Morgunblaðið - 24.05.1987, Page 64
SUNNUDAGUR 24. MAI 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Velta lottós-
ins komin í
336 milljónir
VELTA lottósins, frá því að sala
á miðum hófst 22. nóvember í
fyrra, er 336 milljónir króna. Þar
af hafa 136 milljónir verið
greiddar vinningshöfum. Eign-
araðilar íslenskrar getspár
höfðu i iok síðasta mánaðar feng-
ið um 75 milljónir króna í sinn
hlut.
Að sögn Vilhjálms Vilhjálmsson-
ar, framkvæmdastjóra Islenskrar
^getspár, hefur lottóinu verið tekið
betur en bjartsýnustu menn þorðu
að vona. „Það skiptir miklu að okk-
ur hefur tekist, með góðri hjálp
Pósts og síma, að koma upp sölu-
tækjum víða um land,“ sagði
Vilhjálmur. „Það dró nokkuð úr
þátttöku í lottóinu um fermingamar
og fyrir kosningar, en þátttakan
glæðist alltaf mjög þegar vinningur
er tvöfaldur, eða þrefaldur eins og
síðast var. Nú þegar höfum við
greitt eignaraðilum 75 milljónir
króna og er þá maímánuður ekki
talinn með, sem er metmánuður í
sölu. Þessar milljónir skiptast þann-
ig að íþróttasamband íslands fékk
46,67%, eða um 35 milljónir, Ung-
/mennafélag fslands 13,33%, eða
tæpar 10 milljónir og Öryrkja-
Bílaflutningaskipið Oden í
Hafnarfjarðarhöfn þar sem
skipað var upp úr því 1019
nýjum bílum.
7000 nýir
bílar skráð-
ir á árinu
Eimskip tók sér-
stakt bílaf lutninga-
skip á leigu
EKKERT lát hefur verið á
nýskráningum bila hjá Bif-
reiðaeftirliti ríkisins og
samkvæmt upplýsingum það-
an höfðu meira en 7000 nýir
bílar verið skráðir á þessu
ári. Um 5000 bílar höfðu ver-
ið skráðir i aprílbyijun en
allt árið í fyrra voru skráðir
16.000 nýir bílar.
Til að anna innflutningi tók
Eimskipafélag íslands á leigu
sérstakt bílaflutningaskip sem
lagðist að bryggju í Hafnarfjarð-
arhöfn 15. mai síðastliðinn með
1019 nýja bfla af ýmsum gerð-
um. Flestum bílanna var skipað
um borð í Riga í Sovétríkjunum,
eða 420, en skipið tók einnig
368 bíla í Antverpen og 231 í
Amsterdam.
Samkvæmt upplýsingum frá
Eimskip er ekki fyrirhugað að
taka slíkt skip á leigu aftur þótt
það sé ekki útilokað ef eftir-
spum eftir bflum linnir ekki.
bandalagið fékk 40%, sem eru um
30 milljónir.“
FYiðjón Friðjónsson, gjaldkeri
ÍSÍ, sagði að af þeim 35 milljónum
sem sambandið hefði þegar fengið
hefði um 23 verið útdeilt. „Reglum-
ar nú eru þannig að helming þess
flár sem ÍSÍ fær er útdeilt til sér-
sambanda og hinn helmingurinn fer
til héraðssambanda,“ sagði Friðjón.
„Af því fé sem fer til sérsambanda
er 10% skipt jafnt á milli þeirra,
5% fara í sérstakan afreksmanna-
sjóð, 30% skiptast eftir iðkenda-
fjölda og 55% er skipt eftir eigin
fjáröflun og umfangi starfsemi
sambandanna. Hvað varðar hér-
aðssamböndin er skiptingin önnur.
Þar skiptast 10% jafnt, 30% eftir
iðkendafjölda og 60% fara eftir sölu
lottós í héraði. Þessar reglur eru
til bráðabirgða og verða endurskoð-
aðar eftir því hver reynslan af þessu
verður."
Friðjón sagði að gróðinn af lottó-
inu gjörbreytti rekstri félaganna.
„Þessar upphæðir skipta hundruð-
um þúsunda eða milljónum hjá
stærri sérsamböndum. Það er því
ljóst að lottóið er mikil lyftistöng
fyrir íþróttastarf í landinu."
Mikið ferð-
ast í góða
veðrinu
GÓÐA veðrið í gær ýtti undir
ferðalöngun borgarbúa og var
stanslaus straumur bifreiða út
úr bænum frá því snemma um
morguninn.
Að sögn lögreglunnar í Árbæ er
greinilegt að sumammferðin er
hafin. Bílamir hefðu streymt út úr
borginni frá þvf snemma um morg-
uninn og greinilegt að margir væru
með búnað með sér til helgardval-
Símamynd/Anna Bjamadóttir
Hannes Hlífar Stefánsson býr sig undir að leika drottningunni í síðustu skák sinni á heimsmeistara-
móti sveina í gær.
