Morgunblaðið - 13.06.1987, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.06.1987, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987 Er lögmálið óijúfanlegt? eftir Kristínu Halldórsdóttur Þegar úrslit kosninganna voru kunn, var mörgum ljóst, að myndun nýrrar ríkisstjómar yrði ekki hrist fram úr erminni. Sættir ólíkra sjónar- miða eru alltaf erfíðar, en stærsti þröskuldurinn er þó viðskilnaður þeirrar ríkisstjómar, sem hér hefur setið í 4 ár og lætur sér sæma að skila af sér ríkissjóðshalla, sem nem- ur að minnsta kosti 4 milljörðum króna, þrátt fyrir fádæma hagstæð ytri skilyrði. Með slíkan vanda í morgungjöf verða hveitibrauðsda- gamir engin sæla. Stærsta verkefnið Kvennalistakonur höfðu marg- sinnis varað við þessum ábyrgðar- lausa hallarekstri og lýst sig reiðubúnar til samvinnu um tiltekt í ríkisbúskapnum. Hins vegar munum við aldrei taka undir þann söng, að þeir sem alltaf hafa fengið minnstu bitana af nægtaborðinu, verði áfram að sætta sig við sultarkjör, þar til upp er runnin betri tíð með blóm í haga. (Tíðarfarið hefur raunar sjald- an verið betra en sprettan er aum.) Þetta fólk ber síst af öllu ábyrgð á efnahagsvandanum, og það er til skammar að láta kjör þess viðgang- ast í þjóðfélagi, sem veður í vellyst- ingum. Að mati Kvennalistans á það að vera fyrsta og stærsta verkefni nýrr- ar ríkisstjómar að tryggja öllum þegnum þjóðfélagsins telqur, sem duga til framfærslu, jafnframt því að styrkja stöðu fjölskyldunnar og bæta kjör og aðstæður kvenna og bama. Útilokað er að slá slíku á frest, meðan unnið er að öðru megin- verkefni, sem er tiltekt í ríkisbú- skapnum, hagræðing, spamaður og gagnger endurskoðun tekjuöflunar ríkissjóðs. Undir bætt kjör kvenna og bama heyra að sjálfsögðu lengra fæðingar- orlof, hærri bamabætur, átak í dagvistarmálum, samfelldur skóla- dagur og bætt aðstaða í skólum, stóraukin réttindi heimavinnandi húsmæðra og endurmat á dæmigerð- um kvennastörfum. Viðræðurnar skiluðu árangri Af öðrum áhersluatriðum Kvenna- listans í viðræðum um stjómarmynd- un má nefna eflingu menntunar, menningar-og rannsóknarstarfsemi, aukna valddreifíngu í stjómkerfínu, umbætur í umhverfísmálum, aukið framboð leiguhúsnæðis og stöðvun hemaðarframkvæmda í landinu, auk tjölda annarra atriða, sem fínna má í stefnuskrá Kvennalistans. Allt þetta höfum við kynnt ítarlega í viðræðum við fulltrúa annarra þing- flokka, og þótt flest bendi nú til þess, að við fáum ekki frekari tækifæri til að fylgja sjónarmiðum okkar eftir í ríkisstjóm, emm við þess fullvissar, að þeirra mun gæta að einhveiju leyti í verkum næstu ríkisstjómar. Það er árangur, sem ber að meta. Allt þetta höfum við kynnt ítarlega í viðræðum við fulltrúa annarra þing- flokka, og þótt flest bendi nú til þess, að við fáum ekki frekari tækifæri til að fylgja sjónarmiðum okkar eftir í ríkisstjóm, emm við þess fullvissar, að þeirrar mun gæta að einhveiju leyti í verkum næstu ríkisstjómar. Það er árangur, sem ber að meta. Sem dæmi má