Morgunblaðið - 09.05.1987, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987
32, Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva:
Athygli Evrópu
beinist að Brussel
Talið er að yfir fimm hundruð milljónir manna
muni fylgjast með keppninni í
beinni sjónvarpsútsendingu í kvöld
ÞAÐ er viðbúið að fáir verði á ferli um stræti og torg eftir
klukkan 19.00 í kvöld, á meðan Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva verður send út í beinni sjónvarpsútsendingu. Sú var
að minnsta kosti raunin í fyrra, þegar íslendingar þreyttu frum-
raun sína í þessari einstæðu dægurlagasamkeppni. Eftirvænting-
in var að vonum mikil þótt afraksturinn hafi ef til vill orðið
rýrari en menn gerðu sér vonir um, - og ekki orð um það rneir.
Nú þykjumst við vera reynslunni ríkari, staðráðnir í að taka
öllu með jafnaðargeði, afslappaðir og yfirvegaðir, en vonum
þó það besta, minnugir orða tónskáldsins: „að allt fyrir ofan
Halla Margrét Árnadóttir flytur lag Valgeirs Guðjónssonar, „Hægt
og hljótt“ fyrir hönd íslands í keppninni í kvöld. Sjálfsagt mun þorri
þjóðarinnar standa með henni í huganum á sviðinu á meðan á því
stendur.
16. sæti er sigur“.
Raunar erum við íslendingar ekki
einir um að bíða þessarar keppni
með eftirvæntingu. Áætlað er að
jrfír 500 milljónir manna, um alla
Evrópu, muni fylgjast með keppn-
inni í sjónvarpi og viðbúið að aðrir,
sem ekki hafa sjónvarp við hönd-
ina, verði með útvarpstæki sín stillt
á Briissel á meðan keppnin fer
fram. Eitt er alveg víst, að athygli
flestra Evrópubúa mun beinast að
þessum eina punkti í álfunni á tíma-
bilinu frá klukkan 19.00 til 22.00
í kvöld og aðrir atburðir falla í
skuggann á meðan, þar á meðal
stjómarmyndunarviðræður á ís-
landi.
Sigursælir Luxemborg-
arar
Fyrsta Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva var haldin árið
1956. Það var í borginni Lugano í
Sviss og sigurvegari varð sviss-
neska söngkonan Lys Assia.
Þáttökuþjóðir í þessari fyrstu
söngvakeppni voru mun færri en
nú er, enda var sjónvarp þá að slíta
bamsskónum og Evrópuþjóðir
misjafnlega á vegi staddar með að
tileinka sér þennan nýja miðil. í því
sambandi má minna á að það var
ekki fyrr en 10 áram seinna, sem
íslenskt sjónvarp varð að veraleika.
Þáttökuþjóðum fjölgaði þó jafnt
og þétt eftir því sem árin liðu. Á
fyrstu áram keppninnar vora
Frakkar einna atkvæðamestir á
verðlaunapallinum. Þeir unnu
keppnina á árunum 1959, 1960 og
1962, en svo ekki aftur fyrr en 15
áram síðar, árið 1977. Síðan hafa
Frakkar ekki riðið feitum hesti frá
keppninni. Hollendingar bára sigur
úr býtum annað árið sem keppnin
var haldin, árið 1957 og svo aftur
árið eftir, 1958, en 17 ár liðu áður
en vegsemdin féll þeim aftur í
skaut. Það var árið 1975 og hafa
Hollendingar ekki sigrað í keppn-
inni síðan.
Luxemborg hefur oftast borið
sigur úr býtum í Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva, eða alls
fímm sinnum. Fyretur til að vinna
keppnina fyrir hönd Luxemborgar
var söngvarinn Jean-Claude Pascal
árið 1961. Síðan komu söngkonurn-
ar France Gall 1965, Vicky Leand-
ros 1972, Anne-Marie David 1973
og Corinne Herues 1983. Með þessu
hafa Luxemborgarar sýnt að smá-
þjóðir eiga ekki síður upp á pall-
borðið í keppninni.
