Morgunblaðið - 11.06.1987, Qupperneq 44
44
rioftf n/rVr r r rpm / /TTTwiior'n 'TTT4 TrrTr
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1987
Akureyrarbær 125 ára:
Haldið upp á afmælið
með sýningu, götuleik-
húsi og skrúðgöngu
IÐNSYNINGI98?
27AGUST-6.SCPTCMBCI
AKUREYRARBÆR heldur upp á 125 ára afmæli sitt
laugardaginn 29. ágúst nk. og af því tilefni er ráðgerð
viðamikil afmælisdagskrá sem einkennast mun af fram-
lagi Akureyringa sjálfra. Blaðamannaf undur var
haldinn í gær þar sem bæjarstjórinn, Sigfús Jónsson,
og aðrir fulltrúar bæjarins kynntu afmælisdagskrána.
Forseti íslands, frú Vigdís Finn- á torginu og í næsta nágrenni.
Uppistaðan í þeirri dagskrá verður
götuleikhús í umsjá Leikklúbbsins
Sögu og ýmiss konar tónlistar-
flutningur auk annarra atriða.
Fjölskylduskemmtunin síðdegis
verður væntanlega að öllu leyti
borin uppi af heimafólki og er von-
ast til að ýmis félög leggi þar sitt
af mörkum til að skemmtunin verði
sem fjölbreyttust, að sögn Harald-
ar Haraldssonar, starfsmanns
afmælisnefndar. Hefur verið rætt
við fulltrúa ýmsra æskulýðs- og
íþróttafélaga og er þar verið að
undirbúa tillögur um þeirra þátt í
hátíðarhöldunum.
Að kvöldi afmælisdagsins hefur
bogadóttir, kemur að morgm
afmælisdags til að vera viðstödd
hátíðarhöldin. Haldinn verður hátí-
ðarfundur bæjarstjómar Akur-
eyrar þá um morguninn og til hans
boðið fyrrverandi bæjarstjórum,
bæjarfulltrúum, ýmsum forsvars-
mönnum ríkisins og öðrum gestum.
Síðdegis er gert ráð fyrir að
safnast verði saman á tveimur til
þremur stöðum í bænum um kl.
14.00 og síðan verði skrúðgöngur,
sem sameinist nokkru áður en
komið er að miðbænum. Frá því
að gangan kemur í miðbæinn og
fram til kl. 17.00 verður stanslaus
dagskrá í gangi á göngugötunni,
Leikfélag Akureyrar tekið að sér
að standa fyrir sýningu með þátt-
töku hljóðfæraleikara, söngfólks
og leikara í íþróttaskemmunni á
Oddeyri. Þeir Jón Hlöðver Áskels-
son, Óttar Einarsson og Eyvindur
Erlendsson hafa verið fengnir til
að búa til þá dagskrá. Ekki er
dagskráin fullsamin ennþá, en ljóst
er að þar ræður ríkjum bæði gam-
an og alvara, skopstæld verða
atvik úr bæjarlífinu jafnt í nútíð
sem og fortíð og goldin verður virð-
ing þeim merkismönnum og
atburðum ýmsum sem á leið hafa
orðið. Sýningin verður á palli fyrir
miðjum íþróttasalnum, í líkingu
garðs með lifandi tijám, skrautljós-
um og veisluandblæ. Þar verður
hljómsveit, leikandi jafnt á popp-
hljóðfæri, strengi og lúðra. Kór
verður þar einnig ásamt einsöngv-
urum, væntanlega blásarasveit og
jaftivel flokkur mótorhjóla eða
reiðhjóla eða jafnvel hestamanna.
I9NSYNINGÍ987
27. AGUST - 6.SCPTEMBCB
Merki iðnsýningarinnar hannaði Soffía Árnadóttir hjá teiknistofunni
Auglit.
Híbýli átti lægsta
tilboð í Glerárbrú
TILBOð voru opnuð í gær
vegna brúarsmíðar yfir Glerá
á Akureyri og bárust tvö tilboð
í verkið.
