Morgunblaðið - 11.06.1987, Blaðsíða 77

Morgunblaðið - 11.06.1987, Blaðsíða 77
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987 MorgunblaðiÖ/Júlíus • Einar Vilhjálmsson spjótkastari náfti mjög góftum árangri á kastmóti f Laugardalnum f gœrkvöldi. Kastaði 79,28 matra og var nálægt sfnu besta. Einar kastaði 79,28 metra EINAR Vilhjálmsson spjótkast- ari náði sfnum besta árangri, það sem af er þessu ári, á Vor- móti f Laugardalnum í gær- kvöldi. Hann kastaði nýja spjótinu 79,28 metra og var aðeins einum metra frá sfnum besta árangri. „Ég er í mjög góðri æfingu núna og þessi árangur lofar góðu um framhaldiö í sumar," sagði Einar i samtali við Morgunblaðið eftir mótið. Hann kastaði enn lengra í upphitun og á æfingum hefur hann verið að kasta yfir 80 metra. Það má því búast við honum sterkum í sumar. Eggert Bogason úr FH kastaði kringlunni 58,10 metra og var nálægt sinu besta. GOLF: Síðasta stigamótið áður en landsliðið verður valið UM helgina verftur þriðja stiga- mótift f gotfi haldift og að þessu sinni verður keppt f Grafarholtinu hjá GR og kallast ESSO-stiga- mótið. Þetta er sfðasta stiga- mótið áður en landsliðið f golfi verftur valift en það tekur þátt f Evrópumeistaramótinu f Aust- urrfki á næstunni. í mótinu taka aðeins þátt bestu kylfingar landsins en rétt til þátt- töku hafa þeir einir sem eru með 8 eða lægra i forgjöf. Leikið verður bæði á laugardag og sunnudag og 36 holur hvorn dag. Hór er tilvalið tækifæri að sjá golf eins og það gerist best á Islandi. Skráningu í mótið lýkur klukkan 18 á föstudag en ræst verður út frá klukkan 8 árdegis báða dagana. Úlfar Jónsson úr Keili hefur nú forystu í stigakeppninni, vann í Eyjum um helgina og varð annar í Leirunni fyrir tveimur vikum, með 73 stig. Annars skiptast stigin þannig á milli kylfinganna: Úlfar Jónsson GK 73 Sigurjón Arnarsson GR 63 Gylfi Kristinsson GS 52 Sveinn Sigurbergsson GK 50 SiguröurSigurðssonGR 50 Einar L. Þórisson 44 Hjalti Pálmason GV 41 TryggviTraustason GK 38 Björgvin Þorsteinsson GR 34 Jón H. Karlsson GR 33 SiguröurPéturssonGR 31 Birgir Ágústsson GV 31 Magnús Birgisson GK 31 GunnarSigurössonGR 31 Björgvin Sigurbergsson GK 30 Hannes Eyvindsson GR 28 Þorsteinn Hallgrimsson GV 26 Fleiri hafa hlotið stig en þetta eru þeir sem efstir eru þegar tveimur mótum er lokið. Mótið um helgina hjá GR verftur spennandi ef að líkum lætur og svo virðist sem umsjónarmaður landsliösins, Björgvin Þorsteinsson, eigi góða möguleika á að velja sjálfan sig í landsliðið. Hann er ofarlega á list- anum og ef honum gegnur vel um helgina gæti hann komist enn ofar. Þaft er Ijóst að það verður hart barist um landsliðssætin. Ragnar Ólafsson úr GR gefur ekki kost á sér í landsliöið, enn sem komið er, hvað svo sem verður síðar í sumar og Hannes Eyvindsson ætl- ar sér heldur ekki að leika með landsliðinu, að minnsta kosti ekki fyrst um sinn. Það vekur óneitanlega athygli að Sigurður Pótursson og Hannes Eyvindsson úr GR eru neðarlega á listanum sem hér er að ofan. Skýr- ingin er að þeir tóku aðeins þótt í mótinu í Leirunni og fengu því engin stig í Eyjum. Hörku golfmót er sem sagt framundan og ef veðrið helst eins gott og undanfarna daga ætti ekki að væsa um neinn f Grafarholtinu. • Fulltrúar þeirra sem hlutu vifturkenningu ásamt Júlíusi Hafstein formanni ÍBR. Morgunbiaöið/Ámi Sæbeng Úthlutað úr Af reks- og styrktarsjóði Reykjavíkur ÚTHLUTAÐ var úr Afreks- og styrktarsjóði Reykjavíkur fvikunni og að þessu sinni voru það 1.400.000 krónur sem skiptust á milli ýmissa