Morgunblaðið - 11.06.1987, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 11.06.1987, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987 o r 13 Datt ekkí í hug að þetta væru týndu hestamir frá Þverá - segir Gunnar Björnsson, sem fann hestahræin fyrir tilviljun í Sandf elli „ÉG sá eitthvað þaraa uppi i fjallinu sem mér fannst ekki geta verið snjór. Þegar við koraum nær sáum við að þetta voru einhveijar skepnur og hóuðum en þær hreyfðu sig ekki. Okkur datt ekki í hug að þetta gætu verið týndu hestara- ir frá Þverá fyrr en við komum á staðinn," sagði Gunnar Björasson bóndi í Sandfalls- haga n í Öxarfirði, en hann fann hestana sjö frá Þverá fyr- ir tilviljun í skál í Sandfelli er hann var ásamt bróður sinum að sleppa lambfé neðan við fjallið síðastliðinn föstudag. Gunnar sagði að aðkoman hefði verið ljót. Hestamir hefðu legið mölbrotnir eftir hrap í flallinu í hvilft í fjallshlíðinni. Eigandi hest- anna, Kristján Benediktsson á Þverá, dró hestana niður um helg- ina og urðaði þá. Gunnar sagði að ekki væri vitað fyrir víst hvað gerst hefði með hestana. í fyrstu hefðu menn ta- lið líklegast að þeir hefðu farið upp á fjallið og farið í hóp fram af klettum efst í fjallinu. Hann sagðist hafa athugað aðstæður uppi á ijallinu, en ekki séð nein ummerki eftir hesta þar, enda væru litlar líkur á að þeir hefðu komist þangað. Menn teldu nú líklegast að þeir hefðu farið upp hlíðina meðfram girðingu sem þar er og suður skriðumar, en misst fótanna allir í einu í hálku og drepist í falli niður hlíðina. Hestahræin sáust úr töluverðri flarlægð. Slysstaðurinn er t.d. um 4 km frá Þverá, þar sem eigandi þeirra býr, og sáust hræin með kíki þaðan. Þessi staður þótti hins vegar svo ótrúlegar að aldrei var leitað þar þrátt fyrir víðtæka leit að hrossunum um stóran hluta norðausturlands í vetur. Morgunblaðið/Bjöm Víkingur Bjömsson Menn frá Sandfellshaga komn- ir að hræunum í Sandfelli á föstudag. Morgunblaðið/Bjöm Vlkingur Bjömsson Hræ fjögurra hrossa í brattri hlíðinni. Morgunblaðið/Bjöm Víkingur Bjömsson Mikil ferð hefur verið á hestunum i hrapinu, eins og sést á þess- um sem stöðvast hefur á stórum steini. Morgunblaðið/Helgi Ólafsson Kristján Benediktsson, ásamt unglingsstúlku, við húshornið á Þverá. Hrossin fórust í hvilftinni í Sandfelli og bendir örin á slysstaðinn. Könnun Félagsvísindastofnunar: Eftirspurn eftir lánum áfram svipuð og nú er KÖNNUN Félagsvísindastofnun- ar, sem nýlega var gerð fyrir Húsnæðisstofnun rikisins, bendir til þess að eftirspura eftir hús- næðislánum verði svipuð á þessu ári og þvi næsta og verið hefur. í könnun þessari var í fyrsta lagi könnuð afstaða manna til þeirrar nýbreytni Húsnæðisstofnunar að hvetja fólk til þess að fara ekki út i íbúðarkaup eða húsbyggingu, fyrr en það sé búið að fá bindandi láns- loforð fiá Húsnæðisstofnun. 78,4% aðspurðra voru hlynntir þessu. í könnuninni kom í ljós, að 5,3% þeirra sem svöruðu, sögðust eiga lánsumsókn hjá stofnuninni og samsvarar það 7.-8.000 manns á landsvísu. Er það áþekkur fjöldi og þegar höfðu lagt inn umsóknir sam- kvæmt nýja húsnæðislánakerfinu á þessum tíma. í þessum hluta könn- unarinnar höfðu 12,3% aðspurðra hug á því að sækja um lán hjá Húsnæðisstofnun á þessu ári eða því næsta. Samsvarar þetta hátt í 20.000 manns og segir í skýrslu Félagsvísindastofnunar, að gangi þetta eftir, mætti búast við því að eftirspum eftir lánum yrði svipuð áfram og nú er. Þó höfðu aðstand- ur könnunarinnar allan vara hér á, þar eð þetta hlyti að vera algert hámark; væntanlega myndu færri skila sér inn. Sigurður E. Guð- mundsson framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar gat þess einnig, að fram til aprílloka hefðu 700 umsóknir borist á mánuði, en í maí hefðu þær aðeins verið 500. í þriðja hluta könnunarinnar var könnuða afstaða þeirra, sem hugð- ust sækja um, hvort þeir væm að stækka við sig eða minnka eða að kaupa í fyrsta sinn. 40,5% vom