Morgunblaðið - 09.05.1987, Page 33

Morgunblaðið - 09.05.1987, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987 Morgunblaðið/Kristján Arngrímsson afla og raun ber vitni. Það hrein- lega borgar sig ekki og þar sem ekkert kemur í staðinn annað en að sækja á mið við aðra landshluta, þá er þetta alvarlegt mál fyrir sjáv- arplássin sem hér eiga í hlut.“ En hvað tekur nú við? Jón svarar: „Næst er það humar- inn, en ég veit ekki alveg með vissu enn hvenær sú vertíð hefst. Við skulum vona að þar gangi betur og þar verði ekki sótt í ónýta stofna." - gg Einar Kjartansson útgerðarmaður, Grindavík: „Erum hættir að kippa okkur upp við þetta“ EINAR Kjartansson útgerðar- maður „Reynis“ var að fylgjast með uppskipun aflans úr veiði- ferð dagsins. Hann var heldur þungbrýnn og skyldi engan undra, léleg vertíð að baki og ófyrirsjáanlegt að betri tæki við. Trúlega hefur hann leitað hugg- unar í humrinum ef svo mætti að orði komast, því vertíðarbát- arnir í Grindavík halda næst á humarveiðar. Einar var tekinn tali og sagði fyrst: „Já, þetta hefur verið lélegt, því er ekki að neita, en af einhveijum ástæð- um er þessi hrygningarstofn' mjög lélegur. Það liggur við að menn séu hættir að kippa sér upp við lélega veiði.“ En hvaða þýðingu hefur þetta fyrir þig sem út- gerðarmann og þorpið sem byggir svo á þessu? „Þessu get ég ekki svarað með neinum tölum eins og er en þessu er að öðru leyti fljótsvarað. Þetta er auðvitað afar slæmt og setur menn í vanda. Það er ekki bara að það veiðist lítið heldur kostar það líka miklu meira þegar lítið er um - fisk, að ná því sem hægt er. Ég er sammála Sverri um að þetta á rætur að rekja til nótaveiða togara á miðjum sjöunda áratugnum og því sem á eftir fýlgdi, smáfíska- drápinu o.fl. Nú er ástandið orðið þannig að bátamir rembast við að ná helmingi þess afla sem þótti nokkuð góður fyrir svona 10 áram. Og auðvitað þarf ekki að hafa mörg orð um hvaða þýðingu þetta hefur fyrir Grindavík og fískvinnsluna á staðnum. Þetta þýðir auðvitað minni vinnu.“ En hvað er til ráða? Einar: „Það þarf að gera eitthvað til þess að ná stofninum upp aftur. Gera ein- hveijar ráðstafanir, annars sé ég ekki betur en að framtíðin beri í skauti sér afturhvarf til fortíðarinn- ar, er menn flökkuðu á milli landshluta, allt eftir því hvar veidd- ist hveiju sinni. Vonandi kemur þó ekki til þess.“ Sverrir Vilbergsson skipstjóri; „Lengi getur vont versnað“ Sverrir Vilbergsson t.v. og Einar Kjartansson til t.h. í BRÚNNI á „Reyni“ í Grindavík- urhöfn sat Sverrir Vilbergsson skipstjóri og fylgdist með háset- um sínum landa 7—8 tonna afla. Hann tók ágætlega í að ræða aðeins um vertíðina sem er að ljúka. Hann hefur orðið: „Ég þarf ekki að lýsa þessu með mörgum orðum. Þetta hefur ein- faldlega verið alveg nákvæmlega eins og í fyrra eða ekki nokkur skapaður hlutur. Þetta hefur verið afar léleg. Við höfum t.d. veitt eitthvað um 350 tonn á þess- ari vertíð og höfum nokkurn veginn haldið í horfinu frá því í fyrra. Ég veit ekki hvort hægt sé að segja að við höfum haft einhveija heppni með okkur eða ekki, en staðreyndin er sú að flestum hefur ekki tekist að halda svipuðum afla og sumir farið langt undir.“ En hvað telst gott. Sverrir er spurður um það og svarar: „Fýrir svo sem tíu áram var veiðin prýði- leg og þá get ég sagt þér að það þótti lélegt ef einstakir bátar fóra undir 5—600 tonn á vertíð. Þetta er sem sagt ekki glæsilegt dæmi og eins og þetta hefur nú verið tvær vertíðir í röð, þá segi ég bara, lengi getur vont versnað og ég býð ekki í það ef þriðja vertíðin verður eins. Ég veit þó ekki hvort við get- um átt von á öðra, hrygningarstofn- inn virðist uppurinn og það þarf að gera einhveijar ráðstafanir til þess að ná honum upp aftur.“ Hvað telur þú að valdi þessu? Sverrir: „Þetta er ofveiði, það heitir ekkert annað þegar ekki er lengur af neinu að taka. Eg held að aðdrag- andinn sé orðinn nokkuð langur og hófst þegar togararnir vora með nótaveiði upp úr áranum 1964—65. Ýmislegt í framhaldi af því spilar inn í, svo og auðvitað smáfískadráp togaranna. Þegar allt helst í hendur er ekki von á góðu. Ég held að það sé varla annað úrræði en að loka þessum svæðum og freista þess að ná stófninum upp á ný.