Bretar hafa sigrað fjóram sinn-
um. Fyrst var það árið 1967, þegar
söngkonan Sandie Shaw færði þeim
sigurinn með laginu „Puppet On A
String", en hún var þá ein þekkt-
asta poppsöngkona Breta. Stall-
systir hennar, sem ekki var síður
fræg og vinsæl, söngkonan Lulu,
sigraði árið 1969 með laginu „Boom
Bang A Bang“. Bretar sigraðu svo
aftur árið 1976 þegar söngsveitin
Brotherhood of Man söng lagið
„Save Your Kisses For Me“ og árið
1981 þegar Bucks Fizz-flokkurinn
söng lagið „Making Your Mind
Up“. Þess skal þó getið, að granur
leikur á að Bretar taki Eurovision-
keppnina ekki alvarlega og telji sig
vera á „öðra plani" tónlistarlega séð
en aðrar Evrópuþjóðir. Það má
vissulega til sanns vegar færa, að
Bretar era öðram þjóðum fremri í
popp- og dægurtónlist og þaðan
hafa komið mörg helstu stórmenni
poppsögunnar. Þeir hafa því ekki
þurft Eurovision til að vekja á sér
athygli.
Danmörk varð fyrst Norðurlanda
til að sigra í keppninni. Það voru
hjónakomin Gréta og Jörgen Ing-
man sem það afrek unnu árið 1963
með laginu „Dansevise". Svíar tóku
síðan keppnina með trompi árið
1974 þegar ABBA-flokkurinn kom
fram á sjónarsviðið með lagið „Wat-
erloo". Segja má að keppnin það
árið, sem haldin var í Brighton á
Englandi, hafí valdið þáttaskilum.
í fyrsta skipti í sögu keppninnar
náðu sigurvegaramir því að verða
stórstjömur á heimsmælikvarða. Á
einni nóttu varð ABBA ein vinsæl-
asta hljómsveit poppsögunnar og
hélt hún vinsældum sínum í áratug.
Svíar sigraðu svo aftur árið 1984
þegar Herrey-bræður mættu til
leiks með lagið „Diggi-Loo Diggi-
Ley“. Norðmönnum gekk hins
vegar lengst af fremur illa í keppn-
inni. Ósjaldan vermdu þeir neðsta
sætið og á tímabili vora þeir famir
að taka þeirri útreið sem sjálfsögð-
um hlut. Það var ekki fyrr en þeir
snera við blaðinu og sendu inn lauf-
létt sveiflulag, að sigurinn féll þeim
í skaut árið 1985.
Ekki er ástæða til að fara hér
nánar út í sögulegt yfirlit þessarar
keppni. Aðrar þjóðir en framan-
greindar, sem sigrað hafa í Euro-
vision era: Italía 1964, Austurríki
1966, Spánn 1968, írland 1970 og
1980, Monaco 1971, ísrael 1978
og 1979, Vestur-Þýskaland 1982
og svo Belgía í fyrra, þegar hin
komunga Sandra Kim vann hug
og hjörtu manna með „krúttlegri"
smæð sinni, sögum af rjómaís og
kannski ekki síst laginu sínu
„J’amie la vie“.
Umstang í Briissel
Fulltrúar íslands í söngvakeppn-
inni í ár héldu til Briissel síðastliðinn
sunnudag ásamt fríðu föraneyti.
Ljóst er af fréttum þaðan að fólkið
hefur ekki verið aðgerðarlaust
þessa vikuna enda fylgir keppninni
víðtæk kynningarstarfsemi, fyrir
utan æfingar og annan undirbún-
ing. Samkvæmt viðtekinni 'hefð í
Eurovision beinist mesta athyglin
að flytjendum laganna og þar af
leiðandi hefur mest mætt á söng-
konunni Höllu Margréti Ámadóttur
hvað varðar kynningu á landi og
þjóð. Þykir hún hafa staðið sig af-
burðavel hvað það varðar. Höfund-
ur lagsins, Valgeir Guðjónsson, er
líka maður í traustara lagi, bæði
til orðs og æðis, og að baki þeim á
sviðinu í kvöld verða söngvaramir
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Egill Ólafs-
son og Sverrir Guðjónsson, ásamt
hljómsveitarstjóranum Hjálmari H.
