Morgunblaðið - 17.05.1987, Qupperneq 64
SUNNUDAGUR 17. MAÍ 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Álafoss og iðnaðardeild SÍS:
Stefnt að samemingn
ullarþvottarstöðva
^LAFOSS hf. og iðnaðardeild SÍS hafa náð samkomulagi um rekstur
Uameiginlegrar ullarþvottastöðvar. Rœtt er um að nýtt hlutafélag fyrir-
tækjanna kaupi og reki ullarþvottastöð SÍS Hveragerði. Álafoss hefur
samþykkt aðild að þessu nýja fyrirtæki, en stjórn SÍS á eftir að fjalla
um málið, þannig að endanleg ákvörðun um aðild SÍS hefur ekki
verið tekin.
Hvort fyrirtæki mun eiga helming
hlutafjár í ullarþvottastöðinni en hún
mun anna allri ullarframleiðslunni í
landinu, án þess að til þurfi að koma
viðbótarfjárfesting að ráði. Jón Sig-
urðarson, framkvæmdastjóri iðnað-
ardeildarinnar, sagði að ullarfyrir-
tækin væru að koma þessari
samvinnu á til að spara kostnað í
stöðugt minnkandi ullarframleiðslu.
Nýja ullarþvottastöðin getur tekið
til starfa þann 1. júlf, ef af stofnun
hennar verður.
Grindavík:
Fjölmörg innbrot upplýst
Grindavfk.
LÖGREGLAN í Grindavík hefur
handtekið nokkra unga menn hér
i bæ sem játað hafa aðild að
mörgum innbrotum í verslanir
og fyrirtæki undanfarin 3 ár.
Mennimir, sem eru nfu talsins
og flestir um tvítugt, voni hand-
teknir á föstudag eftir að vísbend-
ing kom lögreglunni á sporið
síðastliðið fímnntudagskvöld. Að
sögn Sigurðar Ágústssonar, yfir-
varðstjóra, er um að ræða sjö
innbrot í verslanir, grunnskólann
og félagsheimilið Festi í tvígang.
Þýfið er metið á um 200 þúsund
Morgunblaðið/Kr. Ben.
Sigurður Ágústsson yfirvarð-
stjóri með þann hluta þýfisins
sem kominn er í leitirnar.
krónur og er hluti þess kominn f
leitimar. Innbrotin byijuðu óskipu-
lega, en ljóst er að í seinni tíð vom
þau skipulögð með sölu þýfisins í
huga. Má þar meðal annars nefna
innbrot í grunnskólann og félags-
heimilið Festi nú í vetur. Rannsókn-
arlögregian í Griiidavík og Keflavík
mun vera að kanna ýmsar vísbend-
ingar varðandi önnur mál, því ekki
hefur tekist að upplýsa fjölda inn-
brota í báta í Grindavíkurhöfn, þar
sem einkum var stolið myndbands-
tækjum og talstöðvum. Kr.Ben.
Morgunblaðið/Einar Falur
IFUGLABJARGI
Flutningar Eimskips fyrir Sementsverksmiðiuna:
Dómstóll í Englandí
fjallar um bótakröfu
MÁLAREKSTRI vegna þýska
skipsins Kampen, sem fórst undan
Vestmannaeyjum 1. nóvember
1983, er enn ekki lokið. Málið er
nú fyrir dómstóli f Englandi, þar
sem kveðið er á um það í farm-
samningi milli Eimskipafélags
íslands og Sementsverksmiðju
ríkisins, að gerðardómsmál milli
aðila skuli reka fyrir dómstólum
í útlöndum.
Kampen var í leigu hjá Eimskipa-
félaginu og flutti koks fyrir Se-
mentsverksmiðju ríkisins er það
fórst með sjö mönnum, en sex þjörg-
uðust. Farmur skipsins var tryggður
hjá Almennum tryggingum og höfð-
Loðdýrarækt:
aði tryggingarfélagið mál fyrir
íslenskum dómstólum á hendur Eim-
skipafélaginu og útgerðaraðila
þýska skipsins. Dómar gengu á einn
veg í undirrétti og Hæstarétti; út-
gerðaraðili þýska skipsins var
fundinn sekur, en málinu gegn Eim-
skipafélaginu var vísað frá á þeirri
forsendu að þetta sé ekki ágreining-
ur, sem eigi að fjalla um fyrir
fslenskum dómstólum, þar sem í
farmsamningi segi að ágreiningsmál
eigi að reka fyrir dómstólum erlend-
is. Hins vegar segir í farmskírteini
að íslenskir dómstólar eigi að flalla
um ágreiningsmál og á þeirri for-
sendu var eigandi þýska skipsins
fundinn sekur. Aftur á móti eru
íslenskir dómar ekki aðfararhæfír í
Þýskalandi og því hefur mál verið
höfðað þar f landi.