Ég tefli til þess að
safna góðum skákum
- segir Hannes Hlífar Stefánsson nýbakaður heimsmeistari sveina í skák
Innsbruck, frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
„SÍÐASTA skákin var líklega Ég bjóst alveg eins við að
sú erfiðasta á mótinu,“ sagði
Hannes Hlífar Stefánsson sem
í gær vann heimsmeistaramót
sveina 16 ára og yngri í skák
með því að leggja Frakkann
De Graeve í 38 leikjum en
Hannes þurfti að vinna síðustu
skákina til þess að vera örugg-
ur með heimsmeistaratitilinn.
Hannes hlaut alls 9,5 vinninga
á mótinu af 11 mögulegum,
vann 9 skákir, gerði eitt jafn-
tefli og tapaði einni skák.
Adams frá Englandi kom
næstur.
vinna mótið fyrir þessa skák,“
sagði Hannes eftir sigurinn. „En
ég víxlaði leikjum og mundi ekki
leikjaröðina um tíma svo að hún
leit nokkuð hættulega út. Mér
tókst að bjarga þessu en ef hann
hefði teflt rétt var ég alls ekki
viss um að vinna og átti ekki
von á að De Graeve myndi gef-
ast upp þetta fljótt.“
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
hlaut 5,5 vinninga á mótinu en
hún tapaði síðustu skák sinni
fyrir Bojkovic frá Búlgaríu.
Allt umstang á illa við Hannes
Hlífar en hann varð að sætta sig
við að gefa austurrískum fjöl-
miðlum viðtöl með aðstoð
Guðmundar Sigurjónssonar eftir
sigurinn. Campomanes, forseti
FIDE, afhenti honum verðlauna-
bikarinn við hátíðlega athöfn
síðdegis í gær. „Ég veit ekki
hvað ég hef hlotið mörg verðlaun
fram til þessa,“ sagði Hannes
Hlífar. „Ég tefli ekki til að safna
þessu dóti, heldur til að tefla
góðar skákir og vinna þær.“
Sjá viðtöl á bls.2 og forystu-
grein á bls. 32
Fiskmarkaðurinn í Bretlandi:
Ferskur fiskur héðan
keyptur af Spánveijum
NOKKUR hluti af íslenzkum
fiski, sem seldur er ferskur í
Bretlandi, er fluttur þaðan til
landa innan Evrópubandalags-
ins, svo sem Danmerkur og
Suður-Evrópulanda og meðal
annars saltaður þar. Með þessu
móti komast menn hjá tollum á
fiskinum og vegur hann upp á
móti minnkandi veiðiheimildum
viðkomandi þjóða. Auk þess
skortir fiskvinnslu víðast í Evr-
ópu fisk til vinnslu. Stærstu
saltfiskmarkaðir okkar eru í
Suður-Evrópu, Portúgal, Spáni,
Ítalíu og Grikklandi.
Á síðasta ári voru fluttar héðan
til Bretlands 55.000 lestir af fersk-
um fiski og hafði aldrei verið meira.
Ifyrstu fjóra mánuði þessa árs nem-
ur útflutningurinn 18.000 lestum á
móti 14.000 á sama tíma í fyrra.
Aukningin er nær öll í þorski. Dan-
ir hafa gert talsvert af því að kaupa
íslenzka fiskinn á mörkuðunum í
Hull og Grimsby. Þeir hafa þá salt-
að hann heima og selt til Spánar
og Portúgals svo dæmi séu nefnd
um samkeppni við sölu saltfísks
héðan. Nú er hafinn flutningur á
ferskum físki héðan frá Hull og
Grimsby með kælibflum til Suður-
Evrópulanda, einkum Spánar, þar
sem hann er að einhveiju leyti verk-
aður í salt. Fiskurinn er þá keyptur
á fiskmarkaðnum og síðan endur-
seldur til viðkomandi landa og fara
þessi viðskipti vaxandi.
„Þetta kemur ekkert á óvart, það
er skortur á físki og útflutningur í
gámum auðveldar mönnum að gera
þetta,“ sagði Magnús Gunnarsson,
framkvæmdastjóri SIF, er Morgun-
blaðið innti hann álits á þessu.
„Fiskurinn er fluttur á milli landa
innan Evrópubandalagsins án nokk-
urra tolla. Þetta er einskonar
framhald á gámaútflutningnum.
Menn verða að gera sér grein fyrir
því að fiskverkun um alla Evrópu
skortir fisk. Það eru þeir aðilar, sem
við erum svo að keppa við. Þetta
gerist um Ieið og saltfiskurinn hér
heima er látinn greiða verulegar
upphæðir í verðjöfnunarsjóð og
vinnslan stenzt því ekki samkeppni
um hráefnið," sagði Magnús.