Morgunblaðið - 13.06.1987, Page 14

Morgunblaðið - 13.06.1987, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987 Ovissa um lífeyrisréttindi? Örugg-asta leiðin til að tryggja sér góðan lífeyri er að koma sér sjálfur upp sínum eigin varasjóði og spariskírteina ríkissjóðs eru verðbréfaviðskipti orðin mun ein- faldari og öruggari en þau voru áður. fyrir margvíslegum breytingum og samræmingu á lífeyrissjóðakerfínu í heild. Samkvæmt framvarpinu getur ellilífeyrir frá lífeyrissjóði orð- ið 58% af jafnaðartekjum fyrri ára eftir 40 ára aðild að lífeyrissjóði auk almannatrygginga, sem eins og áður sagði er töluvert minna en gert er ráð fyrir í núverandi lífeyris- loforðum sjóðanna. eftir Gunnar Óskarsson Það eru sífellt fleiri sem hafa áhyggjur af því að þurfa e.t.v. að breyta sínum lífsvenjum vegna lé- legri fjárhags þegar þeir koma til með að láta af störfum. Þessar áhyggjur virðast ekki vera ástæðu- lausar, því samkvæmt nýju frum- varpi um lífeyrissjóði er gert ráð fyrir minni lífeyrisréttindum en lof- að er nú samkvæmt reglugerðum flestra lífeyrissjóða vegna þess að eins og nú háttar skortir talsvert á að iðgjaidstelqur dugi fyrir lífeyris- loforðum. Þrátt fyrir þessa lækkun á lífeyrisloforðum er ljóst að lífeyr- issjóðirnir hafa eflst mikið á síðustu árum, m.a. vegna jákvæðra raun- vaxta. Eðli málsins samkvæmt hiýtur hins vegar alltaf að ríkja einhver óvissa um hvaða lífeyri sjóð- imir koma endanlega til með að greiða út. Þeir sem eru í vafa um að fá nægilega góðan lífeyri úr lífeyris- sjóðunum og tryggingakerfínu þegar þeir láta af störfum þurfa einfaldlega sjálfír að koma sér upp sínum eigin lífeyrissjóði eða vara- sjóði. í þessari grein verður flallað um nokkrar leiðir sem fólk getur nýtt sér til að tryggja sér lífeyri við hæfí þegar þar að kemur. Séreign í frjáisa lífeyrissjóðnum tryggir viðbótarlífeyri Frjálsi lifeyrissjóðurinn var stofnaður 1978 í þeim tilgangi ein- um að ávaxta séreign sjóðfélaganna með sem bestum hætti og tryggja þeim þannig sem bestan lífeyri þeg- ar þeir láta af störfum. Avöxtun sjóðsins var 12% umfram verðbólgu 1985 og 14,2% umfram verðbólgu Gunnar Óskarsson „Þeir sem eru í vafa um að fá nægilega góðan lífeyri úr lífeyrissjóð- unum og trygginga- kerfinu þegar þeir láta af störfum þurfa ein- faldlega sjálfir að koma sér upp sínum eigin líf eyrissjóði eða vara- sjóði. I þessari grein verður fjallað um nokkrar leiðir sem fólk getur nýtt sér til að tryggja sér lífeyri við hæfi þegar þar að kem- ur.“ á síðastliðnu ári, sem hlýtur að telj- ast góður árangur samanborið við aðra ávöxtunarmöguleika. Fijálsi lífeyrissjóðurinn er ekki eins og flestir aðrir lífeyrissjóðir, heldur er hann í veigamiklum atriðum frá- brugðinn þeim. Hann er séreigna- sjóður sem hefur það eina hlutverk að tryggja sjóðfélögum góða ávöxt- un á séreign sinni, en veitir ekki rétt til lífeyrissjóðsláns eða láns hjá Húsnæðisstofnun, og er ekki trygg- ingasjóður. Séreign sjóðsfélaga í Fijálsa lífeyrissjóðnum gengur að fullu í erfðir ólíkt öðrum lífeyrissjóð- um. Fijálsi lífeyrisgóðurinn er ekki áhættusjóður og tryggir því sjóðs- félögum einungis lífeyri á meðan séreign þeirra endist, en aðrir lífeyr- issjóðir greiða sjóðsfélögum hins vegar lífeyri ævilangt í samræmi við reglur sjóðanna. Aðild að Fijálsa lífeyrissjóðnum getur verið tvenns konar, fullgild