Morgunblaðið - 09.05.1987, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAI 1987
ÚTVARP / SJÓNVARP
Spor
Aðstandendur fimmtudagsleik-
ritsins Spor í sandi voru
Benedikt Ámason er leikstýrði, Jón
R. Gunnarsson er snaraði texta lett-
neska rithöfundarins Lelde Stumbre
og svo léku þau Ragnheiður Steind-
órsdóttir, Sigurður Skúlason og
Rúrik Haraldsson í verkinu og hvað
um efnisþráðinn: Leikritið gerist á
sjávarströnd þar sem karl og kona
sitja á tali í fjörusandinum. Af sam-
tali þeirra má ráða að þau hafi einu
sinni verið hjón en leiðir þeirra skilið
vegna drykkjuskapar mannsins. Hún
virðist ekki hafa fundið hamingjuna
í nýju hjónabandi þrátt fýrir reglu-
semi og efnahagslegt öryggi. Ljóst
er að undir niðri bera þau enn hlýjar
tilfmningar hvort til annars.
ÍGrímsnesinu
Tómas endar kvæðið; Ljóð um
unga konu frá Súdan á eftirfarandi
hendingu:
Og meðan kvöldljósin kynjabirtu
um kristal og silki hlóðu,
og naktir armar og hijúfir hljómar
hverfðust í glitrandi móðu,
mér dvaldist við hennar dökku fegurð.
Samt dáðist ég enn meir að hinu,
hve hjörtum mannanna svipar saman
í Súdan og Grímsnesinu.
Sjaldan hefír skáld hnýtt snjallari
slaufu á ástþrungið ljóð en þá Tómas
slengdi saman Súdan og Grímsnes-
inu. Lettneski rithöfundurinn Lelde
Stumbre lék sama leik í fímmtudags-
leikritinu. Þar leiddi hann saman eins
og áður sagði fýrrum elskendur er
geta ekki skilið að skiptum þrátt
fyrir að karlinn sé á leiðinni í stræt-
ið sökum drykkjuskapar en konan
dvelji að baki víggirðingar hjóna-
bandsins. Hjörtun slá í takt og því
ber ég þetta leikverk saman við
kvæði Tómasar að hér er raunar lýst
sögu sem á jafnt við í Lettlandi og
í Grímsnesinu. Sumt fólk er skapað
til að elskast en á samt ekki saman
í blíðu og stríðu hjónabandsins. Göm-
ul og lúin saga kann einhver að segja
en það er ekki sama hvemig hún er
sögð.
Leikurinn
Þau Rúrik í hlutverki flækings-
karls er rekst á parið í fjörusandin-
um, Sigurður Skúlason í hlutverki
karlpeningsins og Ragnheiður Stein-
þórsdóttir í hlutverki konunnar sögðu
söguna hans Lelde Stumbre. Rúrik
var einkar hressilegur í hlutverki
flækingsins og Sigurður Skúlason lék
prýðilega en hvað þá um Ragnheiði
Steinþórsdóttur? Fyrrgreint ljóð
Tómasar af ungri konu í Súdan hefst
á eftirfarandi hendingu:
Það er afríkanskt myrkur í æðum hennar,
sem órótt og niðandi rennur.
Og göldróttur eldur í augum hennar,
sem ýmist dvín eða brennur.
Þessi lýsing á prýðilega við leik
Ragnheiðar Steinþórsdóttur í verki
Stumbre. Fleiri orð eru óþörf en
Benedikt Ámason leiddi þau Ragn-
heiði og Sigurð saman á stefnumótið
kringum hljóðnemann á Skúlagö-
tunni. Það er gott til þess að vita
að fagmenn eiga enn skjól á öldum
hins íslenska ljósvaka. Eins þótt þar
sé aðeins verið að segja hversdags-
lega og margsagða sögu.
Granada
Síðastliðið fimmtudagskveld var
ekki aðeins leikrit á dagskrá rásar
1. Hlín Agnarsdóttir færði okkur
síðar um kveldið ögn nær leikskáld-
inu frá Granada; Federico Garcia
Lorca. Tilefnið var væntanleg sýning
Þjóðleikhússins á Yerma og ræddi
Hlín við þýðandann Karl Guðmunds-
son, leikstjórann Þórhildi Þorleifs-
dóttur og Hjálmar H. Ragnarsson
er sér um tónlistina. En fyrst rakti
Hlín nokkuð feril Garcia Lorca og
svo var náttúrulega spiluð þessi
magnaða tónlist frá Granada. Fannst
mér þá um stund sem ég sæti í Al-
hambra.
Ólafur M.
