Morgunblaðið - 24.05.1987, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAI 1987
Samtök herstöðvaandstæðinga:
Keflavíkurganga verður 6. júní
SAMTÖK herstöðvaandstæðinga
efna til Keflavíkurgöngn 6. júní,
sem er laugardagur i hvítasunnu.
„Gangan er hápunktur aðgerða
sem samtökin efna til nú á vor-
dögum gegn hernaðarstefnu
NÁTO og aukinni vígvæðingu á
N.-Atlantshafi,“ segir í fréttatil-
kynningu sem Morgunblaðinu
hefur borist.
Göngufólk í Keflavíkurgöngunni
leggur upp frá hliði vamarstöðvar-
innar á Miðnesheiði kl. 8:30 um
morguninn og áætlaður komutími
á Lækjartorg er kl. 22:00. Frá hlið-
inu til Reykjavíkur eru 48 km og
verður áð á fjórum stöðum á leið-
inni. Fyrsta áning verður á-Voga-
stapa, þar sem staðkunnugur
heimamaður mun fræða göngu-
menn um Stapadrauginn. I næsta
áningarstað, Kúagerði á Vatns-
leysuströnd, er gönguleiðin hálfnuð
og þar verður staldrað við til að
snæða og hlýða á fjölbreytta dag-
skrá. Þá verða áningarstaðir í
Kópavogi og Hafnarfírði en síðast
komið saman á Lækjartorgi og hlýtt
á stutt ávarp. Meðal ræðumanna í
göngunni verða Jóna Þorsteins-
dóttir frá Þórshöfn og Ingibjörg
Haraldsdóttir rithöfundur. Tónlist-
armenn úr röðum Vísnavina og
fleiri munu skemmta auk þess sem
leikarar koma fram á áningarstöð-
unum með óvæntar uppákomur.
í fréttatilkynningunni segir, að
með Keflavíkurgöngunni vilji Sam-
tök herstöðvaandstæðinga sem
fyrrum minna á nauðsyn þess að
Island segi sig úr Atlantshafs-
bandalaginu og bandarískar her-
sveitir hverfí burt úr landinu. Auk
þess leggi herstöðvaandstæðingar
áherslu á að dregið verði úr hervæð-
ingu í okkar heimshluta með
kröfum þar sem farið sé fram á
kjamorkufriðlýsingu Norðurlanda
og Norður-Atlantshafsins, stöðvun
ratsjárbygginga við Langanes og
Bolungarvík, andófí gegn upp-
byggingu fleiri herflugvalla í
landinu og sókn landsmanna í átt
til sjálfstæðis gagnvart hervæddum
risaveldum.
$kóval við Óðinstorg
Gott úrval.
Gott verð.
Kvenskór — karlmannaskór.
Götuskór.
Sparískór.
íþróttaskór.
$kúval við Óðinstorg
SMÁRAFLÖT 5, GARÐABÆ, BYGGT ÁRIÐ1963
MEÐ STEYPUNNIFRA
OKKUR BYGGIR ÞÚ
FYRIR FRAMTÍÐINA
Á síðustu fjórum áratugum höfum við framleitt steypu í fjölmörg íbúðar-
hús af öllum stærðum og gerðum. Það sanna ótal glæsileg mannvirki
sem staðist hafa tímans tönn.
vandaða húseign.
Reynsla okkar tryggir þér
STEYPUSTÖÐIN
hí
SÆVAR HÖFÐA 4
4
ÓSA/SlA