Morgunblaðið - 09.05.1987, Side 22

Morgunblaðið - 09.05.1987, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987 í Kynningarfull- trúinn kynnir sig eftírHalldór Þorsteinsson í grein, sem birtist 5. þ.m. í Morgunblaðinu, sakar kynningar- fulltrúi Kennarasambands íslands mig um yfírlæti og bamaskap, „svartagallsraus" og sleggjudóma o.s.frv. Ummæli mín um Svisslend- inginn Jean Piaget virðast fara mjög fyrir brjóstið á fulltrúanum, en ég sver ekki við Litla kverið hans. Við lestur greinarinnar varð mér brátt ljóst, að þeir, sem eru ekki sama sinnis og Elín G. Ólafs- dóttir í skólamáium, virðast flestir vera sleggjudómarar og „svarta- gallsrausarar" í hennar augum. í beinu framhaidi af þessu er rétt að geta þess, að þessum „rökfasta" og „yfírlætislausa" fulltrúa þótti ekki ástæða til að skýra fyrir les- endum sinum í hveiju sleggjudómar mínir væru fólgnir, það hefur e.t.v. vafizt eitthvað fyrir honum. Hann gaf sér þó umhugsunartíma allgóð- an, meira en heilan mánuð. Á einum stað standa þessi orð í ritsmíð fulltrúans: „Á undanfömum áratugum hefur þekkingu og menntun fleygt fram í heiminum og við höfum sannariega ekki verið neinir eftirbátar annarra þjóða í þeim efnum.“ Ef það er rétt, hvem- ig skýrir fulltrúinn hinn mikla fjölda nemendaj sem falla á hverju ári í Háskóla Islands, svo að við höldum okkur einungis við hann. Og hér stendur einmitt hnífurinn í kúnni. Er það ekki ólíkt mannúð- legra og hagkvæmara að fella þá fyrr en þangað er komið? Engum er það til góðs og sízt af öllum þeim, sem heltast úr lestinni á þessu stigi eftir að þeir hafa tekið á sig, sumir hveijir, ýmsar skuldbindingar og fengið námslán. Og allt kostar þetta útgjöld bæði einstaklinga og þjóðar. Þetta mætti fyrirbyggja með því að setja síuna aftur á sinn rétta stað, eins og ég reyndar benti á í fyrri grein minni. Það er aug- ljóst mál, að ekki eiga allir erindi í háskóla og með leyfí, hve margir em brautskráðir þaðan með fyrstu einkunn? Svari nú fulltrúinn, sem allt veit. Rétt er það, að ég kann ekki að meta kenningar og kerfi Jeans Piaget (hver veit nema ég skrifí greinarstúf um Litla kverið hans, þótt síðar verði)! Ennfremur tel ég framlag skólarannsóknamannanna okkar til fræðslumála hafa lítið sem ekkert gildi, m.a. vegna þess, að framsetning flestra þeirra manna, sem starfa á skólaþróunardeild — (dáfagurt orð það)! menntamála- ráðuneytisins, er óskýr og ófull- nægjandi, enda eru rit þeirra flest á hráu og torskildu stofnanamáli. Að skaðlausu mættu nokkrar silki- húfur §úka burt úr þeirri fínu deild. Enda þótt ég sé engan veginn ánægður með grunnskólakerfíð er það rangt, já alrangt, að ég sé að leitast við að lítiliækka þá kennara, sem við skólana starfa. Sem betur fer eigum við ennþá marga mæta kennara. Það er ekki við þá að sak- ast heldur kerfíð. Hvað voru þingmenn okkar að hugsa, þegar þeir samþykktu þessi óláns grunn- skólalög? Sagt er, að foreldrum þyki vænst um þroskaheft böm sín og er það auðskilið. Ég get ekki varizt þeirri hugsun, að þeir, sem samþykktu grunnskólalögin og stóðu að framkvæmd þeirra svo og þeim, sem hafa atvinnu af því að réttlæta þau og veija, sé líkt farið. Jafnvel þótt fulltrúinn færi full- yrði að ég hafí ekki fylgzt