Jóhannesson
Ríkissjónvarpið:
Söngvakeppni
sj ónvarpsstöð va
í Evrópu 1987
■■M í kvöld kemur
1 Q00 í Ijós hvemig
íslenska laginu
„Hægt og hljótt“ reiðir
af í Söngvakeppninni.
Ben útsending frá Brux-
elles hefst kl. 19 og mun
hún verða þar til keppn-
inni er lokið. Keppnin er
nú haldin í 32. sinn með
þátttöku. 22ja þjóða en
Islendingar taka nú þátt
öðru sinni með laginu
„Hægt og hljótt" eftir
Valgeir Guðjónsson sem
Halla Margrét Ámadóttir
syngur. Kolbrún Hall-
dórsdóttir lýsir keppninni
sem verður útvarpað
samtímis.
Kolbrún Halldórsdóttir
mun lýsa keppninni í
beinni útsendingu.
Rás 2:
Popp-
gátan
■■■■ Poppgátan er á
"| A 00 dagskrá Rásar 2
-■- eftir hádegi í
dag. Það eru Gunnlaugur
Ingvi Sigfússon og Jónatan
Garðarsson sem stýra þess-
um spuningaþætti um
dægurtónlist. Keppendur í
þessum þætti eru Björgvin
Þórirsson og Bjöm Gunn-
laugsson.
UTVARP
0
LAUGARDAGUR
9. maí
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 „Góðan dag, góðir
hlustendur.” Pétur Péturs-
son sér um þáttinn. Fréttir
eru sagöar kl. 8.00, þá lesin
dagskrá og veöurfregnir
sagöar kl. 8.15. Að þeim
loknum er lesið úr forustu-
greinum dagblaðanna en
síðan heldur Pétur Péturs-
son áfram að kynna
morgunlögin. Fréttir á
ensku sagöar kl. 8.30.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 í morgunmund. Þáttur
fyrir börn í tali og tónum.
Umsjón: Heiðdís Norðfjörð.
(Frá Akureyri.)
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Óskalög sjúklinga.
Helga Þ. Stephensen kynn-
ir. Tilkynningar.
11.00 Visindaþátturinn.
Umsjón: Stefán Jökulsson.
11.40 Næst á dagskrá.
Stiklað á stóru í dagskrá
útvarps um helgina og
næstu viku. Umsjón: Trausti
Þór Sverrisson.
12.00 Hér og nú.
Fréttir og fréttaþáttur f viku-
lokin í umsjá fréttamanna
útvarps.
12.45 Veöurfregnir.
12.48 Hér og nú, framhald.
13.00 Tilkynningar. Dagskrá.
Tónleikar.
14.00 Sinna.
Þáttur um listirog menning-
armál. Umsjón: Þorgeir
Ólafsson.
15.00 Tónspegill.
Þáttur um tónlist og tón-
menntir á líðandi stund.
Umsjón: Magnús Einarsson
og Ólafur Þórðarson.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið,
17.00 Ljóöatónleikar Peters
Schreier 1. ágúst í fyrra á
Tónlistarhátíðinni í Lúðvíks-
borg.
Norman Shetler leikur með
á píanó. Ljóðasöngvar eftir
Robert Schumann.
a. „Liederkreis" op. 24.
b. „Ástirskáldsins" op. 48.
(Hljóöritun frá útvarpinu í
Stuttgart.)
18.00 Islenskt mál. Gunnar
Ingólfsson flytur þáttinn.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.30 Kvöldfréttir.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Söngvakeppni sjón-
varpsstöðva í Evrópu.
Bein útsending frá Bruxelles
samtengd útsendingu sjón-
varpsins.
i
SJÓNVARP
LAUGARDAGUR
9. maí
16.00 fþróttir
Umsjónarmaður: Bjarni Fel-
ixson.
17.30 Litli græni karlinn —
Lokaþáttur
Sögumaður: Tinna Gunn-
laugsdóttir.
17.45 Garðrækt
2. Harðgerð sumarblóm
Norskur myndaflokkur í tíu
þáttum. Þýðandi: Jón O.
Edwald. (Nordvision —
Norska sjónvarpið.)
18.10 Fréttaágrip á táknmáli
18.15 Fréttir og veður
18.45 Auglýsingarog dagskrá
19.00 Söngvakeppni sjón-
varpsstöðva í Evrópu 1987
Bein útsending frá Bruxelles
þar sem þessi árlega keppni
er haldin í 32. sinn með
þátttöku 22 þjóða. Islend-
ingar taka nú þátt í keppn-
inni öðru sinni með laginu
„Hægt og hljótt" eftir Val-
geir Guðjónsson sem Halla
Margrét Árnadóttir syngur.
