Morgunblaðið - 11.06.1987, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
Svargrein í Morgunblaðið
eftir Jóhann Pétur
Malmquist
Þriðg'udaginn 26. maí birtist grein
á miðopnu Morgunblaðsins eftir Ell-
ert Ólafsson, forstjóra Tölvufræðsl-
unnar í Reykjavík. Greinin nefnist
„íslendingar og tölvubyltingin" og
fiallar hún um hversu duglegir við
Islendingar höfum verið að nota okk-
ur einkatölvuna. Greinin er skemmti-
leg aflestrar og full af bjartsýni á
framtíðina. Ellert deilir þó á skóla-
kerfíð í grein sinni og þá sérstaklega
á grunnskóla landsins sem hann seg-
ir að séu mikið á eftir í tölvumálum
samanborið við heimilin og fyrirtæk-
in í landinu. Ekki er annað hægt en
að taka undir orð Ellerts um að þarna
þurfi að taka betur á málum. Enda
hefur menntamálaráðuneytið nýlega
lagt fram heildarstefnu um hvemig
skuli staðið myndarlega að tölvuvæð-
ingu í grunnskólum og framhalds-
skólum landsins.
Stefnan var kynnt á blaðamanna-
fundi 15. maí 1987 að fjarstöddum
nokkrum lykilfjölmiðlum. Það er ekki
nema von að Ellert hafí fengið ranga
mynd af stefnunni og náð aðeins
tveim af mörgum atriðum úr tillög-
unum, þvi á sömu siðu og fjallað var
um stefnuna í Morgunblaðinu 16.
maí voru myndir sem þöktu rúmlega
þriðjung síðunnar af gullfallegum
stúlkum sem komist höfðu í úrslit í
ljósmyndafyrirsætukeppni Elite á ís-
landi. Stefnulýsingin var einnig mjög
stytt í Morgunblaðinu, því að níu
blaðsiðna hnitmiðuð grein var stytt
niður í 11 dálksentimetra.
Það eru fleiri sem hafa því miður
ekki tekið eftir kynningu á hinni
nýju stefnu ráðuneytisins í tölvumál-
um, því að í vel skrifaðri forystugrein
Morgunblaðsins 27. maí er fjallað
um sömu málefni án þess að minnast
einu einasta orði á hina nýkynntu
stefnu ráðuneytisins. En sem betur
fer er margt líkt með steftiu mennta-
málaráðuneytisins og ábendingum
forystugreinarinnar. I grein Ellert
og í forystugreininni er sagt að þjálf-
un kennara í tölvumálum sé í miklum
ólestri en rétt er að benda á að um
500 grunnskólakennarar hafa sótt
misjafnlega viðamikil námskeið í
tölvumálum sem haldin hafa verið á
vegum Kennaraháskóla íslands.
Tölvufræðsla er nú hluti af námi í
Kennaraháskóla íslands. Auk þess
hafa sveitarfélög sent kennara á
námskeið hjá fyrirtækjum eins og
Tölvufræðslunni og á þriðja hundrað
framhaldsskólakennarar hafa sótt
námskeið á vegum endurmenntunar-
nefndar Háskóla íslands.
Á síðustu þremur árum hefur stór-
átak verið gert í tölvukennslu í
framhaldsskólum, en alltaf má gera
betur og nú er komið að grunnskól-
unum. Er ekki rétt að kynna stefnu
ráðuneytisins betur svo að málefna-
leg umræða geti farið ffarn um
stefnuna. Með þessari grein fylgir
annað eintak (blaðamaður Morgun-
blaðsins fékk fyrra eintakið á
blaðamannafundinum 15. maí) af
stefnulýsingu menntamálaráðuneyt-
isins: „Tölvuvæðing í grunnskólum
og framhaldsskólum", og vonast
undirritaður eftir að Morgunblaðið
kynni stefnuna betur til þess að leið-
rétta þann misskilning sem átt hefur
sér stað.
Stefna menntamála-
ráðuneytisins: Tölvu-
væðing í grunnskólum
og framhaldsskólum
Inngangnr
Stefnumótun í tölvuvæðingu skóla
sem unnin hefur verið að á vegum
menntamálaráðuneytisins að und-
anförnu á sér nokkum aðdraganda.
