Morgunblaðið - 24.05.1987, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1987
37
Ike Turner og rythmakóngarnir
Blús
Árni Matthíasson
St. Louis hefur ætíð staðið
í skugganum af Chicago sem
blúsborg, þó þar hafi síður en
svo verið einhver lognmolla í
blúsheiminum.
Það sem aðllega stóð blúsnum
í St. Louis fyrir þrifum var skort-
ur á útgáfufyrirtækjum. Menn
leituðu einfaldlega til Chicago
og ílentust síðan þar. Einn merk-
asti blúsleikari sem starfaði í
St. Louis var án efa Ike Turner.
Ike Tumer sýndi snemma
hvað í honum bjó og ellefu ára
var hann orðinn það fær píanó-
leikari að hann var farinn að
spila undir hjá stórstjömum eins
og Sonny Boy Williamson og
„slide“-gítarsnillingnum Robert
Nighthawk. Ike var lengi í vinnu
hjá Bihari bræðmnum, sem ráku
Modern hljómplötufyrirtækið, og
var starf hans fólgið í því að
finna efnilega tónlistarmenn og
taka upp með þeim efni. Til
gamans, og um leið til að sýna
fram á hæfni hans, má geta
þess að Ike uppgötvaði m.a.
Howling Wolf og Junior Parker
og hann var auk þess upptöku-
stjóri og útsetjari hjá B.B. King,
Bobby Bland, Elmore James
o.fl., o.fl. Samkvæmt einni heim-
ild lék hann meira að segja
aðalhlutverkið í einu eða fleiri
af hinum mergjuðu „slide“-
gítarlögum Elmore James. Síðar
stofnaði hann hljómsveit þar
sem hinn snjalli Earl Hooker var
gítarleikari. Earl kenndi Ike á
gítar og Ike var ekki lengi að
ná meistaratökum á hljóðfærinu.
1954 flutti Ike Tumer til St.
Louis með hljómsveit sína Kings
of Rhythm. Rythmakóngamir
urðu fljótlega óhemju vinsælir í
St. Louis, enda var sveitin eink-
ar þétt og vel spilandi undir
harðstjórn Ike. Sögur herma að
hann hafi heimtað að allir hljóm-
sveitarmeðlimir byggju í sama
húsi og hann ef sú staða kæmi
upp að hann langaði til að æfa
að morgunlagi eða að nóttu til.
Bill Stevens, annar eigandi Stev-
ens hljómplötufyrirtækisins í St.
Louis, sem aldrei gekk vel, sagði
einnig frá því að hann hefði séð
Ike reka hljómsveitarmeðlim
fyrir að missa úr nótu í miðjum
tónleikum.
Ike og rythmakóngamir tóku
upp mikið af efni með hina og
þessa söngvara í fararbroddi allt
fram til ársins 1960 er Annie
Mae Bullock, sem síðar varð
þekkt undir nafninu Tina Turn-
er, kom til sögunnar að hljóm-
sveitinni var breytt. Saga Ike fór
eftir það að heyra meira til rokk-
sögunni en blússögunni og
verður því ekki rakin lengur
hér. Þó má geta þess að Ike
mælir nú götumar í St. Louis
og hefur ekki gert margt af viti
hin síðari ár.
Ekki er langt síðan að menn
vöknuðu til lífsins um það hvað
Ike hefði verið að taka upp gott
efni með sveit sinni, og endur-
útgáfufyrirtækin komust í
mikinn ham. Red Lightnin’ hefur
gefið út þijár plötur með St.
Louis blús, eina bara með Ike
og rythmakóngunum, tvöfalda
plötu með Ike í bland og á nýj-
ustu St. Louis plötunni á Ike
aðeins tvö lög. Ace hefur ekki
legið á liði sínu og þegar eru
komnar tvær plötur með upptök-
um sem Ike tók upp fyrir
Modem.
Af þessum plötum ber platan
I’m Tore Up, sem Red Lightnin’
gefur út, af. Þar er að finna
frægustu lög rythmakónganna
með Ike í fararbroddi, lög eins
og I’m Tore Up og Bring Your
Fine Frame Home sem Billy
Gales syngur. Aðal plötunnar er
hinn ótrúlegi gítarleikur Ike
Tumer, í lögum eins og Sad as
a Man Can Be, I’m Tore Up,
Do Right Babe og No Coming
Back, og hin þétta hljómsveit
sem hann hefur safnað um sig.
