Morgunblaðið - 11.06.1987, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 11.06.1987, Blaðsíða 76
76 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987 SIGLINGAMENN eru sem óðast að ýta bátum úr vör. Kjalbátar jafnt sem kænur hafa þegar verið hreinsaðlr og yfirfarnir þannig að flestir bátar eru til í slaginn á sumri komanda. Margt verður sér til gamans gert í sumar. Nokkrir huga að landsiglingum, hér við land eða erlendis. Aðrir eigendur stærri báta huga að ferð kring um landið.og margir munu kanna Breiðafjörð, fsafjarðardjúp eða Eyjafjörö. Hátt ber einnig keppnishald sumarsins fyrir þá sem hafa gaman af að etja kappi hverjir við aðra. Siglingasamband ís- lands hefur gefið út skrár þar sem skipulögð er keppni á kæn- um, seglbrettum og kjalbátum. Nefna má íslandsmótin sem haldin verða í júlí og ágúst, Landsmót UMFÍ á Húsvík, svo og Faxaflóamótið sem verður keppni til Ólafsvíkur í tilefni af- mælis bæjarins, en siglingafólki hefur verið heitið að það veröi velkomið og því betur tekið á móti sem fleiri mæta. Hæst ber þó þann áhuga sem Gunnlaugur Jónasson, úr sigl- ingaklúbbnum Ými í Kópavogi, hefur á kappsiglingum, en Gunn- laugur hefur nú undanfarin ár helgað siglingum allan frítíma sinn og fjármuni. Gunnlaugur stundar nám í Ósló og hefur átt þess kost að æfa með norska meistaraliöinu. Haraldur Ólafs- • Gunnlaugur og Haraldur við Ólympfubátinn 470 á æfinga- móti f Kaupmannahöfn nýlega. son, sem einnig stundar nám í Ósló, hefur nú undanfarið verið í áhöfn hjá Gunnlaugi og hafa þeir félagar staðið vel fyrir sínu og sigrað á mörgum mótum í Noregi, þannig að norskum þykir nóg um. Nýlega urðu þeirfélagar í þriðja sæti á norska meistara- mótinu á Ólympíubátnum 470. Ekki iáta þeir Noreg duga sem keppnissvæði heldur hafa þeir nú í ár og í fyrra sótt flest sterk siglingamót í Evrópu þar sem þeir hafa getað tekið þátt í á bát sínum, Ólympíubátnum 470. ( ár byrjuðu þeir með keppni í Frakkl- andi og urðu í 11. sæti af 160 keppendum, en næsta stórmót þeirra var Copenhagen Spring Series 14,—17. maí sl. þar sem þeir urðu í 24. sæti af 60 kepp- endum. Enn munu þeir halda áfram keppni og eru næstu mót Kílar- vikan í V-Þýskalandi 20. júní — 5. júlí, E.O.P. á 470 í Svíþjóð 15.—22. ágúst og Norðurlanda- meistaramótið í Árósum 14.—18. október í haust. Á milli þess sem keppt er á mótum eru þeir félagar við æf- ingar alls staðar sem tækifæri gefst til hvort heldur er í Suður- eða Norður-Evrópu, en lengst hafa þeir félagar sótt til Júgó- slavíu sl. sumar, ef frá er talin þátttaka þeirra Gunnlaugs og Jóns Ólafssonar á síðustu Ólympíuleikum. Þeir félagar hafa sýnt fádæma Gunnlaugur Jónasson, til vinstri, og Haraldur Ólafsson. Þeir hafa staðið sig vel á mótum að undanförnu. dugnað og hörku undanfarin ár, einkum ef borin er saman að- staða þeirra og annarra kepp- enda. Flestir ef ekki allir aðrir keppendur hafa mikin stuðning í sínu farteski. Þjálfarar og aðstoð- armenn eru fyrir hendi og fjár- munir eru ekki látnir hindra framgang. Aðstaða þeirra félaga er stuðningur fjölskyldna þeirra beggja ásamt iítils háttar fram- lagi frá Siglingasambandi íslands og Ólympíunefnd, stuðningi sem mikils er verður og viðurkenndur af þeim fólögum. KrÓII. Archibald skoraði tvö gegn Espanol • Steve Archibald STEVE Archibald skoraði bæði mörk Barcelona f 2:1 sigri gegn Espanol um helgina í spönsku 1. deildarkeppninni f knattspyrnu, en þau dugðu skammt þar sem Real Madrid vann Mallorca 4:0 og heldur tveggja stiga forskoti á toppnum, þegar tvær umferðir eru eftir. Leik Barcelona og