Morgunblaðið - 11.06.1987, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 11.06.1987, Blaðsíða 58
Dómarar S B-flokki voru á einu máli um að Brjáni bæri fyrsta sætið en hann og Sigurbjörn sigruðu einnig í töltkeppninni. Það var gott útlitið hjá Sævari og Kjarna eftir forkeppnina í bæði B-flokki og töltinu en mánu- dagurinn 8. júni verður sjálfsagt Sævari minnis- stæður því þá varð hann að sjá af sigri i báðum greinum og þótt annað sætið sé ágætt þá er fyrsta sætið ennþá betra og vafalaust eiga þeir féiagar eftir að hreppa það sæti á komandi keppnistíma- bili. Hvítasunnukappreiðar Fáks: Gæðingarnir stóðu fyrir sínu Hörður Ármann Haraldsson kemur í mark á Mána frá Stórholti en hann náði bestum árangri knapa 17 ára og yngri í 250 metra skeiði og hlaut þar með bikar að launum. Það er torsótt Ieiðin i fyrsta sætihjáHelj- ari frá Stóra- Hofi en hann var nú sýndur í þriðja sinn i gæðinga- keppni Fáks oghefur hann tvisvar hafn- að í öðru sæti. Knapi var nú sem fyrr Al- bert Jónsson. Ný stjarna í skeiðinu ________Hestar Valdimar Kristinsson Hvítasunnukappreiðar hafa ávallt verið stór viðburður í hug- um fjölda Reykvíkinga og jaf nvel utanbæjarmanna hin síðari ár. Upphaflega voru það kappreið- arnar sem drógu að sér athyglina þvi gæðingakeppnin og annars- konar sýningar komu ekki fyrr en löngu seinna inn í myndina. Ekki var óalgengt að kringum tvö þúsund manns mættu á vöU- inn sem þá var við EUiðaámar og fylgdist með af miklum áhuga. Segja má að nú sé öldin önnur því að því er best verður séð hefur áhugi fyrir kappreið- um dvínað svo mjög að við blasir að hætt verði keppni í stökk- greinum innan fárra ára ef fer sem horfir. Vinsældir skeiðsins virðast þó alveg halda sér og þá einnig áhuginn fyrir gæðinga- sýningum. Eru nú hestamenn komnir á tímamót þar sem heild- arsamtök hestamanna verða að fara að gera það upp við sig hvort hætt verði að hafa brokk og stökk sem opinberar keppnis- greinar á hestamótum. Ef menn telja að halda eigi áfram með þessar greinar er ljóst að eitt- hvað róttækt þarf að gera tíl að endurvekja þá miklu keppni og spennu sem ríkt hefur sérstak- lega í kringum stökkgreinamar. Líta ber á nýafstaðnar hvíta- sunnukappreiðar Fáks sem fyrstu alvarlegu ábendingu um það sem er að gerast í þessum efnum. Glæsilegfir gæðingar að venju Nær undantekningalaust hefur gæðingakeppnin hjá Fáki verið sú besta á félagsmóti ár hvert enda í fullkomnu samræmi við stærð fé- lagsins. Þátttakan nú var heldur minni en verið hefur undanfarin ár en hið sama verður ekki sagt um gæði hrossanna. Það er reyndar alltaf erfitt að bera saman gæði einstakra sýninga milli ára jafnvel þótt við höfum einkunnimar til samanburðar en fullyrða má að ekki hafí það verið lakara nú en undnanfarin ár. í A-flokki sigraði stórglæsilegur hestur, Þokki frá Höskuldsstöðum undan Hrafni 802, og þykja það ekki stórtíðindi að fram komi glæsi- hestur undan honum, svo marga gæðinga hefur hann nú þegar gefið af sér. Sigur Þokka var nokkuð öruggur því hann var efstur eftir forkeppnina og þegar að skeiðinu var komið í úrslitunum virtist allt stefna í öruggan sigur. Keppendum var gefínn kostur á tveimur sprett- um og fór fyrri spretturinn forgörð- um hjá Þokka og Ingimar Ingimarssyni og fór þá að fara um þá sem ætiuðu honum sigur.I seinni sprettinum gekk þetta eins og í sögu og sigurinn þar með tryggð- ur. Þokki var einnig valinn glæsi- legasti hestur mótsins af leynilegri dómnefnd. í B-flokki var keppnin meira spennandi en þar varð efstur í for- keppni Kjami frá Egilsstöðum en á hæla honum kom Brjánn frá Hólum. í úrslitunum hafði Bijánn og eig- andi hans, Sigurbjöm Bárðarson, betur en Sævar Haraldsson sem sat Kjama. Eru þessir tveir hestar óneitanlega ffamúrskarandi gæð- ingar og er ánægjulegt hvað Kjami hefur bætt sig mikið frá því í fyrra og