Morgunblaðið - 17.05.1987, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1987
45
í uppeldisáæthm fyrir
dagvistarheimili, sem
gefin var út af
menntamálaráðuneyt-
inu 1985, og minnst er
á í greininni, eru þetta
talin meginmarkmið
áætlunarinnar:
1. að búa bömum vel skipu-
lagt uppeldisumhverfi og
ömgg leikskilyrði sem jafn-
framt em hlýleg og lær-
dómsrík og auðga reynsluheim
bamanna.
2. að gefa bömum kost á að
taka þátt í leik og starfi í hópi
jafnoka og njóta þannig fjöl-
breyttra uppeldiskosta bama-
hópsins undir leiðsögn fóstra.
3. að kappkosta í samvinnu
við heimilin að efla alhliða
þroska bamanna (þ.e. líkams-,
tilfinninga-, vitsrhuna-, fé-
lags-, fagur- og siðgæðis-
þroska) í samræmi við eðli,
þarfir og þroska hvers og eins
og leitast við að hlúa að þeim
andlega og líkamlega svo að
þau fái notið bernsku sinnar
sem slíkrar til fulls en gjaldi
hennar ekki.
4. að stuðla að því að bömin
nái þroska til að mæta kröfum
skyldunámsins og stuðla jafn-
framt að því að eðlileg tengsl
skapist milli dagvistarheimilis
og gmnnskóla.
5. að auka umburðarlyndi og
víðsýni bamanna og skilning
þeirra á mannlegum kjömm
og umhverfi og jafna uppeldis-
aðstöðu þeirra í hvívetna.
6. að efla kristilegt siðgæði
bamanna og leggja gmndvöll
að því að böm verði sjálfstæð-
ir, hugsandi, virkir og ábyrgir
þátttakendur í lýðræðisþjóð-
félagi sem er í örri og sífelldri
þróun.
Þessar ábendingar sérfræðinga era
í fullu samræmi við tillögur okkar."
Og Gyða heldur áfram:
„Auk gmnnnáms hefur Fóstur-
skóli íslands boðið starfandi fóstr-
um upp á stutt endurmenntunar-
námskeið (líkt og kennarar eiga
kost á), þar sem kynntar em nýj-
ungar í starfi. Áður fyrr var u.þ.b.
eitt námskeið á ári en sl. tvö ár
hefur hins vegar verið boðið upp á
mun víðtækari endurmenntun. Ell-
efu mismunandi námskeið hafa
verið haldin á ári. Þetta em 20
stunda námskeið þar sem teknir em
fyrir ýmsir þættir s.s. hreyflng, tón-
list, þróun vitsmunaþroska, hegð-
unarvandkvæði, stjómun, myndíð
og leikræn tjáning. Þessi námskeið
hafa verið vel sótt og hefur þurft
að endurtaka mörg þeirra.
Skólaárið 1983/84 var starfrækt
fyrsta framhaldsdeildin við FI. Þar
var um árlangt framhaldsnám að
ræða, sérstaklega ætlað þeim sem
hugðu á stjómunarstörf, ráðgjöf og
umsjón á dagvistarheimilum.
Næsta haust verður slík framhalds-
deijd starfrækt í annað sinn.
í 14. gr. laga um Fósturskóla
íslands segir að stefnt skuli að því
að starfrækja í tengslum við Fóstur-
skólann og undir yflrstjóm hans
æfinga- og tilraunastofiiun fyrir
böm fram til 7 ára aldurs, þar sem
nemendum skólans sé búin sérstök
aðstaða til athugana á atferli á
leikjum bama og á uppeldislegum
starfsháttum. I flestum nágranna-
löndum okkar em slík heimili rekin
í einhverri mynd.
í þessari æfinga- og tilrauna-
stofnun sé ég jafnframt möguleika
á og tækifæri til að gera vísindaleg-
ar athuganir á atferli íslenskra
bama svo og starfsaðferðum.
Hingað til hefur þurft að miða
við erlendar rannsóknamiðurstöður
eingöngu. Það er mjög varhugavert
að gleypa slíkar niðurstöður hráar.
íslenskt þjóðfélag hefur sín sér-
kenni og þau hafa áhrif. Því er
nauðsynlegt að skipuleggja starf-
semi á íslenskum gmndvelli.
Þessi stofnun gæti síðar orðið
nokkurskonar ráðgjafarstofnun,
þ.e.a.s. önnur dagvistarheimili
gfætu kynnt sér starfsemina og
fengið upplýsingar um hvemig til
hefði tekist og jafnframt fengið
ráðgjöf varðandi eigin starfsemi."
