Morgunblaðið - 24.05.1987, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MAÍ 1987
53
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Viðskiptafræðingar
— tölvunarf ræðingar
Óskum eftir að ráða starfsmenn í eftirtalin
störf:
Viðskiptafræðing/tölvunarfræðing eða
starfsmann með hliðstæða reynslu til starfa
við markaðssetningu á 30S viðskiptahug-
búnaði. Viðkomandi mun starfa sjálfstætt
og þarf því að hafa frumkvæði og brennandi
áhuga á verkefninu.
Við bjóðum krefjandi starf, góðan vinnuanda
og mikla tekjumöguleika fyrir réttan aðila.
Starfskraft í forritunar- og þjónustudeild.
Viðkomandi mun vinna við forritun og aðra
þjónustu fyrir viðskiptavini okkar. Menntun
og/eða reynsla í bókhaldsstörfum eræskileg.
Tölvumiðstöðin hf. er 10 ára þjónustufyrir-
tæki sem hefur sérhæft sig á sviði viðskipta-
búnaðar. Viðskiptavinir eru nú á þriðja
hundrað. Hjá fyrirtækinu starfa 11 manns,
þar af 6 kerfisfræðingar.
Skriflegar umsóknir sendist Tölvumiðstöð-
inni hf., Höfðabakka 9, 110 Reykjavík fyrir
1. júní 1987. Með umsóknir verður farið sem
trúnaðarmál og öllum umsóknum svarað.
Öryggismálafulltrúi
Eitt stærsta viðskipta- og þjónustufyrirtæki
landsins, staðsett í Reykjavík, en með starf-
semi á landsbyggðinni, vill ráða öryggismála-
fulltrúa til starfa.
Starfið er laust strax eða eftir nánara sam-
komulagi.
Viðkomandi ber ábyrgð á og hefur frum-
kvæði að aukinni þjálfun og fræðslu starfs-
fólks í öllum atriðum er varða öryggismál
og fyrirbyggjandi störf. Einnig umsjón með
hönnun öryggiskerfa og fylgist með allri þró-
un á því sviði.
Sér m.a. um námskeið, fræðslu og kynning-
arfundi og að hluta til um kennslu og leið-
beinendastarf. Starfsþjálfun í upphafi starfs.
Góð tungumálakunnátta nauðsynleg vegna
erlendra samskipta.
Leitað er að aðila með góða almenna mennt-
un, sem hefur örugga og trausta framkomu,
á gott með að tjá sig og auðvelt með að
umgangast aðra. Allar nánari upplýsingar
veittar á skrifstofu okkar.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og
starfsreynslu sendist skrifstofu okkar fyrir
31. maí nk.
(t[]ÐNT Iónsson
RÁÐC JÖF & RÁÐN l N CARÞJÓ N USTA
TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322
Hitaveita Akureyrar
Laust er til umsóknar starf tæknifulltrúa hjá
Hitaveitu Akureyrar. Skilyrði er véltækni-
menntun og æskileg er nokkur reynsla eða
sérmenntun í dælurekstri.
Upplýsingar um starfið gefur hitaveitustjóri
í síma 96-22105 eða starfsmannastjóri Akur-
eyrarbæjar í síma 96-21000.
Umsóknir sendist Hitaveitu Akureyrar, Hafn-
arstræti 88b, 600 Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 27. maí 1987.
Hitaveita Akureyrar.
Bifvélavirkjar
Okkur vantar bifvélavirkja á fólksbílaverk-
stæði okkar. Unnið er eftir bónuskerfi.
Upplýsingar gefur Páll Eyvindsson á staðn-
um (ekki í síma).
\u h h 4 m
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200 '
Kassastörf
Viljum ráða nú þegar starfsfólk í afgreiðslu
í verslun okkar, Laugavegi 59 (Kjörgarði).
Um er að ræða heilsdagsstörf við uppfyllingu
fyrir hádegi og á kassa eftir hádegi.
Eingöngu er um að ræða framtíðarstörf ekki
sumarafleysingar.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri
(ekki í síma) mánudag og þriðjudag frá kl.
16.00-18.00. Umsóknareyðublöð hjá starfs-
mannahaldi.
