Morgunblaðið - 09.05.1987, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987
JON BALDVIN HANNIBALSSON:
Lýsti mig reiðubúinn
eins og skyldan býður
Morgunblaðið/Bjami
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, og Vigdís Finn-
bogadóttir, forseti íslands, á skrifstofu forseta við upphaf fundar
þeirra.
FUNDUR forseta íslands,
Vigdísar Finnbogadóttur, með
Jóni Baldvin Hannibalssyni,
formanni Alþýðuflokksins, í gær-
morgun stóð í 49 mínútur. Jón
Baldvin sagði að fundinum lokn-
um að hann hefði enga tillögu
gert um það við forsetann, hveij-
um hún feli umboðið til stjórnar-
myndunar, „en ég Iýsti mig til
þjónustu reiðubúinn, eins og öllu
stjóramálaforingjum ber skylda
til að vera,“ sagði Jón Baldvin.
„Ég vek athygli á því, að það
verður engin þriggja flokka ríkis-
stjórn mynduð án Sjálfstæðis-
flokksins," sagði Jón Baldvin. Hann
sagðist telja að reyna bæri að
mynda ríkisstjóm Sjálfstæðisflokks
og Alþýðuflokks með Kvennalista
eða Alþýðubandalagi. Jón Baldvin
benti á að Þorsteinn Pálsson hefði
lýst því yfír að sjálfstæðismenn
hugsuðu þessar stjómarmyndunar-
viðræður ekki út frá þeim gmndvelli
að fráfarandi stjómarflokkar væru
að leita að þriðja aðila. „Heldur að
þetta séu nýjar stjórnarmyndunar-
viðræður, þriggja aðila á jafnréttis-
grundvelli, þar sem allt er á borðinu:
nýr málefnasamningur, verkaskipt-
ing og stjórnarforysta," sagði Jón
Baldvin.
Jón Baldvin kvaðst vilja reyna
viðræður við fulltrúa Kvennalista,
en hann væri vissulega enn þeirrar
skoðunar að samstarf Alþýðuflokks
og Alþýðubandalags í ríkisstjóm
með Sjálfstæðisflokki gæti verið
vænlegur kostur, að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum.
„Það er annarra að meta, en
mitt,“ sagði Jón Baldvin er hann
var spurður hver væri vænlegt for-
sætisráðherraefni í slíka stjóm.
Hann sagði jafnframt aðspurður að
það kæmi vel til álita að Þorsteinn
Pálsson leiddi slíka ríkisstjóm. Allt
væri til umræðu í því efni, en fyrst
væri að ræða málefnin, síðan verka-
skiptingu og forystu.
„Ég get ekkert fullyrt um það
fyrir hönd Þorsteins, en ég stend
við það sem ég hef sagt,“ var svar
Jóns Baldvins við spumingu þess
efnis hvort hann og Þorsteinn Páls-
son væm sammála um að gefa
bæri Framsóknarflokknum frí frá
stjómarþátttöku. Hann kvaðst ekki
útiloka stjómarþátttöku Framsókn-
arflokksins, þar sem Alþýðuflokk-
urinn ætti aðild, en hann teldi það
æskilegt að Framsóknarflokkurinn
ÞÆR Guðrún Agnarsdóttir og
Kristín Karlsdóttir fulltrúar
Kvennalista áttu fund með
Vigdísi Finnbogadóttur, forseta
íslands, sem stóð í 51 mínútu.
Guðrún sagði að fundinum lokn-
um að skilaboðin frá kjósendum
væru mjög skýr og kvennalista-
konur vildu svara þeim kröfum
sem kjósendur hefðu gert til
stjórnmálamanna.
Guðrún neitaði að svara því
hvort hún hefði gert tillögu við
forsetann um hveijum hún feli
stjóraarmyndunarumboðið, en
sagði aðspurð um hvort hún væri
tilbúin til þess að taka við umboð-
inu að kvennalistakonur væru
reiðubúnar til þess að axla
ábyrgð.
„Spumingin er hveijir eru tilbún-
ir til þess að gera þetta með okkur,"
sagði Guðrún. Hún sagði að hún
fengi frí eftir 16 ára stjómarsetu.
Hann taldi að stjómarmyndunarvið-
ræður gætu orðið erfiðar og dregist
á langinn.
Jón Baldvin var spurður hvort
forystumenn Alþýðuflokks og Al-
þýðubandalags hefðu rætt það að
undanfömu að rétt væri að fara
að skoða sameiningu flokkanna af
einhverri alvöm: „Það hefur lengi
verið á dagskrá, en draumurinn um
sameiningu vinstri manna og stóran
jafnaðarmannaflokk er bæði gamall
og nýr.“
og Kristín hefðu rætt við forsetann
um þá stöðu sem nú væri uppi í
stjómmálunum og svarað spuming-
um forsetans.
