Morgunblaðið - 13.06.1987, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 13.06.1987, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987 4 BRESKU ÞINGKOSNINGARNAR: Yfirburðasignr Ihaldsflokksins Lundúnum, frá Valdimar Unnari Valdimarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. EFTIR yfirburðasigur í nýafstöðnum þingkosningum býr breski íhalds- flokkurinn sig nú undir stjórnarsetu þriðja kjörtímabilið í röð. Söguleg- ur sigur í kosningunum á fimmtudaginn tryggði flokknum yfirgnæfandi meirihluta á breska þinginu og ríkisstjórn Margaret Thatcher er ekk- ert að vanbúnaði að hrinda í framkvæmd þeim stefnumálum sem kjósendur hafa nú lagt dóm sinn á. Stjómarandstöðuaflanna bíður hins vegar það hlutskipti að sleikja sárin í kjölfar þingkosninganna, átta sig á því hví árangur þeirra varð ekki betri en raun ber vitni. Það hefur ekki gerst síðan sínum hlut í Mið- og Suður-Englandi snemma á síðustu öld að breska þjóð- in hafi veitt sama einstaklingi umboð til að gegna embætti forsætisráð- herra þrjú lqortímabil í röð. Margaret Thatcher hefur því fulla ástæðu til að fagna úrslitum nýafstaðinna þing- kosninga og þakka breskum kjósend- um það traust sem fhaldsfiokknum var sýnt. Thatcher hefur nú leitt ríkisstjóm flokksins í átta ár og framundan er enn eitt kjörtímabil undir hennar stjóm. Að margra dómi em úrslit þingkosninganna framar öðm sigur forsætisráðherrans, sem verið hefur persónugervingur þeirrar stefnu sem íhaldsflokkurinn hefur fylgt undanfarin tvö kjörtímabil. Enda þótt oft hafi staðið styrr um þessa stefnu, bæði innan íhalds- flokksins og utan, hefur Thatcher aldrei viljað hvika. Nú hefur breska þjóðin kveðið upp dóm sinn og íhalds- flokkurinn má vel við una. Sigur íhaldsflokksins varð stærri en flestar skoðanakannanir undan- famar vikur höfðu gefið til kynna. Þóttu þær benda til þess að Verka- mannaflokkurinn væri að draga á íhaldsflokkinn og vildu ýmsir kenna það illa útfærðri kosningabaráttu íhaldsmanna. Þegar upp var staðið kom hins vegar í ljós að slíkar hrak- spár í garð Ihaldsflokksins áttu ekki við rök að styðjast. Flokkurinn hélt því heildarfylgi sem hann hlaut í þingkosningunum 1983 og sigurinn var aldrei í hættu. Það var einkum góð frammistaða í Mið- og Suður-Englandi sem tryggði íhaldsflokknum yflrburða- sigur I þingkosningunum en þessir landshlutar hafa öðmm fremur þótt njóta góðs af stjómarstefnu undan- farinna ára. Öðra máli gegnir hins vegar um Norður-England, Skotland og Wales, sem að mörgu leyti hafa átt erfítt uppdráttar efnahagslega síðan ríkisstjóm Margaret Thatcher komst til valda fyrir átta ámm. Þessi misskipting endurspeglaðist eftir- minnilega í kosningunum á fímmtu- daginn var. íhaldsflokkurinn hélt vel og vann þar raunar nokkur þingsæti af stjómarandstöðuflokkunum. Flokkurinn mátti hins vegar þola mikið fylgistap í ýmsum kjördæmum í Wales, Norður-Englandi og Skot- iandi, í rótgrónum iðnaðarhéruðum sem farið hafa halloka undanfarin ár með tilheyrandi atvinnuleysi og versnandi lífskjömm. Er nú til dæm- is svo komið, að íhaldsflokkurinn á aðeins 10 af 69 þingmönnum Skot- lands. Hefur þessi niðurstaða orðið tilefni mikilla umræðna þar í landi um þá gjá, sem talað er um að nú hafl myndast milli þeirra héraða Bretlands sem hafa goldið stjómar- stefnu undanfarinna ára og hinna sem óneitanlega hafa notið töluverðr- ar grósku að undanfömu. Vonbrigði Verka- mannaflokksins Stjómarandstæðingar segja að úrslit þingkosninganna í þeim hér- uðum sem eiga við mest atvinnu- leysi að glíma sýni að íbúar þessara héraða séu nú búnir að hafna stefnu íhaldsflokksins í eitt skipti fyrir öll, en krefjist tafarlaust aðgerða til uppbyggingar atvinnulífs og bættra lífskjara. Neil Kinnock, leið- togi Verkamannaflokksins, sagði til dæmis í sjónvarpsviðtali í dag, að mikilvægasti lærdómurinn, sem draga mætti af úrslitum kosning- anna, væri nauðsyn þess að sam- eina bresku þjóðina á ný, norðrið og suðrið, þá sem sykkju nú æ dýpra í örvæntingu atvinnuleysis og hina sem betur væm staddir og aflögufærir. Sjálfur varð Kinnock fyrir von- brigðum með úrslit kosninganna líkt og flokksbræður hans. Þótt Verkamannaflokkurinn bætti nokkm við það fylgi sem hann hlaut í kosningunum 1983 varð fylgis- aukningin