Kolbrún Halldórsdóttir lýsir
keppninni sem verður út-
varpaö samtímis.
21.56 Lottó
22.00 Fyrirmyndarfaðir
(The Cosby Show) — 16.
þáttur.
Bandarískur gamanmynda-
flokkur með Bill Cosby f
titilhlutverki. Þýðandi: Guðni
Kolbeinsson.
22.30 Taumleysi
(Written on the Wind)
Bandarísk bíómvnd frá árinu
1956. Leikstjóri: Douglas
Sirk: Aðalhlutverk: Lauren
Bacall, Rock Hudson, Ro-
bert Stack og Dorothy
Malone.
Einkaritari giftist vinnuveit-
anda sinum sem er olíugreifi
og þekktur glaumgosi.
Hann er þó ekki eini svarti
sauöurinn í fjölskyldunni
eins og brúðurin á eftir að
kynnast. Þýðandi: Óskar
Ingimarsson.
00.15 Dagskrárlok.
(í
0
STOD2
LAUGARDAGUR
9. maí
§ 09.00 Kum, Kum. Teikni-
mynd.
§ 09.25 Jógi björn. Teikni-
mynd.
§ 09.50 Teiknimynd.
§ 10.15 Teiknimynd.
§ 10.40 Teiknimynd.
§ 11.00 Börn lögreglufor-
ingjans. Nýr ítalskur
myndaflokkur fyrir börn og
unglinga. Þrjú börn takast á
við erfið sakamál og lenda
í ýmsum ævintýrum.
§11.30 Fimmtán ára
(Fifteen).
I þessum þáttum fara ungl-
ingar með öll hlutverk og
semja textann jafnóðum.
12.00 Hlé.
§ 16.00 Ættarveldið (Dyn-
asty).
Samkomulagið er ekki upp
á marga fiska hjá Carring-
ton-fjölskyldunni.
§ 16.46 Myndrokk.
§ 17.05 Biladella (Auto-
mania).
I þessum þætti greinir frá
ævintýramönnum sem
lögðu upp í fyrstu langferö-
irnar, oft um vegleysur og
yfir torfærur, á þeim frum-
stæðu farartækjum sem
bílar voru upp úr aldamótun-
um.
§ 17.30 NBA-körfuboltinn.
Umsjónarmaður er Heimir
Karlsson.
19.00 Kóalabjörninn
Snari. Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Allt er þegar
þrennt er (Three’s A Comp-
any).
Bandarískur gamanþáttur
með John Ritter í aðalhlut-
verki.
20.25 Undirheimar
Miami (Miami Vice).
Bandariskur spennuþáttur
með Don Johnson og Mich-
ael Thomson í aðalhlutverk-
um.
§21.15 Bráðum kemur
betri tíð (We'll meet again).
Þessi breski framhaldsþátt-
ur lýsir lífinu í smáþæ á
Englandi i seinni heimsstyrj-
öldinni. Aöalhlutverk:
Susannah York og Michael
J. Shannon.
§22.15 Nútímasamband
(Modern Romance).
Bandarísk sjónvarpsmynd
frá 1981. Robert og Mary
eiga i ástarsambandi sem
stundum hefur verið lýst
með oröunum „haltu mér,
slepptu mér". Robert er
óviss: Er Mary sú eina rétta
eða ætti hann kannske að
yfirgefa hana og snúa sér
að þvi að leita að hinni einu
réttu. Aöalhlutverk: Albert
Brooks og Kathryn Harrold.
Leikstjórn: Albert Brooks.
§ 23.45 Dreginn á tálar
(Betrayed By Innocence).
Bandarísk mynd frá 1986.
Myndin fjallar um hjón sem
vinna bæði mikiö og gefa
sér ekki tíma til að hlúa að
ástinni í hjónabandinu. Inn
í líf þeirra kemur unglings-
stúlka sem táldregur eigin-
manninn. . Þegar faðir
stúlkunnar fréttir af sam-
bandi þeirra, ákærir hann
manninn fyrir að hafa mök
við stúlku undir lögaldri.
Aöalhlutverk: Barry Bost-
wick, Lee Purcell, Cristen
Kauffman. Leikstjórn: Elliot
Silverstein.
§01.25 Myndrokk.
03.00 Dagskrárlok.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Tónmál.
Heinrich Neuhaus; listin aö
leika á píanó. Soffía Guð-
mundsdóttir flytur fimmta
þátt sinn.
23.00 Harmonikuþáttur.
Umsjón: Sigurður Alfons-
son.
23.30 Danslög.
24.00 Fréttir.
00.05 Miönæturtónleikar. Um-
sjón: Jón Örn Marinósson.