„Við munum leggja fram okkar
kröfur í stjómarmyndunarviðræð-
unum,“ sagði Guðrún, „og það eru
ýmsar kröfur sem við munum gera
að úrslitaatriðum í stjómarmyndun-
arviðræðum, en það er alveg ljóst
að við fömm ekki í ríkisstjóm án
þess að kjör kvenna og þeirra sem
minna mega sín í þjóðfélaginu, verði
verulega bætt."
Guðrún sagði kvennalistakonur
gera sér grein fyrir því að stefnu-
skrá sína fengju þær ekki alla
framkvæmda á fjórum ámm, og
þess vegna yrðu þær að velja. „Við
emm reiðubúnar núna til þess að
taka þátt í stjómarmyndunarvið-
ræðum," sagði Guðrún og aðspurð
með hvaða flokkum Kvennalisti
„Það em fullgild stjómmálasam-
tök og em auðvitað inni í myndinni
eins og allir aðrir, þó að þau séu
ekki á forgangslista mínum," sagði
Jón Baldvin þegar hann var spurður
hvort hann gæti hugsað sér að eiga
gæti helst starfað, svaraði hún:
„Þeir verða að velja. Mynstrið verð-
ur að veljast eftir því hveijir vilja
vinna með okkur. Ef þeir vilja vinna
með okkur að því sem við viljum
gera og við getum gengið að þeim
skilyrðum sem þeir setja, þá að
sjálfsögðu munum við fara í ríkis-
stjóm." Guðrún sagði að það skipti
ekki máli hversu margir flokkamir
yrðu í ríkisstjóm, ef menn væm
reiðubúnir til þess að ganga að
málefnakröfum þeirra.
Guðrún var spurð hvetju það
sætti hjá Kvennalista að hún hefði
gengið á fund forseta ásamt
Kristínu Karlsdóttur, sem ekki náði
kjöri á Alþingi, en hún skipaði
fyrsta sæti Kvennalistans í Austur-
landskjördæmi. Hún var spurð
hvort þetta væri hugsanlega
vísbending um það að Kvennalistinn
myndi leita út fyrir þingflokkinn
samstarf við Borgaraflokkinn.
Jón Baldvin kvaðst ekki útiloka
þátttöku Alþýðuflokks í ríkisstjóm
íjögurra flokka, en hann teldi það
mun síðri kost.
af ráðherraefnum sínum, ef til þátt-
töku í ríkisstjóm kæmi:
„Við emm báðar í Kvennalistan-
um. Kvennalistinn er kvennahreyf-
ing. Kristín er virk kvennalistakona
alveg eins og ég og auðna ræður
hveiju sinni hveijir veljast inn á
þing til fulltrúastarfa." Guðrún
sagðist á þessu stigi ekki ætla að
svara því hvemig ráðherraefni
Kvénnalista yrðu valin, kæmi til
stjómarþátttöku. „Það er seinni
tíma mál, sem við sinnum þegar
þar að kemur.“
Guðrún sagði kvennalistakonur
óhræddar við að axla ábyrgð, hvort
sem það væri að fara í ríkisstjóm
eða ekki, en þær gerðu það einung-
is þannig að gengið yrði að ákveðn-
um skilyrðum sem þær setja.
Guðrún sagði
GUÐRÚN AGNARSDÓTTIR:
> ---------------------------
Urslitaatriði að bæta kjör kvenna
og þeirra sem minna mega sín
Úrslit Söngvakeppni sjónvarpsstöðva ráðast í kvöld:
Vildi gj arnan sjá metnað-
arfyllri lög í keppniimi
- segir Valgeir
Guðjónsson
lagasmiður
Brussel, frá Jóhönnu Ingvarsdóttur,
blaðamanni Morgunblaðsins.
DAGSKRÁIN var ströng í gær
hjá keppendum í Söngvakeppni
sjónvarpsstöðva í Evrópu, sem
fer fram í Brussel í kvöld. Þá
ráðast úrslitin og er óhætt að
segja að spenningur og óvissa sé
farin að gera vart við sig. Meðal
gesta á keppninni verða Albert
prins og Paola prinsessa. Tvær
aðalæfingar fóru fram í gær fyr-
ir fullu húsi áhorfenda og voru
íslensku keppendurnir ánægðir
með æfingaraar.