í janúar 1982 skipaði menntamála-
ráðuneytið starfshóp til þess að gera
tillögur um „tölvu- og aðra tækni-
væðingu í skólum" og var Oddur
Benediktsson, prófessor, formaður
hópsins. Starfshópurinn skilaði til-
lögum sínum I nóvember sama ár
og lagði áherslu á eftirtalin atriði:
1. Samdar yrðu námsskrár a) fyrir
almenna kennslu í tölvuffæðum,
b) kennslu í tölvufræðum í iðn-
og tækninámi og c) fyrir kennara-
menntun.
2. Ráðinn yrði námsstjóri í tölvu-
greinum.
3. Komið yrði á fót rannsóknarstofu
fyrir „nýju upplýsingatæknina".
4. Kennaramenntun yrði efld veru-
lega.
5. Keyptur yrði tölvubúnaður bæði
fyrir grunnskóla og framhalds-
skóla.
Sumar þessara tillagna hafa kom-
ið til framkvæmda og aðrar ekki.
Námsskrár voru samdar fyrir fram-
haldsskóla, sbr. 1. tölulið, og þær
sendar hlutaðeigandi skólum, keypt
hefur verið töluvert af tölvubúnaði
einkum handa framhaldsskólum,
síðustu tvö árin hefur kennaramennt-
un verið efld með sérstöku fjárfram-
lagi umffam það sem veitt hefur
verið á flárlögum til endurmenntunar
kennara og námssijóri var ráðinn á
sl. hausti. Af ýmsum orsökum höfðu
framkvæmdir þó gengið hægar en
æskilegt var.
Þegar núverandi menntamálaráð-
herra, Sverrir Hermannsson, tók við
embætti ákvað hann að endurskoða
fyrrgreinda stefnumörkun og réð
Jóhann P. Malmquist, prófessor, til
þess verks í byijun árs 1986. Jafn-
framt var ákveðið að á árinu 1986
skyldi megináhersla lögð á að marka
framtíðarstefnu í tölvumálum skóla-
kerfísins og kennaramenntun á sviði
tölvufræði skyldi efld eftir föngum.
Einnig var ákveðið að ráðuneytið
legði ekki fram fé til tölvukaupa
handa grunnskólum og dregið skyldi
úr öðrum framkvæmdum meðan
unnið væri að stefnumörkun og til-
lögugerð um tölvunotkun f skólum.
í október 1986 skipaði ráðuneytið
starfshóp til þess að vera Jóhanni til
ráðuneytis við tillögugerð um steftiu-
mótun í tölvumálum skólakerfísins.
í starfshópnum áttu sæti: Hörður
Lárusson, deildarstjóri í mennta-
málaráðuneytinu, Jóhanna Axels-
dóttir, kennari, Jón Þór Þórhallsson,
forstjóri Skýrsluvéla ríkisins og
Reykjavíkurborgar, og Yngvi Péturs-
son, lektor við Kennaraháskóla
íslands. Jóhann stýrði starfi hópsins
og Agla Sigurðardóttir, tölvunar-
fræðingur, var ráðin starfsmaður
hans.
Tillögur nefndarinnar liggja nú
fyrir og eru meginatriði þeirra sem
hér segin
1. Komið verði tölvum á allar kenn-
arastofur þannig að kennarar
þjálfíst í að nota þær f starfí sínu
eftir því sem tilefni gefast til.
Gerð verði sérstök tilraun í nokkr-
um skólum með verkefna- og
námsefnisgerð og fenginn til þess
sérstakur búnaður.
2. Lögð er sérstök áhersla á tölvuna
sem hjálpartæki í kennslu. Aflað
verði hugbúnaðar erlendis frá til
skoðunar og til aðlögunar aðstæð-
um hér. Gerðar verði frekari
tilraunir með notkun LOGO f
skólastarfí. Einnig verði kannað
með hváða hætti unnt er að nýta
gagnabanka f skólum.
3. Kannað verði hvort unnt sé að
efla samstarf heimila og skóla á
sviði tölvufræðslu en tölvur í eigu
einstaklinga eru sennilega óvíða
fleiri en hér á landi.
