Morgunblaðið - 13.06.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 1987
29
V erkamannaflokkurinn
bætti stöðu sina í Skotlandi
og Norður-Englandi
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunbladsins.
ÍHALDSFLOKKURINN sigraði í
kosningrinum í fyrradag og verð-
ur að líkindum með 102 sæta
meirihluta i neðri málstofu breska
þingsins, þegar talningu er endan-
lega lokið. Það hefur ekki gerst
siðan á síðustu öld, að sami leið-
toginn sigraði i þrennum kosning-
um í röð, en þá sigraði Liverpool
lávarður i fernum kosningum, og
á 18. öld sigraði William Pitt i
þrennum kosningum. Þessi sigur
Ihaldsflokksins byggist fyrst og
fremst á góðri frammistöðu hans
í suðurhluta Englands og i Miðl-
öndunum. Honum gekk mun verr
i norðurhluta Englands, Skotlandi
og Wales.
í Skotlandi fékk Verkamanna-
flokkurinn 50 þingmenn kjöma,
bætti við sig níu, Ihaldsflokkurinn
tíu, tapaði 11 sætum, Bandalagið
fékk níu þingmenn, bætti við sig ein-
um, og Skoski þjóðemisflokkurinn
fékk þijá þingmenn, bætti við sig
einum. En þótt íhaldsflokkurinn hafi
tapað svo illa, var fylgi hans einung-
is einu prósenti minna í Skotlandi en
í síðustu kosningum. Roy Jenkins,
fyrrum fjármálaráðherra Verka-
mannaflokksins og einn af stofnend-
um Jafnaðarmannaflokksins, tapaði
sæti sínu í Hillhead í Glasgow til
Verkamannaflokksins, og formaður
Skoska þjóðemisflokksins, Gordon
Wilson, tapaði sæti sínu í Dundee til
Verkamannaflokksins. Heildamiður-
stöður kosninganna urðu, að íhalds-
flokkurinn fékk 376 þingsæti, tapaði
17, Verkamannaflokkurinn 229,
bætti við sig 20 sætum, Bandalagið
22, tapaði fimm. Aðrir fengu 19
sæti. Hlutfallsleg skipting varð þann-
ig, að íhaldsflokkurinn fékk 43%,
Verkamannaflokkurinn 32% og
Bandalagið 20%.
í Skotlandi varð 6% sveifla á at-
kvæðum til Verkamannaflokksins, í
norðurhluta Englands 4% sveifla til
Verkamannaflokksins og sömuleiðis
f Wales, í Miðlöndunum var 1%
sveifla til Verkamannaflokksins, en
í Suður-Englandi varð engin breyting
á fylgi flokkanna frá síðustu kosn-
ingum. íhaldsflokkurinn bætti stöðu
sína í London og Miðlöndunum, af
því að hann vann þingsæti þar af
V erkamannaflokknum.
Verkamannaflokkurinn er því
Öll von úti
VONBRIGÐIN leyna sér ekki í svip
Neil Kinnocks, leiðtoga Verka-
mannaflokksins , er hann heldur
heim til London frá kjördæmi sínu
í Wales í gær.
stærsti flokkurinn í norðurhluta Eng-
lands, Skotlandi og Wales. Skýringin
á því, að svona mikill munur er á
fylgi fiokkanna eftir landshlutum,
er fyrst og fremst sú, að í Norður-
Englandi og Skotlandi hefur aðalat-
vinna verið í iðnaði, sem hefur verið
á niðurleið, stáliðnaði, skipasmíða-
iðnaði og námavinnslu. Atvinnuleysi
er því tiltölulega meira á þessum
svæðum en í Suður-Englandi, og
efnahagsbatinn og uppgangurinn,
sem sett hefur svip sinn á suður-
hlutann, hefur ekki náð norður. Til
að skýra úrslitin benda talsmenn
íhaidsfiokksins á ýmis batamerki í
atvinnulífi norðurhlutans og segja,
að boðskapur flokksins hafi ekki
komist til skila, en talsmenn Verka-
mannaflokksins líta svo á, að fólkið
í þessum landshlutum hafi hafnað
stefnu Thateher. Þeir staðhæfa jafn-
vel, að hún hafi engan siðferðilegan
rétt til að stjóma Skotlandi, þar sem
íhaldsflokkurinn er í minnihluta.
Ekki er talið, að þessar niðurstöð-
ur hafi nein áhrif á þær breytingar,
sem íhaldsflokkurinn hafði ákveðið
um telq'uöflunarkerfi sveitarfelaga í
Skotlandi, sem hefur verið eitt hita-
málið í kosningabaráttunni.
