Morgunblaðið - 09.05.1987, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 09.05.1987, Qupperneq 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987 „ ALLt i Lagi, eg sagbl paE jce, ab rr\\g vamkojbc mann sam Kynni ab hota. hauslnn. " ást er... ... aö geta kallaÖ hvort annaÖ elskuna sína TM Rag. U.S. Pll OH -íH riflhts rcservcd • 1M3 Los Angttes Thms Syndicate Því má þó ekki gleyma að rigning var það sem vant- aði___ HÖGNI HREKKVlSI „Fóstrur hafa stór- lega dregist afturúr“ Til Velvakanda. Við fóstrur fengum heldur kaldar kveðjur frá borgarstjóranum okkar föstudaginn 1. maí. I viðtali við fjöl- miðla heldur hann því fram að það sé öfgahópur innan fóstra sem ráði ferðinni. Hann gekk jafnvel svo langt að kenna einni tiltekinni manneskju þar um. Þetta er alfarið rangt hjá hæstvirtum borgarstjóra. Þama er hann að reyna að koma flokkspólitík inn í hug hins almenna borgara og koma kjarabaráttu okk- ar niður á pólitískt þrætuplan. Sú ákvörðun að halda fast við okkar kröfur var gerð með leyni- legri skoðanakönnun, eftir að samningstilboð hafði verið kynnt og málin rædd í okkar hópi. Einung- is þær sem höfðu sagt upp störfum hjá Reykjavíkurborg máttu taka þátt í skoðanakönnun þessari. Borgarstjórinn hefur fært kvennastéttum í borginni tveggja launaflokka hækkun á silfurfati, en ekki hlustaði hann á sérkröfur okk- ar fóstra, hélt að það væri hægt að stinga snuði upp í fóstrur. Fóstr- um er boðinn launaflokkur 233 og síðan að flýta launaflokkahækkun þeirri sem allir í BSRB munu fá og fara þannig strax í launaflokk 234, byijunarlaun 37.316 kr. En þegar aðrir innan BSRB fá sína launaflokkahækkun þá munum við standa í stað. Sannleikurinn í kjarabaráttu okkar fóstra er sá að við höfum stórlega dregist aftur úr sambæri- legum stéttum, þroskaþjálfum og hjúkrunarfræðingum frá Hjúkrun- arskóla íslands. Almennur þroska- þjálfi er nú í launaflokki 234, en að auki hafa þær deildarþroska- þjálfastöðu sem er einum launa- flokki hærri. Við fáum ekki deildarfóstrunafnið inn og fleiri sérkröfum er alfarið hafnað eða gefin mjög óviðunandi loforð um að skoða málið. Að endingu viljum við beina orð- um okkar til fóstrunema sem nú eru á síðasta ári í Fósturskóla Is- lands að þeir hugsi vel sinn gang áður en þeir ráði sig hjá Reykjavík- urborg við núverandi ástand. Og foreldrar. Telja þeir uppeldis- og kennslustarf okkar fóstra hafi jákvæð og þroskavænleg áhrif á uppeldi bama sinna? Eða óska þeir einungis eftir einhverri bamapöss- unarlausn? Vonandi finnst viðunandi lausn . hið bráðasta. Margrét Þórarinsdóttir, Anna Bára Pétursdóttir, Guðrún Samúelsdóttir, Ingigerður Heiðarsdóttir, Álfhildur Erlendsdóttir, Selma Ó. Kristiansen, Sólveig Ásgeirsdóttir, Anna Sigurðardóttir, Edda Gunnarsdóttir, Þuríður Pálsdóttir, Anna Helga Hilmarsdóttir, Jónína Jóhannsdóttir, Lena Hreinsdóttir, Jóhanna Björk Jónsdóttir, Kristbjörg Lóa Árnadóttir. Skert námslán TU Velvakanda Mig langar til að vekja at- hygli á greininni Neyð í New York sem byrtist í Morgunblað- inu þriðjudaginn 28. apríl. Hún segir á nokkuð hlutlausan hátt frá kjöram námsmanna í New York eftir skerðingu Sverris Hermannssonar á námslánum. Þar kemur fram að námsmenn geta engan veginn lifað á náms- lánum og margir hafa hrökklast heim úr námi vegna fjárskorts. Samkvæmt könnun sem gerð var fá 96 prósent námsmanna aðstoð að heiman eða vinna með skólanum, þá oftast í ólöglegri vinnu. Þetta er ljótt ef satt er. Ég hvet næstu ríkisstjóm að láta eitt af sínum fyrstu verkum verða að afnema skerðingu menntamálaráðherra á náms- lánum svo Iánasjóðurinn geti aftur gengt hlutverki sínu um jafnrétti til náms. Líka að öllu hringli með sjóðinn verði hætt svo námsmenn geti nú farið að snúa sér aftur