félaga f borginni. Knattspyrnudeild Fram fékk 200.000 kr. fyrir íslandsmeistara- titilinn í meistaraflokki og hand- knattleiksdeildin hjá félaginu fékk 150.000 en stúlkurnar í meistara- flokki félagsins urðu íslands- og Reykjavíkurmeistarar í vetur. Frjálsíþróttadeild ÍR fékk 200.000 vegna öflugs unglinga- starfs og eistæðrar sigurgöngu í Bikarkeppni FRÍ. Körfuknattleiksdeild KR fékk 100.000 fyrir frábæran árangur meistaraflokks kvenna. Frjálsíþróttadeild Ármanns fékk 150.000 vegna árangurs Sigurðar Einarssonar spjótkastara á al- þjóðamótum og vegna undirbún- ings fyrir Ólympíuleikana 1988. TBR fékk 100.000 fyrir góðan árangur í Evrópukeppni félagsliða og öflugs unglingastarfs. GR fékk 100.000 vegna öflugs unglingastarfs. Iþróttafélag fatlaðra fékk 100.000 vegna undirbúnings íþróttamanna féiagsins fyrir Ólympíuleikanna í Seoul á næsta ári. Körfuknattleiksdeild Vals fékk 100.000 vegna árangurs yngri flokka félagsins og öflugs ungl- ingastarfs. Sundfólagið Ægir fékk 100.000 fyrir góðan árangur félagsmanna á sundmótum hérlendis og erlend- Skíðadeild Fram fékk 100.000 fyrir mikið unglingastarf. Einnig voru veittar viðurkenn- ingar fyrir félagsstörf og hlutu þau að þessu sinni KR-konur og Vals- maðurinn Ellert Sölvason sem er betur þekktur undir nafninu Lolli. Hörður Óskarsson fókk viðurkenn- ingu fyrir iðkun almenningsíþrótta. Hensonbikarinn • Úlfar Jónsson er stigahæstur eftir tvö mót og hann er næsta örugg- ur um sæti í landsliðinu. Keppni milli annarra verftur hörð enda fyrirsjáanlegar breytingar á landsliðinu. Hér er Úlfar með móftur sinni, Ragnhildi Jónsdóttur, sem dró fyrir hann á síðasta Landsmóti. f dag fer fram undirbúnings- keppni Hensonsbikarsins í golfi hjá GR. Þetta er eina mótið hjá GR þar sem leikin er „forsome", en þá leika tveir og tveir saman og slá til skiptis. Leikið er með fullri for- gjöf í dag en í úrslit komast 16 bestu liftin og þar er leikin holu- keppni. Frjáísar íþróttir: Enn bætir Erlingur sig á 800 metrunum ERLINGUR Jóhannsson bætti sig enn í 800 metra hlaupi og náði fjórða bezta árangri fslendings með því að hlaupa vegalengdina á 1:50,50 mínútum. „Ég tel mig eiga talsvert inni á vegalengdinni og ætla að reyna við íslandsmetið (1:49,2) á næst- unni. Ég hljóp ekki nógu vel, lokaðist inni á sejnni hring en átti nóg eftir síðustu 100 metrana og fór þá framúr öðrum Bretanum og báðum Norðmönnunum," sagði Erlingur. Árangrinum náði hann í keppni Suður-Englands og Nor- egs, sem haldin var í bænum Grimstad við Kristiansand sl. fimmtudag (4. júni). Hann keppti sem gestur og varð í öðru sæti. Erlingur sagðist mundu reyna að slá íslandsmet Jóns Diðriksson- ar (þá UMSB nú (R) í 800 metrum á næstunni. Er það 1:49,2 mínút- ur, sett í Bonn í Vestur-Þýzkalandi vorið 1982. Auk Jóns hafa Þor- steinn Þorsteinsson KR (1:50,1) og Gunnar Páll Jóakimsson ÍR (1:50,2) náð betri tíma en Erlingur í 800 metrum. Hjörtur Gíslason UMSE keppti einnig sem gestur í keppninni, varð fjórði á 14,64 sekúndum, sem er hans bezti árangur, átti áður 14,75 sek. Meðvindur var 1,6 sek- úndumetrar og árangur Hjartar því löglegur. Hjörtur setti einnig per- sónumet í 400 metrum á dögun- um, hljóp á 49,81 sek. Þá hefur Egill Eiðsson UÍA náð bezta tíma íslendings í 400 metra grindahlaupi í ár, 53,17 sekúndur. Egill hljóp fyrr í vor á 53,80 sek. Þetta er góður árangur, sérstak- lega þegar þess er gætt að Egill er nýliði í grindahlaupi. Hann hefur hlaupið 400 metra á 48,91 sek. í vor.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.