Morgunblaðið - 11.06.1987, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
Vegurinn undir Múlafjalli.
Morgunblaðið/pþ
Vegagerð í sunnanverðum Hvalfirði
Hömrum.
UNDIR Múlafjalli í Hvalfirði
er verið að vinna að undirbún-
ingi á lagningu bundins slitlags
á 300 metra kafla. Jafnframt
verður lagt á 2,5 km langan
kafla frá Hvammsvik i áttina
að löngu brekkunni fyrir utan
Hvammsvík. Er þá spottinn
þaðan að Laxá með óbundið
slitlag og frá Eyri að hæðinni
fyrir innan Kiðafell.
Er áformað að lagt verði á þá
bundið slitlag á næsta ári. Vega-
framkvæmdunum undir Múlafjalli
og við Hvammsvík verður vænt-
anlega lokið í júlí í sumar.
Um þessar mundir er verið að
aka burðarlagi á 4,2 km kafla frá
Brunná við Botnsskála í Hvalfírði
og út að Bláskeggsá, sem er við
malamám Sementsverksmiðjunn-
ar. Er stefnt að því, að bundið
slitlag verði lagt á þennan kafla
nú í lok júnímánðar. Eru þá að-
eins tveir kaflar eftir með óbundið
slitlag í norðanverðum Hvalfirði,
sneiðin frá Bláskeggsá yfír að
Hvalstöðinni og frá Olíustöðinni
að fjárréttinni fyrir ofan Hrafna-
björg, sem verður lagður bundnu
slitlagi á næsta ári.
- pþ.
Mikil ásókn í störf í
nýrd verslun Hagkaups
„Viðbrögðin við auglýsingunni
hafa verið mjög góð, reyndar
vonum framar. Við vorum þrír
sem ætluðum að skiptast á að
vera við í viðtalstíma fyrsta
daginn eftir að auglýsingin birt-
ist en svo fór að við þurftum
allir að vera við, báðir verslun-
arstjórarnir og starfsmanna-
stjórinn, og höfðum samt ekki
undan“, sagði Karl West, versl-
unarstjóri Hagkaups, þegar
Morgunblaðið spurði hann
hvernig viðbrögðin hefðu verið,
við heilsíðuauglýsingu í sunnu-
V er slunar manna-
helgin:
Húsafells-
mótin endur-
vakin í sumar
ÚTLIT er fyrir að Húsafeilsmót-
in verði endurvakin um verslun-
armannahelgina i sumar eftir tíu
ára hlé. Ungmennasamband
Borgarfjarðar stendur fyrir mót-
inu í samvinnu við Björgunar-
sveitina Ok og fleiri aðila.
Hljómsveitin Stuðmenn leika fyr-
ir dansi á mótinu ef af verður.
UMSB stóð fyrir útihátíðum um
verslunarmannahelgina, svokölluð-
um Sumarhátíðum í Húsafelli, í tíu
ár. Fyrsta hátíðin var haldin fyrir
20 árum, árið 1967. Vel var til
þessara móta vandað í aðstöðu og
skemmtiatriðum, að minnsta kosti
framan af, og voru þær lengst af
mjög vel sóttar. Þegar aðsóknin
náði hámarki, um árið 1970, komu
þangað yfír 20 þúsund manns.
UMSB stefnir nú að því að endur-
vekja þessar samkomur. Mótið í
sumar verður ekki á sama stað og
gömlu mótin, heldur innar í Húsa-
fellslandi, í þeim hluta Húsafells
sem Þorsteinn Guðmundsson og
fleiri eiga.
dagsblaði Morgunblaðsins, þar
sem auglýst var eftir 150-200
manns til starfa í hinni nýju
verslunarmiðstöð Hagkaups í
Kringlunni, sem verður opnuð
í ágúst.
„Þetta er þeim mun ánægjan-
legra þar sem okkur hefur gengið
nokkuð treglega að fá fólk til
starfa síðastliðin vetur. Við höfð-
um áður birt minni auglýsingar,
svart-hvítar og myndlausar, um
laus störf í Kringlunni, en það var
fyrst eftir að stóra auglýsingin
birtist að fólk byijaði að streyma
að. Samtals hafa um hundrað
manns haft samband við okkur
og virðist obbinn af því vera mjög
góðir starfskraftar.
Það er mikið af fólki sem star-
far í öðrum verslunum sem er að
forvitnast og hefur áhuga á því
að breyta til. Aðallega er þetta
fólk sem orðið er þreytt á of
þröngri og lélegri vinnuaðstöðu,
en í nýja verslunarhúsinu í Kringl-
unni hefur verið reynt að gera
aðstöðu starfsfólks sem allra
besta. Einnig er töluvert af fólki
úr ríkisgeiranum sem sækir í þessi
störf og húsmæður, sem enn eru
ekki á vinnumarkaðinum en hafa
áhuga á hálfdagsstörfum.
Ef ásóknin heldur áfram eins
og hún hefur verið síðustu daga
býst ég við að við verðum búnir
að fylla í þessi störf fyrir lok
mánaðarins. Það er ennþá mikið
af umsóknum sem við eigum eftir
að fara í gegnum og svara, en
öllum umsóknum sem hingað ber-
ast er svarað. Til viðbótar
þessum störfum sem nú er verið
að ráða í eigum við eftir að aug-
lýsa um 80 störf fyrir s.k, „poka-
tækna“, það er krakka sem sjá
um að setja vörur í poka og sækja
afgreiðsluvagna. Það eru aðallega
ungjr krakkar sem vilja vinna með
skóla sem sækja í þau störf og
erfítt að ráða þá fyrr en í haust
þegar þau hafa fengið stundartöfl-
umar sínar og sjá hvemig tíma
sínum er háttað.
