Morgunblaðið - 09.05.1987, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987
félk f
fréttum
HARTIFARI
Bandaríski þingmaðurinn Gary
Hart hefur átt í nokkrum
vandræðum að undanfömu og lauk
því með því að hann hætti við for-
setaframboð sitt í gær. Sem
kunnugt er sækist hann eftir út-
nefningu Demókrataflokksins sem
forsetaframbjóðandi flokksins í
kosningunum á næsta ári. Hart
sóttist einnig eftir þessum heiðri
fyrir síðustu kosningar, en þá varð
Walter Mondale yfírsterkari innan
flokksins.
Fyrir síðustu kosningar var Hart
nokkuð gagnrýndur fyrir að vera
einfaldlega ekki forsetaefniviður.
Bent var á að hann hefði breytt
nafni sínu, skipt um rithönd tvisvar
og skrökvað um aldur sinn. Töldu
menn að slíkur hégómi sé síst for-
seta sambjóðandi. Fyrir þessar
kosningar hefur borið á sömu rödd-
um, en einnig er bent á að hann
sé skuldseigur með afbrigðum og
sagt að maður sem ekki borgi skuld-
ir sínar eigi ekkert erindí í Hvíta
húsið. Ekki bætti úr skák að Hart
lofaði nýverið að greiða reikninga
síðustu kosningabaráttu, en hefur
svo ekki staðið við það.
Nú á síðustu dögum hefur þó
mest verið rætt um kvensemi Harts,
en sumum þykir hún keyra úr hófí.
Hart hefur tvisvar skilkið við Lee,
eiginkonu sína, en þau hafa hins
vegar tekið saman fyrir kosninga-
baráttu — lfkt og Teddy og Joan
Kennedy voru iðin við um árið.
Bandaríska dagblaðið The Miami
Herald birti fyrir skemmstu fregnir
þess efnis að Hart hefði sést í fylgd
tískusýningarstúlku nokkurrar,
Donnu Rice að nafni. Þrátt fyrir
að sýnt þyki að þau hafí eytt nótt
saman kveðast bæði vera alsaklaus
af nokkurri siðferðislegri óhæfu.
Reyndir menn telja þó ólíklegt að
þau hafí eytt nóttinni við að leika
kotru og benda á að burtséð frá
því hvað þau hafi aðhafst um nótt-
ina þá hafi Hart sýnt þvílíkt
dómgreindarleysi að ekki verði liðið.
Kona Harts, Lee, virðist hins
vegar fyrirgefa bónda sínum hvað
sem er og stendur enn óhögguð við
hlið hans. Segja illar tungur að
framagimd hennar sé greinilega
takmarkalaus, en aðrir segja hins
vegar trygglyndi hennar aðdáunar-
vert.
Meðfylgjandi eru myndir sem
sína báðar dömumar, svo að nú
geta menn sjálfír dæmt um smekk-
vísi Harts.
-
*****
Reuter
ÞAÐ KVAÐ VERA FALLEGT í KÍNA...
Deng með fjölskyldunni
ÆT
Iausturvegi virðist það vera í tísku hjá leiðtogunum að sýna á sér
„mennskt andlit" og gífurlega vinsælt mun að reifa opnari stjómar-
hætti. Virðist þetta eiga nokkuð jafnt við um Kín /eija og Sovétmenn
og leppa þeirra.
Fyrir skömmu var birt mynd að Deng Xiaoping ásamt bamabami
sínu og litlum frænda þar sem þau voru að gróðursetja tré, en það
gerðu þau á árlegum skógræktardegi þar eystra. Fátítt hefur verið
að fjölskyldur kínverskra leiðtoga séu á nokkum hátt í sviðsljósinu
þegar eiginkona Maós er undanskilin.
Skutlan Donna Ríce.
Reuter
Lee Hart á leið til New Hamp-
shire á miðvikudag, en þá hitti
hún eiginmanninn í fyrsta sinn
síðan fregnir bárust af fundum
hans og Donnu.
BLAÐAVAGN A LÆ JARTORGI
„Salan stjórnast mest
af veðri“
Reykvíkingar, sem erindi hafa
átt niður á Lækjartorg undan-
fama daga hafa eflaust veitt því
athygli að þar er kominn blaðavagn
líkt og var á Ráðhústorgi Akur-
eyringa til skamms tíma.
Í vagninum situr Þröstur Guð-
bjartsson og tók hann blaðamanni
vel þegar fregnast var um vagninn.
„Ja hugmyndina átti eigandi
vagnsins, Olafur Pálsson, en hann
gefur m.a. út Krossgátublaðið og
fleira í þeim dúr. Hann sá þennan
vagn á bílasölu og datt í hug hvort
ekki væri hægt að reka slíkan vagn
hér í Reykjavík, en svona vagnar
eru velþekkt fyrirbæri í erlendum
borgum."
Og hvemig ganga viðskiptin?
„Það er nú upp og ofan og virð-
ist algerlega fara eftir veðri. Fyrsta
daginn var rok og rigning og salan
gekk býsna treglega. Annan daginn
var hins vegar logn og blíða og þá
tóku viðskiptin svo sannarlega við
sér.“
Og hvað ertu með til sölu hér?
„Það era öll íslensku dagblöðin
og tímarit ýmis. Svo ætlum við að
sjá hvað setur og þá fer tímaritum
vafalaust fjölgandi. Um erlend blöð
veit maður nú ekki, en það kemur
allt í ljós. Markmiðið er að sjálf-
sögðu að selja það sem fólk vill og
þá er ekki ólíklegt að við verðum
líka með Morgan Kane og aðrar
slíkar bókmenntir."
En ertu ekki í neinni samkeppni
við blaðsölustrákana?
„Ég hugsa nú að hún sé mjög
óbein. Ég er hér á sjálfu Lækjar-
torgi, þeir era meira inni í Austur-
stræti og að sjálfsögðu mest við
homið á því og Pósthússtræti. Þess-
um stað var okkur úthlutað af
Reykjavíkurborg, en ég held að
skapist einhver samkeppni vegna
tilkomu vagnsins þá verði hún hin
heilbrigðasta."
Hvað verður svo um vagninn? Á
að leggja honum þegar vetur geng-
ur íjrarð eða hvað?
„Eg hugsa að við reynum að
halda honum gangandi áfram sé
þess nokkur kostur. Það á ekki að
vera neitt vandamál að hita svona
vagn upp og þá mætti líka huga
að stækkun vagnsins. Við sjáum til
hvemig þetta gengur í vondum veð-
ram, en verði næsti vetur í einhverri
líkingu við þann síðasta þá sé ég
ekki annað en að þetta verði allt í
himnalagi."
Með það þakkaði blaðamaður
Þresti Guðbjartssyni fyrir spjallið
og óskaði honum velgengni í vagn-
inum.
Vaghh*
Þröstur Gudbjartsson í vagninum.
Morgunblaðið/Ól.K.M.
Um vandræði Gary Harts