Morgunblaðið - 11.06.1987, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 11.06.1987, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987 43 Laxá í Aðaldal: Bjargstrenguriim og Breiðan blá af laxi „Þetta var alveg hreint botnlaus taka og Bjargstrengurinn og Breið- an blá af laxi. Það voru þrjár stangir fyrir neðan Æðarfossa fyrir hádeg- ið og ein stöng í efri ánni. Allar stangimar þijár neðra fylltu kvót- ann, ein þeirra á rúmum tveimur tímum og stöngin í efra setti í níu laxa en náði fimm á land. Það voru allt saman flugulaxar. Þetta gerir 35 laxa, en kvótinn er tíu á stöng. Þetta er ævintýraleg byijun og jafn- ast á við byijunina 1978 þegar metveiði var í ánni, en þá veiddust rúmlega 3.000 laxar,“ sagði Orri Vigfússon forstjóri í samtali við Morgunblaðið í gærdag. Orri er formaður Laxárfélagsins, en það voru félagar úr Húsavíkurdeildinni sem hófu veiðar að þessu sinni og fengu mokaflann. Þess má geta, að allnokkuð er síðan að laxinn fór að ganga að þessu sinni, óvenjulega snemma og um mánaðamótin fóru laxar að veiðast í net í Vestmanns- vatni og heppnir silungsveiðimenn fengu óvæntan og glæsilegan glaðning. Orri sagðist sjálfur að auki hafa séð lax á Efra Hólma- vaði fyrir skömmu. Sem fyrr segir var það einkum Breiðan sem gaf stórveiði, en lax var eigi að síður um allt á Fossa- svæðunum. Þeir sem áttu Breiðuna og Bjargstrenginn'' fyrstu tvo tímana kíktu fram af og sáu Bjarg- strenginn bláan klukkan sjö og hugðu gott til glóðarinnar. Þeir vildu þó renna aðeins á Breiðunni áður, enda komu þeir að henni á undan. Þeir komust aldrei á leiðar- enda, þegar tveir tímar voru liðnir og mál að skipta um svæði, lágu 9 laxar í valnum og sá tíundi kom á flugu stuttu seinna úti á Kistuhyl. Efra var það einkum Brúarhylurinn sem gaf veiði, en lax fékkst einnig á Heiðarendaflúð. Það voru fleiri að veiðum fyrir neðan Æðarfossa, selur sást, en hann forðaði sér áður en hægt var að kveðja til byssu- mann. Eins og nærri má geta var þetta allt stór og góður lax, 10—20 punda. Helgi Bjamason fékk stærsta laxinn, 20 punda hæng, en Helgi hefur verið stórlöxum skeinu- hættur. Þannig fékk hann sex 20—22 punda laxa í ánni í fyrra- sumar og hefur nú tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið. Þá sagði Orri að einn 17 punda lax í aflanum hefði verið merktur og þó nokkuð af aflanum bæri þess merki að hafa alist upp að hluta í gæslu Norðurlax-mann. „Maður sér þetta á kjálkunum á löxunum, þeir sær- ast í prísundinni meðan þeir eru seiði og þetta sést á þeim enn þeg- ar þeir em fullvaxnir." Fróðlegt verður að fylgjast með framvindu mála í Laxá, því þetta er eins og Orri segir, sú besta byijun sem um getur í mörg ár og fullkomlega sambærileg við sumarið 1978 þegar metveiði varð í ánni. Stórlaxabyrj un í Kjósinni Síðasta veiðisumar var sannkall- að stórlaxasumar og það litla sem liðið er af nýju veiðisumri gefur fyrirheit um framhald á þeirri dýrð. Tveir boltar vom meðal 15—20 laxa sem veiddust fyrsta morguninn í Laxá í Kjós, Jón Bjami Þórðarson veiddi 