að stækka við sig, 40,0% að kaupa í fyrsta sinn og 4,3% að minnka við sigj. I fjórða hluta könnunarinnar var kannað hvort fólk væri í eigin hús- næði, leigði eð byggi hjá foreldmm eða ættingjum. Rúmlega 70% fólks á aldrinum 18-75 ára búa sam- kvæmt þessu í eigin húsnæði og er það með því hæsta, sem gerist á Vesturlöndum. Þetta hlutfall er afar mismunandi eftir aldurshóp- um. 93% þeirra, sem em yfir 40 ára aldri búa í eigin húsnæði, 83%. þeirra, sem em á aldrinum 30-39 ára, 61% þeirra, sem em á aldrinum 25-29 ára og 16% þeirra, sem em á aldrinu 18-25 ára. Tæplega tveir þriðju hlutar þessa aldurshóps búa hjá foreldmm og um 20% em í leiguhúsnæði. Einnig er nokkur munur á hús- næðisháttum fólks eftir því úr hvaða starfstétt það kemur. Þannig búa um 63,6% fólks úr verkalýðs- stétt í eigin húsnæði, sem er samsvarandi við önnur lönd, 71,9% skrifstofufólks, 78,4% iðnaðar- manna, 78,8% sjómanna, 80,0% fólks úr kennslu- og heilbrigðis- stéttum, 84,6% sérfræðinga og stjómenda, 86,1% bænda og 90,1% atvinnurekenda. Áberandi flestir þeirra, sem em í hjónabandi búa f eigin húsnæði eða 93,2%, 87,9% ekkla og ekkna, 81,4% fráskilinna, 53,8% fólks í sambúð og 19,7% einhleypra. í fimmta hluta könnunarinnar vom þeir, sem búa í eigin húsnæði spurðir hvort þeir væm í sínu fyrsta húsnæði, öðm, þriðja, og svo fram- vegis. Tæplega 40% vom í sínu fyrsta húsnæði, 32,5% í sínu öðm, 18,4% í þriðja, 6,5% í fjórða, 2,2% í fímmta og minna í öðm. Benda þessar tölur til þess, að um 10% húseigenda skipti flómm sinnum eða oftar um húsnæði. U.þ.b. þriðj- ungur lætur nægja sér eitt húsnæði og svipað hlutfall að skipta tvisvar. Athyglivert er, að lítill munur er á því eftir aldurshópum, hvort fólk býr í sínu fyrsta húsnæði, öðm eða þriðja og svo framvegis, ef frá er skilinn yngsti hópurinn. Virðist það benda til þess að það færist í vöxt að fólk skipti um íbúðir. Siglufjörður: Sóttum sérleyfi Siglufirði. JÓN Sigurðsson á Sleitustöðum í Skagafirði sótti í vetur um leyfi til að vera með beinar rútuferð- ir á milli Siglufjarðar og Reykjavíkur. Umsókn hans ligg- ur óafgreidd i samgönguráðu- neytinu. Það er mikið áhugamál fólks hér á Siglufirði að beinar rútuferðir komist á þannig að fólk eigi val um að fljúga, taka rútuna eða fara á eigin bíl. Fargjald með rútu á milii Siglufjarðar og Reykjavíkur ætti að vera um 1.600 krónur, sem er meira en helmingi ódýrara en áætlunarflugið. Matthias Forseta íslands veitt æðsta viðurkenning Lions ÁTTA Lionessu-klúbbar á íslandi veittu forseta íslands, Vigdisi Finnbogadóttur, æðstu viður- kenningu Lions-hreyfingarinn- ar. Forsetinn er fyrsta konan á íslandi sem fær heiðursnafn- bótina Melvin Jones-félagi. Forsetanum var afhentur heið- ursskjöldur við hátíðlega athöfn þingsetningar fjölumdæmis Lions á Islandi laugardaginn 6. júní síðast- liðinn. Eins og fyrr sagði vom það átta klúbbar sem ákváðu að veita forsetanum þennan heiður, en það em Ósk frá Norðfírði, Kolgríma frá Homafírði, Lionessuklúbbur Keflavíkur, Kaldá frá Hafnarfirði, Ýr frá Kópavogi, Eik frá Garðabæ, Lionessuklúbbur Reykjavíkur og Eir frá Reykjavík. í frétt frá Lionessum segir, að síðastliðinn vetur hafi klúbbamir ákveðið að gefa fé til Alþjóðahjálp- arsjóðs Lions. Því var hafín fjár- söfnun, sem tókst vel. Fjármunimir verða notaðir til líknar- og hjálpar- starfa af Alþjóðahjálparsjóði Lions, en meðal þeirra fyrstu sem fengu hjálp frá sjóði þessum vom Vest- mannaeyingar, nokkmm vikum eftir eldgosið 1973. Hluti af upphæð þeirri sem Lionessur söfnuðu var síðan notaður til að veita forseta íslands heiðursnafnbótina Melvin Jones-félagi. Morgunblaðið/Einar Falur Forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, var um síðustu helgi veitt æðsta viðurkenning Lions-hreyfingarínnar. Á myndinni sést er for- setinn þakkar fulltrúum þeirra átta Lionessu-klúbba, sem stóðu að viðurkenningunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.