Eitt verkefni íhaldsflokksins á
komandi kjörímabili verður, að sögn
Norman Tebbit, formanns flokksins,
að sjá svo um, að forréttindi fárra
verði almenningseign. Liður í því
verður að rétta við atvinnulíf í Skotl-
andi og Norður-Englandi.
Reuter
Hér búa tveir andstæðingar prestsins sig undir að fleygja honum
út úr hringnum.
Prestur í fjölbragðaglímu
ÞEIR sem kunna fræðin sín
muna eflaust eftir þvi þegar
Jakob glímdi við Guð og hlaut
nafnið Israel að glímulaunum.
Hann er þó ekki einn um það
að hafa glímt trúarinnar vegna,
þvi að í Mexíkó glímir prestur
nokkur vikulega til þess að afla
munaðarleysingjahæli, sem
hann rekur, fjár.
Séra Sergio Gutierrez er 42 ára
gamall og hefur nú stundað glímu
í rúm 10 ár. Hann segir að fjöl-
bragðaglíman sé nú meira til þess
að sýnast en að um alvöruofbeldi
sé að ræða. „Þetta gengur út á
að þykjast fljúgast á, en hinu er
ekki að leyna að það er hægt a
fá slæmar byltur í hringnum."
Presturinn kemur fram með
gyllta grímu fyrir andliti, í rauðum
buxum og gulum samfestingi, en
á bringunni stendur F.T., sem
stendur fyrir „Fray Tormenta",
eða Séra hvirfilbylur.
Að sögn kunna sóknarbömin
ágætlega við þessa breytni klerks-
ins, enda allt í þágu góðs málefnis.
Bandaríkin:
1.24 millj-
arðar til
baráttu
við eyðni
Washington. Reuter.
RÍKISSTJÓRN Bandaríkjanna
mun á næstunni fara þess á leit
við þingið að það samþykki 300
milljón dollara (12 milljarðar
ísl.kr.) viðbótarframlag næstu
tvö ár, til upplýsingamiðlunar
og rannsókna á sjúkdómnum,
eyðni.
Otis Bowen, heilbrigðisráð-
herra, sagði í gær að ef þetta
viðbótarframlag yrði samþykkt
myndi stjómin verja 1.24 milljörð-
um bandaríkjadala (tæpl. 50
milljarðar ísl.kr.) árin 1987 og
1988 í baráttu við eyðni. Eftir að
í ljós hefði komið hversu erfiður
viðfangs sjúkdómurinn væri,
hefðu fjárframlög til baráttu við
hann að meðaltali tvöfaldast ár frá
ári.
F EGR K> OG BÆT K>
GARDINNMED
SANDI0G GRIÚTI!
Sandur Sigursteinar Völusteinar Hnullungar
Sandur er fyrst og fremst jarðvegs- Sigursteinar eru lagðir ofan á bætandi. Dreifist einnig íca. 5 cm. beq, kæfa illgresi og létta þykku lagi í beð til að kæfa illgresi hreinsun. Sigursteinar eru góðir ogmosa í grasi (ca.3 cm.). Jafnar sem þrifalag í innkeyrslur og hita og raka í jarðvegi. Kjörið Stíga. Stærð ca. 0,8-3 cm. undirlag í hellulagða gangstíga. Völusteinar eru notaðir t.d. til skrauts ó skuggsælum stöðum, þar sem plöntur eiga erfitt uppdróttar, einnig með hellum og timburpöll- um. Mjög til prýði í beðum með stærri plöntum og trjám. Kjörin drenlögn með húsgrunnum. Stærð ca. 3—5 cm. rfnullungarnir eru ósvikið íslenskt grjót, sem nýtur sín í steinahæðum, ílöðnum köntum og með innkeyrsl- um og timburpöllum. Stærð ca. 5—10 cm.
BJ0RGUN HF.
SÆVARHÖFÐA13
SÍMI: 681833
Afgreiðslan við Elliðaár er opin:
mánud.-föstud.: 7.30-18.00
laugard.: 7.30-17.00
Komdu á athafnasvæöi Björgunar hf. á
Sævarhöfða og líttu á sandinn, mölina,
hnullungana og steinana. Við mokum
þessum efnum á bíla eða í kerrur og
vagna, fáanlegt í smærri einingum,
traustum plastpokum, sem þú setur
bara í skottið á bílnum þínum.