Morgunblaðið - 09.05.1987, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987
<
AF ERLENDUM VETTVAWGi
Frá Valletta, höfðuðborg Möltu.
Halda sósíalistar völdun-
um með aðstoð Gaddafis?
Mikilvægar þingkosningar a Möltu;
ALMENNAR þingkosningar verða í dag, laugardaginn 9. maí, á
Möltu, hinni hernaðarlega mikilvægu ey í Miðjarðarhafi. Ef hægri-
menn bera sigur úr býtum eins og ætla má af skoðanakönnunum
hefur Gaddafi Líbýuleiðtogi þar með misst eitt af sínum síðustu
bandalagsríkjum. Sósíalíski verkamannaflokkurinn, sem haldið
hefur völdunum með alls kyns bolabrögðum, t.d. með því að
breyta kjördæmaskipaninni sér í hag, virðist þó ekki vera á þeim
buxunum að fara frá, hveijar sem niðurstöður kosninganna verða.
Isíðustu kosningum fékk Þjóð-
emissinnaflokkurinn (PN), sem
er hlynntur vestrænum rílq'um,
51% atkvæða en með að því skil-
greina kjördæmamörkin á nýjan
hátt gat Sósíalíski verkamanna-
flokkurinn (MLP) hagað því svo,
að hann fékk 34 þingmenn af 65.
í skoðanakönnunum að undan-
fömu hefur PN fexigið 52-55%
atkvæða og að þessu sinni á sá
flokkur að mynda stjóm, sem flest
fær atkvæðin. Náðist um það
samkomulag milli flokkanna í við-
ræðum, sem staðið hafa í fjögur
ár, en MLP fékk komið þeirri
klausu inn í staðinn, að vefengja
mætti kosningaúrslitin ef einhver
dæmi væra um „erlenda íhlutun".
Þeir, sem fylgst hafa með
stjómmálum á Möltu, telja ekki
ólíklegt, að MLP muni reyna að
kynda undir múgæsingu meðal
stuðningsmanna sinna til að koma
í veg fyrir eðlileg stjómarskipti
eða biðja Líbýumenn að koma sér
til hjálpar með tilvísan til klau-
sunnar fyrmefndu og samnings
milli ríkjanna um gagnkvæma
aðstoð.
Eddie Fenech Adami, leiðtogi
PN, sagði 15. mars sl., að flokkur
hans væri „við öllu búinn“ og
aðeins fimm dögum síðar var sko-
tið á hann í þorpinu Zabbar.
Adami slapp þó ómeiddur en einn
stuðningsmanna hans særðist. I
desember sl. skaut ókunnur mað-
ur einn flokksmanna PN til bana
og í nóvember barðist stór hópur
stuðningsmanna PN við samein-
aðan liðsafla stuðningsmanna
MLP og lögreglunnar, sem reyndu
að'koma í veg fyrir, að þeir fyrr-
nefndu gætu haldið útifund. Hafði
PN þó áður fengið dómsúrskurð
fyrir fundinum.
Karmenu Mifsud Bonnici, for-
sætisráðherra og yfirlýstur
marxisti, kunnur undir viðumefn-
inu „dr. Zero", hefur lagt áherslu
á „rétt“ verkamanna til að fara
Bonnici, fofsætisráðherra og
leiðtogi sósíalista.
með völdin og sagt, að þjóni það
hagsmunum öreiganna, geti hann
skipað þeim að bijóta lögin.
I nóvember 1983, þegar hann
var aðstoðarforsætisráðherra og
yfirmaður öryggismála, skipaði
hann her og lögreglu að ráðast
inn í aðalstöðvar PN „til að leita
að þráðlausum símum", sem þá
vora bannaðir, og í september ári
síðar hvatti Bonnici vopnaðan
múg til að ráðast á skrifstofur
erkibiskupsins og kirkjunnar, sem
þá átti í útistöðum við stjómvöld.
Fréttaskýrendur telja, að Bonnici,
sem er ákafur hatursmaður vest-
rænna ríkja, hafi þrefalda áætlun
í huga til að halda völdunum.
