Morgunblaðið - 24.05.1987, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1987
25
Líf og kynlíf
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Laugarásbíó.
Hrun ameríska heimsveldsins —
Le Declin de L’empire American
☆ ☆☆'/2
Leikstjóri Denys Arcand.
Kvikmyndataka Guy Dufaux.
Tónlist Francois Dompierre,
(byggð á þemum eftir Handel).
Handrit Arcand. Klipping
Monique Fortier. Framleiðandi
René Malo og Roger Frappier.
Leikendur Dominique Michel,
Dorothée Berryman, Louise Por-
tal, Pierre Curzi, Remy Girard,
Yves Jacques, Geneviéve Rioux,
Daniel Briére, Gabriel Arcand.
Frönsk/kandadísk. Teléfilm
Canada, La Société Générale Du
Cinema Du Quebec, Société Rad-
io-Canada 1986.
Á skömmum tíma höfum við orð-
ið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá
tvær gjörólíkar, djúpar úrvalsmynd-
ir um mannssáíina og mannleg
samskipti. Fyrst Koss köngurlóar-
konunnar og nú Hrun ameríska
heimsveldisins.
Þessi kanadíska óskarsverð-
launamynd (í ár) fjallar á hrein-
skilnari hátt um krókaleiðir kynlífs
karla og kvenna, en mann rekur
minni til í kvikmynd í venjulegum
litum. Ekki svo að skilja að hún sé
eitthvað gróf fyrir augað, allt fer
fram í umræðunni. Einn hinna
frönskumælandi, kanadisku, mið-
aldra karla segir í upphafi við sér
yngri mann: „Nú er ekkert eftir
utan le sex.“
Karlakór
Keflavíkur
heldur vor-
tónleika
Keflavík.
KARLAKÓR Keflavíkur heldur
vortónleika fyrir styrktarfélaga
sína, 25., 26. og 27. maí nk. Þeir
hjá karlakórnum vilja koma því
á framfæri til styrktarmeðlima,
að þeim er frjálst að koma hvert
þessara kvölda, þegar þeim hent-
ar þó miðar þeirra séu gefnir út
á einhvert hinna kvöldanna.
Föstudaginn 29. maí fá Suður-
nesjamenn væntanlega góða
heimsókn, en það er von á Karla-
kórnum Geysi og Karlakór Akur-
eyrar sem ætla að syngja í
Félagsbíó í Keflavík. Er það einlæg
von þeirra karlakórsmanna í
Keflavík að sem flestir Suðurnesja-
menn og aðrir sem hafa gaman af
söng missi ekki af þessum samsöng
þeirra Akureyringa.
- BB
í myndinni segir frá átta ólíkum
persónum. Fjórum körlum, sam-
kennurum við háskóla. Einn er
hommi, annar fráskilinn, sá þriðji
giftur graðnagli og sjá fjórði ungur
og óreyndur. I sumarhúsi undirbúa
þeir komu fjögurra kvenna sem all-
ar tengjast þeim. Umræður karl-
anna snúast um kynlíf og aftur
fjölbreytilegra kynlíf. Og viti menn!
Þess á milli er skotið á konumar,
þar sem þær eru að undirbúa komu
sína á heilsuræktarstöð. Þar er
umræðuefnið það sama og ekki
síður svæsið. Það var mikið að kvik-
myndargerðarmönnum skildist að
konur hafa náttúru líka og engir
Þrjár af kjarnakonunum i Hruni ameríska heimsveldsins.
eftirbátar í hinum fjölbreyttu órum
holdsins ef svo býðst.
En menn skulu hafa hugfast að
hér er dregið í efa ágæti stolinna
unaðstunda og samtölin einkar
skynsamleg og vekjandi til um-
hugsunar.
Þessi yndislega mynd er hreint
út sagt glæsileg hvemig sem á
hana er litið, e.k. þroskuð útgáfa
af The Big Chill. Leikurinn er
grípandi sterkur hjá hveijum ein-
asta og ekki sakar að manngerðirn-
ar eru listilega vel valdar.
Leikstjórn, kvikmyndataka, hand>-
rit, staðarval, allt meðhöndlað af
eftirminnilegri fagmennsku. Hmn
ameríska heimsveldisins er mynd
sem óþarft er að hafa orðgnótt um
svo snilldarleg sem hún er. Þetta
er einfaldlega mynd sem allir kröfu-
harðir kvikmyndagestir mega ekki
láta fara framhjá sér!
Fyrirlestur
umnám
í mannlegri
tækni
PETER Kemp, lektor við Kaup-
mannahafnarháskóla, heldur
opinberan fyrirlestur á vegum
verkfræðideildar og raunvís-
indadeildar Háskólans þriðju-
daginn 26. maí.
Fyrirlesturinn nefnist Nám í
mannlegri tækni, en fyrirhugað er
að setja á laggirnar námsbraut í
þeirri grein við Kaupmannahafnar-
háskóla.
Peter Kemp er danskur fræði-
maður og heimspekingur.
Fyrirlesturinn verður fluttur í
stofu 101 í Odda kl. 17.15 og verð-
ur á dönsku.
I
Sýning um helgina
' Opið laugardag kl. 13-\7.-Opið sunnudag kl. 13-17.
Peugeot 309
Aukasending
er komin
til landsins
I
•• i l! f f ,' \
iAá
Bílar til afgreiðslu strax
Verð frá kr. 376.100.-
JOFUFi HF
Nýbýlavegi 2 • Sími 42600