Morgunblaðið - 09.05.1987, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987
21
Ll
Frímerkjasýningar á næsta leiti
gömlu bóndarósum, sem ræktaðar
höfðu verið fram að þessu í Evr-
ópu. Þetta er sú bóndarós sem
algengust er og mest er ræktuð í
erlendum gróðrarstöðvum nú á dög-
um, en þetta er líka sú tegund sem
oftast er á markaðnum hjá blóma-
verslunum hér á landi. Með fáeinum
undantekningum hefur hún reynst
hér afar illa vegna þess að hin köjdu
sumur sem við búum við hæfa henni
• ekki. Fáein afbrigði eru þó til sem
blómstra snemma og hafa þau í
góðum sumrum reynst allvel.
Laukainnflytjendur ættu að hætta
innflutningi þessarar tegundar
nema á þeim afbrigðum sem vel
hafa reynst.
Við ræktun bóndarósa þarf að
gæta þess vel að velja þeim skjól-
góðan, bjartan og hlýjan stað.
Jarðvegur þarf að vera vel fram-
ræstur. Rætumar þarf að setja það
djúpt að 3—4 sm séu niður á efstu
brumin. Hæfilegt bil milli plantna
er um 75 sm. Besti tími til að gróð-
ursetja eða flytja bóndarósir er að
haustinu, frá seinni hluta septem-
bermánaðar og fram í nóvember, á
meðan jörð er þíð. Einnig snemma
að vorinu, áður en vöxtur bytjar.
Ef flytja þarf gamlar plöntur er
best að skipta þeim um leið, og það
smátt að 3—5 brum séu á hveijum
rótarhluta. Bóndarósir eru venju-
lega nokkuð lengi að ná sér eftir
flutning, þess vegna er best að
hrófla sem minnst við þeim.
Umhirða felst í árlegri áburðar-
gjöf í apríl að vorinu og aftur að
lokinni blómgun í júlí/ágúst, til að
örva vöxt og þroska nýrra
blómbrama og tryggja þannig
blómgun næsta árs. Stöngla þarf
að binda upp til stuðnings hinum
stóra blómum. Blöð og stöngla má
svo skera burt, en þó ekki fyrr en
seint að haustinu. Vetrarskýli er
óþarft.
Kristinn Guðsteinsson
Garðyrlq'ufólk! Munið sjónvarps-
þáttinn í kvöld kl. 18.00
Frímerki
Jón Aðalsteinn Jónsson
Þegar tækifæri hefur gefizt til,
hefur verið rætt um frímerkjasýn-
ingar í þessum þætti og þá ekki
sízt, ef íslenzkir frímerkjasafnarar
hafa verið meðal þátttakenda.
Nægir þar að nefna STOCK-
HOLMIU 86, en frá henni var
greint allrækilega á liðnu hausti.
Ekki er sízt úr vegi að vekja at-
hygli á þátttöku íslendinga, þegar
um er að ræða alþjóðasýningar
undir vernd Alþjóðasambands
frímerkjasafnara (FIP). Á þessu ári
era tvær þess konar sýningar, þar
sem íslenzkir safnarar eiga
frímerkjaefni.
Fyrri sýningin, CAPEX 87, verð-
ur haldin í Toronto í Kanada dagana
13. til 21. júní nk. Umboðsmaður
þeirrar sýningár hér á landi er Páll
H. Ásgeirsson. CAPEX 87 er þriðja
alþjóðafrímerkjasýningin í Kanada
og verður haldin í nýrri sýningar-
höll í miðborg Toronto. Þar verður
að venju heiðursdeild og samkeppn-
isdeild,* en þegar þetta er ritað hafa
engar spumir borizt af sýningar-
efni, nema hinu íslenzka. í sam-
keppnisdeild verða um 3500
rammar og vafalaust með fjöl-
breytilegu sýningarefni úr öllum
álfum heims. Ætti að verða sæmi-
lega rúmt um sýningargesti til að
skoða þetta efni, því að gólfflötur
sýningarinnar er 17800 fermetrar.
Þá era þar 30 fundar- og móttöku-
herbergi og svo fundarsalur, sem
tekur 1350 manns í sæti. Munu
samtök frímerkjasafnara koma þar
saman og halda fundi með fyrir-
lestram.
Hin síðari ár hefur hlutdeild
frímerkjakaupmanna í alþjóðlegum
sýningum farið vaxandi. Munu um
125 kaupmenn víðs vegar að úr
heiminum hafa látið bóka sig fyrir
söludeildum á CAPEX 87. Eins
hafa um 40 póststjómir tilkynnt
þátttöku sína í þessu sölustarfi, og
er íslenzka póststjómin í þeim hópi.
