Morgunblaðið - 13.06.1987, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987
Stjórnir Indlands og Sri Lanka:
Ræða flutning mat-
væla til tamíla
Indverjar líta á sig sem vemdara
þeirra tveggja milljóna tamíla sem
búa á Sri Lanka. Þeir hafa tekið
að sér milligöngu milli stjómarinnar
í Colombo og tamílanna, sem krefj-
ast sjálfstjómar á norður- og
austurhluta eyjarinnar. Nú efast
menn á Sri Lanka um að þeir geti
lengur treyst Indveijum til þess.
Sovétmenn
í geimgöngn
BÚIST var við að tveir Sovét-
menn, sem eru um borð í
geimstöðinni Mir, myndu fara í
geimgöngu í gærkvöldi.
Sovéska fréttastofan TASS
greindi frá því í gær að Yuri Rom-
anenko og Alexander Laveikin
ættu að koma nýjum sólarorkuraf-
hlöðum fyrir því rannsóknarstöðin
Kvant, sem er tengd við geimstöð-
ina, er mjög orkufrek. Til þess að
hægt væri að tengja Kvant við
Mir þurftu geimfaramir að fara í
geimgöngu 12. apríl síðastliðinn.
A Kvant eru röntgengeislasjón-
aukar og í gegn um þá sáu
geimfaramir sprengistjömu í Ma-
gellans-skýi og nifteindastjömu í
stjömumerkinu Svaninum.
Að sögn TASS líður báðum
geimförunum vel og ferð þeirra
gengur samkvæmt áætlun.
•í<- " -
Vestur-Berlín:
„Bíjóttu múrínn niður
ef þú vilt frið og frelsi“
Ronald Reagan heldur ræðu sina við Brandenborgarhliðið í Vestur-Berlín í gær.
Reuter
Reuter, Colombo.
STJÓRNVÖLD á Sri Lanka og
Indlandi hafa komið sér saman
um að ræða frekar tilboð Ind-
veija um að senda matvæli til
tamíla á Jaffnaskaga. Á miðviku-
dag tilkynntu stjómvöld á Sri
Lanka að hemaðaraðgerðum
gegn skæruliðum tamíla á
Jaffnaskaga væri lokið og þau
væm tilbúin til að ræða hvernig
tryggja mætti frið á þessu land-
svæði.
Ekki blæs þó byrlega hvað frið
varðar, því í fyrradag lét 31 maður
lífið í sprengjutilræðum sem talið
er að skæruliðar tamfla hafí staðið
að baki. Sama dag gengu rúmlega
4.000 kaþólikkar um götur höfuð-
borgar Sri Lanka, Colombo og báðu
fyrir friði. Einnig mótmæltu þeir
aðgerðum Indvetja í síðustu viku,
er þeir rufu lofthelgi landsins og
létu vistir og lyf falla úr flugvélum
til tamfla á Jaffna-skaga. Sri
Lanka-stjómin lítur svo á að með
þessu hafí Indveijar óvirt fullveldi
rflcisins.
sagði Reagan við Gorbachev
Vestur-Berlín, Reuter.
RONALD Reagan Bandaríkja-
forseti hvatti Gorba-chev, leið-
toga Sovétríkjanna, til þess að
brjóta niður Berlínarmúrinn, í
ræðu sem hann hélt í Vestur-
Berlín í gær.
Reagan er nú staddur í Vestur-
Berlín á heimleið frá leiðtogafund-
inum í Feneyjum. í ræðu, sem hann
hélt við Brandenborgarhliðið við
Beriínarmúrinn, beindi hann orðum
sínum sérstaklega til Mikhails
Gorbachev, aðalritara sovéska kom-
Sovétríkin:
Japönum
hótað
brott-
rekstri
Moskva. Reuter.
SOVÉSK yfirvöld hafa til-
kynnt japönskum stjómvöld-
um að ef þau láti ekki niður
falla ákærur um njósnir á
hendur sovéskum stjómarer-
indrekum í Tokyo, þá muni
verða gripið til ráðstafana
gegn japönskum sendiráðs-
starfsmönnum i Moskvu.
Japanski sendiherrann í
Moskvu var á miðvikudag kall-
aður á fund í utanríkisráðuneyt-
inu þar og honum tjáð að fylgst
hefði verið með Qórum nafn-
greindum sendiráðsstarfsmönn-
um í japanska sendiráðinu.
Væru þeir grunaðir um athæfí
er ekki samræmdist stöðu þeirra
og mun þá átt við njósnir. Yrðu
Sovétmenn að bregðast við því
ef mál sendiráðsstarfsmann-
anna í Tokyo yrðu ekki leyst á
friðsamlegan hátt.
múnistaflokksins.
„Ef þú vilt frið, ef þú vilt frelsi,
komdu þá að þessu hliði. Opnaðu
það. Bijóttu niður þennan múr.