Hærra tilboðið átti Norðurverk
hf., sem bauð 7.398.580 krónur
í brúarsmíðina sem er 22,53%
yfír kostnaðaráætlun bæjarins.
Lægra tilboðið átti Híbýli hf., sem
bauð 6.915.200 krónur í verkið
og er það 14,53% yfir kostnaðará-
ætlun, sem hljóðar upp á
6.038.000 krónur.
Bæjarstjóm hyggst taka sér
umþóttunartíma í þijár vikur, en
ráðgert er að hefja smíðina á
þessari 17 metra löngu brú í byij-
un júlí.
Höfundar lofa þó engu um að þetta
geti ekki átt eftir að breytast allt
í einu ef þeim dytti í hug eitthvað
miklu betra, að eigin sögn. Þeir
vildu taka fram að fólk má ekki
búast við rökréttri sögusýningu
þama þrátt fyrir það að sagan sé
notuð, heldur verður kylfa látin
ráða kasti og kannski fremur haft
það sem er skemmtilegt en merki-
legt, segja þeir félagamir sem nú
sitja yfir handriti sínu með sveittan
skallann í sólskininu.
Haldin verður iðnsýning dagana
27. ágúst til 6. september þar sem
kynnt verður framleiðsla og þjón-
usta á Norðurlandi. Þegar hafa um
40 fyrirtæki og þjónustuaðilar
skráð sig til sýningarinnar og ber
þar mest á annarsvegar litlum
akureyrskum fyrirtækjum og hins-
vegar á veitustofnunum Akur-
eyrarbæjar ásamt Landsvirkjun.
Auk þeirra eru skráð fyrirtæki
bæði frá Norðurlandi eystra og
vestra ásamt landssamtökum í iðn-
aði. Hljóðbylgjan, ný útvarpsstöð
á Akureyri, mun setja upp bás á
sýningunni og útvarpa þaðan.
Einnig ætlar Verkmenntaskólinn
að kynna starfsemi sína, en að
öllum líkindum verður KEA með
stærsta básinn.
Ýmsar uppákomur eru fyrir-
hugaðar til að kæta sýningargesti
og er það markmið með sýning-
unni að hún verði fjölbreytt,
fræðandi og skemmtileg, að sögn
Þorleifs Þórs Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra sýningarinnar.
Sýningin verður opin frá kl. 14.00
til kl. 22.00 sýningardagana. Sýn-
ingin verður í aðalsal íþróttahallar-
innar á ^ um 1.000 fermetra
gólffleti. Ákveðið hefur verið að
festa kaup á kerfi sýningarskil-
rúma og liðkar það mikið fyrir
frekara sýningarhaldi í bænum í
framtíðinni. Útisvæði verður stórt
og gefst þar sýnendum kostur á
að vera með hluti sem ekki kom-
ast undir þak með góðu móti.
Meginstefnan með sýningar-
haldi sem þessu er að kynna fyrir
Norðlendingum hvað það er í raun
og veru margt sem þeir geta nálg-
ast í heimahögunum og þurfa ekki
að fara langt til að sækja. Má segja
að málshátturinn „Hollur er heima-
fenginn baggi" eigi mjög vel um
þessa sýningu, að sögn Þorleifs.
Skógræktarfélag og Búnaðarsamband:
Samkomulag um drög að leigu-
samningi um land til skógræktar
Ætlunin að auðvelda þéttbýlisbúum að fá land til skógræktar
Skógræktarfélag Eyfirðinga og Búnaðarsamband Eyjafjarðar
hafa látið gera drög að samningi um leigu á landi til skógrækt-
ar, sem ætlaður er til að auðvelda þéttbýlisbúum að fá land leigt
til skógræktar. Samningsdrögin hafa verið kynnt skipulagsyfir-
völdum í Eyjafirði og sveitarsljómum. Jarðanefnd Eyjafjarðar-
sýslu, svæðisskipulag Eyjafjarðar, og sveitasijómir í héraðinu
hafa fengið samninginn til umsagnar. Svör hafa borist frá öllum
aðilum og hafa þeir lýst sig samþykka samningsdrögunum.