aðild eða viðbótarað- ild. Fullgildir aðilar geta þeir einir orðið sem ekki eru skyldaðir að vera í öðrum lífeyrissjóðum. Við- bótaraðild er hins vegar öllum opin, en með henni geta menn tryggt sér viðbótarlífeyri umfram það sem þeir fá úr hefðbundnum lífeyrissjóð- um og tiyggingakerfinu. Ýmsar leiðir á verð bréfamarkaði standa launþegum til boða Fijálsi lífeyrissjóðurinn er ein- ungis ein af mörgum leiðum sem standa launþegum til boða til að tryggja sér hærri lífeyri í gegnum góða ávöxtun. Aðrar leiðir eru til dmæis Fjármálareikningur Fjár- festingarfélagsins, Eftirlaunasjóður einkaaðila hjá Verðbréfamarkaði Iðnaðarbankans, Lífeyrisbréf Kaupþings og kaup á verðbréfum, en með tilkomu bankatiyggðra skuldabréfa, verðbréfasjóðabréfa Mjög mikilvægt er að byrja snemma Fæstir gera sér grein fyrir þeim gífurlegu áhrifum sem tíminn hefur á ávöxtun fjármuna, en það getur skipt sköpum ef menn vilja tryggja sér betri lífeyri að byija undirbún- inginn nógu snemma. Eftirfarandi er dæmi um hversu mikinn lífeyri væri hægt að fá í 15 ár frá 67 ára aldri ef byggður væri upp varasjóður með 5.000 króna verðtryggðum mánaðarlegum spamaði til 67 ára aldurs og ávaxt- aður væri með 2%, 6% eða 10% meðaltalsvöxtum umfram verð- bólgu frá upphafi spamaðar þar til lífeyririnn væri að fullu greiddur út. Rétt er að benda á, að þar sem hér er tekið mið af jafnaðartekjum 40 ára starfsævi, getur lífeyririnn orðið mun lægra hlutfall af launum síðustu ára áður en menn láta af störfum, þar sem tekjur manna eru yfírleitt mjög háar í lok starfs- ævinnar. Hér er einungis um tillögur að frumvarpi að ræða, sem engan veg- inn er víst að verði samþykktar óbreyttar, og ríkir því áfram nokkur óvissa um hversu miklum lífeyri lífeyrissjóðimir geta staðið undir í framtíðinni. Auk þess ríkir ávallt nokkur óvissa um hvort reiknings- legar forsendur um ávöxtun, meðalævilengd manna, trygginga- Sparnaður hefst við 27 ára 37 ára 47 ára 57 ára Ekki er hægt að áætla ávöxtun- ina svona langt fram í tímann, með neinni nákvæmni, en taflan gefur hins vegar vísbendingu um annars vegar hvaða þýðingu það hefur að hafa ávallt vakandi auga fyrir því að ná sem bestri ávöxtun á hveijum tíma og hins vegar mikilvægi þess að byija nógu snemma að byggja upp varasjóðinn. Áframhaldandi óvissa um reikningslegar for- sendur lífeyrissjóðanna í Morgunblaðinu 6. júní sl. var greint frá tillögum 17 manna nefnd- ar um nýtt frumvarp um starfsemi lífeyrissjóða, þar sem gert er ráð 79.674 290.947 40.700 108.133 18.938 37.651 6.786 10.477 skuldbindingar o.fl. hjá lífeyrissjóð- unum standist. Þeir sem vilja vera öruggir með að geta a.m.k. haldið óbreyttum lífsvenjum þegar látið er af störfum þurfa því að byija tímanlega að byggja upp sinn eigin varasjóð sjálf- ir, annaðhvort með aðild að Fijálsa lífeyrissjóðnum, reglulegum kaup- um á verðbréfum eða öðrum þeim hætti sem tryggir góðan lífeyri þeg- ar látið er af störfum. Höfundur er rekstrarhagfræðing- ur l\já Fjárfes tingarfélagin u og forstöðumaður Frjálaa lífeyria- ajóðsins. Spamaðar- Verðtryfnfður mánaðarlegur lífeyrir í 16 ár miðað við timi 2% raunávfixtun 6% raunávöxtun 10% raunávöxtun (40 ár) 23.504 (30 ár) 15.786 (20 ár) 9.455 (10 ár) 4.261 Dagskrá 50. Sjómannadagsins í Reykjavík 13.