nefna, að ekki verð- ur stætt á öðm en að bæta kjör aldraðra og öryrkja, og sennilega verður með einhveijum hætti reynt að rétta hlut kvenna í þjóðfélaginu. Ekki mun skorta stuðning Kvenna- listans við allt, sem til bóta horfír í þeim efnum. Borð og bekkir skulfu Kvennalistakonur þóttu nokkuð stífar á sínu í ADV-viðræðunum, og ýmsum finnst, sem við hefðum mátt vera ögn sveigjanlegri varðandi lág- markslaunakröfuna. Þijóska okkar var þó síður en svo bundin við fáein- ar Kvennalistakonur, heldur nutum við stuðnings og hvatningar fjölda fólks, sem treysti okkur til að knýja fram einhveijar breytingar á óviðun- andi ástandi. A ýmsu gekk í þessum viðræðum, og jafnvel „sá gamli" blandaði sér í leildnn og skók borð og bekki í rúg- brauðsgerðinni. Það var þó ekkert á við skjálftann í lögmálstrúarmönn- um, sem sækja rök sín allt aftur til ástandsins í Mesópótamíu fyrir 3.000 ámm. Og hver er nú þess mddalega krafa Kvennalistans? Afstaða okkar er einfaldlega sú, að það se'algjör lágmarkskrafa, að afrakstur fullrar dagvinnu dugi a.m.k. fyrir brýnustu nauðsynjum. Því er það tillaga okkar, að fram- færslukostnaður einstaklings sé lagður til gmndvallar og jafnvel lög- bundið, að laun fyrir fulla dagvinnu séu ekki undir því marki. Sama gild- ir um heildarlífeyri aldraðra og öryrkja. Bæði mildi og hörku þarf til Rök lögmálstrúarmanna gegri sérstakri hækkun lægstu launa em þau, að slík hækkun muni skila sér upp allan launastigann og valda óða- verðbólgu. Vegna trúar sinnar virðast þeir reiðubúnir til að sætta sig við það til eilífðar, að stór hópur fólks hafí tekjur undir framfærslu- mörkum. Kvennlistakonur neita að sætta sig við það, enda er þessi hópur að stór- um hluta konur. Það kyldi þó ekki eiga sinn þátt í tregðunni! Vissulega er sú hætta fyrir hendi, að sérstök hækkun lægstu launa skekji allan stigann. Gegn slíku má þó vinna með ýmsu móti, bæði með mildi og hörku. Mildandi aðgerð væri að dreifa hækkun lægstu launa, þannig að gætt yrði launamismunar vegna menntunar og starfsaldurs. Enn- fremur hækkun skattleysismarka og fleira í þeim dúr, sem kemur meðal- tekjufólki vel. Þá setti Kvennalistinn þá kröfu frma í stjómarmyndunarviðræðun- um, að ákveðnu prósentuhlutfalli af heildarlaunakostnaði ríkisins yrði varið til að hækka laun ríkisstarfs- manna í hefðbundnum kvennastörf- um, en laun fyrir slík störf eru að stórum hluta í kringum lágmarkið. Slík aðgerð mundi vissulega draga úr hættu á stigaskjálfta. Kristín Halldórsdóttir „Undir bætt kjör kvenna og barna heyra að sjálfsögðu iengra fæðingarorlof, hærri barnabætur, átak í dag- vistarmálum, samfelld- ur skóladagur og bætt aðstaða í skólum, stór- aukin réttindi heima- vinnandi húsmæðra og endurmat á dæmigerð- um kvennastörfum.