Hinsvegar sögðu íslendingamir
að tilfmnanlega vantaði hljóðmann
eins og flestar sendinefndimar
hefðu. Valgeir Guðjónsson sagði að
keppendum liði vel, væru reiðubún-
ir fyrir kvöldið og sviðsskrekkur
ekki til þrátt fyrír 500 milljónir
áhorfenda. „Mér hefur alltaf fundist
betra að skemmta mörgum en fáum
og ég held að það eigi við um fleiri."
Keppendur eru allir mjög hrifnir
af sviðssetningunni og hafa þeir
sem hana smíðuðu fengið mikið lof
fyrir. Ýmis tækni er notuð á sviðinu
svo sem leysigeislar og myndavélar
til að fylgja hveijum keppanda eft-
ir. Bjöm Bjömsson hjá Hugmynd
sagði að menn væm sammála um
að það sem lyti að frönskumælandi
sjónvarpsstöðinni væri frábærlega
vel unnið, en gagnrýnin leyndi sér
ekki á öðmm sviðum. Það á sérstak-
lega við um þau fyrirtæki sem tóku
að sér verkefni tengd keppninni.
„Það em allir orðnir þreyttir á að
þurfa að eyða fleiri tímum í rútu-
ferðir um borgina og þegar loksins
er komið á staðina er aðgangur
ekki leyfður ef réttan miða vantar,"
sagði Valgeir um þetta.
Strangar reglur vom um að
keppendur ættu sjálfir að koma
með hljóðfæri með sér, nema flygil
og trommur. Valgeir sagði hins
vegar að það fyrsta sem hefði
mætt keppendum þegar komið var
inn í sönghöllina hefði verið röð
úrvalstækja, og „við búnir að burð-
ast með hljómborð og gítara alla
leið frá íslandi. Það er örlítið flókið
að vera til héma í því skipulagða
kaosi sem hefur ríkt,“ sagði Val-
geir.
Nokkur dagblöð hafa greint frá
því að ef annaðhvort ísland eða
Israel sigri leggist keppnin af í
núverandi mynd, þar sem lög þess-
ara þjóða em allt annars eðlis en
tíðkast hefur. Blöðin létu að því
liggja að þjóðir fæm að senda
grínista í keppnina líkt og Israelar
nú eða brydda upp á öðm sem vak-
ið gæti athygli.
Valgeir sagðist álíta það af hinu
góða ef tækist að bijóta upp það
form sem hefði verið á keppninni í
30 ár. Þess vegna héldu íslendingar
með Israelsmönnum og þeir með
okkur. „Ef við íslendingar getum
komið keppninni á örlitlu hærra
plan fyndist mér það yndislegt.
Lögin til þessa hafa verið hálfgerð
rútubflalög en í keppni sem þessari
vil ég heyra metnaðarfyllri lög. Það
er ákveðinn stimpill til sem heitir
„Eurovision-stíll“ og ég tel menn
taka hann of hátíðlega. Þessi lög
sjást ekki á vinsældalistum svo við
hljótum að hafa sett okkur í of
stífar stellingar fyrir þessa keppni.
Fólk heldur að ekkert gangi nema
sent sé sérstakt Eurovision-lag. 011
tónlist á rétt á sér en ég hef það á
tilfinningunni að margar þjóðir
vildu senda einlægari lög í keppnina
en nú tíðkast.
Ég held að íslendingar taki
keppnina ekki alvarlegar en aðrar
þjóðir. Maður finnur að fólki er
ekki sama um hvemig útkoman
verður og okkur er auðvitað ekki
sama heldur, þó við séum ef til vill
ekki með rétta lagið fyrir keppnina,
að áliti þeirra sem best þekkja til,“
sagði Valgeir.
Egill Eðvarðsson hjá Hugmynd
spáði dönsku fulltrúunum góðu
gengi í keppninni með lagið „En
lille melodi" og júgóslavnesku fiill-
trúunum með lagið „Ja sam za
ples“. Egill sagðist hafa sett Johnny
Logan frá Irlandi og lag hans „Hold
Me Now“ í toppsætið í fyrradag en
það hefði fallið nokkuð í áliti hjá
sér. „Ég reyndist ekki mjög sann-
spár í fyrra þegar ég spáði fyrir
Morgunblaðið, en þá hélt ég að
Lúxemborg yrði í þriðja sætinu.
Dómnefndarmenn voru ekki á sama
máli. Stundum held ég að dómarar
láti sviðsframkomu ráða meiru en
lögin," sagði Egill.
Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir
Halla Margrét á tali við blaðamann með þeim Jóni Ólafssyni fram-
kvæmdastjóra Skífunnar og Valgeiri Guðjónssyni.