Morgunblaðið - 11.06.1987, Side 1
96 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
129. tbl. 72. árg.__________________________________FIMMTIJDAGUR 11. JÚNÍ 1987_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsíns
Kosningar á Ítalíu:
Kristilegum
spáð ósigri
Róm, Reuter.
SAMKVÆMT skoðanakönnun
dagfolaðsins La Repubblica, sem
birtist í gœr, fá kommmúnistar
ívið meira fylgi en kristilegir
demókratar, sem tapa verulega,
í þingkosningunum næstu helgi
og yrðu þar með stærsti flokkur
landsins.
í könnuninni fá kristilegir 6,5%
minna fylgi en í kosningunum 1983,
en þá guldu þeir mikið afhroð.
Kosningabaráttan hefur fyrst og
fremst verið milli kristilegra annars
vegar og sósíalista hins vegar. Sósí-
alistaleiðtoginn Craxi hefur ekki
viljað útiloka stjómarsamvinnu með
kommúnistum, en kommúnistar
hafa ekki setið í ríkisstjóm á Ítalíu
síðan 1947. Jafnframt hefur hann
sagt að hann muni ekki styðja sam-
steypustjóm með kristilegum
demókrötum í forsæti.
Kommúnistar ásökuðu í gær Maf-
íuna um að hrella liðsmenn flokksins
í kosningabaráttunni og hefði m.a.
verið kveikt í bíl embættismanns
flokksins í Kalabríu.
RAÐHERRARNIR KOMA
Þessar myndir voru teknar á Keflavíkurflugveili í gærkvöldi. Til vélinni, er flutti þau frá Feneyjum. Á hinni myndinni er Hans-
vinstri sjást George Shultz og eiginkona hans, Helena, stiga út úr Dietrich Genscher, utanríkisráðherra Vestur-Þýskalands, fagnað.
Fundur NATO hefst í dag:
Reagan bíður niðurstöðu
ráðherranna í Reykjavík
Feneyjafundurinn:
Efnahags-
vandinn
óleystur
Feneyjum, Reuter.
LEIÐTOGAR sjö helstu iðnríkja
heims hétu þvi i gær að loknum
þriggja daga fundi í Feneyjum
að samræma aðgerðir og stefnu
á ýmsum sviðum, allt frá efna-
hagsmálum til alnæmis.
Fyrir fundinn var spáð að ekki
tækist að finna lausn á skrykkjótt-
um hagvexti, viðskiptahalla og
auknum skuldum og gekk það eftir.
Amintore Fanfani, forsætisráð-
herra Ítalíu, las upp sameiginlega
yfirlýsingu leiðtoganna um ýmis
mál er fundinum var slitið í gær.
Leiðtogamir sjö komu sér saman
um samræmingu milli ríkja sinna í
efnahagsmálum og nota ýmsa
staðla til að fylgjast með hvort efna-
hagslífíð héldist innan vissra
marka. Aftur á móti skuldbundu
leiðtogamir sig ekki til að taka í
taumana ef farið yrði út fyrir þessi
mörk.
Sjá „Feneyjafundinum lokið“
á siðu 37.
London, Reuter.
ÞRJÁR breskar skoðanakannanir,
sem birtust í gær, gáfu til kynna
að íhaldsflokkurinn undir forystu
Margaret Thatcher myndi halda
meirihluta sinum í neðri deild
þingsins. Flokkurinn hafði 137
þingsæta meirihluta en er spáð
20 til 50 sæta meirihluta núna.
Síðustu fréttamannafundir leið-
toga flokkanna fyrir kosningar voru
haldnir í gær. Thatcher sagði þá að
Verkamannaflokkurinn myndi gera
landið vamarlaust, óðaverðbólga
Utanrikisráðherrar Atlants-
hafsbandalagsrikjanna hefja
fund sinn í dag og verður hann
settur klukkan 11 í Háskólabíói.
í gærkvöldi komu hingað til
lands ráðherrar ríkjanna, sem
áttu fulltrúa á leiðtogafundinum
í Feneyjum. Við brottför sina
héldi innreið sína og vinstri-ofstækis-
menn og verkalýðsfélög tækju öll
völd, ef hann sigraði.
