Morgunblaðið - 11.06.1987, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 11.06.1987, Blaðsíða 64
CTTT TTTT'T,.r>/rTrT rTTrr A T<TT/TTT»'vrr 64 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987 Þorey S. Péturs- dóttir - Fædd 9. desember 1916 Dáin31.maí 1987 I dag, fimmtudaginn 11. júni, verð- ur til moldar borin amma okkar, Þórey Sigríður Pétursdóttir. Hún fæddist í Húsey í Skagafirði en ólst upp hjá fosturforeldrum á Reykjarhóli í sömu sveit. Hún fluttist ung til Reykjavíkur og réðst í vinnu- mennsku f Eskihlíð. Tvítug að aldri eignaðist hún sitt fyrsta bam. 1942 giftist hún Sigur- jóni Karel Guðmundssyni. Þeim varð flögurra bama auðið en fyrsta bam þeirra lést í bamæsku. Fyrstu árin bjuggu þau á Seltjam- amesi en síðar í Laugamesi. Arið 1955 hófu amma og afi af eigin rammleik að byggja sér hús á Tungu- vegi 21 og fluttu þar inn tveimur árum síðar. Á þessum árum sem og alltaf lögðu þau hart að sér og sam- Minning hliða húsmóðurstarfínu vann amma hin ýmsu störf. Á Tunguveginum bjuggu þau allt til ársins 1968 er afí lést, en þá fluttist amma á Laugaveg 70b og bjó þar allt til síðasta dags. Þær vom ófáar stundimar sem amma eyddi með okkur hin síðari ár, okkur öllum til mikillar ánægju. Amma var litillát og lét aldrei fara mikið fyrir sér, en við fundum alltaf fyrir hlýju hennar. Okkar síðustu samverustundir vom í þær þijár vikur snemma á þessu ári er hún annaðist okkur af miklum dugnaði þegar foreldrar okk- ar vom erlendis. Það var ekki að sjá að amma væri að veikjast af sjúk- dómi þeim sem átti eftir að bera hana ofurliði. Við kveðjum nú ömmu okkar með söknuði og trega og munum ávallt minnast hlýju hennar, hjálpsemi og lífsgleði sem einkenndi allt hennar + Elskuleg systir okkar og mágkona, IDA GOTHEDSEN f. FENGER, andaöist í Viborg 9. júní. Hilmar Fenger, Borghildur Fenger, Garðar Fenger, Kristfn F. Fenger, Geir U. Fenger, Kristfn G. Fenger, Unnur Fenger, Ebba Hvannberg. Ingólfur Viktorsson, + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN GUÐMUNDSSON, Heiðargerði 11, Akranesi, andaöist 9. júní sl. í Sjúkrahúsi Akraness. Jarösett verður frá Akraneskirkju kl. 14.00 föstudaginn 19. júní nk. Sigríður Steinsdóttir, Eysteinn Jónsson, Jóna Þorgeirsdóttir, Unnur Jónsdóttir, Svavar Karisson, Björn Jónsson, Sigríður Ketilsdóttir, Steinn Þór Jónsson, Eva Þorkelsdóttir, Elsa Jónsdóttir, Jón Haukur Bjarnason, Guðmundur Jónsson, Þorbjörg Björnsdóttir, Ólafur Jónsson, Kristfn Sigurðardóttir, Sigurjón Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. MARGRÉT MAGNÚSDÓTTIR GRÖNVOLD er látin. Aðstandendur. + Jarðarför ARNDÍSAR SKÚLADÓTTUR fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 12. júní kl. 13.30. Othar Hansson, Lára Hansdóttir, Eiín Hansdóttir, Hrafnhildur Hansdóttir. + Hjartkær eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EGILLTH. SANDHOLT, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 12. júní kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuö, en þeir sem vilja minnast hans eru beönir aö láta Samband íslenskra kristniboðsfélaga eða KFUM í Reykjavík njóta þess. Sigríður M. Sandholt. Stefán Sandholt, María I. Aðalsteinsdóttir, Gunnar M. Sandholt, Hólmfríður K. Karlsdóttir og barnabörn. + Faðir okkar, tengdafaðir og afi, HJÖRTUR GUÐMUNDSSON, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju f dag, fimmtudaginn 11. júní, kl. 10.30. Þeir sem vildu minnast hins látna er bent á Dvalarheimiliö Jaðar, Ólafsvík. Zakarfas Hjartarson, Ester Guðmundsdóttir, Hjörtfrfður Hjartardóttir, Jón Steinn Halldórsson, Gunnar Hjartarson, Guðrún Guðmundsdóttir, og barnabörn. Minning: Hólmgrímur Sigurðs- sonfrá Ystu-Vík líf. Við viljum þakka henni fyrir alla þá ást og hlýju sem hún veitti okkur öllum og biðjum Guð að blessa minn- ingu hennar. