Morgunblaðið - 09.05.1987, Qupperneq 47
47
MÖRGÚNBLAÐIÐ, LÁÚGARDAGUR 9. MAÍ ÍSá1?
Afmæli:
Jenný Lovísa Einars
dóttir — 75 ára
Fermingarbörn í Selfoss-
kirkju á morgun, sunnudag 10. maí
í dag, 9. maí, er heiðurskonan
Jenný Lovísa Einarsdóttir, amma
okkar, 75 ára. Það þykir okkur með
ólíkindum, því í þau 25 ár sem við
munum hana hefur hún ekkert
breyst. Kannski eru gráu hárin ör-
lítið fleiri og lundin mildari, en það
er bara til að gera hana ennþá
meira sjarmerandi og sætari í okkar
huga.
Amma hefur að mestu unnið sitt
ævistarf inni á heimilinu, enda haft
yfrið nóg að starfa þar. Ung giftist
hún fyrri manni sínum, Einari
Hauki, og átti með honum 4 böm.
Þau eru Jóna Margrét, sem dó mjög
ung, Anna Margrét, Einarína Sig-
urveig og Haukur. Þegar Einar
Haukur dó stóð amma uppi með 3
böm. En fljótlega kynntist hún afa
heitnum, Arna Þorsteinssyni, sem
svo varð seinni maður hennar. Þau
eignuðust sjö böm. Þau eru tvíbur-
amir Guðný Helga og Þorbjörg
Ágústa — Þorbjörg dó 17 ára göm-
ul, Inga Eygló, Þorsteinn, Brynja,
Guðrún og Ámi.
Heimili ömmu var alltaf stórt og
þætti mörgum nóg að hafa þó ekki
væri nema helminginn af því sem
hún hafði á sinni könnu, því þótt
fjölskyldan væri stór var eins og
alltaf væri nóg pláss og endalaust
hægt að metta munna. Á heimili
ömmu og afa dvaldi lengst af
mamma ömmu, Anna Soffía. í þá
daga þótti eðlilegt og sjálfsagt að
reyna svo lengi sem hægt var að
hafa gamla fólkið heima. Okkur
systrum hefur skilist að þá hafí
ekki verið spurt hve mörg herbergi
væru í húsi — heldur hve margir
kæmust fyrir í hveiju herbergi.
Brauðstritið var að sjálfsögðu í fyr-
irrúmi á svo stóru heimili en
stundum var brugðið á leik. Mömmu
er minnisstætt er amma dansaði
charleston eftir óskalögum sjúkl-
inga eða gæsahúðin sem hún fékk
er söngur M.A.-kvartettsins hljóm-
aði í útvarpinu.
Þegar heimilið minnkaði dreif
amma sig út á vinnumarkaðinn.
Hún hefur stundað ýmis þau störf
sem nauðsynleg eru en illa launuð
í þjóðfélagi þar sem kvennastörf
eru lítils metin.
Enn þann dag í dag er hún vel
liðtæk og við sem héldum að 75
ár væru hár aldur. Hneigjum okkur
fyrir henni í virðingu og þökk.
Megi henni auðnast mörg ár enn.
Systumar í Laugargerðisskóla
Kl. 10.30
Aron Jóhannsson,
Lágengi 19.
Birgir Öm Arnarson,
Lágengi 9.
Dagbjartur Jónsson,
Lágengi 2.
Guðmann Már Guðmannsson,
Álftarima 8.
Guðmundur Jón Skúlason,
Vallholti 36.
Hafsteinn Már Magnússon,
Álftarima 20.
Inga Fríða Tryggvadóttir,
Birkivöllum 9.
Kjartan Vilhjálmsson,
Hjarðarholti 9.
Ragnheiður Gísladóttir,
Stekkholti 18.
Rúnar Þór Sævarsson,
Skólavöllum 3.
Steinunn Björk Siguijónsdóttir,
Kirkjuvegi 37.
Þórunn Borg Ólafsdóttir,
Miðengi 18.
Kl. 14
Ágúst Þór Jónsson,
Réttarholti 2.
Amheiður Þorvaldsdóttir,
Lágengi 30.
Ástrós Guðmundsdóttir,
Lambhaga 46.
Erlingur Reyr Klemenzson,
Birkivöllum 23.
Esther Björg Thaagaard,
Engjavegi 2.
Friðbert Guðmundur Gunnarsson,
Engjavegi 32.
Halldóra Erlensdóttir,
Sigtúnum 36.
Hekla Gunnarsdóttir,
Lambhaga 8.
Helga Þórkelsdóttir,
Eyrarvegi 5.
Hjalti Þorvarðarson,
Laufhaga 13.
Jón Heimir Tómasson,
Tryggvagötu 24.
Karl Reynir Einarsson,
Fossheiði 16.
Lovísa Vilhelmína Guðmundsdóttir,
Smáratúni 2.
Sólveig Amdís Hilmarsdóttir,
Tryggvagötu 15b.
Sólveig Pétursdóttir,
Lambhaga 34.
Sæunn Ósk Kristinsdóttir,
Þórustöðum 2.
..!J TÓNKVÍSLAVOG WSSk
i
■ œ»
Sumarbúðir KFUK í Vindáshlíð.
Innritun hafin
í sumarbúðir
í Vindáshlíð
INNRITUN er hafin í sumarbúð-
ir KFUK í Vindáshlíð. KFUK
hefur nú í tæp 40 ár rekið sumar-
búðir í Vindáshlfð í Kjós. Þangað
er u.þ.b. klukkustundar akstur
frá Reykjavík.
í sumar er boðið upp á sjö flokka
fyrir telpur á aldrinum 9-12 ára og
tvo fyrir stúlkur 11-13 ára og 13-16
ára. Hver flokkur dvelur á staðnum
í viku. Innritun fer fram á skrif-
stofu KFUM og K, Amtmannsstíg
2b.
Eftir margra ára rannsóknir hefur
okkur tekist að framleiða tölvuvog
sem byggir á sama eðlislögmáli og
tónkvísl.
Það að nota tónkvísl í
þyngdarmælingu er ekki minni
bylting en það var á sýnum tíma að
nota Quartz í tímamælingu.
Kaffisala Heimeyjar kvenna
KVENFÉLAGIÐ Heimaey held-
ur sína árlegu kaffisölu sunnu-
daginn 10. maí að Hótel Sögu
Súlnasal og hefst hún kl. 14.00.
Kvenfélagið Heimaey er líknarfé-
lag sem um árabil hefur styrkt
ýmis málefni í sinni heimabyggð
og víðar, má þar nefna Hraun-
búðir, dvalarheimili aldraðra í
Vestmannaeyjum, Kvennaathvarfíð
og einstaklinga sem átt hafa um
sárt að binda.
Allur ágóði af kaffisölunni renn-
ur til líknarmála.
Sérstakir heiðursgestir eru aldr-
aðir Vestmannaeyingar.
£vibb* tnnkvíslavonir hafa marga kosti
umfram aörar vogir og má t.d. nefna:
Mun nákvæmari og ódýrari.
Plasl.os lil/
KRÓKHÁLS 6 SÍMI 671900®'
íburdur og þœgindi í litlum bíl. Skutlan frá LANCIA
kostar frá aðeins 281 þúsund krónum!
* Bíllinn
fyrir okkur.
BÍLABORG HF
FOSSHÁLSI 1, SlMÍ 68 12 99