Neil Kinnock, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, sagði aftur á móti
að þegar Thatcher hældi sér af því
að hafa gert Bretland að miklu ríki
á ný líktist það „sjálfsblekkingum
og hégómaskap fölnaðrar keisara-
ynju og hirðmanna hennar".
Sjá „Allar líkur á meirihluta
íhaldsflokksins" á siðum 36 og
37.
þaðan, sagði George Shultz, ut-
anrikisráðherra Bandarikjanna,
að Ronald Reagan forseti mundi
liklega ákveða um næstu helgi
hvort ganga bæri að tiUögum
Sovétmanna um upprætingu
kjarnorkuflauga í Evrópu. Réði
niðurstaða Reykjavíkurfundar-
ins mestu um ákvörðun forset-
ans. Tilkynnt var í Hvíta húsinu
í Washington i gær að Reagan
ætlaði að flytja sjónvarpsávarp á
mánudag. Carrington lávarður,
framkvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins, sagði á blaða-
mannafundi í Háskólabfói í gær,
að mikill skriður hefði komist á
afvopnunarviðræður risaveld-
anna síðan Reagan og Mikhail
Gorbachev, leiðtogi Sovétríkj-
anna, komu til fundar i
Reykjavík f október.
Utanríkisráðherrafundinum í
Reykjavik lýkur á föstudag. Binda
menn vonir við að ráðherramir geti
náð samkomulagi um brottflutning
Evrópueldflauganna. Þykir tilkynn-
ingin um sjónvarpsávarp Reagans
á mánudag gefa til kynna, að
Bandaríkjamenn séu bjartsýnir um
árangur fundarins. Sagði í tilkynn-
ingu Hvíta hússins að Reagan
ætlaði í ræðu sinni að fyalla um
niðurstöður hans og fund leiðtoga
sjö helstu iðnríkja heims í Feneyj-
um.
George Shultz heldur héðan beint
til Washington og í gær sagðist
hann tafarlaust mundu skýra for-
setanum frá niðurstöðum fundarins
hér: „Býst ég við að hann taki
ákvörðun um helgina eða á mánu-
dag og skýri siðan frá henni," sagði
utanríkisráðherrann. Margir telja
líklegt, að á döfinni sé að ákveða
fund þeirra Reagans og Gorbachevs
í Bandaríkjunum næsta haust. En
þar yrði formlega gengið frá samn-
ingi um meðaldrægu og skamm-
drægu flaugamar eða hina
„tvöföldu núlllausn", sem svo er
nefnd.
Hans-Dietrich Genscher, ut-
anríkisráðherra Vestur-Þýska-
lands, kom til landsins skömmu á
eftir Shultz í gærkvöldi. Vestur-
Þjóðveijar hafa sett fram þá kröfu
að 72 skammdrægar flaugar af
gerðinni Pershing 1A verði undan-
skildar samningum um Evrópu-
flaugamar. Carrington lávarður
sagði aðspurður um þetta atriði að
Pershing 1A flaugamar hefðu ætíð
verið undanskildar þegar samn-
inganefndir risaveldanna ræddu
fækkun kjamorkuvopna í Evrópu
og teldi hann kröfu þýsku stjómar-
innar því eðlilega. Það ræðst af
afstöðu ráðherra einstakra ríkja til
hennar, hvort það samkomulag
tekst á fundinum, sem flestir vænta
í upphafí hans.
Stjómin í Bonn hefur látið að því
liggja að viðræður um kjamorku-
vopn á vígvöllum verði að sigla í
kjölfar samninga um • upprætingu
Evrópuflauganna. Sérfræðingar
segja að það kunni að reynast erfíð-
leikum bundið fyrir Atlantshafs-
bandalagsrikin að komast að
sameiginlegri niðurstöðu um kröfur
vestur-þýsku stjómarinnar.
Sjá „Utanríkisráðherrafund-
ur ...“ á síðu 34.
Skoðanakannanir í Bretlandi:
Thatcher heldur velli