Ragnarssyni. Víst er að Islendings-
hjarfað mun slá hraðar þegar þau
birtast á skjánum í kvöld og í hug-
anum stendur öll þjóðin að baki
þeirra.
Ekki er ástæða til að vera með
vangaveltur um sigurmöguleika
einstakra laga, enda ríkir óvenju
mikil óvissa meðal spámanna í þeim
efnum og staða laganna hjá veð-
bönkum hefur verið að breytast frá
degi til dags. Þáttökuþjóðimar eru
nú fleiri en nokkra sinni fyrr, eða
22 talsins. Röð þeirra í keppninni
í kvöld verður sú sama og í sjón-
varpskynningunni nýverið en hún
er þessi:
1. Noregur.
Framlag Norðmanna heitir „Mitt
liv“ og er flutt af söngkonunni
Kate. Höfundur lagsins er Rolf
Lövland og er textinn eftir hann
og Hanne Krogh. Rolf samdi sigur-
lag Norðmanna 1985 „Lar det
swinge" og Hanne Krogh er helm-
ingur Bobbysocks-dúettsins, sem
flutti lagið sællar minningar.
2. ísrael.
Það era leikararnir Datener og
Kushnir sem verða fulltrúar ísrael
að þessu sinni með lagið „Shir
Habatlanim". Framlag þeirra fé-
laga hefur vakið talsverða athygli
og sýnist sitt hveijum. Þykir sum-
um þetta með afbrigðum skemmti-
legt tiltæki, en aðrir telja lagið
vanvirðingu við keppnina. Fregnir
frá Israel herma að þar í landi hafi
komið til umræðu að stöðva lagið
með valdboði og kröfur hafðar uppi
um afskipti stjómvalda.
3. Austurríki.
Lagið ber heitið „Nur Noch Gefu-
ehl“ flutt af söngvaranum Gary
Lux, sem er vel þekktur á sínum
heimaslóðum. Laginu hefur ekki
verið spáð velgengni í keppninni,
samkvæmt veðbönkum.
4. ísland.
Lag Valgeirs Guðjónssonar,
„Hægt og hljótt", flutt af söng-
konunni Höllu Margréti Ámadótt-
ur. Bakraddir syngja Diddú, Egill
Ólafsson og Sverrir Guðjónsson.
Hljómsveitarstjóri er Hjálmar H.
Ragnarsson. Okkar fólk í Brussel.
Lagið hefur verið staðsett miðsvæð-
is í keppninni samkvæmt veðbönk-
um, en þeir era ekki endanlegur
dómur. Hann verður kveðin upp af
dómnefndum víðs vegar í Evrópu
og því skiptir öllu máli að vel ta-
kist til í kvöld og við vonum
auðvitað það besta.
5. Belgia.
Lagið „Soldiers of Love“ flutt af
söngkonunni Liliane St. Pierre.
Hefur hlotið fremur dræmar undir-
tektir í veðbönkum.
6. Svíþjóð.
Það er söngkonan Lotta Engberg
sem er fulltrúi Svíþjóðar að þessu
sinni með lagið „Boogaloo". Lotta
er gift tónlistarmanninum Anders
Engberg og eiga þau hjón von á
bami næstu daga. Raunar er svo
stutt í fæðinguna að óvíst er hvort
það verður Lotta sjálf sem mætir á
sviðið í kvöld og er önnur söngkona
í viðbragðsstöðu til að leysa hana
af ef hríðimar verða byijaðar. Lag-
inu er samt sem áður spáð vel-
gengni og talið víst að það lendi í
einhveiju af efstu sætunum og jafn-
vel sigri.