Það heyrist þó kannski hvergi
betur en í leiknu lögunum Ho-Ho
og Prancing sem er að finna á
tvoföldu Red Lightnin’ plötunni
Hey Hey. Platan sú er reyndar
nokkuð gott yfirlit yfir það
helsta sem var á seyði í St. Lou-
is á sjötta áratugnum, því þar
er að finna upptökur með ýms-
um öðrum hljómsveitum en sveit
Ike Turner. Ike á þó einna besta
efnið á plötunni. Þar er að finna
leiknu lögin sem áður er getið
og sungin lög með hinum og
þessum en þó flest með Bobby
Foster. Af þeim lögum sem
Bobby Foster syngur vil ég
hvetja menn til að kynna sér
Angel of Love, þar sem Bobby
beitir raddböndunum á ótrúleg-
an hátt, ekki síst þegar hugsað
er til þess að á þessum árum
var ekki um að ræða neina raf-
eindatækni sem bætt gæti úr
mistökum. Það varð allt að
heppnast, eða það var gert aft-
ur. Upptökurnar á Red Lightnin’
plötunum voru gerðar fyrir Stev-
ens merkið en þar sem Ike var
samningsbundinn Sun hljóm-
plötufyrirtækinu gerði hann sér
lítið fýrir og snéri nafninu við.
Á plötunum stóð að þar færi
Icky Renrut og hljómsveit hans.
Það var undir því nafni sem
hann tók upp eitt sitt frægasta
lag á þessum árum, lagið Jack
Rabbit.
Á Ace plötunum er að fínna
upptökur frá svipuðum tíma og
á Red Lightnin’ plötunum. Þó
er hljómurinn áberandi bet.ri,
enda hefur Ace aðgang að
„master“-hljómböndum Modem.
Ekki er tónlistin eins mögnuð
og á I’m Tore Up frá Red Light-
nin’ en þó vel yfir meðallagi.
Einna skemmtilegri er fyrri plat-
an, en á henni er að finna lagið
The Fox með smellnum texta
og góð lög með Johnny Wright
sem söngvara. Seinni platan
hefur só einnig góð lög, þá sér-
lega þau sem Billy Gale og
Clayton Love syngja.
Ekki verður skilið við rythma-
kóngana án þess að segja frá
því að hljómsveitin St. Louis
Kings of Rhythm, sem er hljóm-
sveit Ikes endurreist, er væntan-
leg til íslands 31. þessa
mánaðar. Eftir því sem fregnir
frá Svíþjóð herma, en þar var
sveitin á ferð skömmu fyrir ára-
mót, er hér um að ræða hina
bestu skemmtan, enda valinn
maður í hveiju rúmi. Ef marka
má nýlega plötu hljómsveitar-
innar sem ég hef undir höndum
er óhætt að mæla með hljóm-
sveitinni fyrir þá sem áhuga
hafa á að kynna sér St. Louis
blúsinn og rythmablúsinn.
Húsnæði fyrir verndaðan vinnustað
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra í Reykjavík, vinn-
ur nú að uppsetningu á vernduðum
vinnustað á Reykajvíkursvæðinu. Starf-
semin verður framleiðsla úr plastefnum
og vinnu tengd því.
Óskað er eftir 400-600 fm húsnæði með
góðu aðgengi fyrir fatlað fólk.
Tilboð er tilgreini staðsetningu, leiguskil-
mála og annað sem skiptir máli sendist
undirrituðum fyrir 6. júní nk.
Rekstrarráðgjöf
Kostnaöareftirlit
Hönnun — Þróun
Útboð — Tilboö
Viöhaldskerfi
postholt 11024, Verkskipulagning
131 Reykjavík.
Hvaji%
Hraunbergi 5,
Furusófasett í úrvali
FURUHÚSÍÐ HF.
Suðurlandsbr. 30. S-687080
Litaval Baldursgötu 14
Sími 4737
Síðumúla32 # ^
Litaval