Morgunblaðið - 13.06.1987, Page 52
J/SVUl NVdQlSVONIS* iDflV
88 ^8g[ ftfÚT. -Kf íf! JOÁfTfíAOTI/ T 'T,,0A1iafíTJ05I0M
52 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987
, engin
UNDIHJN
ávalt
lægsta
lcjötverb lándsins
fcik í
fréttum
Morgunblaðið/Gísli Úlfarsson
Sextíu ára “fermingarböm" við ísafjarðarkirkju. Fremri röð frá vinstri: Olga Sigurðardóttir, Danielina
Sveinbjarnardóttir, Guðbjörg Þorbjamardóttir, Sigríður Þorsteinsdóttir og Málfríður Jensdóttir. Aftari
röð: Ágúst Guðmundsson, Baldur Eiriksson, Erlingur Hestnes, Oddur Oddsson, Ásgeir Jóhannesson,
Kristin Samúelsdóttir, Margrét Albertsdóttir og Bjarni Halldórsson.
Lamba-
hryggír.
Eigum ennþá þessa
ódýru hryggi.
Hangikjöts-
læri.
Athugið frí
úrbeining
Lambagrill-
sneiðar
úr læri
Hangikjöts-
frampartar.
Frí úrbeining.
Grillpinnar
nauta og
svína
Lamba
skrokkar.
Rúllupylsur
fyrir slög.
Lambagrill-
kótilettur
marineraðar
Onið til kl. 4
60 ára fermingarafmæli
ERMIN G ARS Y STKIN sem
fermdust í ísafjarðarkirkju árið
1927, fyrir sextíu árum síðan, hitt-
ust á ísafirði um Hvítasunnuna til
að minnast fermingarinnar.
Þau snæddu kvöldverð á veit-
ingahúsinu Djúpinu á laugardags-
kvöldið en á sunnudeginum fóru
þau til kirkju og gengu til altaris,
eins og þegar þau fermdust. Ferm-
ingar“bömin“ færðu kirkjunni í
ísafírði að gjöf, útskorið ræðupúlt,
skorið af Halldóri Sigurðssyni frá
Egilsstöðum.
Það var Séra Sigurgeir Sigurðs-
son heitin, biskup, faðir sr.Péturs
Sigurgeirssonar núverandi biskups,
sem fermdi á ísafírði 1927. Þau
voru 68 sem fermdust saman en
nítján af þeim 37 sem eftir lifa hitt-
ust á aftnælinu á Ísafírði. Þetta
mun vera í fyrsta skipti sem 60 ára
fermingarböm hittast, en algengt
er að 40 og 50 ára fermingaaf-
mæla sé minnst. Að sögn Olgu
Sigurðardóttur, frá Hnífsdal, höfðu
sum þessarra gömlu fermingar-
bama ekki sést síðan þau fermdust,
fyrir sextíu árum síðan og var það
að vonum einkennileg tilfínning að
sjá gömlu fermingarsystkinin aftur
eftir svona langan tíma. Mörg
þeirra sem flust höfðu til Reykja-
víkur þekktust _ ennþá en fímm
höfðu sest að á ísafirði. Olga sagði
þetta hafa verið einstakt tækifæri
til að hitta aftur gömlu kunningjana
þó andrúmsloftið hefði etv. minnt
svolítið á það þegar 14 ára ungling-
ar koma saman; sumir svolítið
feimnir.
„Borgaraleg“ breiðskífa
Ingvi Þór Kormáksson hefur sent frá sér nýja
breiðskífu sem nefnist „Borgarinn". Þetta er önnur
sólóplata Ingva, en 1983 gaf hann út breiðskífuna
„Tíðindalaust". Hann átti auk þess lög á Satt-plötun-
um sem komu út ’84. Ingvi Þór er hljómborðsleikari
og lagasmiður og hefur hann leikið með ýmsum dans-
hljómsveitum t.d. Gaddavír, Experiment og Amon Ra.
Tónlistin á plötunni er, að sögn Ingva, við allra
hæfí; létt rokk með djassívafí. Textamir em allir á
íslensku; sumir eftir Ingva sjálfan, en einnig ljóð eft-
ir Þórarin Eldjám, Ragnar Inga Aðalsteinsson og
Jóhann S. Hannesson.
Hvað varðar tilurð laganna segist Ingvi viðhafa
tvær aðferðir. Annars vegar semur hann lög við ljóð
annarra og reynir hann þá að ná fram andanum í
ljóðinu með því að velja vandlega réttu hljómana.
„Stundum kemur lagið á tíu mínútum og breytist lítið
í meðfömm, en það getur líka tekið marga mánuði
að finna rétta tóninn. Þeir textar sem ég sem sjálfur
em hins vegar settir saman eftir að lagið er orðið til
og er því réttara að tala um texta en ljóð í því sam-
bandi. Ég hef reynt að láta aðra gera texta við lögin
mín en það hefur ekki gengið. Það er nauðsynlegt
að samræmi sé milli innihalds textans og lagsins og
orðin verða að hljóma rétt til að lagið hitti í mark“,
sagði Ingvi þór.
Hann gefur plötuna út sjálfur, á eigin kostnað, og
sagðist hann vonast til að endar næðu saman. „Ég
sem ekki tónlist til að græða á henni heldur af þörf
til að gefa eitthvað af mér og til að koma því á fram-
færi sem ég hef verið að vinna að. Þessi plata hefur
verið í um eitt ár í smíðum og fyrir páska var ég
næstum búinn að gefast upp og hætta við allt sam-
an. En þegar Sigurður Rúnar í Stemmu hafði hljóð-
blandað þetta fékk ég aftur góða tfu á fyrirtækið."
Margir þekktir hljóðfæraleikarar og söngvarar
koma við sögu á „Borgaranum", m.a. Eiríkur Hauks-
son, Diddú, Sverrir Guðjónsson, Eðvarð Lámsson,
Gunnar Hrafnsson, Ásgeir Steingrímsson, Stefán Ing-
Ingvi Þór Kormáksson. Morgunblaðið/Börkur
ólfsson, Sigurður Reynisson, Stefán S. Stefánsson,
Vilhjálmur Guðjónsson, Þorkell Jóelsson, Abdou Dho-
ur og margir fleiri. Skífan var tekin upp í Stúdíó
Mjöt og Stúdíó Stemmu. Dreifíngu annast Hljómdeild
Fálkans-Taktur.