4. Tölvunotkun í skólum verði skipu-
lögð þannig að sú þjálfun sem
nemendur fá nýtist þeim beint í
atvinnulífinu.
6. Kennaramenntunin verði efld.
6. Unnið verði markvisst að því að
nýta tölvutæknina við ýmis verk-
efni tengd stjómun skóla.
7. Lögð verði sérstök áhersla á að
ná sem hagkvæmustum kjörum
við innkaup á tölvubúnaði.
8. Komið verði á fót tveimur starfs-
hópum til þess að vinna að
framkvæmd tillagnanna. Annar
starfí á faglegum grunni og verði
ráðuneytinu til ráðuneytis við
mótun meginstefnu í tölvuvæð-
ingu innan skólakerfísins. Hinum
hópnum verði falið að sjá um og
fylgja eftir framkvæmdum að ein-
stökam verkefnum.
9. Loks er lagt til að áætlunin verði
Prófessor Jóhann Pétur Malm-
quist
„Ellert deilir þó á
skólakerf ið í grein sinni
og þá sérstaklega á
grunnskóla landsins
sem hann segir að séu
mikið á eftir í tölvumál-
um samanborið við
heimilin og fyrirtækin
í landinu. Ekki er annað
hægt en að taka undir
orð Ellerts um að þarna
þurfi að taka betur á
málum. Enda hefur
menntamálaráðuneytið
nýlega lagt fram heild-
arstefnu um hvernig
skuli staðið myndar-
lega að tölvuvæðingu í
grunnskólum og fram-
haldsskólum landsins.
endurskoðuð í heild að liðnum
tveimur árum.
Þessar tillögur um aðgerðir í tölvu-
málum skóla eru mjög víðtækar og
í raun þarf að gera sérstaka áætlun
fyrir hvem einstakan lið og endur-
skoða þá áætlun reglulega. Stefnt
er að því að ná til mjög margra en
takmarka ekki starfsemina við
þröngan hóp manna. Ekki er gert
ráð fyrir að byggja upp sérstaka
„stofnun" kringum starfsemina held-
ur verður leitast við að nýta starfslið
skólanna og þeirra stofnana annarra
sem til eru og eiga hlut að þessu
máli. Tillögumar fela einnig í sér
ákveðinn sveigjanleika þannig að
auðvelt er að flytja áhersluna frá
einum punkti til annars ef tilefni er
til.
Tillögur um aðgerðir í
tölvuvæðingu skóla
Eftirfarandi tillögur miðast við
núverandi aðstæður í skólum hér-
lendis og þá möguleika sem fyrir
hendi em hvað varðar starfslið og
fjármagn. Ennfremur er höfð hlið-
sjón af stöðu þessara mála í almenn-
um skólum erlendis.
Staða tölvunotkunar í skólum al-
mennt er nú þannig að ekki er unnt
að segja nákvæmlega til um hvar
eða hvemig best sé að nota tölvum-
ar. Þessi mál hafa þó skýrst verulega
á síðari árum, aðallega vegna til-
rauna sem víða hafa verið gerðar,
og ljóst að ótvíræður hagur er af
notkun tölvunnar við ýmsa þætti í
skólastarfinu að þvf tilskildu að fyrir
hendi sé hentugur hugbúnaður og
þjálfun kennara nægileg. Það er
meira álitamál með önnur svið skóla-
starfsins og verður tíminn að leiða í
ljós hvað þar verður ofan á.
Af þessu virðist augljóst að á
næstu ámm verður að leggja höfuðá-
hersluna á þjálfun kennara, öflun
hugbúnaðar og auk þess verður að
halda hér uppi töluverðri tilrauna-
starfsemi enda þótt margt megi læra
af öðram þjóðum sem hafa meira
bolmagn til slikra hluta en við. T.d.
má vafalaust hafa einhver not af
norrænu samstarfí á þessu sviði. Til-
lögumar beinast að því að koma
tölvumálunum í ákveðinn farveg sem
tryggir markvisst þróunarstarf með
beinni eða óbeinni þátttöku sem
flestra og sem síðar leiðir til þess
að tölvan verði sjálfsagður hlutur í
skólastafinu. Hins vegar er gert ráð
fyrir að ábyrgð ffamkvæmda verði
falin tiltölulega fáum, annaðhvort
stofnunum eða einstaklingum, og
starfsemin í heild verði undir umsjá
menntamálaráðuneytisins.
