Morgunblaðið - 11.06.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.06.1987, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 129. tbl. 72. árg.__________________________________FIMMTIJDAGUR 11. JÚNÍ 1987_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsíns Kosningar á Ítalíu: Kristilegum spáð ósigri Róm, Reuter. SAMKVÆMT skoðanakönnun dagfolaðsins La Repubblica, sem birtist í gœr, fá kommmúnistar ívið meira fylgi en kristilegir demókratar, sem tapa verulega, í þingkosningunum næstu helgi og yrðu þar með stærsti flokkur landsins. í könnuninni fá kristilegir 6,5% minna fylgi en í kosningunum 1983, en þá guldu þeir mikið afhroð. Kosningabaráttan hefur fyrst og fremst verið milli kristilegra annars vegar og sósíalista hins vegar. Sósí- alistaleiðtoginn Craxi hefur ekki viljað útiloka stjómarsamvinnu með kommúnistum, en kommúnistar hafa ekki setið í ríkisstjóm á Ítalíu síðan 1947. Jafnframt hefur hann sagt að hann muni ekki styðja sam- steypustjóm með kristilegum demókrötum í forsæti. Kommúnistar ásökuðu í gær Maf- íuna um að hrella liðsmenn flokksins í kosningabaráttunni og hefði m.a. verið kveikt í bíl embættismanns flokksins í Kalabríu. RAÐHERRARNIR KOMA Þessar myndir voru teknar á Keflavíkurflugveili í gærkvöldi. Til vélinni, er flutti þau frá Feneyjum. Á hinni myndinni er Hans- vinstri sjást George Shultz og eiginkona hans, Helena, stiga út úr Dietrich Genscher, utanríkisráðherra Vestur-Þýskalands, fagnað. Fundur NATO hefst í dag: Reagan bíður niðurstöðu ráðherranna í Reykjavík Feneyjafundurinn: Efnahags- vandinn óleystur Feneyjum, Reuter. LEIÐTOGAR sjö helstu iðnríkja heims hétu þvi i gær að loknum þriggja daga fundi í Feneyjum að samræma aðgerðir og stefnu á ýmsum sviðum, allt frá efna- hagsmálum til alnæmis. Fyrir fundinn var spáð að ekki tækist að finna lausn á skrykkjótt- um hagvexti, viðskiptahalla og auknum skuldum og gekk það eftir. Amintore Fanfani, forsætisráð- herra Ítalíu, las upp sameiginlega yfirlýsingu leiðtoganna um ýmis mál er fundinum var slitið í gær. Leiðtogamir sjö komu sér saman um samræmingu milli ríkja sinna í efnahagsmálum og nota ýmsa staðla til að fylgjast með hvort efna- hagslífíð héldist innan vissra marka. Aftur á móti skuldbundu leiðtogamir sig ekki til að taka í taumana ef farið yrði út fyrir þessi mörk. Sjá „Feneyjafundinum lokið“ á siðu 37. London, Reuter. ÞRJÁR breskar skoðanakannanir, sem birtust í gær, gáfu til kynna að íhaldsflokkurinn undir forystu Margaret Thatcher myndi halda meirihluta sinum í neðri deild þingsins. Flokkurinn hafði 137 þingsæta meirihluta en er spáð 20 til 50 sæta meirihluta núna. Síðustu fréttamannafundir leið- toga flokkanna fyrir kosningar voru haldnir í gær. Thatcher sagði þá að Verkamannaflokkurinn myndi gera landið vamarlaust, óðaverðbólga Utanrikisráðherrar Atlants- hafsbandalagsrikjanna hefja fund sinn í dag og verður hann settur klukkan 11 í Háskólabíói. í gærkvöldi komu hingað til lands ráðherrar ríkjanna, sem áttu fulltrúa á leiðtogafundinum í Feneyjum. Við brottför sina héldi innreið sína og