf að gera, þeg- ar nýr flokkur er stofnaður.“ „Alveg tvímælalaust, en ég sé ekki að flokkurinn fari í ríkis- stjórn," svaraði Albert, þegar hann var spurður hvort hann myndi gera kröfu um ráðherraembætti, ef Borgaraflokkurinn yrði aðili að ríkisstjórn. Albert sagði að það væri ekkert hörð afstaða af sinni hálfu að Borg- araflokkurinn yrði utan stjórnar. „Ef þjóðfélagið þarf á honum að halda, þá er hann reiðubúinn, en þið verðið að gæta að því að stjórn- arandstaða er ekki minna áríðandi en stjórnarliðar," sagði Albert. - Hafa aðrir flokkar rætt við þig? „Nei, enginn." - Hvað finnst þér um það að enginn hefur rætt við þig og hveij- Morgunblaðið/Bjami Albert Guðmundsson, formaður Borgaraflokksins, kominn á fund Vigdísar Finnbogadóttur, forseta íslands, eftir hádegi í gær. ar telur þú skýringarnar á þvf? „Mér finnst það ágætt, því þá hef ég haft tíma til að gera ýmis- legt annað. Ég sé styrkleika í því að enginn hefur talað við okkur. Þeir eru hræddir við okkur. Þeir reikna með því að við séum of sterk- ir til þess að vera í stjórnarsamstarfi og of víðsýnir." „Með öllum flokkum," sagði Al- bert þegar hann var spurður með hvaða flokkum hann gæti hugsað sér að starfa í ríkisstjóm. „Það er ekkert annað en góðir íslendingar sem þjóðin kýs á þing. Það er eng- inn þingmaður sem hefur meiri rétt en annar. Ég sé ekki að menn þurfi að hafa einhver sérstök flokksskír- teini til þess að verða góðir ráð- herrar." Albert var spurður hvort hann óttaðist ekki að Borgaraflokkurinn yrði áhrifalítill flokkur, ef hann hefði ekki samstarf við aðra flokka og reyndi að komast til valda: „Það er svo abstrakt hvað eru völd. Haldið þið að það séu völd að vera í meirihluta þannig séð? Völd em mikil í stjórnarandstöðu, þannig séð, og ábyrgðin að vera í stjórnar- andstöðu er ekki minni en að vera í stjórnaraðstöðu." Albert var spurður hvort hann ætti ekki erfiðara með að reka fýrir- greiðslupólitík sína í stjórnarand- stöðu: „Það er svo mikið af góðum mönnum í embættismannaliðinu, að þegar þeir finna það að það er borið fram mál sem er réttlætismál fyrir einstaklinginn þá koma þeir málum í réttan farveg. Það skiptir engu máli hvort menn em við völd, eins og þið kallið, eða ekki við völd.“ Albert bar brigður á áætlaðan halla á ríkissjóði frá Þjóðhagsstofn- un, og kvaðst telja að hann yrði að minnsta kosti 5 milljarðar króna. Morgunblaðið/ÓI.K.M. Stefán Valgeirsson og Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, við upphaf fundar þeirra. STEFÁN VALGEIRSSON: Erfitt að mynda star fhæf astjórn STEFÁN Valgeirsson þingmaður Samtaka um jafnrétti og félags- hyggju gekk síðastur af forystu- mönnum flokkanna á fund forsetans, síðdegis í gær. Hann kvaðst að loknum fundinum með forseta hafa rætt það við forset- ann hver ætti ekki að fá umboð til stjórnarmyndunar, en sagðist ekki geta skýrt það nánar. Stefán sagði að ljóst væri að staðan væri erfið og mjög erfitt yrði að mynda starfhæfa ríkis- stjóm. „Ég hef engar tillögur haft uppi um það,“ sagði Stefán þegar hann var spurður hvort hann hefði í hyggju að sækja um inngöngu í þingflokk Framsóknarflokksins á nýjan leik, þegar Alþingi kemur saman í haust. Hann sagði jafn- framt að sér hefði ekki verið boðin innganga í þingflokkinn. „Mér finnst Framsóknarflokkur- inn ekkert ólíklegri en aðrir," sagði Stefán, er hann var spurður