Tryggingarfélag Eimskipafélags-
ins hefur gert þá kröfu fyrir
dómstólnum í Englandi, að málinu
verði vísað frá, þar sem bótakrafa
sé of seint fram komin.
Muikastofninn tvö-
faldast á þessu árí
ÚTLIT er fyrir að minkastofn landsmanna tvöfaldist í haust. MikiU
áhugi er á stofnun minkabúa. Það sem af er árinu hafa verið veitt
65 leyfi til stofnunar nýrra loðdýrabúa, þar af eru 63 minkabú en
aðeins 2 refabú. Er búið að panta allar þær minkalæður sem hægt
verður að setja á f haust. Óttast sumir að það geti orðið til þess að
lífdýraverð verði óeðlilega hátt.
Auk leyfa til stofnunar nýrra búa lífdýraverð, en heyrst hafa fréttir
hafa verið veitt leyfí til stækkunar
þriggja minkabúa og 7 refabúa,
'>bannig að alls hafa 75 loðdýraleyfi
verið veitt frá áramótum. Fjöldi
dýra sem veitt hafa verið leyfí fyrir
eru 20 þúsund minkalæður og 1.100
refalæður. Auk þess eru f gildi ónot-
uð loðdýraleyfí frá síðustu mánuð-
um síðasta árs, þannig að búist er
við að minkastofninn, sem nú teiur
24 þúsund læður, tvöfaldist á árinu.
* '' Enn er nokkur óvissa með
um 2.500—4.000 kr. á hvert dýr.
Sveinbjöm Eyjólfsson, fulltrúi í
landbúnaðarráðuneytinu, segist ótt-
ast afleiðingar þess ef lífdýraverðið
verður spennt upp. Eðlilegt verð að
hans mati er um 2.400 krónur.
Hann sagði að bændur fengju 600
þúsund króna styrk samkvæmt
jarðræktarlögum til að byggja
minkabú, en ef menn þyrftu að
borga 4.000 krónur fyrir hvert
lífdýr í stað 2.500 kr., færi allur
styrkurinn f þann mismun.
Sveinbjöm sagði að allir þeir
bændur sem nú væru að selja lífdýr
hefðu annaðhvort fengið styrk frá
ríkinu til stofnskipta eða hefðu not-
ið góðs af þeim styrk í lægra
lífdýraverði. Því þætti mönnum
óeðlilegt ef þessir menn ætluðu að
hagnast á kostnað þeirra sem nú
væru að byija.
Flest minkabúin sem fengið hafa
leyfi frá áramótum em á Norður-
landi; 18 í Skagafirði, 15 í Húna-
vatnssýslum, 4 í Þingeyjarsýslum
og 2 í Eyjafírði. 12 bú eru á Aust-
urlandi, 4 í Austur-Skaftafellssýslu
og 9 á Suðurlandi. Síðan er eitt bú
á Vestfjörðum og annað f Gull-
bringu- og Kjósarsýslu.
Norska hljómsveitin A-ha
A-ha til íslands í júní?
Oslo. Frá Jan Erik-Lauré fréttaritara Morgunblaðsins.
NORSKA popphljómsveitin A-ha
hefur mikinn áhuga á að koma
til íslands. í viðtali við Dagbladet
norska segir PAl Waaktar, gítar-
leikari, að hljómsveitin ætli að
fara til íslands um miðjan júni.
Viðtalið við hljómsveitina var tek-
ið í bænum Montreux í Sviss, þar
sem hljómsveitin kom fram í sjón-
varpsþætti ásamt öðrum stórstjöm-
um. Þá notuðu félagamir þrír í A-ha,
PÁl, Morten Hacket og Magne Furu-
holmen, tækifærið til að kynna
titillag nýjustu James Bond-myndar-
innar, The Living Daylights. Plata
A-ha með þessu lagi verður sett á
markaðinn eftir þijár vikur, en kvik-
myndin verður frumsýnd 29. júní.