Þessi kaupmennskuþáttur í öllum
stærri sýningum er í raun ofur skilj-
anlegur, þar sem hann veitir
söfnuram oft hið bezta tækifæri til
að bæta efni við söfn sín. Hinu
verður svo aftur á móti ekki neitað,
að kaupmennskan dregur veralega
úr þeim tíma, sem margur hefur
til þess að skoða það mikla og góða
frímerkjaefni, sem boðið er upp á
í öllum sýningardeildum.
Tveir íslenzkir safnarar verða
meðal þátttakenda í samkeppnis-
deild. Hjalti Jóhannesson sýnir safn
sitt af íslenzkum póststimplum, sem
er orðið löngu þekkt hérlendis og
eins erlendis. Fékk Hjalti stórt silf-
ur fyrir það í Stokkhólmi í fyrra.
Hitt safnið er íslenzkt flugsögusafn,
sem Páll H. Ásgeirsson hefur kom-
ið sér upp af miklum krafti á
undanfömum áram. Er þetta safn
þegar orðið mjög gott, og nú fær
það að spreyta sig í fyrsta skipti á
alþjóðafrímerkjasýningu.
Þá er ánægjulegt að geta þess,
að Félag frímerkjasafnara hefur
sent CAPEX 87 forkunnarfagran
bréfahníf úr silfri, og skal hann
notaður af dómnefnd til heiðurs-
verðlauna. Hníf þennan hefur
Gunnar Malmberg gullsmiður
hannað og smíðað. Hef ég heyrt,
að hnífurinn hafi vakið mikla at-
hygli meðal sýningamefndarinnar
og FF fengið lof fyrir þessa myndar-
legu gjöf.
CAPEX 87 er haldin í minningu
þess, að 120 ár era liðin frá því,
að fylkin mynduðu ríkjasambandið
Kanada. Eins era 100 ár liðin frá
því, að The Royal Philatelic Society
of Canada var stofnað.
Síðari alþjóðasýningin, sem ís-
lendingar taka þátt í á árinu, er
HAFNIA 87, sem haldin verður í
Kaupmannahöfn 16. til 25. október
nk. Frá þeirri sýningu verður sagt
síðar.
FRIMEX 87
Áður hefur verið sagt frá því,
að Félag frímerkjasafnara verður
30 ára á þessu ári. Varþá minnzt
á afmælissýningu, FRÍMEX 87,
sem haldin verður á Hótel Loftleið-
um dagana 30. maí til 1. júní nk.
Ekki er ég í vafa um, að sýningar-
nefnd leggur sig í framkróka um
að hafa frímerkjaefnið eins gott og
fjölbreytt og framast er unnt.
í boðsdeild verða umslög þau ur
Þjóðskjalasafni íslands, sem sýnd
vora á OSLO 86 í fyrra og vöktu
mikla athygli. Nú gefst mönnum
hér heima kostur á að sjá þessar
gersemar í augum safnara. I sam-
keppnisdeiid verða landasöfn frá
Norðurlöndum og eins flugsöfn og
mótífsöfn. Hluti sýningarefnis mun
koma erlendis frá. Rétt er að það
komi hér fram, að nú verður í fyrsta
skipti dæmt í svokölluðum nálar-
flokki á landssýningu. Þessi flokkur
er þegar kominn til framkvæmda
erlendis. Er hann hugsaður til þess
að örva nýliða til að taka þátt í
sýningum. Sannleikurinn er sá, að
þeir eiga oft vel frambærilegt efni,
sem þeir hliðra sér hjá að setja í
reglulega samkeppnisdeild, þar sem
era fyrir alls konar stórsöfii og eins
séreöfn af ýmsum toga.
í kynningardeild verður leitazt
við að sýna hluta úr venjulegum
söfnum. Eins verða þar sýnd öll
íslenzk frímerki frá upphafí. Ljóst
er, að sýningamefnd ætlar að
leggja áherzlu á að kynna almenn-
ingi sem bezt frímerkjasöfnun og
gildi hennar. Þessi sýning á líká
ekki sízt að höfða til unglinga, sem
era að stíga fyretu spor sín í
frímerkjasöfnun.
Alls munu verða um 140 rammar
á FRÍMEX 87. Þar verður að sjálf-
sögðu séretakt pósthús og notaður
séretimpill.
Vonandi verður unnt að segja
nokkra gerr frá FRÍMEX 87, áður
en hún hefst