Morgunblaðið - 09.05.1987, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAI 1987
Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir
Hægt o g hljótt
Síðustu æfingar fyrir söngvakeppni sjónvarpsstöðva voru í gær
og þá voru þessar myndir teknar af HöUu Margréti Árnadóttur
og Hjálmari H. Ragnarssyni hljómsveitarstjóra. Úrsiitin koma i
ljós í kvöld þegar verðlaunalagið verður valið.
Sjá á bls. 36 ummæli Valgeirs Guðjónssonar, höfundar „Hægt
og hyótt“: „Vildi gjarnan sjá metnaðarfyllri lög í keppninni'* og
grein um söngvakeppnina á bls. 48 og 49.
Ferðalangar varaðir
við veikum leðurblökum
EMBÆTTI landlæknis hefur sent frá sér tilkynningu um afbrigði
hundaæðis í leðurblökum og er íslenskum ferðalöngum bent á að
láta þessi dýr í friði.
Landlæknir segir fulla ástæðu til
að vara ferðamenn og aðra við
þessu og bendir þeim á að fara
ekki inn í hella, þar sem leðurblök-
ur halda sig gjaman. íslenskir
ferðalangar, sem fara í sumarferða-
lög með böm um Danmörku,
Þýskaland eða önnur nálæg lönd
ættu að vara sig á þessu, því veik-
ar leðurblökur eru spakar og böm
geta því tekið þær upp. Þá er hins
vegar hætta á að þær bíti frá sér.
Enn sem komið er hefur slíkt bit
ekki kostað mannslíf í Danmörku,
en í frétt landlæknis segir að í Finn-
landi hafi náttúrufræðingur dáið
vegna veirusýkingar úr leðurblök-
um sem hann var að rannsaka í
Mið-Evrópu.
Ríkisútvarpið:
Afnotagjöld hækka
um 68% á árínu
Sjónvarpað á fimmtudögum frá og með 1. október
Menntamálaráðherra heimil-
aði í gær umtalsverða hækkun á
afnotagjöldum Ríkisútvarpsins
og útvarpsráð ákvað á fundi
sinum að sjónvarpið hefji útsend-
ingar á fimmtudögum frá og með
1. október i haust.
Afnotagjald fyrir sjónvarp og
tvær útvarpsrásir verður frá og með
1. júlí í sumar 2.352 krónur, sem
er 40% hækkun frá núverandi af-
notagjaldi. 1. október hækkar
Ósamið við
flugliða
FÉLAG flugumferðarstjóra hef-
ur boðað verkfall 25. maí
næstkomandi og kemur það til
framkvæmda klukkan 8 árdegis.
Ef til verkfallsins kemur stöðv-
ast öll flugumferð í landinu.
Viðræður félagsins og viðsemj-
enda um nýja kjarasamninga sigldu
afnotagjaldið um 20% til viðbótar
og verður 2.822 krónur ársfjórð-
ungslega. Samtals reiknast þetta
vera 68% hækkun afnotagjalda á
árinu.
Pétur Guðfinnsson, fram-
kvæmdastjóri sjónvarpsins, sagði
að áætlað væri að kostnaðaraukn-
ing vegna útsendinga á fimmtudög-
um væri 40 milljónir króna. Hann
sagði að þessi hækkun afnotagjald-
anna gjörbreytti aðstöðu Ríkisút-
varpsins. Hækkanir undanfarið
í strand í síðustu viku og í al-
mennri atkvæðagreiðslu í félaginu
um síðustu helgi fékk stjóm félags-
ins heimild til verkfallsboðunar.
Félagar í Félagi flugumferðarstjóra
eru um 85 talsins. Flugumferðar-
stjórar hafa verið með lausa
samninga frá því um áramót.
Þá hefur ennþá ekki verið samið
við félög flugliða. Samningar við
þá hafa verið lausir frá áramótum,
en búist er við að dragi til tíðinda
í samningamálunum í þessum mán-
uði.
hefðu ekki fylgt eftir verðbólgunni
og verið minni en stofnunin hefði
farið fram á. Auglýsingatekjur
hefðu minnkað, einkum Rásar 2 og
einnig Rásar 1, en þó minna. Aug-
lýsingatekjur sjónvarpsins væru
svipaðar í krónutölu fyrstu þijá
mánuði þessa árs og þær voru á
sama tímabili í fyrra, en aprílmán-
uður kæmi betur út.
„Það er mjög myndarlega á þessu
tekið hjá menntamálaráðherra og
Ríkisútvarpið er miklu betur í stakk
búið til þess að sinna hlutverki sínu
nú,“ sagði Pétur. Hann sagði að
útlitið hefði verið orðið dökkt, hvað
varðaði dagskrána í sumar og
næsta vetur og ekki hefði verið sjá-
anlegt annað en skerða þyrfti
innlent efni, en hækkun aftiota-
gjaldanna breytti því.