HAGKAUP
Skeifunni 15,— Starfsmannahald.
Kennarar - kennarar
— Heiðarskóli —
í Borgarfirði er vel í sveit settur, 20 km frá
Akranesi. í bekkjardeildum eru 10 til 18 nem-
endur — góð bekkjastærð. Skólinn er vel
búinn tækjum og húsnæði.
Húsaleiga er ódýr og hiti er frír.
Okkur vantar 2-3 kennara þ.á m. yfirkenn-
ara, kennara í íslensku, tungumálum, líffræði,
smíðum og íþróttum. Við skólann er íþrótta-
hús, sundlaug og frábær leikvöllur.
Hafið samband sem fyrst — komið og skoð-
ið aðstæður.
Upplýsingar veita formaður skólanefndar
Margret Magnúsdottir s. 1070 og skólastjóri
Sigurður R. Guðmundsson s. 3820 og 3920.
Tónlistarskóli
Grundarfjarðar
óskar að ráða einn tónlistarkennara frá 1.
sept. 1987 sem getur kennt á blásturshljóð-
færi og stjórnað lúðrasveit.
Vaxandi tónlistaráhugi er á Grundarfirði og
hefur tónlistarlíf aukist verulega.
Grundarfjörður er um 230 km frá Reykjavík
og eru daglegar áætlunarferðir.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma
93-8664.
Skrifstofustarf
— f ramtíðarstarf
Óskum eftir starfskrafti á skrifstofu. 50-60%
vinna. Öll almenn skrifstofustörf. Reynsla/
kunnátta í bókhaldi nauðsynleg.
Vinsamlegast hafið samband við okkur fyrir
hádegi næstu daga.
Vélsmiðjan Stálverhf.,
Funahöfða 17, 112 Reykjavík.
Sími 83444.
Vantar þig
enska „au-pair“ stúlku?
Skrifir þú til lce-uk, Álfatúni 21, Kópavogi,
færðu allar nauðsynlegar upplýsingar.
(Vinsaml. hringið ekki).
m LAUSAR STÖÐUR HiÁ
M REYKJAVIKURBORG
Staða forstöðumanns við leikskólann
Árborg, Hlaðbæ 17 er laus til umsóknar.
Fóstrumenntun áskilin.
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og um-
sjónarfóstrur á skrifstofu Dagvistar barna í
síma 27277.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð
á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Sumarafleysingar
Seltjarnarnesbær vill ráða starfsmann í sum-
arafleysingar á gæsluvöll bæjarins í júní, júlí
og ágúst. Ráðning í hálft starf kemur einnig
til greina.
Upplýsingar gefur félagsmálastjóri í síma
612100.
Kennarar
óskast að grunnskóla Breiðdalshrepps
næsta vetur.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 97-5650.
Atvinnurekendur
ath!
Notfærið ykkur þjónustu Atvinnumiðlunar
námsmanna. Við bjóðum uppá fjölhæft sum-
arafleysingafólk með menntun og reynslu á
flestum sviðum atvinnulífsins til lengri eða
skemmri tíma.
Upplýsingar í símum 621080 og 27860.
Atvinnumiðlun námsmanna,
Félagsstofnun stúdenta v/Hringbraut.
Hafnarfjörður
Starfskraftur óskast til hreingerningastarfa í
verksmiðju okkar. Vinnutími frá kl. 8.00-16.00.
Upplýsingar á staðnum.
Delta hf.,
Reykjavíkurvegi 78, Hafnarfirði,
sími 53044.
Flakari
Óska eftir vönum flakara. Þarf að geta hafið
störf sem fyrst.
Fiskbúðin Sæbjörg,
sími 14364.
Dýraspítalinn
íVíðidal
óskar eftir starfskrafti hálfan daginn frá kl.
9.00-13.00 við ræstingu og umhirðu dýra.
Upplýsingar gefur Anna í síma 76620 eftir
kl. 13.00 virka daga.
Er starfsglöð —
óska eftir vinnu
Vön flestum skrifstofustörfum. Vön að vinna
sjálfstætt. Er með B.A. próf í ensku. Get
byrjað mjög fljótlega.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 29.
þ.m. merkt: „B — 5307“.