Morgunblaðið - 11.06.1987, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 11.06.1987, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987 ap 37 Finnland: Moskvutrúir kommúnistar halda þing Helsinki, frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. SUMARIÐ er helsti annatími stjómmálamanna í Finnlandi vegna þess hve margir flokkar halda þá þing. Um hvítasunnu- helgina efndu Moskvutrúir kommúnistar tíl flokksþings í Helsinki. Þeir kalla sjálfa sig „Kommúnistaflokk Finnlands — eining". Hittust þeir nú á 21. flokksþingi finnskra kommún- ista viku áður en félagar í hinum upphaflega „gamla'* kommún- istaflokki halda 21. þing flokks- ins. Hvorugur armurinn viðurkennir tilveru hins. Moskvutrúir kommúnistar klofn- uðu úr Kommúnistaflokki Finn- lands í fyrra. Þeir teljá sig enn í hinum eina sanna kommúnista- flokki. Hinir eru að þeirra mati iævísir endurskoðunarsinnar,^ sem hafa hrifsað völd í flokknum. Ásaka flokksbrotin hvort annað um að kljúfa flokkinn. Moskvutrúaði arm- urinn útilokaðist úr flokknum vegna þess að hann vildi ekki fara að sam- kvæmt ákvörðunum í flokksstjórn- inni. Helsta mál á flokksþinginu var að móta stefnu „einingarsinna" í forsetakosningunum 1988. Gamli kommúnistaflokkurinn hefur ákveðið að bjóða fram Kalevi Kivistö, fyrrum formann Alþýðu- bandalagsins. Kivisto er ekki kommúnisti, enda er Alþýðubanda- lagið samstarfsflokkur kommúnista og vinstri sósíalista í Finnlandi. Nú telja Moskvutrúir einingarsinnar Kivistö ekki hæfan til að stjóma utanríkispólitík landsins vegna þess að hann eigi ekki góð samskipti við Kremlveija. Reuter Lyfjataka Reagans Á meðfylgjandi mynd má sjá George Shultz, utanrikisráð- herra Bandaríkjanna, hella forseta sinum vatni í glas, en að þvi loknu stingur Reagan fúkalyf i upp í sig. Ástæðan fyrir lyfjatökunni - er sú að forsetinn varð fyrir slæmu flugnabiti þegar hann dvaldist í Camp David fyrir skömmu. Fór svo að hann fékk ígerð í bitið og fékk téð lyf við því. Þar til þetta var upplýst veltu blaða- og fundarmenn í Feneyj- um því mjög fyrir sér hveiju forsetinn hefði stungið upp í sig. FENEY JAFUNDINUM LOKIÐ Arangur fundarins var lítill en áföll að sama skapi lítil Ppnpvium Rpntpr Feneyjum, Reuter. FUNDUR leiðtoga sjö helstu iðnrí- kja heims einkenndist af varkámi og málamiðlunum. Þar náðist ekki stórkostlegur árangur, en einnig má segja að leiðtogunum, sem sumir eru að ljúka ferli sínum, hafi verið hlíft við stóráföllum. Vestrænir embættismenn sögðu að samstarf hefði verið með ágætum, bæði á sviði stjómmála og efnahags- mála. Sir Goeffrey Howe, utanríkis- Hér má sjá Margréti Thatcher um borð í flugbáti í flugminjasafni Southampton í gær. Hvort hún flýgur inn i Downing-stræti tíu í dag er svo annað mál. ið væri allt á uppleið og atvinnulaus- um færi fækkandi. Þetta er í fyrsta skipti, sem flokkurinn hefur lagt rót- tæka stefnuskrá fyrir kjósendur. Ástæðan til þess var sú, að forsætis- ráðherrann vildi koma í veg fyrir, að unnt væri að ásaka stjómina fyrir að vera lúin og hugmyndasnauð eftir átta ára samfellda stjómarsetu. Verkamannaflokkurinn gaf út stutta stefnuskrá, þar sem farið var almennum orðum um þær breyting- ar, sem flokkurinn vildi stuðla að, kæmist hann til valda. í kosningabar- áttunni hafa síðan komið fram ítar- legri tillögur í ýmsum málaflokkum. Flokkurinn hefur í fyrsta sinn lagt megináherslu á leiðtogann, Neil Kinnock. Það var nokkurt hættuspil, vegna þess að Kinnock stóð ekki sér- lega vel að vígi í skoðanakönnunum fyrir