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Sb. 1886 - V. Briem) Addi, Stebbi, Eyþór og Ellert. Fæddur 9. febrúar 1901 Dáinn 20. mai 1987 Gott er sjúkum að sofna, meðan sólin er aftamjóð, og mjallhvítir svanir syngja sorgblíð vögguljóð. Gott er sjúkum að sofa meðan sólin í djúpinu er, og ef til vill dreymir þá eitthvað, semenginnívökusér. (Davíð Stefánsson) Afí er dáinn. Daginn áður en vorprófín hófust hjá mér, daginn sem veðrið var einmitt svo yndis- legt, kvaddi afí þennan heim. Hann hét Hólmgrímur og var fæddur að Hrauni í Aðaldal þann 9. febrúar 1901. Foreldrar hans voru Sigurður Jónasson og Kristín Þorgrímsdóttir. Þeim hjónum varð ijögurra bama auðið. Pétur var þeirra elstur. Hann lést á fertugs- aldri frá eiginkonu og tveimur dætrum. Hólmgrímur var næstelst- ur, því næst kom Jónasína Þorbjörg, sem býr að Hrauni í Aðaldal og yngst var Sólveig, er lést aðeins tólf ára gömul. Jónasína frænka hefur nú kvatt öll ástkær systkini sín hinstu kveðju. Hún og afí voru mjög samrýmd og ég veit að sökn- uður hennar er sár. Ég vil koma á framfæri fyrir hana innilegu þakk- læti fyrir allar liðnu stundimar. Þegar afi var tuttugu og fímm ára gamall kvæntist hann ömmu minni, Margréti Bjamadóttur frá Grýtubakka í Höfðahverfí. Ungu hjónin hófu fljótlega búskap að Dæli í Fnjóskadal. Eftir um það bil átján ára búsetu þar fluttust þau að Ystu-Vík í Giýtubakkahreppi, þar sem þau ráku fyrirmyndarbú í mörg ár. í október 1981 veilctist afí og var fluttur á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri. Þaðan átti hann ekki afturkvæmt. Amma lést 13. mars á fyrra ári. Lífíð var þeim hjónum oft á tíðum erfítt. Um sumarið 1934 veiktist afí hastarlega. Hann lá fram á haust á sjúkrahúsi á Akureyri og veturinn eftir var hann á Kristnes- hæli. Amma var þá ein heima með þijú ung böm og gætti búsins. Um vorið kom afi aftur heim en í marga vetur eftir þetta átti hann við mik- il bijóstþyngsli að stríða. í þessum erfíðleikum held ég að óbilandi kjarkur þeirra og trú á Guð hafi hjálpað þeim mikið. Áfí og amma eignuðust fjögur böm er upp komust. Það em Sig- urður, Kristín, Bjami og Snjólaug Bergljót. Einnig eignuðust þau stúlkubarn, sem lést skömmu eftir fæðingu. Þegar ég hugsa til baka er margs að minnast. Ég á svo margar góðar minningar, sem ég er þakklát fyrir að eiga. Minningar frá því er afí var enn heilsuhraustur og bjó í Ystu-Vík, minningar um góðan afa, sem mér þótti vænt um og sem ég bar virðingu fyrir. Oft á tíðum fannst mér hann vera strangur við mig og hin bamabömin sín, en ég veit að hann vildi okkur vel. Hann vildi undirbúa okkur vel fyrir lífíð, sem við áttum framundan, því hann vissi hvað lífsbaráttan var hörð. Hann hrósaði okkur þegar við gerð- um vel og þegar miður fór útskýrði hann hvað væri rangt og hvemig ætti að breyta rétt. Afí var mikill náttúmunnandi. Mér virtist hann þekkja hveija ein- ustu plöntu og hvem einasta fugl. Það var afí, sem kenndi mér að þekkja hrossagaukinn og það var einnig hann, sem kenndi mér að þekkja máv og kríu í sundur. Afí var gestrisinn og hafði gaman af að hitta annað fólk. Hann var rök- fastur og hélt ætíð sínu statt og stöðugt fram. Hann hafði mikinn áhuga á ættfræði og oftar en ekki spurði hann þann, sem hann hitti í fyrsta skipti, hverra manna hann væri. Það var eins og hann gæti aldrei fullnægt fróðleiksfysn sinni um ættir og uppmna manna. Afi var tengdur óijúfanlegum böndum við náttúmna. Sveitin var hans líf Birting af- mælis og minningar- greina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins i Hafnar- stræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. + Útför systur okkar, INGIBJARGAR S. JÓNSDÓTTUR frá Staðarbjörgum, ferframfrá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaglnn 12. júní kl. 13.30. Sigurlaug Jónsdóttir, Jónanna Jónsdóttir, Vilhelm Jónsson. + JÓNAS SIGURÐUR JÓNSSON forstjóri, Blikahólum 12, Reykjavfk, verður jarðsunginn í dag, fimmtudaginn 11. júnf, kl. 13.30 frá Fossvogskapellu. Eiginkona og börn. + Faðir okkar, sonur, tengdafaðir og afi, JÚLÍUS JÓNAS ÁGÚSTSSON, Langholtsvegi 208, Reykjavfk, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 12. júni kl. 15.00. Ragnheiður Júlfusdóttir, Guörún Júlíusdóttir, Þröstur Júlfussson, Bjarki Júlfusson, Ágúst Benediktsson, Guðrún Elnarsdóttir, tengdabörn og barnabörn. + Móðir okkar og tengdamóðir, KATRÍN H. JÓNASDÓTTIR, Stórholti 18, Reykjavfk, verður jarösungin frá kirkju Óháða safnaöarins föstudaginn 12. júní kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Bjargarsjóö í kirkju Óháöa safnaðarins. Matthildur Marteinsdóttir, Guðlaug Marteinsdóttir, Halldór Marteinsson, Anna Aradóttir, Jónas Marteinsson, Björg Marfsdóttir. + Faðir okkar og afi, ÓSKAR HALLDÓRSSON, stýrimaöurá Djúpbátnum Fagranesinu, fsafirði, verður jarðsunginn þriðjudaginn 16. júní frá Fossvogskirkju kl. 15.00. Kveðjuathöfn fer fram frá fsafjaröarkirkju föstudaginn 12. júní kl. 14.00. Guðný Óskarsdóttir, Erling Þór Jónsson, Jón Þór Erlingsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.