hvort hann teldi líklegast að Framsóknar- flokkurinn myndi veita næstu ríkisstjóm forystu. Hann sagði að ef slík stjóm yrði mynduð, þá færi það eftir málefnunum hvort hann styddi hana eða ekki. Ný versiun í Austurstræti 10: „Sannfærður um að verslun í gamla miðbænum á framtíð fyrir sér“ - segir Gunnar B. Dungal í Pennanum „ÉG HAFÐI lengi litið í kring- um mig eftir húsnæði undir verslunina við Austurstræti. Það fór mjög vel um okkur í Hafnarstrætinu, en þar var stækkun takmörkunum háð. I nóvember var ég búinn að ganga frá samningum um nýju verslunina i Hagkaupshúsinu. Þá birtist auglýsing um að þetta hús væri til leigu. Við hefðum getað beðið lengi áður en annað jafn stórt hús í götunni yrði laust. Auðvitað er þetta djarft, einfaldara hefði verið að taka enga áhættu. En ég er sann- færður um að verslun í gamla miðbænum á framtíð fyrir sér. Þetta verður alltaf hjarta borg- arinnar,“ sagði Gunnar Dungal, eigandi Pennans, sem opnaði nýja verslun í Austurstræti 10 í gær. Penninn hefur verið í mið- bænum frá upphafi. Fyrsta versl- un fyrirtækisins var opnuð í Leiðrétting MEINLEG prentvilla slæddist inn í grein Jóns Hjaltasonar í blaðinu í gær. Við upphaf fyrstu greinaskila í 5. dálki á að standa: „Jón segir marga umsækjendur hæfa, (m.a. einn sem Jón telur að standi sér framar)." — Biðst blaðið velvirðing- ar á þessum mistökum. desember árið 1932 í Ingólfshvoli við Pósthússtræti. Hún var flutt fyrir 35 árum í húsið í Hafnar- stræti 18 og starfaði þar fram í síðustu viku. Verslunin í Austurstræti er á þremur hæðum. Á jarðhæð eru seldar bækur, tímarit og gjafa- vara. í kjallara er verslað með ritfong og skrifstofugögn, þar er einnig lítil prentstofa sem mun taka að sér að prenta í flýti og litlu upplagi nafnspjöld, kveðju- kort og annað smáprent. Á annarri hæð er Gallerí Borg til húsa og deild fyrir teiknara og listmálara. Gunnar leggur áherslu á að Penninn haldi áfram rekstri versl- unarinnar í Hallarmúla. Deildir innan hennar muni raunar stækka, því málaradeildin flyst alfarið nið- ur í Austurstræti. „Við kynnum samspil þessara tveggja verslana með því að hafa hluti eins og skrif- stofuhúsgögn til sýnis í glugga- num í Austurstræti þótt þau séu ekki til sölu þar,“ segir Gunnar. „Við göngum út frá því að í Hall- armúla sé þjónað þeim sem reka teiknistofur og skrifstofur. Þang- að kemur fólk á bílum. Hér í miðbænum er fólk gangandi, á leið hjá og er að leita að gjöfum eða skrifstofuvörum. Á annarri hæð verður mjög full- komin málaradeild og samstarfið við galleríið verður örugglega árangursríkt. Það er sameiginleg- Úr hinni nýju verzlun Pennans í Austurstræti. Morgunblaðið/Einar Falur ur draumur okkar Borgarmanna að setukrókurinn á stigapallinum verði aðdráttarafl fyrir listamenn og áhugamenn sem geta sest þar niður, spjallað við kunningjana og fengið sér kaffisopa um leið og þeir sækja sér striga eða blýant." Gunnar sagði að þrátt fyrir inn- reið tölvunnar ykist notkun á pappírsgögnum ár frá ári. Hvert heimili væri í raun orðið lítið fyrir- tæki því nauðsyn bæri til að halda öllum kvittunum til haga. „Við höfum talið okkur hafa forystu á ritfangamarkaðinum og ætlum að halda henni," sagði Gunnar B. Dungal að lokum. Brezkur fjöllistamaður, Tim Bat, skemmti í nýju verzluninni. Gunnar B. Dungal

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.