Morgunblaðið - 11.06.1987, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
57
Rödd úr hópi eldri borgara
Vísitala og heilsugæsla
eftir Guðjón B.
Baldvinsson
Stóri sjóðurinn okkar — ríkissjóður
— er tómur. Auðvitað getur pyngjan
ekki verið án gjalmiðils og hvað er
til ráða? Eina ráðið sem nefnt var
nýlega þykir handhægt og er oft
gripið til, er að hækka verð á áfengi
og tóbaki.
Þess var getið í fréttum að útsölur
ÁTVR væru lokaðar vegna yfirvof-
andi verðhækkana. Þetta er svo sem
ekki óþekkt frétt.
Um svipað leyti var sagt frá því
að vísitala framfærslukostnaðar
hækkaði meira en ætlað var þegar
gerðir voru kjarasamningar í febrú-
ar. Rauða strikinu var meira en
hætt, vísitalan fór yfir.
Ein tiltekin orsök þess var hækkað
verð á vörum ÁTVR. Er þama um
að ræða nauðsynjavörur? Er neysla
áfengis og tóbaks æskileg sem
heilsuvemd? Ef svo væri talið þá
myndi e.t.v. vera eðlilegt að verðið
yríK talið sjálfsagt til reiknings á
framfærsluvísitölunni. Má þá búast
við að fleiri vímugjafar muni í framtí-
ðinni teljast eðlilegir verðbólguhvat-
ar?
Það virðist töluverð þversögn í því
að hafður er uppi áróður gegn áfeng-
is- ogtóbaksneyslu sem skaðvaldandi
og fremur hættulegum ávana, en svo
Guðjón B. Baldvinsson
„Það virðist töluverð
þversögn í því að hafður
er uppi áróður gegn
áfengis- og tóbaksneyslu
sem skaðvaldandi og
fremur hættulegum
ávana, en svo skal mæla
framfærsluvísitölu miðað
við eitthvert magn þess-
ara vara, sem fram hefur
komið í búreikningnm. “
skal mæla framfærsluvísitölu miðað
við eitthvert magn þessara vara, sem
fram hefur komið í búreikningum.
Ef litið er á þetta mál frá sjónar-
miði heilbrigðis- og hollustuvemdar
ætti verkalýðshreyfingin að hafa
andæft því af krafti að telja þessar
vörur með nauðsynjum.
Við það má bæta að íslendingar
þykjast ætla að standa að því með
liðlega 30 öðmm þjóðum að auka
heilbrigði þjóðarinnar til stórra muna
til ársins 2000.
Neysla eitureftia er einhver al-
mennasti og mesti heilsuspillir sem
nú þekkist.
Viðnám gegn þeirri neyslu er af
ýmsum talið brýnasta verkefnið til
að heilsuvemd verði tekin föstum og
alvarlegum tökum. Einn þátturinn í
eðlilegum viðbrögðum til undirbún-
ings góðum árangri árið 2000 er
markviss fræðsla og upplýsingastarf
um áhrif vímuefna. Við ættum því
ekki að verðlauna neyslu þeirra með
því að telja hana í sama mæli og
matvæli.
Afnemið áhrif áfengis- og tób-
aksverð á framfærsluvísitöluna. Við
höfum nógu lengi þagað um þessa
óhæfu.
Höfundur er ritari Öldrunarráðs
fslands.
á mottum, dreglum, dúkum og teppum
Nýkomið gott úrval af portúgölskum bómullar-
mottum f fjölmörgum litum, mynstrum og
stærðum. Ákjósanlegar á íbúðina og sumar-
bústaðinn.
Mikið úrval af mottum og dreglum í öllum
stærðum með sígildum mynstrum (oriental).
Stærðir frá 60 x 120 upp í 250 x 350 cm.
Mottur með tískumynstri. Stærð 140 x 200 cm.
Nýleg mynstur frá Danmörku og Belgíu í ullar-
og gerviefnum.
©Style Line gólfteppi frá EGE í Danmörku. Nýir
ferskir sumarlitir og mynstur í gólfteppum, sem
henta vel á stofuna, skrifstofuna og vinnuher-
bergið. 5 ára slitþolsábyrgð.
©Marida berber gólfteppi. Efnismikil ullar-
blanda; sígilt berber teppi. Fjölbreytt úrval
annarra teppa á sumartilboði.
Vestur-þýskir gólfdúkar í fjölbreyttu úrvali.
Tískulitir og mynstur. Líttu um leið á nýja
dúkaúrvalið frá Tarkett.
sumarbustaðinn. Einmg gott að nota gervigras
undir útigrillið. Þolir vel bleytu. Breidd 200 cm.
OKEYPIS HANDBOK
FYRIR TEPPAKAUPENDUR
Teppaland •Dúkaland
Grensásvegi 13, Reykjavík, S 83577
ÓSA/SÍA