Morgunblaðið - 13.06.1987, Page 64

Morgunblaðið - 13.06.1987, Page 64
VZterkur og k J hagkvæmur auglýsingamiðill! ffjgtui&Ifttöfe Viðlaga þjónusta LAUGARDAGUR 13. JÍJNÍ 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Líklegt að frysti- húsin muni semja um fast fiskverð LÍKLEGT er að nú þegar al- mennt fiskverð hefur verið gefið frjálst muni frystihús semja við sína viðskiptabáta um fast verð í einhvem ákveð- Siglufjörður: Stálvík- inmeð risaþorsk Siglufirði. TOGARINN Stálvík fékk risa- þorsk í síðustu veiðiferðinni. Slægður vó þorskurinn 44 kg, sem bendir til þess að hann hafi vegið hátt í 60 kg upp úr sjó og verið 15—20 ára gamall. -ijt Stálvík kom til Siglufjarðar í gærmorgun og var verið að landa úr henni í gær. Stapavík fékk líka nokkra óvenju stóra þorska, allt upp í 40 kg slægða, í Nesdýpi. Svona stórir þorskar hafa verið fáséðir að undanf- ömu, þó ekkí þættu þeir tíðindi hér áður fyrr. Virðist þetta benda til þess að þorskurinn sé eitthvað að rétta við. — Matthías inn tima, frekar en að verðið breytist frá degi til dags. Morgunblaðið spurði Sigurð Einarsson, forstjóra Hraðfrysti- stöðvar Vestmannaeyja, sem jafnframt gerir út skip til veiða, hveiju hann vildi spá um þróun- ina með fijálsu fiskverði. Sigurð- ur sagðist telja að í stórum dráttum yrði fískverðið í sama farvegi og verið hefur þótt verðið yrði sjálfsagt eitthvað misjafnt eftir landshlutum og stærð og tegund físksins. Sigurður sagði að Hraðfíysti- stöðin keypti aðeins físk af sínum eigin bátum og sagðist hann reikna með að samið yrði um ákveðið fast verð nú frá 15. júní þegar fískverðið verður fíjálst og fram til 1. ágúst þegar stöðin lokar vegna sumarleyfa. Þetta væri að vísu óþægileg staða, þar sem stöðin væri að semja við sjálfa sig, en sennilega yrði miðað við hvað annars staðar væri greitt fyrir sambærilegan afla. Sigurður sagði að talsvert hefði verið um yfírborganir á lág- marksverð Verðlagsráðs í Vestmannaeyjum, og eðlilegt væri að þær færu inn í verðið þegar það er orðið frjálst. Hann vildi þó engu spá um hvað verðið kæmi til með hækka mikið frá því sem nú er í gildi. Margar bifreiða- gferðir uppseldar SALA Á bifreiðum hefur verið mjög mikil það sem af er árinu og eru margar tegundir bif- reiða af árgerðinni 1987 með öllu uppseldar, biðlistar langir og nýjar bifreiðir eru ekki væntanlegar aftur fyrr en með haustinu. „Við erum búnir að selja allt sem hægt er að selja,“ sagði sölumaður í einu bif- reiðaumboðanna við Morgun- blaðið. Sem dæmi má nefna að Toy- ota-umboðið hefur selt 991 bifreið það sem af er árinu, Hekla 945 bíla og Jöfur liðlega 840. Þetta eru allt mun hærri tölur en á síðasta ári og var það þó metár hvað varðar bifreiðasölu. Hjá þessum umboðum fengust þær upplýsingar að vinsælustu bifreiðategundimar væru nú upp- seldar og að í mörgum tiivikum gæti orðið bið á nýjum bflum fram í september en þá eru flestar 1988-árgerðimar væntanlegar. # Morgunblaöið/Júlíus Siguijónsson Grmdavíkurbáturinn Goði með litla bátinn á dekki á leið til Grindavíkur í gærkvöldi. Ungs sjómanns saknað, bátur hans mannlaus Hátíðahöld sjómannadagsins í Grindavík felld niður Grindavfk. VÍÐTÆK leit var gerð á svæð- inu frá Geirfugladrangi austur að Vestmannaeyjum að opnum plastbáti frá Grindavík með einum manni innanborðs. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, fann síðan bátinn mannlausan laust fyrir kl. 5 í gær 26 mílur suður af Krísuvíkurbjargi. Goði GK 24 frá Grindavík tók bátinn um borð og fór með hann til Grindavíkur { gærkvöldi. Vegna þessa atburðar falla nið- ur öll hátíðahöid f Grindavík í tilefni sjómannadagsins, nema skrúðganga til kirkju og sjó- mannadagsmessa. Maðurinn fór til handfæraveiða austur undir Krísuvíkurbjarg um hádegisbilið á fimmtudag. í gær- morgun þegar hann var enn ókominn úr róðrinum var farið að óttast um hann og var slysa- vamasveitinni Þorbimi gert viðvart. Björgunarbátamir Oddur V. Gíslason frá Grindavfk og Sæbjörg frá Sandgerði ásamt Landhelgisgæsluþyrlunni TF-SIF hófu strax leit, en síðan bættust við fískibátar frá byggðarlögun- um á svæðinu og voru þeir rúmlega 20 þegar leit stóð sem hæst. Einnig aðstoðaði Herkules- vél frá vamarliðinu við leitina. Leitað var allt vestan frá Geir- fugladrangi og austur til Vest- mannaeyja miðað við 30 mflur frá landi. Leitinni á sjó var stjómað úr stjómstöð í Grindavík af félög- um úr slysavamasveitinni Þor- bimi í nánu samstarfí við Landhelgisgæsluna, sem stjómaði leitinni í lofti. Eftir að báturinn fannst mann- laus var hafíst handa við að skipuleggja leitarflokka og í gær- kvöldi gengu slysavamasveitar- menn fjörur frá Selatöngum vestur á Reykjanes. Kr.Ben. Þingflokksfundur Sjálfstæðisflokks í dag: Stjórnarmyndun og staða flokksins rædd ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda I og staða Sjálfstæðisflokksins í þingflokksfund Sjálfstæðis- Ijósi yfirlýsinga tveggja ráð- flokksins kl. 10.30 fyrir hádegi herra flokksins undanfama daga í dag þar sem stjórnarmyndun I verða til umræðu. Vöttur SU í Grimsby: Tapaði milljón á sölu aflans Útkoman lakari en við heimalöndun „ÚTGERÐIN tapaði að minnsta kosti einni milljón á þessu ævintýri og hlutur áhafnarinnar verður minni, en við heima- löndun. Við fengum aðeins 43,50 krónur fyrir kílóið af fyrsta flokks línufiski í Grimsby, meðan togarafiskur fór á tæpar 60 krónur í Hull. Það er eitthvað athugavert við þetta og verður bið á þvf, að ég komi aftur með fisk til Grimsby,“ sagði Ingvar Gunnarsson, útgerðarmaður, í samtali við Morgunblaðið. milljónir króna fyrir aflann, en að meðaltali 43,50 á hvert kíló. „Miðað við eðíilega sölu hefðum við örugglega fengið milljón í við- Vöttur SU er skip Ingvars. Hann seldi í upphafí vikunnar 51 lest af þorski og 7 af steinbít í Grimsby. Alls fengust um 2,5 bót,“ sagði Ingvar. „Að frádregn- um kostnaði, töfum frá veiðum og rýrnun afla, töpum við á dæm- inu miðað við heimalöndum því fískur eins og þessi hefði örugg- iega farið á 35 krónur kflóið heima. Þessi sala hefur klikkað einhvem veginn. Togarafískurinn, sem er slakari að gæðum, fer á tæpar 60 krónur, en línufískurinn á 43. Þetta er sama markaðs- svæðið svo ljóst er að eitthvað er að. Á sama tíma og ég fæ 43,50 á kflóið í Grimsby er verið að kaupa físk í Neskaupstað á 45 krónur kflóið og það með réttri vigt. Þar er fískurinn seldur á fostu verði og það er orðið tíma- bært að við endurskoðum aðferðir okkar við sölu á ferskum físki erlendis. Það er til dæmis stað- reynd, að meira kemur upp úr skipunum við heimalöndun en er- lendis. Mismunurinn er meiri en nemur eðlilegri rýmun og hann skiptir vemlegu máli," sagði Ingv- ar Gunnarsson. „Það verður þingflokksfundur kl. hálfellefu í fyrramálið, þar sem til umræðu verður stjómarmyndun og staða Sjálfstæðisflokksins," sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf- stæðisfíokksins, í samtali við Morgunblaðið í gærkveldi. Hann sagði að staða fíokksins yrði rædd „í ljósi yfírlýsinga ráðherra flokks- ins undanfama daga". Undimefnd sú sem skipuð var af Sjálfstæðisflokki, Alþýðuflokki og Framsóknarflokki í fyrradag, til þess að gera úttekt á því hvaða aðgerðir væm nauðsynlegar að ráð- ast í við upphaf starfstíma nýrrar ríkisstjómar til viðnáms verðbólgu, starfaði í gær. Nefndina skipa þeir Geir H. Haarde, fyrir Sjálfstæðis- flokk, Jón Sigurðsson, fyrir Al- þýðuflokk og Bolli Héðinsson, fyrir Framsóknarflokk. Ekki er búist við að neftidin skili niðurstöðum fyrr en á morgun eða mánudag. Það er fyrst eftir að niðurstöður nefndarinnar liggja fyrir, sem búist er við því að skriður geti komist á stjómarmyndunarviðræðumar á nýjan leik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.