ekki meiri en svo að hverfa verður aftur til fjórða ára- tugarins til að fínna dæmi um jafnlítið kjörfylgi flokksins í þing- kosningum. Þrátt fyrir þessa dapurlegu niðurstöðu getur Verka- mannaflokkurinn að sumu leyti mátt vel við una. Flokkurinn hefur átt við ýmsa erfíðleika að etja á undanfömum ámm, sífelldar innan- flokkseijur hafa síst orðið til að auka orðstír flokksins meðal al- mennings og ýmsum hefur vafi þótt leika á því, að Neil Kinnock væri nógu sterkur leiðtogi til að hasla Verkamannaflokknum völl að nýju í breskum stjómmálum. Kosn- ingabarátta undanfarinna vikna hefur hins vegar leitt í ljós að með Kinnock í broddi fylkingar hefur flokknum tekist að vinna bug á ýmsum vandamálum undanfarinna ára. Flokkurinn þótti heyja af- bragðs kosningabaráttu og Kinnock hefur treyst sig í sessi sem ótvíræð- ur forystumaður flokksins. Á þessum gmnni hyggst Verka- mannaflokkurinn nú byggja á næstu ámm, fullviss þess að lhalds- Sigurviss hjón Á myndinni sjást Margaret Thatcher og eiginmaður hennar, Denis, á leið- inni yfirgefa embættisbústað forsætisráðherrans, Downingstræti nr. 10, á fimmtudagskvöldið til að fylgjast með talningu atkvæða í lqö dæmi frúarinnar, Finchley í Norður-London. flokkurinn verði lagður að velli að þessu kjörtímabili loknu. Bandalag í vanda Verkamannaflokkurinn getur betur sætt sig við niðurstöðu kosn- inganna vegna þess að flokknum hefur nú tekist að treysta sig mjög í sessi sem helsta stjómarandstöðu- aflið. Fyrir kosningamar höfðu ýmsir spáð því að bandalag fijáls- lyndra og jafnaðarmanna mundi leysa Verkamannaflokkinn af hólmi í þessu efni, en raunin varð önnur. bandalagið náði engan veginn þeim árangri sem það hafði gert sér von- ir um, tapaði raunar nokkm fylgi og þingsætum. Er ljóst að miklar umræður munu nú fara fram innan Thatcher óskað til hamingju Reuter, London. HELSTU þjóðarleiðtogar heims hafa sent Margr- éti Thatcher hamingjuóskir i tilefni sigurs íhalds- flokksins í bresku þingkosningunum. Bandamenn Thatchers í Evrópu og Bandaríkjunum telja sigur hennar til góðs fyrir Evrópu og vestrænt samstarf. Reagan Bandaríkjaforseti hefur aldrei farið dult með aðdáun sína á Margaret Thatcher. Hann sagðist vera mjög ánægður með úrslit kosninganna og óskaði henni hjartanlega til hamingju. Það kvað við annan tón hjá sovésku fréttastofunni TASS. Hún boðaði aukið atvinnuleysi og fleiri félags- leg vandamál í Bretlandi. Flestir andstæðingar Tatchers í stjómmálum geta þó ekki annað en hrifist af henni. Benazir Bhutto, leiðtogi stjómarandstöðunnar í Pakistan, sagði að sig- ur Thatcers væri mikil hvatning fyrir konur til að sýna sömu þrautseigju, stefnufestu og ákveðni og Thatcher hefði gert. Jafnvel Kínveijar vom ánægðir enda er stjóm íhaldsflokksins ákveðin í afstöðu sinni til Sovétríkj- anna og skrifaði undir samkomulag við Kínveija um að afhenda þeim Hong Kong árið 1997. þessa stjómmálaafls um framtíð þess og leiðir til að vinna Bandalag- inu álitlegan sess í breskum stjóm- málum. Em þegar uppi getgátur um að flokkamir tveir sem mynda Bandalagið, Frjálslyndi flokkurinn og Jafnaðarmannaflokkurinn (SDP), kjósi að sameinast formlega f einn flokk með einn leiðtoga. David Steel og David Owen hafa veitt þessum flokkum forystu og telja ýmsir að bágborin frammi- staða í þingkosningunum eigi meðal annars rætur að rekja til ókosta þess að hafa tvo leiðtoga í forsvari fyrir eitt stjómmálaafl. Bandalagsmenn em kokhraustir þrátt fyrir allt og segja, að því fari ijarri að einhvem uppgjafartón sé að heyra í þeirra röðum. Benda þeir á að þótt ekki hafl mörg þing- sæti fallið í þeirra hlut hafí þeir hlotið fylgi rúmlega 20 af hundraði kjósenda. Segja þeir það eitt stærsta verkefni sitt að fá kosn- ingakerfínu breytt þannig að slíkur fjöldi kjósenda fái réttláta hlutdeild í breska þinginu, breyta þurfí kosn- ingakerfinu, afnema einmennings- kjördæmi og taka upp hlutfalls- kosningar. Benda bandalagsmenn jafnframt óspart á þá staðreynd að dijúgur meirihluti breskra kjósenda hafl þrátt fyrir allt greitt atkvæði gegn Ihaldsflokknum, sem samt sitji uppi með meirihluta þings í krafti kosningakerfísins. ^TTSÍ^ 2-37'3 SKRIFSTOFUVELAR H.F. Hverfisgötu 33 Sími62-37-37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.