21 punds hæng í Klingenberg og Árni Þorvaldsson fékk 20 punda hæng á Laxfossbreiðu. Báðir drek- amir tóku maðk og vom erfiðir í taumi. Þrátt fyrir frísklega veiði sáu menn ekki ýkja mikið af laxi og var augljóst að stór laxatorfa, sem menn sáu að leik og störfum fyrir neðan Laxfoss fyrir viku síðan, var á bak og burt, auðvitað gengin fram Morgunblaðið/gg Svona á að byija vertíðina: með 20 punda hæng. Ámi Þorvalds- son er stoltur á svip og ekki að ástæðulausu. Morgunblaðið/Börkur Amarson Davið Oddsson borgarsljóri rennir áhugasamur í Sjávarfoss, en í þetta skipti gekk dæmið ekki upp. í á. Vom menn að leita hennar síðast er fréttist og hluti hennar var fundinn við Pokafoss og í Hom- hyl eða Fossinum í Bugðu. Þar tók alkunn veiðikló, Garðar H. Svavars- son, rispu fyrir útsendara Morgun- blaðsins, tældi til sín 11 punda hrygnu með Black Sheep, númer 10, og veiddi hana svo á rauða Frances, númer 9, þegar svarti Garðar H. Svavarsson velur sér flugu við Bugðu í gærmorgun sauðurinn vildi ekki tolla í kjafti laxins. Tveir vænir laxar fylgdu laxinum eftir meðan hann var þreyttur. Þetta var þriðji laxinn hjá Garðari, hina tvo „fann“ hann í smábolla í flúðunum milli Laxfoss og Kvíslafoss og dró þá þegar í stað á þurrt. Er Morgunblaðsmenn óku frá ánni var leigutakinn, Páll Jónsson, að landa rígvænum laxi, 14—16 punda flykki, í Höklunum. Við þetta má bæta, að laxinn er genginn upp úr Bugðu í Meðalfells- vatn, en þar hefur nú fyrsti laxinn veiðst, nokkuð „fyrir tímann" ef þannig mætti að orði komast. Þá hefur silungsveiðin verið með ágæt- um í vatninu og fiskurinn með vænsta móti og þakka menn það þrotlausri grisjun á ofvöxnum stofninum síðustu árin. Gott í Laxá á Ásum Það er oft erfitt að fá nákvæmar tölur úr Laxá á Ásum, en eftir því sem Morgunblaðið kemst næst hafa um 50 laxar veiðst í ánni og er það með því albesta sem þar gerist miðað við tíma. Mikill lax er sagður genginn en hefur tekið frekar treg- lega vegna mikilla kulda. Þannig var veiðimaður nokkur í ánni fyrir skömmu og fékk 5 laxa, tvo á maðk, en þijá á flugu. Hann missti hins vegar 7 flugulaxa og er það til marks um hvað laxinn tekur grannt í kuldanum. Þannig var veðrið þegar þessi maður var í ánni, að einungis Ijórða til fimmta hvert flugukast heppnaðist, hin köstin fuku öll aftur í land og það tók kempuna tvo sólarhringa að fá dof- ann úr andlitinu. Sem fyrr segir er laxinn kominn upp um alla á, alla leið upp í Mána- foss, sem er að vísu ekki efsti veiðistaðurinn, en með þeim efstu. Þetta er stórfiskur, 8—17 punda upp til hópa. Núll í bæjarlæknum Það taldist sannarlega til tíðinda, að hvorki Davíð borgarstjóri né aðrir gestir Stangveiðifélags Reykjavíkur fengu lax er veitt var í Elliðaánum í fyrsta skiptið á þessu nýja veiðisumri. Er ár og dagur síðan veiðin hefur verið á núlli við opnun í Elliðaánum. Laxar plokk- uðu ólundarlega í maðka Davíðs snemma morguns í Sjávarfossi og síðla morguns niður á Breiðu, en lystin var ekki fyrir hendi. Það gekk eitthvað af laxi í Elliða- ámar fyrir