“ ADV-stjórn hefði notið velvilja Ýmsar harkalegri aðgerðir eru DODGE ARIES LE 4-DYRA 2,2 1987. VERÐ KR. 659.800 DODGE ARIES LE 2-DYRA 2,2 1987. VERÐ KR. 635.200 21 nauðsynlegar til þess að draga úr þenslu og eftirspum, og ríkisvaldið yrði að standa fast gegn kröfum um gegnislækkun eða önnur töfrabrögð, sem atvinnurekendur sækjast gjama eftir til þess að fria sig af ábyrgð á gerðum samningum. Þannig er á ýmsan hátt hægt að vinna gegn hinum ógnvekjandi skjálfta, en vitaskuld verður ábyrgð- in aldrei tekin úr höndum samnings- aðila, sem verða að vinna innan marka þess mögulega og bera fulla ábyrgð á afleiðingum gerða sinna. Kvennalistakonur em reiðubúnar til að lögbinda lágmarkslaun fyrir fulla dagvinnu og telja, að með sam- vinnu og góðum vilja mætti koma i veg fyrir að slík aðgerð leiddi til al- mennra hækkana og verðbólgu. ADV-stjóm hefði að margra dómi notið velvilja og fengið nauðsynlegan frið til umbóta, og fulltrúar slíkrar stjómar hefðu að likindum náð betur til fólks en flest önnur stjómarmunst- ur. Einmitt það hefði getað tryggt árangur þessarar aðgerðar. Aminningin vof ir yf ir Lögmálstrúarmenn (Mesópótin- tátar) tóku hinsvegar bakföll í skrifborðsstólum sínum og tókst með sameiginlegu átaki að koma í veg fyrir djarflega tilraun til að ijúfa 3.000 ára lögmálið. Þeir geta vel við unað um sinn, en umræðan heldur áfram, og áminningin mun vofa yfir mönnum í næstu kjarasamningum. Þeir samningar verða vafalaust ftjálsir og óháðir lögbindingu lægstu launa. En frelsið hefur margar hlið- ar, og Kvennalistakonur meta meira frelsi fólks til að geta lifað af af- rakstri vinnu sinnar heldur en frelsi manna til að semja um laun, sem duga ekki til framfærslu. MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987 BiLVANGURse? HÖFÐA8AKK A 9 SÍMI 687300 ÞYSKAN, APANSKAN NIPPARTS Það er sama hverrar þjóðar bíllinn er. Við eigum varahlutina. EIGUM A LAGER: KÚPLINGAR, KVEIKJUHLUTI, BREMSUHLUTI, STARTARA, ALTERNATORA, SÍUR,AÐALLJÓS, BENSÍNDÆLUR, PURRKUBLÖÐ ofl. AMERÍSKAN BÍL. SÆNSKAN EÐA KREDITKORTA ÞJÓNUSTA Úrvals varahlutir Höfundur er þingkona Kvenna- lista. Þöra Dal, auglýsingastofa Um helgina sýnum viö DODGE ARIES LE, árg. 1987. Framdrifinn AMERÍSKUR lúxusvagn, hlaðinn auka- búnaði, á ómótstæðilegu verði. INNIFALIÐ í VERÐI: Framhjóladrif • Sjálfskipting • Aflstýri • Aflhemlar • Bein innspýting á vél • Tölvustýrð kveikja • „Central“ læsingar • Litað gler • Fjarstilltir útispeglar • AM/FM stereo útvarp og kassettutæki með fjórum hátölurum og stöðvaleitara • Loftkæling (air conditioning) sem um leið er fullkomnasta og öflugasta miðstöð sem völ er á • Teppalögð " farangursgeymsla • Læst hanskahólf • Kortaljós • Digital klukka • Þurrkur með stillanlegum biðtíma • Hituð afturrúða • Lúxus velour innrétting með stólum að framan • Stokkur á milli framsæta • „De luxe“ hjólakoppar® Hjólbarðar 14” með hvítum hring • Varahjólbarði í fullri stærð • Og í Aries Wagon: krómuð toppgrind • Þurrka og sprauta á afturrúðu DODGE ARIES LE WAGON 2,2 1987. VERÐ KR. 698.600 OPIÐ LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL.13-17 P- , H CHRYSLER HIE$I StlDj AMERÍSKI JÖFUR HF BILIINN AISLAHDI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.