Svo mörg voraþau orð um námið
í Fósturskólanum. í framhaldi af
þeim vaknar spumingin um það
hvemig þessi menntun gagnist
baminu — og hvort foreldrar þurfl
ekki að geta staðið að uppeldi á
sömu jákvæðu nótunum svo ekki
myndist togstreita í huga bamsins?
„Þetta var góð spuming," segir
Gyða.
„Árið 1985 kom út á vegum
menntamálaráðuneytisins uppeld-
isáætlun fyrir dagvistarheimili,
markmið og leiðir. Áætlunin var
unnin í samræmi við þekkingu
manna á bamasálfræði og uppeldis-
fræði, og samdi ftni Valborg
Sigurðardóttir fyrrverandi skóla-
stjóri og sérfræðingur nefndarinnar
þessa áætlun.
í áætluninni em rakin um 20
uppeldismarkmið og bent á leiðir
til þess að ná þeim. Aætlunin bygg-
ist á bamhverfri hugmyndafræði,
þ.e.a.s. hún gengur út frá þroska
og þörfum bamsins. Mikil áhersla
er lögð á að bamið fái að spreyta
sig á umhverfinu innan ákveðinna
marka. Bamið lærir í gegnum leik.
Meðal markmiða er fjaliað um efl-
ingu vitræns þroska og fagur-
þroska, einnig er fjallað um hreyfi-,
félags- og siðgæðisþroska. Ég held
því að eftir lestur þessarar áætlun-
ar ætti lesandinn ekki að vera í
vafa um að fóstran er fyrsti kenn-
ari bamsins. í uppeldisáætluninni
er einnig talað um mikilvægi for-
eldrasamstarfs. Foreldrar bera
fyrst og síðast ábyrgð á uppeldi
bamsins og þá ábyrgð má ekki taka
af þeim. Breyttir þjóðfélagshættir
og aukin þekking á þróunarferli
bamsins kallar hins vegar á sér-
menntað starfsfólk sem vinnur að
uppeldi bama ásamt foreldrum og
í samráði við þá. Það fellur í hlut
fóstm að gera foreldmm grein fyr-
ir starfseminni á dagvistarheimilinu
og framföram bamsins.
Ég minntist áðan á að bamið
þyrfti að fá svigrúm til að spreyta
sig í umhverfínu, innan ákveðinna
marka — þ.e.a.s. fóstra hvetur
bamið til að finna lausnir á ýmiss
konar vandamálum sem koma upp,
í stað þess að gera hlutina fyrir
bamið. Ég tel að almennt hætti
okkur of mikið til að gera það síðar-
nefnda og geri þá ráð fyrir því að
þessi uppeldisaðferð geti valdið tog-
streitu sem krefst umfjöllunar og
úrlausna.
Svona í lokin get ég ekki neitað
því að mér flnnst almennt skilnings-
leysi of einkennandi fyrir afstöðu
fólks til dagvistarmála.
Almenningur, ráðamenn og jafn-
vel skólamenn hafa t.d. helst
viðurkennt dagvistarstofnanir sem
geymslustofnanir fyrir takmarkað-
an fjölda bama úr ákveðnum
þjóðfélagshópum. Mikið vantar á
að fólk geri sér grein fyrir mikil-
vægi dagvistarstofnana sem
kennslu- og uppeldisstofnana. Þetta
em nauðsynlegar stofnanir í nútíma
þjóðfélagi.
Fólk verður líka að gera sér grein
fyrir því, að þótt starf dagvistar-
heimila sé eflt og hlutverk þeirra
víkkað þá er ekki verið að taka
ábyrgð af foreldmm. Þeir veita
bömunum það sem enginn annar
getur veitt þeim. Skilgreina þarf
hins vegar betur hver á að gera
hvað. Ég tel að það sé nauðsynlegt
að menn geri sér grein fyrir því að
uppeldisaðstæður fslenskra bama
era gjörbreyttar frá því sem áður
var. Því er nauðsynlegt að marka
heildarmenntastefnu þar sem upp-
eldis- og námstilboð bama og
ungmenna þriggja ára til tvítugs
eru skilgreind og ætluð öllum,“
sagði Gyða Jóhannsdóttir skóla-
stjóri Fósturskóla íslands.
- H.V.
Hvaða kostur
er bestur?
margnota rakvélar eru ódýrari en venju-
leg rakvélarblöð! Og hver ''%(&/€?) rakvél dugar jafh-
lengi og eitt rakvélarblað.
MARGVERÐLAMAÐUR