Vinnum að því að færa austur- og
vesturhluta Berlínar nær hvor öðr-
um svo allir íbúar Berlínar geti
notið þess að búa í einni af betri
borgum heims."
Við íbúa Austur Berlínar, sem
gátu fylgst með ávarpi hans f vest-
ur-þýska sjónvarpinu, sagði
Reagan: „Ég færi ykkur hlýjar
kveðjur frá bandarísku þjóðinni.
Þótt ég geti ekki verið hjá ykkur
þá er orðum mínum ekki síður beint
til ykkar, því það er óhagganleg
skoðun mín að það sé bara til ein
Berlín." Þetta síðasta mælti Reagan
á þýska tungu.
Reagan sagði að Vesturlönd
væru reiðubúin til þess að vinna
með Austur-Evrópuríkjum við að
búa til fíjálsari og öruggari heim.í
Berlín mættust austur og vestur
og því væri best að byija þar.
„Ég skil ótta ykkar við stríð og
sársaukann út af skiptingu Evrópu
og ég lofa ykkur stuðningi lands
míns við að yfírstíga þennan vanda.
Vesturlönd verða að veijast út-
þenslu Sovétmanna með öfiugum
vömum en þau vilja tryggja frið.
Því verður að fækka vopnum bæði
í austri og vestri."
Reagan sagði að ýmiss konar
ráðstefnur og fundi mætti halda í
Berlín ef múrinn hyrfí.
Austur-þýskir landamæraverðir
fylgdust með ræðu Reagans og 25
þúsund boðsgestum sem á hann
hlýddu, í gegn um sjónauka. Yfir-
völd í Austur-Þýskalandi fordæmdu
ræðuna fyrirfram og sögðu að hún
myndi aðeins gera múrinn hærri.
Reagan dvaldi flóran og hálfan
tfma f Vestur-Berlín, sem nú heldur
upp á 750 ára afmæli sitt. Tíu þús-
und lögreglumenn vom við öryggis-
gæslu meðan á heimsókninni stóð
enda var mikið um mótmæli og
óeirðir fyrir komu Regans. 77 vom
handteknir og 67 lögreglumenn slö-
suðust.
Túrban í
stað derhúfu
Reuten Stokkhólmi.
í SVIÞJÓÐ mega innflytjendur
frá Indlandi vera með vefjar-
hött á höfðinu ef þeir vilja.
Reuter
Vestur-þýskir óeirðarlögreglumenn horfa á götuvígi brenna. Um tvö
þúsund manns mótmæltu heimsókn Reagans kvöldið fyrir komu hans.
Heimsókninni lauk með því að
forseti Bandaríkjanna og Helmut
Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands,
flugu með eiginkonum sínum til
Kölnar þar sem þeir ætluðu að
ræða stuttlega saman.
Almenningsvagnafyrirtæki í
Stokkhólmi var dæmt til að greiða
einum starfsmanna sinna 40 þús-
und króna skaðabætur því
manninum, sem er síkhi, var bann-
að að hafa túrban á höfðinu við
vinnu sína.
Almenningsvagnafyrirtækið
sagði að maðurinn ætti að vera
með derhúfu við vinnu sína, en
það gæti hann ekki ef hann fengi
að vera með túrban vafínn um
höfuðið.
Svíþjóð:
Byltingarmaður vill
endurreisa lýðræði
Suva, Reuter.
RABUKA ofursti, sem stjórnaði byltingunni á Fiji-eyjum i
síðasta mánuði, segir að hugmyndir Ganilaus, fulltrúa Breta-
drottningar á eyjunum, um að endurreisa lýðræðið falli vel
að þeim markmiðum sem byltingarmenn settu sér.
Ofurstinn á sæti í bráðabirgða-
stjóm sem komið var á laggimar
eftir byltinguna en Bavadra for-
sætisráðherra, sem velt var úr
sessi, hefur neitað að taka sæti
í stjóminni.
Rabuka sagði þó að erfitt yrði
að framfylgja hugmyndum Gani-
laus án þess að til mikils þrefs
um lagaleg atriði kæmi. En rynnu
þær út í sandinn myndu eyjabúar
neyðast til að gera landið að lýð-
veldi og slíta þar með tengslin
við Bretland og bresku konungs-
Qölskylduna. Bretadrottning er
nú þjóðhöfðingi eyjanna.
Liðlega helmingur íbúanna er
af indversku bergi brotinn en hin-
ir innfæddir, af Suðurhafseyja-
kyni. Samkvæmt hugmyndum
Ganilaus verða innfæddum
tryggð meiri pólitísk réttindi í
nýrri stjómarskrá. Rabuka sagði
að takmark byltingarmanna hefði
Reuter
Rabuka ofursti.
verið að koma í veg fyrir að ind-
versku íbúamir öðluðust nokkum
tíma pólitíska yfírburði í landinu.