Morgunblaðið - 24.05.1987, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1987
Hjátrú eða... ?
Lengi hefur því verið trúað
að einhver undramáttur byggi
í trjám, laufi þeirra og ávöxt-
um, og enn þekkjum við margt
úr þeirri hjátrú sem þeim eru
tengd.
Banka í tré, segjum við stund-
um — og gerum það þegar við
vonumst eftir áframhaldandi vel-
gengni. Þetta á rætur að rekja
til þess þegar því var trúað hér
áður fyrr að með því að snerta
tré næðist samband við þá anda
er í því bjuggu, og þeir veittu við-
komandi vemd sína.
Tilvist andanna hafði það einn-
ig í för með sér að sá sem felldi
tréð, sem var bústaður þeirra, gat
átt erfiðleika í vændum.
Heilagttré
Ekki átti þetta sízt við um eik-
ina, sem talin var heilagt tré sem
bjó yfír dulrænum krafti. Það gat
því verið beinlínis hættulegt að
fella. hana.
Ávöxt eikurinnar mátti nota til
að spá fyrir um hjónabönd. Ef
ungt par lét tvö aköm í vatnsskál
og þau flutu að hvoru öðm var
brúðkaup á næsta leiti. Ef akörn-
in hinsvegar flutu hvort í sína
áttina átti unga fólkið einnig eftir
að gera það.
Það var einnig talið hafa yngj-
andi áhrif, sérstaklega á konur,
að bera akam í vasanum eða tös-
kunni.
Einnig var talið að kastaníu-
hneta í vasanum vemdaði gegn
gigt og fleiri óþægilegum sjúk-
dómum.
Helgnð guðunum
í Grikklandi til foma var beyki-
tréð helgað guðinum Apolló og
syni hans, lækningaguðinum As-
klepios. Ef til vill er það ástæðan
fyrir því að hér áður fyrr var því
trúað að ef beykigrein var hengd
yfir útidymar vemdaði hún íbú-
ana gegn sjúkdómum.
Á sama hátt átti grein af reyni-
tré að vemda gegn nornum og
illum öndum, en yllisgrein leiddi
ógæfu yfír íbúana.
í þrumuveðri bám menn gjam-
an greinar beykitrés yfir höfðum
sér því álitið var að eldingar hlífðu
beykinni, og blöð beykitrésins
vom notuð við spádóma. Ef blöðin
vom brennd átti helzt að gnesta
vel í þeim, því það þótti boða
gott. Ef þau hinsvegar bmnnu
hávaðalaust var það ills viti.
Eplið og hjátrúin
Margar sögur em tengdar epla-
trénu og ávöxtum þess, allt frá
útskúfun Adams og Evu úr aldin-
garðinum Eden yfír í fullyrðing-
una um að „eitt epli á dag kemur
heilsunni í lag“.
Því er til dæmis haldið fram
að það boði dauða í fjölskyldunni
ef eplatré ber samtímis fullþroska
epli og útspmngin blóm, eða ef
eitt epli tollir á trénu út veturinn.
Hinsvegar er það góðs viti ef
geislar sólarinnar falla á greinar
eplatrésins á jóladag.
Úr eplum þótti mega lesa
margskonar spádóma varðandi
ástina. Ef ung stúlka afhýddi til
dæmis epli og náði skrælingnum
af í heilu lagi, gat hún fengið
upphafsstaf væntanlegs eigin-
manns síns með því að láta
skrælinginn falla niður á borð.
Ef skrælingurinn slitnaði hinsveg-
ar táknaði það að hún giftist
aldrei.
í Austurríki töldu ungar stúlkur
kjamana í eplum. Ef út kom jöfn
tala táknaði það giftingu fljótlega.
Ef hinsvegar einhver kjamanna
skaddaðist þegar hún skar eplið
í sundur þýddi það óhamingjus-
ama ást.
Og kona sem átti marga biðla
gat komizt að því hvem hún ætti
að velja með því að taka epla-
kjama og kasta honum á eld um
leið og hún nefndi nafn einhvers
biðlanna. Ef kjarninn sprakk í
eldinum gerði hún rétt í að velja
manninn sem hún nefndi. Kæmi
enginn hvellur gat hún endurtekið
tilraunina og nefnt þann næsta.
Og í Þýzkalandi var því trúað
að kona sem átti mörg böm gæti
yfírfært fíjósemi sína á ungt epla-
tré með því að borða fyrsta eplið
sem á því óx.
Trúi svo hver sem vill.
(Þýtt og endursagt.)
DKKIIB WflNTAB
GDTISTABFSFÚLK
I' GLÆSILEGA VEBSLUN
í ágúst nk. opnum við nýjar verslanir í Kringlunni.
Okkur vantar því konur og karla til að vinna með
okkur í þessum glæsilegu verslunum.
Um er að ræða bæði hluta- og heilsdagsstörf í
matvöruverslun, sérverslun og á lager. Þú þarft að
vera eldri en 18 ára og hafa einhverja starfsreynslu.
Þú þarft helst að geta byrjað á tímabilinu 15. júlí til
1. ágúst.
Við bjóðum þér mjög góða vinnuaðstöðu og góða
starfsmannaaðstöðu.
Komdu á skrifstofu Hagkaups í Skeifunni 15 n.k.
laugardag frá kl. 13-16 og ræddu við einhvern
eftirtalinna: Kristján Sturluson starfsmannastjóra,
Karl West og Valdimar Hermannsson
verslunarstjóra. Athugaðu, að upplýsingar eru ekki
veittar í síma.
ÓSA/SlA