7. Ítalía. Lagið „Gente Di
Mare“ sungið af Umberto Tozzi og
Raf. Sá fyrmefndi er einn vinsæl-
asti söngvari ítala og vel þekktur
viða í Evrópu og er það talið geta
orðið laginu mjög til framdráttar
enda er því spáð velgengni og jafn-
vel sigri.
8. Portúgal.
Lagið „Neste Barco A Vela“
sungið af Alfredo Azinheira og
Jorge Mendes. Lagið hefur fengið
einna lakasta útkomu í veðbönkum
og er ekki talið líklegt til stórræðna.
9. Spánn.
Söngkonan Patricia Kraus flytur
lagið „No Estas Solo“ og er hún
jafnframt höfundur textans. Veðjað
hefur verið á að lagið verði um
miðja keppnina.
10. Tyrkland.
Lagið „Sarkim Sevgi Ustune"
flutt af Locomotif. Veðbankar hafa
spáð laginu slæmu gengi og sam-
kvæmt skoðanakönnunum virðist
neðasta sætið ekki ólíklegt.
11. Grikkland.
Lagið “Stcp“ í flutningi popp-
hljómsveitarinnar Bang. Veðbankar
spá laginu meðalgengi.
12. Holland.
Lagið „Rechtop In De Regen" í
flutningi Marcha. Samkvæmt veð-
bönkum lendir lagið fyrir aftan
miðju.
13. Luxemborg.
Söngvarinn Plastic Bertrand flyt-
ur lagið „Amour-Amour“. Söngvar-
inn, sem raunar er fæddur i Belgíu,
er vel þekktur rokksöngvari í Evr-
ópu og hefur jafnvel komið lagi á
vinsældarlista í Bandaríkjunum.
Frægð söngvarans ætti því að koma
laginu til góða en samkvæmt veð-
bönkum er því þó ekki spáð góðu
gengi.
14. Bretland.
Það er söngvarinn Rikki Peebles
sem flytur eigið lag, sem er framlag
Breta að þessu sinni, „Only the
Light". Rikki var eitt sinn í vel
þekktri popphljómsveit „Middle of
the Road“ og á seinni árum hefur
hann einnig haslað sér völl sem leik-
ari, bæði á sviði og í sjónvarpi.
Veðbankar hafa verið honum já-
kvæðir og samkvæmt þeim lendir
hann í einhveiju af efstu sætunum.
15. Frakkland.
Fulltrúi Frakka er söngkonan
Christine Minier með lagið „Les
Mots d’Amour". Christine er komin
af tónelskri fjölskyldu og er lagið
eftir bróður hennar Marc Miner og
afi gamli, Gerard Curci, samdi text-
ann. Veðbankar hafa verið fremur
jákvæðir í garð Christine Minier og
samkvæmt þeim verður hún fyrir
ofan 10. sæti.
16. Þýskaland.
Framlag Þjóðveija er lagið „Lass
die Sonne in dein Herz“ í flutningi
hljómsveitarinnar Wind. Veðbankar
fremur hagstæðir og samkvæmt
þeim verður lagið ofarlega í keppn-
inni.
17. Kýpur.
Söngkonan Alexia Vasiliou var
aðeins táningur þegar hún tók þátt
í Evrópusöngvakeppninni í fyrsta
sinn, í Dublin árið 1981, en það var
í fyrsta sinn sem Kýpur tók þátt í
keppninni. Alexia var þá í hópnum
sem flutti lagið Monica, sem lenti
írski söngvarinn Johnny Logan og Valgeir Guðjónsson á blaðamanna-
fundi sem Skífan hélt í BrUssel á fimmtudag til að kynna framlag
og flytjendur íslendinga í keppninni. Johnny Logan er talinn einna
sigurstranglegastur I keppninni ásamt ítalska söngvaranum Um-
berto Tozzi.