í fyrsta lagi gætu sósíalistar
reynt að hindra stuðningsmenn
PN í að kjósa; í öðra lagi rænt
völdunum með aðstoð lögreglunn-
ar, sem Norður-Kóreumenn hafa
þjálfað, og, ef allt um þrýtur,
kallað á Gaddafi eins og fyrr segir.
Stuðningsmenn sósíalista hafa
verið hvattir til að kjósa snemma
svo þeir „verði til taks“ síðar um
daginn og um kvöldið. Það getur
t.d. þýtt, að hópur sósíalista meini
stuðningsmönnum PN aðgang að
kjörstöðum eins og kom víða fyrir
í kosningunum 1981 og nú eins
þá er líklegt, að útvalið hjúkrana-
rfólk á snæram sósíalista sjái um
framkvæmd kosninganna á elli-
heimilum og sjúkrahúsum.
í síðustu kosningum tilkynnti
ríkissjónvarpið, að sósíalistar
hefðu borið sigur úr býtum áður
en skýrt hafði verið frá fyrstu
tölum og vegna þess hefur PN
skorað á fylgismenn sína að halda
til úti á götum og torgum þar til
talningu er lokið. Það er þó hæg-
ara sagt en gert því að hún getur
tekið marga daga. Kjósendur ráða
sjálfír röð frambjóðenda og því
þarf í raun að telja 15-20 sinnum
í hverju kjördæmi.
Sósíalistar hafa tvo þriðju full-
trúa í landskjörstjórn en auk þess
að sjá um kosningaframkvæmd-
ina getur hún ráðið því hvemig
talningu er hagað og hvenær
skýrt er frá úrslitunum til að
þóknast stjómarflokknum. Leið-
togar MLP hafa því tíma til að
átta sig á hvert stefnir og til að
grípa til áðumefndra bragða í því
skyni að halda völdunum.
Lögreglan er að sjálfsögðu und-
ir stjóm sósíalista og almennt litið
á hana sem hveija aðra flokks-
deild. Hefur hún verið sökuð um
að pynta fanga og lögreglumenn
slást jafnan í lið með sósíalistum
þegar þeir gera aðsúg að stuðn-
ingsmönnum PN. Kunnugir menn
benda þó á, að innan öryggislög-
reglunnar séu margir stuðnings-
menn PN, oftast á laun, og því
ekki víst, að þeir hlýddu yfirboður-
um sínum ef þeim væri skipað að
taka þátt í valdaráni. Mesta hætt-
an stafar af Líbýumönnum, sem
hafa komið sínum dyggu þjónum
fyrir innan MLP og á ýmsum svið-
um þjóðlífsins, í atvinnulífínu og
ríkisfjölmiðlunum.
Gaddafi á mikið undir því kom-
ið, að sósíalistar fari áfram með
völdin á Möltu, ekki síst eftir
smánarlegan ósigur líbýska hers-
ins í Chad. Möltustjóm er nú orðið
næstum eini bandamaður Gaddaf-
is og því ekki ósennilegt, að hann
muni gera hvað hann getur til að
tryggja hana í sessi án tillits til
vilja meirihluta kjósenda.
ELDHÚSKRÓKURINN
Sparitertur^,
Súkkulaðiperuterta
Tertubotnar:
3 eggjarauður,
2 matsk. volgt vatn,
125 g sykur,
1 bréf vanillusykur,
100 g hveiti,
100 g maizenamjöl,
3 tesk. lyftiduft,
4 matsk. dökkt kakó,
3 eggjahvítur,
50 g sykur.
Þeytið saman eggjarauður,
vatn, sykur (125 g) og vanillusyk-
ur þar til létt og freyðandi.
Blandið saman í skál hveiti, maiz-
ena, kakói og lyftidufti. Stífþeytið
eggjahvítumar og bætið svo
smátt og smátt 50 g af sykri út
í. Hrærið stöðugt í. Massinn á að
vera mjög stífur. Látið eggja-
hvítumassann yfir eggjakremið
og sigtið mjölið yfir. Blandið var-
lega saman með gaffli.