að náminu af fullum krafti. Móðir Víkverji skrifar Menn hafa löngum undrast gróskuna í myndlistarheim- inum hér á landi. Og ekkert lát virðist ætlað að verða þar á. í dag taka til að mynda tveir nýir sýning- arsalir til starfa í Reykjavík. Annars vegar er Gallerí Borg að opna sýningasal í nýja Pennahús- inu í Austurstræti og hins vegar Félag ísl. myndlistarmanna að opna sýningarsal í Garðastræti. Virðast FÍM-menn ætla honum að taka við hlutverki gamla Lista- mannaskálans sem í eina tíð stóð við hlið Alþingishússins. Þeir FÍM menn virðast vera með talsvert metnaðarfullar hugmyndir um starfsemi nýja sýningarsalar- ins. Sýningarsalurinn verður leigður út gegn föstu gjaldi en hins vegar mun sérstök sýningamefnd starfa á vegum félagsins og hafa úrskurðarvald um það hveijir fá að sýna í salnum. Á þann hátt á í því að vera fólgin viss viðurkenn- ing, t.d. fyrir unga myndlistar- menn, að hljóta náð fyrir augum sýningamefiidar FIM. Sýningamefndinni verður áreið- anlega nokkur vandi á höndum og má reikna með að störf hennar muni þykja umdeild. Víkveiji heyrði á dögunum á tal tveggja myndlistarmanna um rekstrarfyr- irkomulag nýja salarins. Annar var einn af forystumönnum FÍM og í hópi efnilegri myndlistarmanna okkar en hinn gamalreyndur list- málari, sem tekið hafði þátt í rekstri Listamannaskálans á sínum tíma. Yngri maðurinn var að lýsa því að stjóm sýningarsalar FÍM yrði skipuð fimm og síðar jafnvel þremur mönnum. Hinn eldri átti hins vegar það heilræði best handa félaga sínum að fela einum manni alræðisvald yfír rekstrinum — það hefði verið sá lærdómur sem menn hefðu dregið af rekstri Lista- mannaskálans á sínum tíma. - Listin þolir illa of mikið lýðræði, sagði maðurinn með reynsluna. Það getur því orðið fróðlegt að sjá hvaða stefnu sýningarhald FIM tekur þegar á líður því að reynslan sýnir að listamönnum er einatt lag- ið að fínna sér til ágreiningsefni. Sýningarsalur FIM er þó engu að síður kærkomin viðbót í myndlist- arlífínu. XXX Af því minnst var á Pennann hér á undan, þá fer ekki hjá því að menn undrist stórhug for- ráðamanna þess fyrirtækis. Þeir hafa nú flutt verslun Pennans úr . Hafnarstræti á þijár hæðir að Austurstræti 10 þar sem Torgið var áður og þar era á boðstólum flest þau aðföng sem þarf til skrif- stofuhalds auk deildar sem á að sinna þörfum myndlistarmanna í víðasta skilningi - bæði listmálur- um og arkitektum. Á sama tíma er Penninn að koma sér upp miklu verslunarrými í Kringlunni, nýju verslunarsamstæðunni í nýja mið- bænum. Víkveiji hefur því spurt sig þeirrar spumingar — hvenær er fyrirtæki komið í samkeppni við sjálft sig? XXX Víkveiji þessa stundina er í hópi þeirra sem fínnst maí- mánuður besti mánuður ársins. Dagamir verða lengri, jörðin skipt- ir um lit og farfuglamir birtast einn af öðram. Ekkert er yndis- legra en tær og bjartur vormorgun, þegar kyrrðin er einungis rofín af söng mófuglana — lóunnar og spó- ans. Að vísu ber nokkum skugga á vorkomuna hjá Víkveija að þessu sinni. Starrahjón nokkur hafa gert ítrekaðar tilraunir til að hefja hreiðurgerð á svölum hans — en þeim tilburðum verið mætt af fullri hörku því hreiðram þessa fugls fylgir starralúsin alræmda sem hvergi er aufúsugestur. En starr- inn hefur ekki látið þar við sitja heldur hefur Víkveiji komist að því að söngur mófuglana sem hann hélt vera spóa og lóu og barst inn um svefnherbergisgluggann í morgunkyrrðinni, er ekki upprann- inn hjá þessum mætu vorboðum, heldur er það starrinn, hermikráka hin mesta, sem situr á svalahand- riðinu í morgunskímunni og vellir eins og spói og dirrindíar eins og lóan. Þannig hefnir starrinn sín á þeim er andæfa gegn hreiðurgerð hans.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.