01.00 Dagskrárlok. Næturút-
varp á samtengdum rásum
til morguns.
wa
LAUGARDAGUR
9. maí
01.00 Næturútvarp. Georg
Magnússon stendur vakt-
ina.
6.00 I bítið. Rósa Guðný Þór-
isdóttir kynnir notalega
tónlist í morgunsárið.
9.03 Tíu dropar. Helgi Már
Barðason kynnir dægurlög
af ýmsu tagi og upp úr kl.
10.00 drekka gestir hans
morgunkaffið hlustendum til
samlætis.
11.00 Lukkupotturinn. Bjarni
Dagur Jónsson sér um þátt-
inn.
12.45 Listapopp í umsjá
Gunnars Salvarssonar.
(Þátturinn verður endurtek-
inn aðfaranótt þriðjudags kl.
02.00.)
14.00 Poppgátan. Gunnlaug-
ur Ingvi Sigfússon og
Jónatan Garðarsson stýra
spurningaþætti um dægur-
tónlist. Keppendur i 8.
þætti: Björgvin Þórisson og
8jörn Gunnlaugsson. (Þátt-
urinn verður endurtekinn nk.
þriðjudagskvöld kl. 21.00.)
15.00 Við rásmarkið. Þáttur
um tónlist, íþróttir og sitt-
hvað fleira í umsjá Sigurðar
Sverrissonar og íþrótta-
fréttamannanna Ingólfs
Hannessonar og Samúels
Arnar Erlingssonar.
17.00 Savanna, Rió og hin
tríóin. Svavar Gests rekur
sögu íslenskra söngflokka í
tali og tónum.
18.00 Fréttir á ensku
18.10 Hitaö upp fyrir söngva-
keppnina.
18.30 Kvöldfréttir.
18.45 Tilbrigði. Þáttur í umsjá
Hönnu G. Siguröardóttur.
Þátturinn verður endurtek-
inn aðfaranótt miðvikudags
kl.02.00).
20.00 Með sínu lagi. Umsjón:
Guðrún Gunnarsdóttir.
21.00 Á mörkunum. — Sverrir
Páll Erlendsson. (Frá Akur
eyri.)
22.05 Snúningur. Vignir
Sveinsson kynnir gömul og
ný dægurlög.
00.05 Næturútvarp. Snorri
Már Skúlason stendur vakt-
ina til morguns.
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00,
10.00, 12.00, 16.00, 19.00,
22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP
AKUREYRI
18.00—19.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5.
Um að gera. Þáttur fyrir
unglinga og skólafólk.
LAUGARDAGUR
9. maí
08.00—12.00 Valdís Gunnars-
dóttir. Valdís leikur tónlist
úr ýmsum áttum, lítur á það
sem framundan er hér og
þar um helgina og tekur á
móti gestum. Fréttir kl.
08.00 og 10.00.
12.00—12.10 Fréttir.
12.10— 15.00 Ásgeir Tómas-
son á léttum laugardegi.
Öll uppáhaldslögin á sínum
stað. Fréttir kl. 14.00.
16.00—17.00 Vinsældalisti
Bylgjunnar. Jón Gústafsson
leikur 40 vinsælustu lög vik-
unnar. Fréttir kl. 16.00.
17.00—19.00 Laugardags-
popp á Bylgjunni með
Þorsteini Ásgeirssyni. Frétt-
ir kl. 18.
19.00-21.00 Rósa Guð-
bjartsdóttir lítur á atburði
síðustu daga, leikur tónlist
og spjallar við gesti. Fréttir
kl. 19.00.
21.00—23.00 Anna Þorláks-
dóttir i laugardagsskapi.
Anna trekkir upp fyrir helg-
ina.
23.00—04.00 Þorsteinn Ás-
geirsson nátthrafn Bylgj-
unnar heldur uppi helgar-
stuðinu.
04.00—08.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Haraldur Gísla-
son með tónlist fyrir þá sem
fara seint í háttinn og hina
sem fara snemma á fætur.
ALFA
FM 1M,|
LAUGARDAGUR
9. maí
13.00 Skref í rétta átt. Stjórn-
endur: Magnús Jónsson,
Þorvaldur Danielsson og
Ragnar Schram.
14.30 Tónlistarþáttur í umsjón
Hákonar Muller.
16.00 Á beinni braut. Ungl
ingaþáttur. Stjórnendur:
Gunnar Ragnarsson og
Sæmundur Bjarklind.
17.00 Hlé.
22.00 Vegurinn til lifsins:
Stjórnandi: Ragnar Wi-
encke.
24.00 Dagskrárlok.