Morgunblaðið - 18.07.1987, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1987
17
verið hefur formaður LÍF síðan
1982, gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs í það embætti. í hans stað
var kjörinn formaður Þór Þor-
steins, en hann var varaformaður
í fyrri stjóm. Úr stjóm LÍF gengu
Óskar Jónatansson, Páll H. As-
geirsson og Sigurður P. Gestsson.
Núverandi stjóm skipa auk form-
anns: Hálfdan Helgason varaform-
aður, Sverrir Einarsson ritari,
Sigtryggur R. Eyþórsson gjaldkeri
og Jóhann Guðmundsson blaðafull-
trúi. Meðstjómendur eru Benedikt
Antonsson, Eiður Ámason, Jón
Egilsson og Jón Aðalsteinn Jóns-
son.
Verkefni hinnar nýju stjómar
LÍF verða margvísleg, eins og lítil-
lega hefu verið drepið á hér að
framan og flest þeirra í beinu fram-
haldi af því, sem verið hefur á
dagskrá undanfarin ár. Hinn nýi
formaður, Þór Þorsteins, vék að
ýmsum forgangsverkefnum, sem
hann kallaði svo. Eitt þeirra er að
stofna ný félög safnara úti á landi
og undirbúa heimsókn til aðildarfé-
laga Landssambandsins. Skoraði
formaður á landsþingsfulltrúa að
vinna ötullega í félögum sínum að
eflingu og stuðningi við frímerkja-
söfnun á íslandi.
I síðasta þætti var sagt frá al-
þjóðafrímerkjasýningunni HAF-
NIU 87, sem verður í Kaupmanna-
höfn í október. Á næsta ári verða
tvær alþjóðasýningar, sem íslenzk-
ir frímerkjasafnarar munu áreið-
anlega taka þátt í. Önnur þeirra
er FINLANDIA 88 í Finnlandi og
hin er PRAGA 88 í Tékkóslóvakíu.
Frá þessum sýningum verður sagt
síðar hér í frímerkjaþætti.
Að endingu vil ég minna lesend-
ur þáttarins á Póst- og símaminja-
safnið í Hafnarfirði, en það er opið
á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15—18. Einnig geta menn utan
þess tíma haft samband við safn-
vörð í síma 54321. Hér hefur áður
verið sagt nokkuð frá þessu safni.
Enda þótt þar sé því miður heldur
fátæklegt frímerkjaefni til sýnis,
er margt forvitnilegt að sjá þar
úr sögu pósts og síma hér á landi.
Með hliðsjón af því er heimsókn í
safnið í Hafnarfírði þess virði að
láta verða af henni.
Nú verður gert nokkurt hlé á
þessum frímerkjaþáttum hér í
blaðinu, enda hafa safnarar um
margt annað að hugsa en frímerki
um hásumartíð.
1 matsk. smjörlíki,
3 dl hrísgijón,
6 dl vatn,
1 súputen. (fiski- eða græn-
metiskraftur)
salt,
1 dós niðursoðnar fiskibollur.
Laukurinn er skorinn í báta, gulr-
ætumar í, þykkar sneiðar og
hvítlaukurinn brytjaður örsmátt.
Allt sett út í smjölíki í potti og
látið taka lit. Hrísgijónunum bætt
á og blandað saman við, síðan er
vatni, salti og súputen. bætt á.
Látið sjóða í ca. 20 mín. áður en
bollumar em settar í og hitaðar
með. Sítrónusneiðar og salat borið
með. Ætlað fyrir 4-6.
Gratineraður
fískbúðingur
1 dós fiskbúðingur,
1 pk. fryst, blandað grænmeti,
1 tsk. timian,
1-2 dl rifinn ostur.
Grænmetið sett í botninn á eld-
föstu móti, örlitlu vatni hellt á.
Fiskbúðingssneiðunum raðað ofan
á, timian stráð yfir og rifnum ostin-
um þar ofan á. Hitað í ofni þar til
osturinn bráðnar og kominn er
gullinn litur á. Soðnar kartöflur
eða brauð borið með. Ætlað fyrir
4-6.
Lifandi tónlist
Notaleg kaffihúsastemning
HOTEL BORG
FYRIR GESTI0G GANGANDI