Morgunblaðið - 17.05.1987, Síða 44
RÆTT VIÐ GYÐU JÓHANNSDÓTTUR
„Það læra börn sem þau búa við,“ stendur m.a. á
veggspjaldi í anddyri Fósturskóla íslands við
Laugalæk — spakmæli sem engum dettur í hug að
andmæla. Samt má furðu gegna hve hugmyndir fólks
um þessi mál eru mikið á reiki. Oft heyrast raddir
eins og: Fóstrumenntun — hvað er nú það? Þarf að
fá einhverja sérstaka menntun til að ala upp krakka?
Hefur þetta ekki gengið vandræðalaust frá örófi alda?
Er þetta einhver vandi? Allt á nú að vera vandamál!
haldsskóla, að loknu grunnskóla-
prófi. Auk þess er heimilt að veita
umsækjanda skólavist þó hann upp-
fylli ekki kröfur um grunnmenntun.
Skólanefnd metur þá umsækjanda,
með tilliti tii menntunar og starfs-
reynslu.
Lögin um inntökuskilyrði eru
hins vegar orðin úrelt. I fyrsta lagi
er miðað við skóla og prófgráður
Þetta viðhorf er lifandi
vottur þess hversu örum
breytingum þjóðfélagið
hefur tekið síðustu ára-
tugina — og sú þróun
hefur ekki tekið sérstaklega mið
af þörfum ungra bama.
Fósturskóli íslands varð 40 ára
á síðasta ári. Þar hafa auðvitað líka
orðið breytingar þessa hartnær
hálfu öld en þar hafa fóstrur fengið
þá staðgóðu menntun sem til þarf
til að annast bamahópa svo vel
fari — svo vel að aldrei hafa heyrst
óánægjuraddir frá foreldrum þeirra
bama sem þessa umönnun fá. Er
það ef til vill skýringin á því hvers
vegna aldrei hefur verið nein veru-
leg umræða um þetta nám og starf
hér á landi? Eins og kunnugt er
fínnst fólki lítil ástæða til að ræða
eða benda á það sem ágætt er.
Þess vegna heyrast athugasemdir
einsog: Hva — er þetta einhver
vandi?
Staðreyndin er nefnilega sú, að
þetta er töluverður vandi.
Skólastjóri Fósturskóla íslands,
Gyða Jóhannsdóttir, var beðin að
svara nokkmm fyrirspumum um
þennan skóla, fyrst um tilhögun
námsins og inntökuskilyrði í stómm
dráttum.
„Hlutverk Fósturskóla íslands er
að mennta fólk til uppeldisstarfa á
hverskonar uppeldisstofnunum frá
fæðingu til skólaaldurs," sagði
Gyða. Fóstmr vinna einnig á skóla-
dagheimilum. í lögum um aðstoð
við þroskahefta frá 1979 er kveðið
á um þjónustu við þroskahefta að
svo miklu leyti sem henni verður
við komið á almennum deildum
dagvistarheimila.
Starfsmenntun fóstra tekur nú
þrjú ár og er námið bæði bóklegt
og verklegt. Verklega námið er
u.þ.b. 1/3 hluti og dreifíst á öll
árin. Námið er lánshæft. Fyrstu tvö
árin er greinabundið nám sbr. bekk-
jarkerfí. Þar er lögð áhersla á
þróunarsálfræði, en hún fjallar um
það sem er vitað um þróunarferil
bamsins og uppeldisskilyrði. Einnig
er kennd félagsfræði, heilbrigðis-
fræði, uppeldisfræði, íslenska,
bókmenntir, vistfræði, heilbrigðis-
fræði, næringarfræði, saga uppeldis
og menntunar. Ekki má gleyma list-
greinunum, tónmennt, myndíð og
leikrænni tjáningu, en þær skipa
veglegan sess í starfsnámi fóstra.
Ég sagði að kennt væri greina-
bundið, það er þó ekki allskostar
rétt þar sem námið í Fósturskólan-
um er svonefnt ferilnám sem
einkennist af innbyrðis tengingu
allra námsþátta, bóklegra og verk-
legra, þannig að um órofa heild
verði að ræða. Við reynum að kenna
þvert á námsgreinar, samþættum
þær eins og það er kallað. Sam-
starf kennara er því mjög mikil-
vægt.