vel með þróun menntunar á síðustu árum hef ég samt sem áður veitt því at- hygli (af mínum veika mætti að vísu)! að t.d. málfræðikunnáttu skólafólks, sem sótt hefur tíma í skóla mínum, hefur hrakað og það stórlega á þessum síðustu og verstu grunnskólatímum. Ég átti hálfþartinn von á því, að fulltrúinn myndi halda uppi vömum fyrir blönduðu bekkina, þeim óláns almenningi, en svo var þó ekki. Hvemig getur líka nokkur heilvita maður réttlætt með góðri samvizku þá mismunun, sem afburðanemend- ur mega þola þar? Ekki eru allir jafn ginkeyptir fyr- ir grunnskólakerfinu „góða“ eins og kynningarfulltrúi Kennarasam- bands íslands. í einum sjónvarps- þættinum, Já, forsætisráðherra, em ráðuneytisstjóranum lögð eftirfar- andi orð í munn, sem hljóða ein- hvem veginn svona í lauslegri þýðingu: „Þar lærir maður álíka mikið og í gmnnskóla (compre- hensive school), þ.e.a.s. ekki nokkum skapaðan hlut.“ Á einum stað segir kynningar- fulltrúinn „klári": „Hans (þ.e.a.s. mín) eigin skólaganga í MA virðist Halldór Þorsteinsson „Og hér stendur einmitt hnífurinn í kúnni. Er það ekki ólíkt mannúð- legra og hagkvæmara að fella þá fyrr en þangað er komið? Eng- um er það til góðs og sízt af öllu þeim, sem heltast úr lestinni á þessu stigi eftir að þeir hafa tekið á sig, sumir hverjir, ýmsar skuld- bindingar og fengið námslán.“ í hans augum vera hin eina sanna menntun." Athugum nú þetta ögn nánar. Það var ekki ég, sem var að lýsa skólagöngu minni, heldur skólabróðir minn sinni. Þetta vom hans orð ekki mín. Þetta var hans álit, hans mat og samanburður, en ekki minn dómur eins og fulltrúinn segir. En hvað kemur honum til að staðhæfa slíkt? Annaðhvort er hann ekki vel læs eða hann skilur ekki, það sem hann les eða vill öllu held- ur ekki skilja það eða þá að hann er hreinlega óheiðarlegur í mál- flutningi. Mér er með öllu óskiljanlegt, hvers vegna fulltrúinn einblínir svona á Menntaskólann á Akureyri og þá einu sönnu menntun, sem þar var að fínna, eins og hann orðar það. Ég veit ekki betur, en ég hafí minnzt á Kalifomíu-háskóla og gaf ég honum og reyndar fleiri banda- rískum háskólum þann vitnisburð, að þeir væm í tölu allra beztu há- skóla í heimi. Fulltrúanum til fróðleiks má svo bæta því við, að greinarhöfundur lagði stund á frönsku og franskar bókmenntir í Parísar-háskóla, Sorbonne, um tveggja ára skeið, auk þess hefur hann tvívegis sótt námskeið í Út- lendingaháskólanum I Pemgia á Ítalíu, í seinna skiptið sem styrk- þegi ítalska utanríkismálaráðuneyt- isins, og að lokum sakar ekki að geta þess, að hann hefur leitazt við að endurmennta sig eftir beztu getu m.a. í Estudio Intemacional Sam- pere I Madrid, einum fremsta málaskóla þar í landi. Hér væri ef til vill ekki úr vegi að skýra frá því, að Málaskóli Halldórs hefur átt náið samstarf við málaskóla I öðmm löndum, eins og t.d. Englandi, Þýzkalandi, Frakklandi, Spáni, ít- alíu og Bandaríkjunum. Við emm semm sagt ýmsum nýjum hnútum kunnugir er málakennslu varða. Vonandi fylgist fulltrúinn eins vel með og við. Elfn G. Ólafsdóttir telur að það hefði verið hollt fyrir Sigrúnu Stef- ánsdóttur að hugsa áður en hún talaði. Ég er aftur á móti á þvf, að það hefði ekki verið síður hollt fyr- ir kynningarfulltrúann