kosningabaráttuna. Þessi áætl- un hefur gengið mjög vel og Kinnock hefur gefið Verkamannaflokknum nýtt lif, hvort sem hann sigrar í kosn- ingunum eða ekki. í kosningabarát- tunni hefur flokkurinn einungis lent í vandræðum með vamarmál og skattamál. Bandalagi frálslyndra og jafnaðar- manna hefur gengið verr í þessari kosningabaráttu en menn áttu von á. í upphafi hafði það um 25% stuðn- ing og forystumenn þess ætluðu að tryggja sér annað sætið í kosningun- um. En fylgið minnkaði og að líkind- um bætir flokkurinn vart stöðu sína frá því í síðustu kosningum. Ástæðan til þessa er sérstaklega sú, að bar- átta Verkamannaflokksins hefur verið mun betur skipulögð og betur heppnuð en fyrir fjórum árum. Breska flokkakerfið er erfitt fyrir þriðja flokk, eins og komið hefur á daginn nú. Boðskapur Bandalagsins um stjómkerfisbreytingar, traustar vamir, öflugt athafnalíf og víðtækt velferðarkerfi hefur verið yfirgnæfð- ur af átökum stóru flokkanna. Kostir kjósenda eru óvenju skýrir í þessum kosningum. Annars vegar geta þeir kosið áframhaldandi stjóm Ihaldsflokksins, sem mun halda áfram á svipaðri braut og verið hef- ur, eða stjóm Verkamannaflokksins, sem hyggst sveigja stjómarstefnuna mjög eindregið í átt að samneyslu og leggja niður kjamorkuvopn Breta. Þriðji kosturinn, Bandalagið, býður upp á blöndu af þessu tvennu. Ef til þess kemur, að enginn flokkur fái hreinan meirihluta í neðri málstof- unni, gæti það ráðið úrslitum um stjómarmyndun. Allar kannanir benda til þess, að íhaldsflokkurinn haldi meirihluta sínum, en hann minnki verulega. ráðherra Breta, sagði að fundurinn hefði verið nokkurs konar „alþjóðlegt hópefli" fyrir fjármálaráðherra. Á fjármálamörkuðum heimsins var fátt um viðbrögð, enda höfðu sérfræðingar í efnahagsmálum spáð því með réttu að ekki yrðu breyting- ar í fjármálaheiminum vegna fundar- ins. Leiðtogafundurinn gat þó af sér sameiginlega yfirlýsingu um Persa- flóa, sem bandarískir embættismenn sögðu að væri mikili stuðningur við þá stefnu að halda olíuflutningaleið- um opnum. Fulltrúar annarra ríkja bentu þó á að í yfirlýsingunni fælist ekki skuldbinding tii að taka þátt í hættulegum hemaðarævintýrum. Líkast til situr Yasuhiro Naka- sone, forsætisráðherra Japans, ekki annan leiðtogafund af þessu tagi. Hann fer væntanlega frá í október. Sama gildir um Amiontore Fanfani, forsætisráðherra Ítalíu. Hann hefur fotystu fyrir ríkisstjóm landsins þar til kosningamar, sem haldnar verða á sunnudag og mánudag, em um garð gengnar. Ronald Regan Bandaríkjaforseti getur ekki boðið sig fram í forseta- kosningunum á næsta ári og Franco- is Mitterrand Frakklandsforseti hefur ekki tilkynnt hvort hann bjóði sig fram í forsetakosningunum, sem haldnar verða í Frakklandi á næsta ári. Sérfræðingar segja að helsti sigur- vegari fundarins, sem leiðtogar Bretlands, Kanada, Frakklands, Vestur-Þýskalands, Ítalíu, Japans og Bandaríkjanna sátu, sé Margaret Thatcher, forsætisráðherra. Hún staldraði aðeins við í átján klukku- stundir í Feneyjum, en rauk síðan aftur í kosningabaráttuna á Bret- landi og sagði að stefna sín væri nú fyrirmynd helstu samstarfsaðilja Breta. Bandaríkjamenn kváðust hafa náð sínu fram á fundinum með yfirlýsing- unni um Persaflóa. Þar segir að lífsnauðsynlegt sé að halda skipaleið- um opnum og þess krafist að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna grípi til „réttlátra og áhrifaríkra að- gerða" til að binda enda á stríð írana og íraka. Ekki er minnst á sameiginlegan flota bandamanna, þótt bandarískir