Gyða Jóhannsdóttir
Myndir af börnum á dagvistarstofnunum að leik úti og inni.
Námsfyrirkomulag á þriðja ári
er svonefnt þemanám, þ.e.a.s. sam-
þætt nám og glögg skil milli
námsgreina rofín. Þess má geta að
þegar nemendur III. árs hafa skilað
lokaritgerð fara nemendur í viku
námsferð og kynna sér starfsemi
ýmissa áhugaverðra dagvistar-
stofnana erlendis. Nemendur hafa
þannig kynnt sér tilraunastarfsemi
í sambandi við skapandi starf á
Norður-Ítalíu, sömuleiðis hafa þeir
kynnt sér tónlistaruppeldi í Ung-
veijalandi. Einnig hafa þeir farið
til Bretlands, Þýskalands, Frakk-
lands svo eitthvað sé nefnt.“
„Hver eru inntökuskilyrði í skól-
ann?“
„Inntökuskilyrði eru stúdents-
próf eða tveggja ára nám í fram-
sem ekki eru lengur til, þ.e.a.s
gagnfræðapróf eða framhalds-
deildir gagnfræðaskóla. í öðru lagi
er ljóst að verðandi fóstrur þurfa
ekki minni undirbúningsmenntun
en kennarar, því fóstran er í raun
fyrsti faglærði kennari bamsins.
Stjóm Fósturskóla íslands hefur
sent núverandi menntamálaráð-
herra tillögur þess efnis að gera
undirbúningsmenntun fóstra sam-
bærilega við undirbúningsmenntun
kennara. Þessi krafa verður að telj-
ast eðlileg, m.a. má nefna breytingu
á inntökuskilyrðum annarra starfs-
menntunarskóla svo sem Kennara-
háskóla íslands, hjúkrunarbrautar
við Háskóla íslands og Þroska-
þjálfaskóla íslands. Þetta er
sömuleiðis í fullu samræmi við
stefnumörkun Evrópuráðsins á átt-
unda áratugnum en þá var skorað
á aðildarríkin að beita sér fyrir því
að gerðar yrðu sambærilegar kröfur
til fóstra og kennara og að fóstrur
njóti sömu starfskjara og þjóðfé-,
lagsstöðu og kennarar. Stúdents-
próf er yfírleitt inntökuskilyrði á
Norðurlöndum. Einnig er rétt að
geta þess að mun stærra hlutfall
árgangs lýkur stúdentsprófí hér á
íslandi en áður.“
Eins og mörgum mun í fersku
minni kom hingað nýlega nefnd frá
OECD á vegum Sameinuðu þjóð-
anna sem gerði úttekt á skólakerf-
inu hér á landi að beiðni Ragnhildar
Helgadóttur fyrrverandi mennta-
málaráðherra. Niðurstöður nefnd-
arinnar voru að einhveiju leyti
birtar í biöðum nú í vetur og Gyða
er spurð hvort starfsemi Fósturskól-
ans hafi ekki komið þar líka til
umfjöllunar.
„Jú, það var mjög ánægjulegt
að nefndin gaf jákvæða umsögn um
Fósturskólann, en bendir jafnframt
á leiðir til þess að styrkja hann.
Hún taldi að svo virtist sem almenn-
ingur og ráðamenn gerðu sér ekki
nægjanlega grein fyrir mikilvægi
skóla og dagvistarheimila í nútíma
þjóðfélagi, t.d. endurspegla laun
kennara og fóstra það skilnings-
leysi. Sérfræðingar benda á þá
staðreynd að vinnutími fólks sé
lengri hér en í nágrannalöndum
okkar og að margir íslendingar
gegni fleiru en einu starfí. M.a.
þess vegna telja þeir að dagvistar-
heimili, skólar og æðri mennta-
stofnanir gegni lykilhlutverki í
varðveislu, miðlun og þróun hins
sér-íslenska menningararfs.
I framhaldi af þessu leggja þeir
m.a. til að fóstrustarfíð verði gert
sambærilegt kennarastarfi og
menntun allra kennara sé á sama
skólastigi (fóstrur meðtaldar).