“ - gg Spor í rétta átt Þetta myndi létta á misgengis- desembersamningunum. Það þyrfti að útvíkka þá vinnu, þannig að tek- ið yrði tillit til breyttra aðstæðna og að sú vinna næði til allra hópa, en í dag væri til dæmis ekki verið að vinna að samningsgerð fyrir físk- vinnslufólk. „Það er ljóst að uppbygging nýs taxtakerfis er ekki einfalt verk og þar hljóta landssam- böndin og einstök félög eftir atvik- um að vera mjög ráðandi aðilar, en við hjá Alþýðusambandinu beram augljósa ábyrgð á því að slík endur- skoðun fari fram og þess vegna höfum við farið fram á viðræður um endurskoðun á gildandi kaup- tölum í núverandi samningum. Við höfum beðið landssamböndin að búa sig undir viðræður, því þetta verður ekki leyst með flatri pró- sentuhækkun eða einfaldri krónu- töluhækkun," sagði Ásmundur. Hann var einnig spurður álits á þeirri skoðun Þórarins, sem kemur fram í viðtali í tímaritinu Mannlífí, að verkfallsréttinn þurfi að tak- marka. „Ég hef heyrt sjónarmið af þessu tagi hjá Vinnuveitendasam- bandinu í gegnum árin, en sem betur fer hefur ekki verið mikið mark á þeim tekið. Ég held að það sé öllum ljóst að verkfallsrétturinn er neyðarréttur og að hann er not- aður sem slíkur. Verkfallsrétturinn er á stundum eina aðferðin sem verkalýðshreyfíngin hefur til þess að knýja atvinnurekendur til eðli- legra efnislegra samskipta. Menn ganga ekki til verkfalla að gamni sínu, því verkfallsvopnið bítur í báðar áttir og er einnig erfítt fyrir þá sem beita því,“ sagði Ásmundur. Hann sagði að það væri ekki annað en eðlilegt að kjarasamning- ar hjá ólíkum félögum gætu leitt til mismunandi niðurstöðu, það væri hin óhjákvæmilega afleiðing af því að hvert félag semdi fyrir sig. „Þannig hlýtur það að vera í lýðfijálsu þjóðfélagi, að menn hafí rétt til þess að vinna að framgangi mála, án þess að allir séu þeim sammála. Við í ASÍ teljum að það sé ekki rétt að auka miðstýringuna og að verkfallsrétturinn eigi að vera hjá hveiju einstöku félagi. Þannig getur hvert félag metið á hveijum tíma hvemig það vill taka á málum. Aðstaða hvers verkalýðsfélags til þess að taka sjálfstætt á málum, ef það telur gengið þvert á það sem það óskar eftir, er grandvallarfor- sendan í því kerfí sem við búum við og má segja að sé ein af grand- vallarforsendum þess lýðræðiskerf- is sem við búum við í landinu. Það er að segja þau mannréttindi að fá að slást fyrir kjöram sínum, ef ekki fæst leiðrétting á þeim á annan hátt,“ sagði Ásmundur að lokum. — segir talsmaður Sigtúnshópsins um hugmyndir Halldórs Blöndal „HUGMYNDIR Halldórs eru spor í rétta átt og erum við mjög ánægð með þær, þó ekki felist í hugmyndum hans lausn á gamla misgenginu, sem við höfum lagt megináherslu á að fá leiðrétt," sagði Björn Ólafsson, talsmaður Sigtúnshópsins, þegar leitað var áiits hans á hugmyndum Hall- dórs Blöndal alþingismanns um að jafna kjör lijá Byggingasjóði ríkisins, þ.e. að gefa því fólki sem byggði síðustu árin áður en nýja húsnæðislánakerfið kom til framkvæmda, kost á sambæri- legum lánskjörum og fólk fær nú. Björn sagði að ef farið yrði að tillögum Halldórs væri verið að full- nægja vissu réttlætismáli sem Sigtúnshópurinn hefði barist fyrir. hópnum í framtíðinni, og kæmi í veg fyrir að þessi hópur lenti aftur í misgengi launa og lánskjara. Hann sagði að Sigtúnshópurinn hefði lagt megináherslu á leiðrétt- ingu á misgenginu og bent á einfalda leið í skattakerfínu til þess. Vonuðust menn til að stjómmála- flokkamir, sem flestir hefðu lofað slíkri lausn fyrir kosningar, stæðu' nú við kosningaloforðin. Borgarráð: Þremur lóðum út- hlutað til fyrir- tækja í fiskeldi BORGARRÁÐ hefur samþykkt að úthluta þremur aðilum lóð við Eiðsvík vegna fiskeldis og aðstöðu til bryggjugerðar. íslenska Fiskeldisfélagið hf. fær 13.000 fermetra lóð, Svein- bjöm Runólfsson sf., 11.500 fermetra lóð og Haflax hf. 10.500 fermetra lóð. Leigutími lóðanna er 25 ár og era þær ekki leigðar til annarra nota en fyrir þarfir fískeldis á umráðasvæði Reykjavíkurhafnar. Verði breyt- ing á starfseminni getur borgar- sjóður leyst til sín lóðir og mannvirki á matsverði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.