svona viku, tíu dögum síðan og tíu höfðu skráð sig í telj- arakistunni í gær. Lax var að fínna Flugan, rauð Frances, hefur hrifið, lax hefur tekið í Hornhylnum og berst hatrammlega, en Garðar er enginn aukvisi og hefur betur. Laxinn stekkur úti á breiðunni Morgunblaðið/gg En allt kemur fyrir ekki, hér hampar Garðar laxinum og öðr- um til. í Teljarastreng, Sjávarfossi, á Breiðunni og við „Steininn" og blaðamaður Tímans taldi sig sjá sporðakast á Húsbreiðu. En síðustu daga hefur lítil hreyfing verið og veiðin eftir því. Nú bíða menn spenntir eftir stóra straumnum sem væntanlegur er í vikulokin. Vonandi rætist þá úr. Helst fyrr auðvitað. Orðinn tregur í Þverá/ Kjarrá Eftir fríska byijun hefur veiðin í Þverá og Kjarrá dottið nokkuð niður og kenna menn fyrst og fremst um björtu veðri, vatnskulda og minnkandi vatni. Ekki sem sagt skorti á laxi. „Þeir segja að það sé nóg af laxi í ánni, hann sé bara tregur,“ sagði Hörður Halldórsson í veiðihúsinu á Helgavatni við Þverá í Borgarfirði í gær. Hörður sagði ennfremur: „Það komu t.d. bara 8 laxar úr allri ánni í morgun og það gekk betur á Fjallinu heldur en hér neðra hjá okkur. Sjö komu þar upp, einn hér. Þá voru komnir 220 laxar á land úr báðum hlutunum og þrátt fyrir morguntölumar er jafnræði í skiptingunni." Stærsti laxinn vó 22 pund og veiddi Sigurður Sigurðsson laxinn í Kaðalstaðahyl á túbuflugu sem heitir Traffic Warden. Meðalþung- inn er hár, mældur 11,6 pund í Kjarrá og svipaður neðra að mati Harðar, en mikið ber á 12—16 punda löxum í aflanum og nokkrir 17—19 punda laxar hafa veiðst. Nokkrir litlir draga meðalvigtina hins vegar niður. Reytist upp úr Norðurá „Það hefur engin afgerandi ganga sýnt sig héma og þeir em trúlega enn að veiða úr þeim laxi sem var að koma fyrstu dagana. Þetta er þó reytingsveiði og menn sjá alltaf nokkuð af laxi. Það em komnir 83 laxar úr ánni hér á aðal- svæðinu, sem ég veit um, og síðasta holl fékk 25 laxa. Þar á undan veiddust 14, en fyrsta hollið veiddi vel, stjórn SVFR veiddi 44 laxa,“ sagði Guðni Einarsson kokkur f veiðihúsinu á Rjúpnahæð við Norð- urá í samtali við Morgunblaðið í gær. Guðni sagði að laxinn væri nær allur vænn, algeng stærð væri 9—11 pund og fáeinir 14 pundarar væm stærstir. Mest veiðist fyrir neðan Laxfoss og svo niður á Stokkshylsbroti. Aðeins 8—10 laxar hafa veiðst á Munaðamesveiðum og í Stekknum, hins vegar vom í gær komnir 28 laxar upp fyrir telj- arann og trúlega hefur eitthvað slæðst eftir öðmm leiðum. Menn hafa eitthvað verið að þreifa fyrir sér milli fossa, Laxfoss og Glanna, en ekki fundið umrædda laxa enn sem komið er. Að lokum í bili Veiði hefst nú í hverri ánni af annarri og er fregna að vænta víða að á næstu dögum. Sums staðar má búast við góðri byijun, trúlega víðast hvar. Þannig hafa menn víða séð’ann þótt veiði sé ekki hafín, t.d. í Víðidalsá, Vatnsdalsá, Miðfjarðará og Langá svo einhveijar séu nefnd- ar. Byijunin að þessu sinni lofar sannarlega góðu. Eru þeir að fá 'ann 7 lS-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.