Sett í form, um 22 sm í þver-
mál. Notið bökunarpappír. Bakist
í 200 gráðu heitum ofni í 25 til
30 mínútur. Látið kökuna kólna
Heit terta
með aspas
Botninn:
250 g hveiti,
1 egg,
1 dl kalt vatn,
100 g smjör eða smjörlíki,
salt, múskat.
Fylling:
Hálfdós af hvítum og hálfdós
af grænum aspasstilkum,
2 litlir laukar, 250 g rækjur,
75 g rifinn óðalsostur,
3 egg,
1 box (300 g) sýrður ijómi,
pipar.
Deigið: Hnoðið saman mjúkt
deig og geymið á köldum stað í
1-2 klst. Síðan sett í form (26 sm
í þvermál) með lausum botni og
klætt með bökunarpappír. Eða
notað eldfast form, ef þið eigið.
Fletjið út deigið og látið í botninn
á forminu.
Bakið botninn í 15 til 20 mínút-
vel áður en hún er tekin úr form-
inu og klofin í tvennt.
Fylling:
75 g sykur,
2 tesk. vanillusykur,
4 eggjarauður,
*/« lítri ijómi,
heildós af hálfum peram,
200 g hjúpsúkkulaði.
Blandið saman sykri og vanillu.
Hrærið rauðumar léttar og freyð-
andi, bætið sykrinum smátt og
smátt út í. Kremið á að vera eins
og þykkur hvítur massi. Þeytið
ijómann og blandið honum út í
eggjamassann.
Helmingi kremsins smurt á
neðri tertubotninn. Látið renna
af peranum og jafnið þeim yfir
og síðan afgangnum af kreminu.
Hinn botninn látinn ofan á.
Bræðið hjúpsúkkulaði í skál
ofan í potti með sjóðandi vatni.
Smyijið yfir kökuna, sprautið 8
ijómatoppum allt í kring og skrey-
tið með marsipanblöðum.
ur í 200 gráðu heitum ofni. Takið
út og látið kólna meðan þið út-
búið fyllinguna.
Látið renna vel af aspasinum.
Afhýðið laukana og saxið smátt.
Hrærið saman sýrða ijómanum
og eggjunum og piprið. Helmingn-
um af ostinum og lauknum dreift
yfír deigbotninn, aspasinn lagður
ofan á, en geymið eins og 6 græna
stilka til að láta síðast. Þá koma
rækjurnar og eggjamassinn þar
ofan á. Skreytt með aspas (sjá
mynd) og loks er afgangnum af
ostinum stráð yfir.
Bakið tertuna í 30 til 35 mínút-
ur til viðbótar við um 200 gráðu
hita.
4jarðarberja-
marengstertur,
eða ein stór terta
Frábært sem eftirréttur
3 eggjahvítur,
aðeins salt,
150 g sykur,
1 tesk. sítrónusafi,
250 g fersk jarðarber,
l/i lítri ijómi,
1 pk. vanillusykur,
1 matsk. hakkaðar grænmöndlur
(pistachio, fást oft t.d. í SS,
Glæsibæ).
Stífþeytið eggjahvítur og salt.
100 g af sykri bætast svo í smátt
og smátt. Síðan sítrónusafinn og
sykurinn með hraði. Sett í
sprautupoka.
Látið bökunarpappír á bökun-
arplötu, eða í tertuform eigi þetta
að vera ein stór terta. Sprautið
annars 4 botna (um 8-9 sm í þver-
mál), í kantinn sprautast rósadúll-
ur allt í kring (sjá mynd).
Botnarnir þurrkast í 80 gráðu
heitum ofni í að minnsta kosti tvo
tíma.
Berin skoluð, þerrað og skorin
í sneiðar. Rjóminn stífþeyttur með
vanillusykri. Rjómi settur á hvern
marengsbotn, jarðarber ofan á og
ijómatoppur í miðju, skreytt með
söxuðum pistachio.
Algjört lostæti!