Espanol var lokið, er leikur Real hófst, en Terry Venables, þjálfari Barcelona, lét færa sinn leik fram um tvo tíma til að auka álagið á Real. En leik- menn Real tvíefldust og sigruðu örugglega á erfiðum útivelli. Butragueno skoraði fyrsta markið og Martin Vazquez bætti öðru við fyrir hlé. í byrjun seinni hálfleiks var Damian Ámer hjá Mallorca sýnt rautt spjald, Rafael Gordillo skoraði þriðja mark Real og gaf á Manuel Sanchis, sem innsiglaði sigurinn. Real leikur gegn Zaragoza á úti- velli um næstu helgi og fær síðan Espanol, sem er í þriðja sæti, í heimsókn í síðasta leik. Barcelona á Sporting Gijon og Zaragoza eft- ir, en verði Real og Barcelona jöfn að stigum að þessum leikjum lokn- um, verður Barcelona meistari vegna innbyrðis leikja liðanna. | 0 Pétur Pétursson f hinum nýja búningi KR. Diamantino sá um Sporting BENFICA sigraði í portúgölsku I þriðja árið f röð — varð deildar-og bikarkeppninni f knattspyrnu | bikarmeistari f nfunda sinn, er lið- Bikarinn til Napólí? DEILDARMEISTARAR Napólf eru á góðri leið með að sigra einnig f bikarkeppninni f knattspyrnu á ítalfu, en þeir unnu Atalanta 3:0 f fyrri úrslitaleiknum. Fyrri hálfleikur var markalaus ög léku gestirnir, sem féllu í 2. deild í vor, stífan varnarleik, en leikið var í Napólí. í seinni hálfleik hertu Maradona og félagar sókn- ina og skoruðu Alessandro Renica, Ci^o Muro og Salvatore Bagni mörkin á tíu mínútum. ið vann Sporting 2:1 f úrslitaleikn- um um helgina. Diamantino, miðherji, skoraði bæði mörk Benfica, en Marion minnkaði muninn tíu mfnútum fyrir leikslok. John Mortimer, framkvæmda- stjóri meistaranna, sagði starfi sínu lausu skömmu eftir leikinn, en hann gerði þriggja ára samning við félagið fyrir tveimur árum. „Ég get ekki starfað með mönnum, sem vilja ekki vinna með mér,“ sagði Mortimer, sem er 52 ára. Þrátt fyrir góðan árangur heima fyrir, hefur Benfica ekki staðið sig vel í Evrópukeppni undanfarin ár og það sætta stjórnendur félags- ins sig ekki við — vilja endurheimta forna frægð, en ekki vera í skugga Evrópumeistara Porto. Því kom afsögnin ekki á óvart, en eftirmað- ur hefur ekki verið ráðinn. Völler ^krifaði^ undir hjá Roma RUDI Völler, miðherji Vestur- Þýskalands, lék ekki með Werder Bremen um helgina, heldur fór til Ítalíu og skrifaði undir þriggja ára samning við Roma. Roma olli vonbrigðum í vetur og náði ekki Evrópusæti í vor. Því var Völler keyptur, en Klaus Bergreen frá Danmörku verður að víkja, þar sem aðeins tveir erlend- ir leikmenn mega vera í sama liði og Pólverjinn Boniek verður áfram í framlínunni. Bremen fékk um sjö milljón þýsk mörk fyrir Völler eða um 150 millj- ónir íslenskar, en hrein mánaöar- laun hans verða jafnvirði um einna milljóna íslenskra króna. KR með Útsýn KNATTSPYRNUDEILD KR hefur gert auglýsingasamning við Ferðaskrifstofuna Útsýn og leika meistara- og fyrsti flokkur f bún- ingum með auglýsingu fyrirtækis- ins. Auk beinna greiðslna styrkir Útsýn knattspýrnuskóla deildar- innar og einnig sérstakan skóla, sem verður síðustu viku í júní, þar sem kennarar verða frægir at- vinnumenn og má þar nefna Tahamata frá Hollandi, Arnór Guðjohnsen, Sigurð Jónsson og Pótur Pétursson. Þá munu áhorf- endur á heimaleikjum KR velja besta mann KR og verður þeim stigahæsta boðið í sérstaka Útsýn- arferð í mótslok. Allir aðrir flokkar leika með Grohe auglýsingu á búningunum og er það sjötta áriö, sem deildin fær stuðning frá Þýsk-íslenska. Eins og mörg undanfarin ár leika allir flokkar deildarinnar í Adidas- búningum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.