Kirkjubæjarklaustur:
Leitað að
Finna sem
fannst í
Reykjavík
FJÖLMENNT leitarhð hóf í gær-
morgun leit að finnskum ferða-
langi, sem hvarf frá Kirkjubæjar-
klaustri. Maðurinn fannst sfðar f
gær f Reykjavík.
Björgunarsveitin Kyndill á Kirkju-
bæjarklaustri hóf leit snemma í
gærmorgun, en þá hafði ekkert til
Finnans spurst síðan á þriðjudags-
kvöld. Var óttast um hann þar sem
hann var illa klæddur og mikil rign-
ing var á Klaustri. Björgunarsveitar-
menn leituðu um allt nágrennið og
upp á heiðar, en ekkert bólaði á
Finnanum. Eftir hádegið í gær bár-
ust síðan fréttir af því frá Reykjavík
að maðurinn hefði komið fram þar,
heill á húfí. Hafði honum sinnast við
samferðamenn sína og ákveðið að
fara á puttanum í bæinn. Menn á
Kirkjubæjarklaustri voru harðorðir
vegna þess kæruleysis Finnans að
láta ekki vita um ferðir sínar.
Aðalfundur Sambands
íslenskra rafveitna:
Eafmagnsreikn-
ingar greidd-
ir með Visa
Höfn I Hornafirði.
AÐALFUNDUR Sambands
íslenskra rafveitna var settur á
Höfn í Hornafirði f gær. Fundur-
inn stendur í tvo daga o g eru
þátttakendur yfir hundrað.
í setningarræðu Aðalsteins
Guðjohnsen formannns sambands-
ins kom m.a. fram, að um 50
orkuveitur væru á landinu og að
nú væri rétti tíminn til að endur-
skoða skipulag og rekstur orku-
veitna og gjaldskrár þeirra almennt.
Sömuleiðis kom fram í máli hans
að orkuverð Rafmagnsveitu
Reykjavíkur hafi lækkað um 50%
frá árinu 1983 miðað við ffarn-
færsluvfsitölu og að á árinu 1986
hafí þessi lækkun numið 22% og
taldi Aðalsteinn að svipuð staða
væri hjá öðrum veitum.
Þijú erindi voru flutt f upphafi fund-
arins. Innheimtumál, viðhorf, nýjar
leiðir. Málsheflandi Eirfkur Briem.
Orkuvinnslugeta. MálsheQandi Jón
Bergmundsson. Samband Háskóla
íslands og raforkuiðnaðarins. Máls-
hefjandi Egill B. Hreinsson.
I erindi Eiríks Briem kom fram
að Rafmagnsveita Reykjavíkur hef-
ur gert samning við um Visa að
innheimta orkureikninga og mun
það vera nýmæli, sem ekki þekkist
í öðrum löndum.
AE
Manuela Wiesler á
Hallgrímskirkjuhátíð
LISTAHÁTÍÐ Hallgrfmskirkj u
verður haldið áfram f dag og
hefst dagskráin með hádegist-
ónleikum Ann Toril Lindstad
orgelleikara. Á efnisskránni
verða verk eftir Johann Sebast-
ian Bach, prelúdía og fúga í
D-dúr, BWV 532, Canzona í
d-moll, BWV 588 og fúga í G-
dúr, BWV 577. Eins og aðra
virka daga verður tíðasöngur
kl. 18.
í kvöld kl. 20.30 hefjast síðan
tónleikar Manuelu Wiesler flautu-
leikara. Manuela Wiesler er fædd
f Brasilíu 1955 af austurrísku for-
eldri. Eftir lokapróf frá tónlistar-
háskólanum í Vín 1971 stundaði
hún nám hjá Alain Marion, James
Galway og Aurle Nicolet. Hún
hefur leikið einleik með fjölmörg-
um hljómsveitum víða um heim,
haldið einleikstónleika, komið
fram í útvarpi og sjónvarpi auk
þess sem hún hefur leikið á hljóm-
plötur. Manuela er okkur íslend-
ingum að góðu kunn enda bjó hún
hér um árabil, en hefur undanfar-
ið verið búsett í Svíþjóð.
Á efnisskránni hjá Manuelu f
kvöld eru flórar fantasíur, E-dúr,
h-moll, a-moll og G-dúr eftir Ge-
org Philip Telemann, solo per
Flauto eftir Carl E. Welin, sónata
Manuela Wiesler.
Appassionata eftir Sigfrid Karg-
Eiert og Les folies d’Espagne eftir
Marin Marais.
Kíí
35
SIEMENS
vélin frá Siemens
fyrirvandláttfólk
• Frjálst hitaval.
•Áfangaþeytivinding fyrir allan
þvott. líka ull. Mesti vindu-
hraði: 1100 sn./mín.
•Sparnaðarkerfi þegar þvegið
er í hálffylltri vól.
•Skyndiþvottakerfi fyrir íþrótta-
föt, gestahandklæði og annað
sem lítið er búið að nota.
• Hagkvæmnihnappur til að
minnka hita og lengja þvotta-
tíma: Sparar rafmagn.
• Hægt er að fá þurrkara með
sama útliti til að setja ofan á
vélina.
• Allar leiðbeiningar á íslensku.
Hjá SIEMENS eru gæði, ending
og fallegt útHt ávaltt aett á
oddinn.
Smith og Norland
Nóatúni 4,
s. 28300.
Bjóðum nánast allar
stærðir rafmótora frá
EOF í Danmörku.
EOF rafmótorar eru í
háum gæðaflokki og á
hagkvæmu verði.
Ræðið við okkur um
rafmótora.
= HÉÐINN =
SELJAVEGI 2.SÍMI 24260 .