Morgunblaðið - 17.05.1987, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1987
51
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Patreksfjörður
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið.
Uppl. hjá umboðsmanni í síma 1234 eða í
afgreiðslunni í Reykjavík, sími 91-83033.
Hjúkrunarfræðingar
Viljum ráða hjúkrunarfræðinga til sumaraf-
leysinga og í fastar stöður. Nánari upplýsing-
ar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 9622100.
Starfsfólk á geðdeild
Óskum að ráða eftirfarandi starfsfólk á geð-
deild sjúkrahússins frá 1. júní:
Starfsmenn: Um er að ræða störf í þrjá
mánuði og til frambúðar. Krafist er góðrar
almennrar menntunar, aðlögunarhæfni og
góðrar framkomu.
Æskileg reynsla. Störf sem tengjast fræðslu,
umönnun eða handleiðslu.
Sjúkraliða: Til sumarafleysinga.
Starfsmenn í býtibúr: Um er að ræða 50%
sumarafleysingastarf.
Umsækjendur þurfa að vera orðnir 20 ára
fyrir ofangreind störf.
Sjúkraliðar
Sjúkrahúsið óskar eftir sjúkraliða nú þegar á
hjúkrunardeild í Seli. Vinnutími 16.00-20.00.
Umsóknir sendist á skrifstofu hjúkrunar-
stjórnar. Nánari upplýsingar gefur Sonja
Sveinsdóttir og í síma 9622100 frá kl. 13.00
til kl. 14.00 alla virka daga.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Trésmiðir óskast
Óskum að ráða 2-4 röska trésmiði í uppslátt
o.fl. nú þegar.
Upplýsingar veitir Gunnar Helgason í síma
67100 og Sigurður Eggertsson í síma
611285.
Trésmiðjan Smiðurhf.
v/Stórhöfða.
Framtíðarstarf
Við leitum að ungum, lagtækum manni um
tvítugt til starfa við klisjugerð.
Viðkomandi verður þjálfaður í starfið.
Mjög gott framtíðarstarf. Skilyrði er reglu-
semi, ástundun, heiðarleiki og samvisku-
semi, ásamt góðum meðmælum.
Eiginhandar umsóknir sendist skrifstofu
okkar fyrir 20. maí.
CtlÐNT IÓNSSON
RÁÐCJÖF & RÁÐN l NCARÞJÓN USTA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322
Starfsfólk óskast
Óskum eftir að ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa:
★ Búsáhaldadeild. Heiisdags- og hlutastörf.
★ Herradeild. Vinnutími 13.00-18.30.
Hér er um að ræða framtíðarstörf (ekki sum-
arstörf). Æskilegt er að umsækjendur séu
ekki yngri en 20 ára.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri
í síma 83811 og á staðnum.
A1IKLIG4RÐUR
MARKAÐUR VIDSUND
Hafnarfjörður
— blaðberar
Blaðbera vantar á Hvaleyrarholt.
Upplýsingar í síma 51880.
Kennarar
Kennara vantar að Egilsstaðaskóla. Meðal
kennslugreina danska og raungreinar auk
almennrar kennslu. Ódýrt húsnæði og önnur
fyrirgreiðsla í boði.
Upplýsingar gefa skólastjóri og yfirkennari í
síma 97-1146 á skólatíma.
Skólanefnd.
PÓST- OG SÍMAMÁLAST0FNUNIN
Rafeindavirki og
tæknifræðingur
óskast til starfa nú þegar.
Nánari upplýsingar veitir Kristinn Einarsson
yfirmaður línudeildar símstöðvarinnar í
Reykjavík, Suðurlandsbraut 28, sími
91-26000.
Trésmiðir
Óskum eftir að ráða trésmið fyrir einn við-
skiptavina okkar.
Rafeindavirkjar
tæknimenn
Óskum að ráða rafeindavirkja eða tækni-
menn. Lifandi og skemmtilegt starf.
Höfum á skrá úrvalslið til ýmissa starfa
m. a.: Sölumenn, skrifstofufólk og afgreiðslu-
fólk.
^yVETTVANGUR
^ STARFSMIDLUN
Skólavörðustíg 12, sími623088.
Sölumaður
— sjávarafurðir
Vaxandi fyrirtæki í sjávarútvegi vill ráða
sölumann til starfa sem fyrst.
Um er að ræða frystar sjávarafurðir fyrir
erlendan markað.
Þekking á sjávarútvegi nauðsynleg ásamt
góðri tungumálakunnáttu. Viðkomandi þarf
að geta stafað mjög sjálfstætt og vera til-
búinn til ferðalaga erlendis. Góð laun í boði.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og
starfsreynslu, sendist skrifstofu okkar fyrir
24. maí nk.
Qjðntíónsson
RÁÐC JÖF & RÁÐNIN CARÞJÓ N USTA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322
Garðabær
Blaðbera vantar í Flatir, Lundir, Ásbúð og
Brekkubyggð.
Upplýsingar í síma 656146.
Kennarar
— kennarar
Okkur vantar kennara í eftirtaldar stöður við
grunnskólana á Akranesi:
Við Grundaskóla sérkennara, raungreina-
kennara, m.a. í tölvukennslu, tónmennta-
kennara, smíðakennara og nokkra almenna
kennara, einkum yngri barna.
Upplýsingar veita skólastjóri Guðbjartur
Hannesson, vinnusími 93-2811, heimasími
93-2723, og yfirkennari Ólína Jónsdóttir,
vinnusími 93-2811, heimasími 93-1408.
Við Brekkubæjarskóla skólastjóra, sérkenn-
ara, smíðakennara og almenna kennara.
Upplýsingar veita skólastjóri Viktor Guð-
laugsson, vinnusími 93-1388, heimasími
93-2820, og yfirkennari Ingvar Ingvarsson,
vinnusími 93-2012, heimasími 93-3090.
Umsóknarfrestur er til 1. júní.
Skólanefnd.
Krabbameinsfélag íslands auglýsir lausa til
umsóknar stöðu
sameindalíffræð-
ings/sameinda-
erfðafræðings
við nýstofnaða rannsóknastofu í sameinda-
og frumulíffræði. Aðalviðfangsefni rann-
sóknastofunnar á næstu árum munu verða
rannsóknir á eðli brjóstakrabbameina. Um-
sóknir skulu tilgreina náms- og starfsferil og
fyrri vísindastörf. Ennfremur er þess óskað
að umsækjendur geri grein fyrir hugmyndum
sínum um rannsóknaverkefni sem tengjast
aðalviðfangsefni rannsóknastofunnar. Stað-
an verður veitt til þriggja ára í senn.
Umsóknir skal senda fyrir 1. ágúst 1987 til
forstöðumanns rannsóknastofunnar, dr.
Helgu M. Ögmundsdóttur, Krabbameins-
félagi íslands, Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík,
sem einnig veitir frekari upplýsingar (sími:
91-621414).
Afgreiðslufólk
Óska eftir fólki til afgreiðslustarfa, ekki yngri
en 19 ára. Umsækjandi þarf að geta hafið
störf strax. Upplýsingar í versluninni Lauga-
vegi 44 milli kl. 17.00 og 18.00, mánudag
og þriðjudag.
Atvinnurekendur
— fyrirtæki
Hef opnað ráðningaþjónustu í Brautarholti 4.
Opið mánudaga til fimmtudaga frá kl. 09.00 til
kl. 17.00, föstudaga frá kl. 09.00 til kl.16.00.
Aðstoð — Ráðgjöf,
Brautarholti 4,
105 Reykjavík.
Sími91-623111.