Morgunblaðið - 11.06.1987, Blaðsíða 29
29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
hittumst við og höldum fundi. Þá
bera skiptinemamir gjaman saman
reynslu hvers annars en reynslan
er jafn margvísleg og þeir em
margir.
Það sem fylgir reynslu sem þess-
ari er ekki bara að kynnast nýju
fólki, tungumáli þess, menningu og
siðum heldur er maður um leið full-
trúi íslands.
Ég minnist þess að fyrstu 2—3
vikumar í skólanum vora erfiðar
og áður en ég kynntist krökkunum
var ég í þeirra augum bara „íslenski
strákurinn", svona hálfgerður
nútíma eskimói. Allt sem ég gerði
og sagði var að þeirra mati hin
dæmigerða hegðun íslendings. Þeg-
ar ég svo loks fór að venjast þessu
lærði ég að fiskisagan flýgur ekki
síður hratt hér í Hollandi en heima
á Fróni þannig að það er stundum
gott að halda sig á mottunni.
AFS (American Field Service)
era alþjóðasamtök sem_ ísland er
aðili að og langflestir íslendingar
þekkja, hvort sem það er af eigin
raun eða þá í gegnum vini og kunn-
ingja.
Næstum því allt starf AFS er
unnið í sjálfboðavinnu. Það era að-
eins þeir sem vinna skrifstofuvinnu
sem fá greidd laun. Allt er þetta
fólk sem gerir þetta áhugans og
ánægjunnar vegna. Það gera líka
fjölskyldumar sem taka skiptinema
að sér yfir árið.
Árlega leitar AFS fjölskyldna
sem hafa áhuga á að taka skipti-
nema og núna í júlí hefst nýtt
AFS-tímabil.
Ef svo vel vill til að þú, lesandi
góður, hefðir áhuga eða þekkir ein-
hvem áhugasaman, þá er starfsfólk
AFS á íslandi reiðubúið að veita
allar nánari upplýsingar og svara
spumingum. AFS hefur aðsetur á
Hverfisgötu 39, póstbox 753, 121,
Reykjavík.
Eg vil að lokum þakka Morgun-
blaðinu kærlega fyrir birtinguna.
Mínar albestu kveðjur til allra
heima á íslandi, sjáumst hress í
sumar.
Höfundur er skiptinemi í Hollandi.
________Brids_________
Arnór Ragnarsson
Spilað í þremur
riðlum í sumarbrids
Spilað var í þremur 14 para riðl-
um sl. þriðjudag í Sumarbrids
Bridssambands íslands í Sigtúni 9.
Úrslit urðu þessi (efstu pör);
A-riðill
Guðmundur Aronsson —
Jóhann Jóelsson 193
Hallgrímur Hallgrímsson —
Þorsteinn Ólafsson 182
Óskar Karlsson —
Þröstur Sveinsson 181
Eyjólfur Magnússon —
Hólmsteinn Arason 167
Láras Hermannsson —
Gunnar Þorkelsson 165
B-riðUl
Ragnar Jónsson —
Trausti Finnbogason 205
Jacqui McGreal —
Þorlákur Jónsson 186
Hjálmar S. Pálsson —
Sveinn Þorvaldsson 172
Högni Torfason —
Steingrímur Jónasson 172
Ari Konráðsson —
Sigurþór Sigurþórsson 170
C-riðill
Hermann/Ólafur Lárussynir —
Guðmundur Sigursteinsson 195
Anton R. Gunnarsson —
Friðjón Þórhallsson 183
Einar Jónsson —
Hjálmtýr Baldursson 176
Baldur Bjartmarsson —
Guðmundur Þórðarson 173
Og staða efstu manna í sum-
arbrids er þá orðin þessi:
Jacqui McGreal —
Þorlákur Jónsson 105
Jón Stefánsson —
Sveinn Sigurgeirsson 89
Óskar Karlsson — 82
Þröstur Sveinsson 78
Ragnar Jónsson 76
Sumarbrids er spilaður alla
þriðjudaga og fímmtudaga í sumar.
Húsið opnar kl. 17.30 á fimmtudög-
um en kl. 18 á þriðjudögum. Allir
velkomnir.
Viltu sveifla þér með fyrir kr. 20.840* til þessarar
stórfenglegu borgar á bökkum Michiganvatns?
<
s
d
2
*
3
Chicago - borg heimsmetanna
státar m.a. af hæstu byggingu heims, Sears
Tower, 110 hæða háhýsi með ógleymanlegu útsýnissvæði
efst, þaðan sem sjá má til þriggja fýlkja Bandaríkjanna,
John G. Shedd Aquarium, stærsta sædýrasafni heims, með
yfir 7500 tegundum sjávardýra. Þar er einnig stærsta
göngugata veraldar, verslunargatan State Street.
Chicago - borg listviðburðanna
Á sviði menningar og lista er sannarlega hægt að
finna eitthvað fyrir alla. Sem dæmi má nefna að í Chicago
starfa yfir 50 atvinnuleikhús auk fjölda hljómleikahalla,
óperuhúsa og balletta að ógleymdum jazzuppákomunum en
segja má að Chicago sé enn sem fyrr miðstöð jazzins
í Ameríku.
Chicago - borg safna og sögulegra minja
Undur Chicago eru meiri en svo að hægt sé að
gera þeim skil í einni auglýsingu. Þess vegna ættirðu að líta
inn á söluskrifstofur okkar og afla þér nánari upplýsinga
um Chicago.
Hafi þig einhvern tíma dreymt um að sveifla þér til
Ameríku þá er tækifærið núna. Bein flug til BOSTON, NEW
YORK, ORLANDO og WASHINGTON auk CHICAGO.
Þú ættir að panta þér far áður en dollarinn hækkar.
FLUOLEIDIR
* APEX-fargjald frá 1. apríl - 14. júní. Flogið allt að 5 sinnum í viku.
FLUGLEIDIR Nánari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn um allt land og ferðaskrifstofurnar.
-fyrirþig- Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Álfabakka 10. Upplýsingasími 25 100