Bijánn hefur aldrei verið jafn góður og nú en hann hefur tekið þátt í nokkrum mótum í vor með misjöfnum árangri en þama small allt í liðinn og þá var ekki að sökum að spyija. Sigurbjöm og Bijánn sigmðu einnig í töltinu. Oft hefur verið amast við því að ekki væru til neinar reglur hvemig úrslitakeppni ætti að fara fram og hafa menn haft nokkuð fijálsar hendur um framkvæmd hennar. En nú virðist gæðinga- og ungl- inganefnd LH hafa samið reglugerð um þetta efni en eitthvað virðist kynning á henni hafa mistekist því fjöldinn allur af dómurum virðist ekki hafa hugmynd um tilvist reglu- gerðarinnar. Eftir því sem næst verður komist var farið eftir þess- ari reglugerð nú og má segja að úrslitakeppnin hafí heppnast með ágætum en þó væri athugandi hvort ekki sé skemmtiiegra fyrir áhorf- endur ef röðun í sæti væri lesin upp eftir hvert atriði, þ.e. tölt, brokk og yfírferð (tölt eða skeið). Með því móti yrðu áhorfendur meira þátt- takendur í leiknum. En í heildina var þetta áhugaverð gæðinga- keppni gjá Fáki eins og við var að búast mikið, af góðum hestum og jöfn og spennandi keppni. Börnin vel ríðandi Unglingastarfið hjá Fáki hefur verið með miklum ágætum undan- farin ár og má segja að það sem fyrir augu ber sé endurspeglun af árangrinum af því starfí. En það er ekki nóg að sjá krökkunum fyrir góðum reiðkennurum því besti reið- kennarinn er að sjálfsögðu góður hestur og þeir Fáksmenn eru ónískir á að eftirláta krökkunum góða hesta. Var ekki laust við að maður öfundaði krakkana af hestunum svo góðir sem þeir voru. Þótt unglingamir í eldri flokki hafi skilað sínu hlutverki prýðilega voru menn almennt sammála um að það væri ennþá betra hjá þeim yngri og er mér til efs að sést hafi jafn vel ríðandi krakkar á einu móti í þessum aldursflokki. í eldri flokki sigraði Ragnhildur Matthías- dóttir á Bróður frá Kirkjubæ en hún vann sig upp úr öðru sæti í það fyrsta í úrslitunum. En Edda Sól- veig Gísladóttir gerði gott betur því hún vann sig upp úr þriðja sæti upp í það fyrsta á hestinum Janúar frá Keldnakoti sem er reyndar skráður undir nafninu Máni frá Hnausum. Ný stjarna í skeiðinu Eins og kemur fram í upphafí greinarinnar virðist sem hestamenn standi á krossgötum varðandi stökkgreinamar í kappreiðum og er lítið meira um þann hluta kapp- reiðanna að segja. Þó má skjóta því hér inn í að Neisti frá Hraunbæ, sem verið hefur ósigrandi í brokkinu undanfarið, náði góðum tíma, 31,4 sek., og er nú orðið tímabært að hann geri alvöru úr því að slá gild- andi met í 300 metra brokki því það hefur lengi aðeins vantað herslumuninn upp á. En það var skeiðið sem allra augu beindust að og öllum á óvart sigraði óþekkt hross með óþekktan knapa í 250 metra skeiðinu og það ekki ómerki- legri hest en sjálfan methafann í bæði 150 og 250 metrunum, Leist frá Keldudal. Hér vom á ferðinni Freyja 6581 frá Efstadal og Jóhann Valdimarsson og tíminn 22,5 sek. sem er reyndar ótrúlega góður tími því brautin á Víðivöllum var óvenju slæm að þessu sinni. Nýlega var keyrt nýju efni á hluta brautarinnar Verðlaunahafar í eldri flokki unglinga, frá hægri talið sigurvegar- inn Ragnhildur Matthíasdóttir á Bróður, Ingibjörg Guðmundsdóttir á Þyrli, Friðrik Hermannsson á Þresti, Auðunn Kristjánsson á Nökkva og Guðrún Valdimarsdóttir á Tígli. Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson Verðlaunin eru vegleg í A-flokki gæðinga, tveir bikarar og annar þeirra í yfirstærð. Ingimar á Þokka lét sig þó ekki muna um að taka við þeim báðum án þess að stiga af baJki. Aðrir á myndinni eru Albert á Heljari, Sigvaldi á Tinna, Þórir Örn á Funa og Hinrik á Glaumi. Efstir í B-flokki gæðinga frá vinstri talið sigurvegarinn Brjánn og Sigurbjöm, Kjami og Sævar, ísak og Hafliði, Stelkur og Ragnar og Stjömublakkur og Reynir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.