-14. júní 1987. Laugardagur 13. júní: 10.00-12.00 Keppni á seglskútum frá Kópavogi til Reykjavtkur 13.00 Forkeppni í kappróðri í Reykjavíkurhöfn. Margar sveitir keppa f karla- og kvennaflokkum Sunnudagur 14. júnfí 08.00 Fánar dregnir að húni á skipum í Reykjavfk. 11.00 Minningarguðþjónusta f Dóm- kirkjunni f Reykjavfk. Sr. Þórir Stephensen dómkirkjuprestur minnist drukknaðra sjómanna og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar, dómorganista. 11.00-12.30 Baujurall á vegum Snar- fara og siglingaklúbbs út af Kirkju- sandi og Skúlagötu. 13.00 Skemmtisigling um sundin við Reykjavfk með hafrannsóknarskip- um veana 50 ára afmælis Hafrann- sóknastofnunarinnar. Börn yngri en 12 ára þurfa þó að vera í fylgd með fullorðnum. Farið verður frá Faxagarði f Reykjavíkurhöfn. Siglingar hefjast kl. 13.00 og sfðasta ferð verður farin kl. 16.00. Tvö skip verða f förum. Sérstök athygli fólks er vakin á því að vera f hlýjum fötum. Ferðirnar geta fallið niður, ef veður verður mjög slæmt. Bátar frá Snarfara fylgja skipunum. Otíhátiðarhöld viö Reykjavikurhöfn: 13.00-13.30 Sýning og kynning ó' bátum og búnaði f Reykjavikur- höfn. Sföan sigla seglskútur inn é Reykjavikurhöfn. 13.30 Lúðresveft Reykjavikur leikur iétt sjómannalög, stjómandi er Oddur Bjömsson. 14.00 Samkoman sett. Þulur og kynnir dagsins er Harald Holsvik, framkvaemdastjóri F.F.S.Í. Ávörp: a) Fulltrúi rikisstjómarinnar, Halldór Ásgrimsson, sjóvarútvegsráð- herra. b) Fulltrúi útgerðarmanna, Ingvar Hólmgeirsson, útgerðarmaður frá HÚ8avik. d) Fulltrúi sjómanna, Ólafur Þór Ragnarsson frá Sjómannafélagi Reykjavikur. d) Pótur Sigurösson, formaður Sjó- mannadagsráðs heiðrar aldraða sjómenn með heiðursmerki Sjó- mannadagsins. Skemmtanir dagsins: 14.46 Kappróður f Reykjavikurhöfn, úrslitakeppni karia- og kvenna- sveita, sem kepptu f forkeppni á laugardag. Björgunarsýningar: 16.30 Fólagar úr björgunarsveit S.V.F.Í Ingólfi í Reykjavfk, sýna meöferð björgunartækja. Einnig munu félagar f Ingólfi verða með ýmsar uppákomur i Reykjavikur- höfn ósamt þyrlu Landhelgisgæsl- unnar. Koddaslagur fer fram af ekjubrú Akraborgar. Þátttakendur gefi sig fram á staðnum. 16.30 Stefnt aö þvf að útihátfðar- höldum sé lokið. Veitingar verða til sölu ó hafnar- svæðinu ó vegum kvenfélaga sjómannakvenna. Einnlg fer fram sala á merkl dags- ins og SJómsnnadagsblaðinu 1987. Hrafnista Raykjavik: 13.00 Opnuð sýning og sala á handa- vinnu vistfólks f föndursal á 4. hæð C-ólmu. 14.16 Lúðra8veit Reykjavfkur leikur við Hrafnistu f Heykjavík. Kaffisala f borð- og samkomusal frá kl. 14.30-17.00. Allur ógóöi rennur til velferðarmála heimilismanna á Hrafnistu f Reykjavfk. Hrafnista Hafnarfirði: 10.30 Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur við Hrafnistu Hafnarfiröi. 11.00 Sjómannamessa f kapellu Hrafnistu Háfnarfirði. Prestur verður séra Sigurður H. Guð- mundsson. 14.30-17.00 Kaffisala f borð-og sam- komusal. Jafnframt verður sýning og sala á handavinnu vistfólks. Allur ógóði rennurtil velferðarmóla heimilismanna Hrafnistu f Hafnar- firði. Athugiö - athugiA 10.00 fbúasamtök Vesturbæjar efna til útisamkomu á Stýrimanna- stfgnum. Þar fara fram margskon- ar skemmtiatriöi á vegum ibúasamtakanna. Sjómenn athugið Sjómannahóf verður á Hótel Sögu, Súlnasal, í kvöld, og hefst kl. 19.30. Miðasala og borðapantanir verða á Hótel Sögu í dag frá kl. 16.00-18.00.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.