að kynna sér hlutina ögn betur áður en hann skrifaði. Höfundur er forstöðumaður MÁIs- akóla Halldórs. SAMEIGINLEGUR FUNDUR frambjóðenda og stuðningsmanna BORGARA FLOKKSINS verður haldinn í veitingahúsinu Glæsibæ í dag, laugardag 9. maí Húsið opnar klukkan 10.00 Fonxilegur fundur hefst klukkan 14.00 Fjölmennum BORGARA nOKKORÍ -ttokkur með framtíð Brúnt á hvítu Kvikmyndir Saebjörn Valdimarsson Laugarásbió: Litaður laganemi — Soul Man ☆ ☆ Leikstjóri Steve Miner. Framleiðandi Steve Tisch. Handrit Carol Black. Kvik- myndatökustjóri Jeffrey Jur. Klipping David Finfer. Tónlist David Anderle. Aðalleikendur C. Thomas Howell, Rae Dawn Chong, Arye Gross, James Earl Jones, Melora Hardin, Leslie Nielsen. Bandarísk. New World Pictures/Balcor Films 1986. Ca. 95 min. Það er fyrst til að taka að hugmyndin að baki Lituðum laganema er með ólíkindum of vitlaus til hún fáist staðist en á hitt ber að líta að myndin er farsi í aðra röndina, en aðal hans er að sjálfsögðu að gefa raunveru- leikanum langt nef. Auðmannssonurinn C. Thomas Howell sér framtíðaráhorf sín hrynja þegar faðir hans tilkynnir honum einn góðan veðurdag að hann hafi ekki í hyggju að styrkja hann til laganáms við Harvard; hann sé búinn að púkka undir rassinn á honum og nú sé kominn tími til að stráksi sjái um sig sjálf- ur. Eina úrræðið sem ofdekrað unglingstötrið finnur er að ráðast á garðinn þar sem hann er lægst- ur, sækja um styrk sem ætlaður er þeldökkum laganema frá Los Angeles. Vinurinn fer að bryðja sólbrúnkupillur og innan skamms orðinn létt-svartur og fær styrk- inn. (Fyrir þeirra tilstuðlan sprönguðu menn alsælir um götur með gulrótarlit hér um árið, ef minnið bregst mér ekki.) En gamanið fer að kárna strax og til Harvard kemur. Þetta er erfítt hlutverk og ekki bætir úr skák að Howell verður ástfanginn af stúlkunni sem með réttu lagi hefði átt að hljóta styrkinn, en stritar nú fyrir náminu yfír soð- kötlunum... í aðra röndina farsi, gat ég um áðan, þau stílbrot eru megingalli L.I. Það eru í henni prýðilegustu farsakaflar, svo sem þegar for- eldrar Howells koma í heimsókn í skólagarðana og allt fer úr skorðum. En svo tekur þessi brokkgenga mynd upp á þvi þegar minnst varir að taka sig alvarlega og þá fer í verra. En þrátt fyrir þessa ágalla, og yfír höfuð frekar ósmekklegan söguþráð, er lfka ágæta spretti að fínna þegar sprellið ræður ríkjum. „Vamarræða" Gross er t.d. bráðfyndin, sömuleiðis fyrr- nefnd foreldraheimsókn, þó að þar blasi við sem viðar hversu efnivið- urinn er laklega unninn. En leikaramir standa flestir fyrir sínu. Howell er einn sá við- kunnanlegasti í hópi yngri leikar- anna vestra og Ayre Gross kemiir hressilega á óvart í hlutverki besta vinarins. Gamla brýnið hann Ja- mes Earl Jones er aðsópsmikill að venju, en sem fyrr óskar mað- ur þessum snjalla leikara betri hlutverka. Hann á annað og betra skilið en að vera minnst fyrst og fremst sem raddar Darth Vader. Litaður laganemi, þó reikul sé í rásinni, er þó vissulega heljar- stökk fyrir Miner fram á við, því fyrri afrek hans á kvikmyndasvið- inu em heldur óburðug. Maðurinn er nefnilega ábyrgur fyrir flestum — og verstu — myndunum um föstudaginn 13.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.