Það, sem einna helst einkennir í samningnum er miðað við að
samningsdrögin, eru eftirtalin at- leigutími sé 25 ár. Gert er ráð fyr-
Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir
Börnin sem afhentu hlutaveltupeningana til FjórÖungssjúkrahúss-
ins.
Hlutavelta til styrktar
barnadeild sjúkrahússins
SEX krakkar á aldrinum fjög-
urra til níu ára héldu hlutaveltu
á Akureyri ekki alls fyrir löngu
og söfnuðu 5.125 krónum.
Þau heimsóttu ritstjórnarskrif-
stofu Morgunblaðsins á Akureyri
á þriðjudaginn og voru þau þá á
leið á bamadeild Pjórðungssjúkra-
húss Akureyrar til að afhenda þar
peningana. Þau sögðust halda að
nota ætti peningana til að kaupa
tæki fyrir böm, sem fæðast fyrir
tímann, og þótti þeim fjármunun-
um vel varið.
riði: Leigutaka skal skylt að
gróðursetja tré í hið leigða land
og eru í samningnum tilgreindar
lágmarksframkvæmdir á hektara
á ári, eða 500 skógarplöntur á
hvem leigðan hektara. Leigutaka
er heimilt að hafa á hinu leigða
landi verkfærageymslu eða sumar-
hús, að því tilskildu að stærð
hússins og við hönnun sé við það
miðað, að hægt sé að flytja það í
heilu lagi af landinu. Girðingar-
kostnað og framkvæmdir við
aðkomuleið skal leigutaki sjá um
og kosta. Kostnaður við plöntur,
gróðursetningu og hirðingu reits-
ins, svo og við girðingar um hann
og kostnaður vegna aðkomuleiðar
er hið raunvemlega leigugjald, sem
leigutaki greiðir fyrir að fá landið
til afnota til skógræktar.
ir því að aðilar geti framlengt
samninginn, til dæmis með því að
leigutaka sé úthlutað viðbótarlandi
til gróðursetningar. Ef samningar
takast ekki um viðbótarland eða
um framlengingu samningsins ber
leigutaka að fjarlægja hús og önn-
ur mannvirki af landinu. Skógur-
inn, girðingar og vegamannvirki
em eign leigusala.
Á undanfömum ámm hefur
nokkuð borið á því að kvartað
hafi verið yfir því að erfitt væri
fyrir þéttbýlisbúa að fá land til
skógræktar. Það er von Skógrækt-
arfélags Eyfirðinga og Búnaðar-
sambands Eyjaíjarðar að
samningsdrögin muni auðvelda
samskipti landeigenda, áhuga-
manna um skógrækt og skipulags-
yfirvalda, og ýta undir samstarf
af því tagi, sem drögin gera ráð
fyrir. Að sjálfsögðu geta samn-
ingsaðilar gert með sér samning,
sem er frábmgðinn drögunum í
ýmsum atriðum, til dæmis að því
er varðar stærð lands og leig-
utíma. Skipulagsyfirvöld taka alla
samninga um leigu á landi til
umQöllunar, en með framangreind-
um samningsdrögum er fyrirfram
ryggt að skipulagsyfirvöld em
hlynnt samningsfyrirkomulagi því,
sem hér er kynnt.
Þeir landeigendur, sem hafa
áhuga á að leigja land með þeim
skilmálum, sem í samningnum
koma fram, geta snúið sér til Skóg-
ræktarfélags Eyfírðinga og fengið
ráðgjöf hjá félaginu um staðsetn-
ingu reitanna og plöntuval. Ekki
er gert ráð fyrir því að skógræktar-
félagið annist milligöngu um
leigumálin. Landeigendur auglýsi
land til leigu, ellegar áhugamenn
falist eftir skógræktarlandi, og
gangi frá samningum án þess að
félagið hafí þar önnur afskipti en
þau, er lúta að ráðgjöf og leið-
beiningum.
(Fréttatilkynning.)