vinstri-ofstækis- menn og verkalýðsfélög tækju öll völd, ef hann sigraði. Neil Kinnock, leiðtogi Verka- mannaflokksins, sagði aftur á móti að þegar Thatcher hældi sér af því að hafa gert Bretland að miklu ríki á ný líktist það „sjálfsblekkingum og hégómaskap fölnaðrar keisara- ynju og hirðmanna hennar". Sjá „Allar líkur á meirihluta íhaldsflokksins" á siðum 36 og 37. þaðan, sagði George Shultz, ut- anrikisráðherra Bandarikjanna, að Ronald Reagan forseti mundi liklega ákveða um næstu helgi hvort ganga bæri að tiUögum Sovétmanna um upprætingu kjarnorkuflauga í Evrópu. Réði niðurstaða Reykjavíkurfundar- ins mestu um ákvörðun forset- ans. Tilkynnt var í Hvíta húsinu í Washington i gær að Reagan ætlaði að flytja sjónvarpsávarp á mánudag. Carrington lávarður, framkvæmdastjóri Atlantshafs- bandalagsins, sagði á blaða- mannafundi í Háskólabfói í gær, að mikill skriður hefði komist á afvopnunarviðræður risaveld- anna síðan Reagan og Mikhail Gorbachev, leiðtogi Sovétríkj- anna, komu til fundar i Reykjavík f október. Utanríkisráðherrafundinum í Reykjavik lýkur á föstudag. Binda menn vonir við að ráðherramir geti náð samkomulagi um brottflutning Evrópueldflauganna. Þykir tilkynn- ingin um sjónvarpsávarp Reagans á mánudag gefa til kynna, að Bandaríkjamenn séu bjartsýnir um árangur fundarins. Sagði í tilkynn- ingu Hvíta hússins að Reagan ætlaði í ræðu sinni að fyalla um niðurstöður hans og fund leiðtoga sjö helstu iðnríkja heims í Feneyj- um. George Shultz heldur héðan beint til Washington og í gær sagðist hann tafarlaust mundu skýra for- setanum frá niðurstöðum fundarins hér: „Býst ég við að hann taki ákvörðun um helgina eða á mánu- dag og skýri siðan frá henni," sagði utanríkisráðherrann. Margir telja líklegt, að á döfinni sé að ákveða fund þeirra Reagans og Gorbachevs í Bandaríkjunum næsta haust. En þar yrði formlega gengið frá samn- ingi um meðaldrægu og skamm- drægu flaugamar eða hina „tvöföldu núlllausn", sem svo er nefnd. Hans-Dietrich Genscher, ut- anríkisráðherra Vestur-Þýska- lands, kom til landsins skömmu á eftir Shultz í gærkvöldi. Vestur- Þjóðveijar hafa sett fram þá kröfu að 72 skammdrægar flaugar af gerðinni Pershing 1A verði undan- skildar samningum um Evrópu- flaugamar. Carrington lávarður sagði aðspurður um þetta atriði að Pershing 1A flaugamar hefðu ætíð verið undanskildar þegar samn- inganefndir risaveldanna ræddu fækkun kjamorkuvopna í Evrópu og teldi hann kröfu þýsku stjómar- innar því eðlilega. Það ræðst af afstöðu ráðherra einstakra ríkja til hennar, hvort það samkomulag tekst á fundinum, sem flestir vænta í upphafí hans. Stjómin í Bonn hefur látið að því liggja að viðræður um kjamorku- vopn á vígvöllum verði að sigla í kjölfar samninga um • upprætingu Evrópuflauganna. Sérfræðingar segja að það kunni að reynast erfíð- leikum bundið fyrir Atlantshafs- bandalagsrikin að komast að sameiginlegri niðurstöðu um kröfur vestur-þýsku stjómarinnar. Sjá „Utanríkisráðherrafund- ur ...“ á síðu 34. Skoðanakannanir í Bretlandi: Thatcher heldur velli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.