embættismenn hafi sagt að þeir væru enn að reyna að samræma sigl- ingar bandarískra, breskra og franskra herskipa. Vestrænir embættismenn sögðu að bandarísk stjómvöld hefðu aldrei farið fram á sameiginlegan herafla og sökuðu fjölmiðla um að hafa búið þessa hugmynd til. Hvað efnahagsmál varðar kváðust Japanir og Vestur-Þjóðveijar hafa varist fimlega og jafnvel hafið sókn. Hvorir tveggja hafa legið undir ámæli fyrir að láta undir höfuð leggj- ast að efla efnahag heimsins og ýta undir eftirspum heima fyrir. Vestur-Þjóðveijar sögðu að það væri undir Japönum komið að leysa efnahagsvanda heimsins. Japanir skoruðu á Bandaríkjamenn að glíma við ástandið með því að minnka fjár- lagahallann. Þrátt fyrir takmarkaðan árangur tóku fæstir leiðtoganna mark á þeirri gagnrýni, sem Valery Giscard d’Estaing, fyrrum forseti Frakk- lands, og Otto Lambsdorff, fyirum fjármálaráðherra Vestur-Þýska- lands, settu fram um að þessir leiðtogafundir væm tilgangslaust flölmiðlafár. Vom flestir sammála um að árlegur fundur væri mikilvæg- ur, þótt ekki væri nema til þess að leiðtogamir kynntust. Næsti fundur leiðtoga sjö helstu iðnríkja heims verður haldinn í Kanada á næsta ári. Sprengjumaðurinn í R6m: Lögreglan rann- sakar fingraför PÁm Roníor Róm, Reuter. ASÍUMAÐUR, sem grunaður er um aðild að sprengjuárás á sendi- ráð Bandaríkjanna og Bretlands á Ítalíu, hefur hugsanlega skilið eftir sig fingraför á hóteli sem hann gisti. ítalska lögreglan hefur dreift eftirmyndum fíngrafara, sem fund- ust í hótelherberginu, til lögreglu ýmissa landa með aðstoð alþjóða- lögreglunnar Interpol. í fyrradag gerði teiknari mynd af manninum eftir lýsingum sjónarvotta og virðist hann vera Asíumaður. Hann ferðað- ist undir fölsku nafni og notaði stolið, kanadískt vegabréf. Tveim heimatilbúnum eldflaug- um var skotið á bandaríska sendi- ráðið frá svölum hótelherbergisins, nokkrum mínútum eftir svipaða árás á breska sendiráðið, sem er skammt frá. Asíumaðurinn leigði einnig bíl sem notaður var til sprengjuárásar á vamarmúr banda- ríska sendiráðsins. Samkvæmt japönskum fjölmiðl- um líkist myndin af manninum mjög einum félaga Rauða ; hersins jap- anska, hryðjuverkahóps, sem drap 27 farþega með vélbyssuskothríð á Lod-flugvelli í ísrael árið 1972. Sameinuðu þjóðirnar:: Efasemdir um friðar- viðleitni á Persaflóa New York, Reuter. BANDARÍKIN og Sovétríkin eru samþykk tillögum um friðarað- gerðir á vegum Sameinuðu þjóðanna í Persaflóastríðinu. Kínverjar, sem oft eru tor- tryggnir í garð risaveldanna, eru hins vegar hikandi í afstöðu sinni. Heimildir telja ósennilegt að Kínveijar muni greiða atkvæði gegn tillögu þar sem krafist er vopnahlés en afstaða þeirri gæti seinkað aðgerðum sem ætlunin er að grípa til gegn stríðsaðilum ef þeir láta ekki segjast. í upphafi kom til greina að leggja algjprt bann við vopnasölu til írana og íraka en nú bendir margt til að samþykktar verði vægari aðgerðir. Japanir, sem eiga mikil viðskipti við Irana, eru sagðir mótfallnir efnahagslegum refsiaðgerðum og hið sama gildir um Vestur-Þjóð- veija, sem alltaf hafa verið andvígir slíkum aðgerðum gegn t.d. Suður- Afríku. A Feneyjafundi leiðtoga iðnveldanna tóku fulltrúar Japana og Vestur-Þjóðveija samt undir þegar hvatt var til aðgerða á vegum S.Þ. til að binda endi á Persaf- lóastríðið. Bandaríkjamenn vildu harðar, einhliða aðgerðir gegn írönum en aðrir fulltrúar í Öryggisráði SÞ fengu því framgengt að báðir stríðsaðilar voru lagðir að jöfnu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.