Pétur sagði að afnotagjaldið
hefði verið orðið allt of lágt og benti
á að sú hefði verið tíðin að afnota-
gjald fyrir sjónvarp jafngilti tveimur
áskriftum að dagblöðum og afnota-
gjald fyrir útvarp hefði jafngilt einni
áskrift. Þá hefði sjónvarpsdagskrá-
in verið miklu styttri en hún er
núna og útvarpsrásin hefði einung-
is verið ein.
Flugumferðarstjór-
ar boða verkfall
Hækkun á elli- og örorkulífeyri:
Á VEGUM heilbrigðisráðuneyt-
isins er nú hafin athugun á
leiðum til að lækka lyfjakostnað
og auka sparnað í þeim efnum.
Er gert ráð fyrir að þeir fjár-
munir, sem þannig fengjust,
verði notaðir til að vega upp á
Hópslys
sviðsett í
Hveragerði
HÓPSLYS verður sviðsett í
Hveragerði í dag og munu um
250-300 manns taka þátt í æfing-
unui, þar af um 100 fórnarlömb.
Sviðsettar verða afleiðingar jarð-
skjálfta og er æfing þessi lokaatriði
námskeiðs í vettvangsstjórnun, sem
Almannavamir ríkisins hafa haldið
í þessari viku. Námskeið þetta er
hið íjórða í röðinni og taka þátt í
því nítján manns af öllu landinu.
Þeir eru úr röðum slökkviliðsmanna
og lögreglu auk manna úr björgun-
arsveitum, sem einnig tengjast
starfsemi almannavama.
Símamenn
samþykkja
FÉLAG íslenskra símamanna
samþykkti I atkvæðagreiðslu ný-
gerðan kjarasamning, sem
undirritaður var 21. apríl
síðstliðinn.
Á kjörskrá voru 918 og greiddu
736 félagsmenn atkvæði. Já, sögðu
653 eða 88,7%, nei sögðu 78 eða
10,5% og fimm seðlar voru auðir.
móti auknum útgjöldum vegna
hækkunar á elli og örorkulíf-
eyri.
Eins og greint var frá í frétt
Morgunblaðsins í gær hefur Ragn-
hildur Helgadóttir heilbrigðis- og
tryggingaráðherra ákveðið að
hækka elli- og örorkulífeyri og
nemur hækkunin til fólks með
fulla tekjutryggingu 2.000 krón-
um á mánuði og em þessar bætur
nú komnar í tæpar 25 þúsund
krónur á mánuði. Heilbrigðisráð-
herra sagði í samtaii við Morgun-
blaðið í gær að vonir stæðu til,
að tillögur um spamað í lyfja-
kostnaði myndu vega upp á móti
þeim útgjöldum, sem fyrirsjáanleg
væru vegna hækkunar elli- og
örorkubótanna.
KRABBAMEINSFÉLAG íslands
hefur gefið út bækling með upp-
lýsingum og ráðgjöf um heima-
hlynningu krabbameinssjúkl-
in^a.
I bæklingnum er að flnna síma-
númmer sem hringja má í milli kl.
9 og 11 alla virka daga ef leita
þarf upplýsinga varðandi krabba-
mein. Bent er á að hjúkrunarfræð-
ingar félagsins veita sjúklingum og
aðstandendum ráðgjöf, fræðslu og
stuðning sé þess óskað.
Þá eru gefnar upplýsingar um
samtök fólks sem hefur fengið
krabbamein og starfa innan vé-
Engey seldi
í Bremerhaven
ENGEY RE landaði afla sínum í
Bremerhaven á miðvikudag og
fimmtudag, alls 303 lestum.
Megnið af aflanum var grálúða.
Engey fékk alls 14,9 milljónir
króna fyrir aflann. Meðalverð var
49.26 krónur. 235 lestir aflans voru
grálúða og 48 lestir af karfa. Búizt
er við því, að í næstu viku verði
ffamboð í Þýzkalandi innan skyn-
samlegra marka. Hins vegar óttast
menn að mikið framboð í Bret-
landi, meðal annars frá Norðmönn-
um og Bretum sjálfum kunni að
hafa áhrif til lækkunar á markaðs-
verðið.
banda Krabbameinsfélgsins. Það
eru Samhjálp kvenna, samtök
kvenna sem fengið hafa bijósta-
krabbamein, Stómasamtök íslands,
samtök sjúklinga sem gengist hafa
undir stómaaðgerð, Ný rödd, sam-
tök sjúkiinga sem misst hafa
barkakýlið og Samhjálp foreldra,
félag foreldra sem eiga böm með
illkynja sjúkdóm.
Sjá einnig frétt bls. 16 og 17,
„Það sem Þjóðarátakið gerði...“
eftir Snorra Ingimarsson lækni
og forstjóra Krabbameinsfélags
Islands
Krabbameinsfélag íslands:
Upplýsingabæklingur
um heimahlynningn
Aukinn sparnaður
á að koma á móti