Tölvur em nú þegar til í allmörg-
um grunnskólum og em helstu
tegundimar BBC, APPLE og IBM
PC samhæfðar vélar. Kennarar hafa
verið að prófa sig áfram með notkun
þeirra og aflað sér forrita erlendis
frá í því skyni. Ekki hefur verið um
samræmdar aðgerðir að ræða og
enginn aðili í menntakerfínu hefur
haft það hlutverk að leiðbeina kenn-
umm á þessu sviði eða leggja mat á
það sem ffarn hefur farið. Kennsla
í tölvufræðum er í nokkuð góðu horfí
í mörgum framhaldsskólum og þjálf-
un í tölvunotkun er vaxandi. Nauð-
synlegt er að huga að þessum þáttum
sérstaklega.
Hér verður megináherslan lögð á
tölvuna sem hjálpartæki í skóla-
starfí, þ.e. almenna tölvunotkun
kennara við ýmis verkefni tengd
kennslu, notkun tölvunnar við al-
menna kennslu og notkun tölva
við stjórnun skóla. Ekki verður
gerður sérstakur greinarmunur á
skólastigum enda þótt áherslumar
hljóti að verða misjafnar eftir aldri
nemenda og þroska. Slíkur greinar-
munur kemur af sjálfu sér þegar að
framkvæmdum kemur.
Tölvan sem hjálpar-
tæki kennarans
Margir kennarar nota nú þegar
tölvuna sem hjálpartæki við undir-
búning kennslu, gerð margvíslegra
verkeftia fyrir nemendur og til þess
að skrá nauðsynlegar upplýsingar
um nemendur og námsferil þeirra.
Til em heppileg forrit til þessara
hluta og tölvur af ýmsum gerðum
koma til greina. Kennarar sem nota
tölvur með þessum hætti verða þeim
fljótt handgengnir og frekari notkun
þeirra t.d. í kennslu verður mun auð-
veldari fyrir þessa kennara en ella.
Lagt er til að tölvum verði komið
á allar kennarastofur þannig að allir
kennarar eigi greiðan aðgang að
þeim og þjálfíst i notkun þeirra að
fyrrgreindum verkefnum og öðmm
sem upp kunna að koma. Taka þarf
saman leiðbeiningar fyrir kennara til
þess að auðvelda þeim fyrstu skrefín
á þessu sviði.
Einnig er lagt til að gerð verði
tilraun í nokkmm skólum með verk-
efna- og námsefnisgerð og fenginn
til þess sérstakur búnaður. Komið
verði á nettengingu milli skólanna
til þess að þátttakendur geti með
auðveldum hætti haft samband sín
á milli og haft þannig stuðning hver
af öðmm. Þessi tilraun gæti leitt til
virkari aðferða við námsefnisgerð en
nú em notaðar.
Tölvan sem hjálpar-
tækí við kennslu
Á undanfömum þremur ámm hafa
mörg hundmð gmnnskólakennarar
sótt gmnnnámskeið í tölvufræðslu á
vegum endurmenntunar Kennarahá-
skóla íslands eða í kennaranámi. Auk
þess sóttu á árinu 1986 rúmlega
fímmtíu kennarar framhaldsnám á
vegum endurmenntunar KHÍ.
Það virðist vera mikill áhugi með-
al gmnnskólakennara á að nota
tölvur við kennsluna. Hins vegar
hefur skort allt kennsluefni bæði
hugbúnað, sem fellur að því náms-
eftii sem verið er að kenna, og
hugmyndir um hvemig nýta megi
tölvumar. Margir kennarar hafa
reynt að nýta tölvumar með því að
verða sér úti um erlend forrit og e.t.
v. þýða þau. Jafnvel hafa þeir reynt
að skrifa forritin sjálfír. Þessi að-
staða er að sjálfsögðu óviðunandi,
verkefnið er það umfangsmikið og
fjölþætt að það verður ekki leyst
með þessum hætti.
Nú þegar er búið að skoða nokkuð
af forritum og ætti því að vera tiltölu-
lega fljótlegt að taka afstöðu til þess
hvort ástæða er til að þýða þau og
aðlaga íslenskum aðstæðum. Hins
vegar er það álit margra að ekki sé
ástæða til þýða forrit fyrir fram-
haldsskóla nema þá í einstaka tilvik-
um.
Eins og áður segir er töluvert til
af tölvubúnaði í gmnnskólum en
vegna skorts á hugbúnaði nýtist
þessi búnaður ekki nema að tak-
mörkuðu ieyti.
1. Lagt er til að aflað verði hug-
búnaðar erlendis frá til skoðunar
og til aðlögunar aðstæðum hér ef
um áhugaverð forrit er að ræða.
Við val forrita verði m.a. miðað
við að tölvan verði sem öflugast
hjálpartæki í kennslunni. Fengnir
verði kennarar til þess að prófa
forritin og meta þau hver í sínum
skóla. Komið verði upp aðstöðu
þar sem unnt er að sýna kennurum
þann hugbúnað sem völ er á og
ennfremur vinnuaðstöðu fyrir þá
sem hugsanlega vinna að breyt-
ingum á einstökum forritum eða
vinna tímabundin þróunarverkefni
á þessu sviði. Að athuguðu máli
er talið rétt að þessi starfsemi
fari fram á vegum Námsgagna-
stofnunar og Reiknistofu Háskól-
ans. Ráðinn verði sérstakur
starfsmaður til að hafa umsjóm
með starfseminni, sjá 8. tölulið.
Þó verði fjárhagur þessarar
starfsemi aðskilinn frá öðrum
rekstri stofnananna.
2. Sl. 3 ár hefur farið fram tilraun
með notkun LOGO í skólastarfí í
Melaskóla. Kennarar í fleiri skól-
um hafa einnig verið að prófa sig
áfram á þessu sviði. Lagt er til
að þetta mál verði tekið til sér-
stakrar athugunar með það fyrir
augum m.a. að fínna þessari starf-
semi fastan sess í skólastarfinu.
Þetta starf myndi m.a. byggjast á
niðurstöðum tilrauna sem gerðar
hafa verið og frekari tilraunastarf-
semi.
3. Gagnabankar eiga trúlega
mikla framtíð fyrir sér í skóla-
starfí. Ýmsir aðilar hér á landi era
nú að huga að þessum málum
bæði fyrir skóla og til almennra
nota. Lagt er til að þetta mál verði
kannað sérstaklega og reynt að
ná til þeirra sem em að athuga
þessi mál á öðmm vettvangi.
Markmiðið verði að kanna með
hvaða hætti gagnabankar geti
nýst skólum og að gera tilraunir
með notkun þeirra.
4. Lagt er til að í tengslum við
þá námskrárgerð sem nú er unnið
að fyrir gmnnskóla verði sérstak-
lega hugað að hvemig tölvan
nýtist best í kennslu einstakra
greina. Valin verði sérstök af-
mörkuð svið eða námsþættir sem
talið er að henti vel til tölvu-
kennslu og komið á skipulögðu
þróunarstarfí við þau verkefni sem
valin verða.
Samstarf heimila
og skóla
Tölvueign á heimilum er óvíða
meiri en hér á landi. Margir nemend-
ur hafa því nokkur kjmni af tölvum
og notkun þeirra áður en þeir kynn-
ast þeim í skólanum. Þama er um
að ræða möguleika sem rétt er að
kanna hvort ekki megi nýta í þágu
skólastarfsins.
Lagt er til að tölvueign á heimilum
verði könnuð og í framhaldi af því
verði athugað með hvaða hætti sé
unnt að efla samstarf heimila og
skóia á sviði tölvufræðslu og nýta
tölvubúnað heimilanna betur í þágu
skólastarfs. í þessu sambandi verði
sérstaklega hugað að nemendum
með sérþarfir.
Teng'sl skóla og
atvinnulífs
Tengsl skóla og atvinnulífs á sviði t