Morgunblaðið - 18.07.1987, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1987
Skáldsaga eftir
Arna B. Helgason
BÓKAÚTGÁFAN Fjöregg hefur
gefið út fyrstu skáldsögu 35 ára
gamals Reykvíkings, Árna B.
Helgasonar. Titill bókarinnar er
París.
í fréttatilkynningu frá útgef-
anda segir:
„París er sögubók í þremur hlut-
um, þar er fyrst til að nefna eins
konar forspjall sögunnar, þá ljós-
vakaspjall skriffinna nokkurs, sem
er raunar ævintýri fyrir útvarp, en
er hér endursagt með all raunsærri
formerkjum, og loks lokaspjall sög-
unnar.
Að stærstum hluta gerist „þrí-
leikurinn“ á þremur dögum, þegar
einmitt er von á menningarfulltrú-
um til bæjarins, eða borgarinnar,
eins og sumir íbúar sagnaheimsins
kjósa fremur að nefna samfélag
sitt og átthaga þegar líður nær
sögulokum. í því ljósi, að sjálfir
„erindrekar menningarinnar" munu
brátt sigla inn á svið sögunnar, fá
lestrarhestar séð inn í hugmynda-
heim persónanna, fá að kynnast
vonum þeirra og þrám, ást og hatri,
gleði, sorg og jafnvel hinni sárustu
sút, og loks því hvert er hið eigin-
lega erindi fulltrúanna."
Prenthúsið sf. annaðist setningu
og prentun bókarinnar, sem er 392
blaðsíðna pappírskilja.
Próf í ein-
leik á hörpu
NÝLEGA lauk Elísabet Waage
einleikaraprófi í hörpuleik frá
Konunglega tónlistarháskólan-
um í Den Haag í Hollandi.
Elísabet lauk kennaraprófí fyrir
tveimur árum og núna lauk hún
einleikaraprófi með því að halda
opinbera tónleika. Á efnisskrá tón-
leikanna var meðal annars verk sem
heitir Næturljóð á hörpu og er það
nýtt einleiksverk eftir Jón Nordal.
Nú í haust mun Elísabet leika á
tónleikum í Hollandi bæði sem ein-
leikari með hljómsveit og með
kammermúsíkhópi.
Elísabet Waage hörpuleikari.
Tangarsókn lokið:
Rafstöð meðal
gjafa til Krýsu-
víkursamtakanna
TANGARSÓKN Krýsuvíkursam-
takanna lauk formlega á þriðju-
dag þegar hóparnir tveir, akandi
fornbílum og reiðhjólum, mætt-
ust á Egilsstöðum. Þá höfðu
safiiast alls um tvær og hálf millj-
ón króna. Söfinun samtakanna
heldur áfram til 24. júlí.
Snorri Friðriksson Welding hjá
Krýsuvíkursamtökunum sagði að
allt hefði þetta gengið vonum fram-
ar og auk áheita hefðu samtökunum
borist rausnarlegar gjafir. Nefndi
hann sérstaklega rafstöð sem fyrir-
tækið Höldur hf. á Akureyri gaf
og olíukyndistöð frá Birgi
Frímannssyni. Rafstöðin verður sett
upp í Krýsuvíkurskóla á næstunni
og kyndistöðin sömuleiðis.
Morgunblaðið/KGA
Kátt á hjalla á Suðurborg
ÞAÐ var kátt á hjalla hjá ungviðinu á dag-
heimilinu Suðurborg í Hólahverfi í Breiðholti á
fimmtudaginn, þar sem árleg sumarhátíð með
tilheyrandi veislu og leikjum var haldin. Börnin
voru skrautlega máluð og klædd hinum marg-
breytilegustu búningum, sem þau hafa föndrað
við að framleiða undanfarnar vikur, undir hand-
leiðslu fóstra sinna.
Hæst bar svo hátíðahöldin eftir hádegið, þegar
ráðist var í að útigrilla pylsur, sem vafalaust hafa
smakkast betur en „Bæjarins bestu" Pylsunum góðu
var svo skolað niður með Svala og eins og í raun-
verulegum veislum, var að sjálfsögðu boðið upp á
eftirmat, ís. Eins og gefur að skilja kunnu litlu
krílin vel að meta svona veisluhöld, sem má líta á
sem uppskeruhátíð sumarsins, en í gær mættu þau
í síðasta sinn á Suðurborg, fyrir sumarfrí, sem stend-
ur í heilan mánuð.
Morgunblaðið/KGA
Jeppabifreiðin við endalok ferða
sinnar, eftir að hafa rifið upp
nokkur tré með rótum.
garðsins við Suðurgötu. Þar fór
jeppinn upp á gangstétt, rétt fram-
hjá vegfaranda og dró með sér stórt
tré nokkra metra. Þegar tréð stöðv-
aði loksins bílinn, virðist ökumaður-
inn hafa bakkað og keyrt austur
eftir gangstígnum við ttjálundinn
við hom kirkjugarðsins og rekist
þar á tré og stöðvast.
Mike Nilsson er danskur hljóð-
maður, sem vinnur við gerð
myndarinnar Foxtrot. Hann stóð
við hringtorgið og var að glöggva
sig á korti yfir borgina. Þar sem
hann stóð, keyrði jeppabifreiðin á
ofsahraða yfír gangstéttina og
straukst við hægri öxlina á honum.
Drukkinn maður og ökuréttindalaus ók niður tré við Melatorg:
Straukst við öxl
eins vegafaranda
Ökumaður handtekinn eftir eltingaleik í
kirkjugarðinum við Suðurgötu
ÖKUMAÐUR jeppabifreiðar missti stjórn á bifreið sinni á ofsahraða
við Melatorg aðfaranótt síðastliðins fimmtudags, með þeim afleiðing-
um að jeppinn fór yfir gangstéttina, rétt framhjá gangandi vegfar-
anda, reif með sér stórt tré og endaði við vegg kirkjugarðsins við
Suðurgötu. Ökumaður og farþegi, sem báðir voru nokkuð ölvaðir,
sluppu ómeiddir og stukku yfir í kirkjugarðinn. Lögreglumenn, sem
komu að í þessa mund, náðu að handsama þá eftir nokkurn eltinga-
leik.
Lögreglunni barst kl. 2.18 að-
faranótt fímmtudags tilkynning frá
leigubílstjóra um glæfralegan akst-
ur jeppabifreiðar með erlendu
skráningamúmeri á gamla Mela-
vellinum. Þegar lögreglan kom á
staðinn var jeppabifreiðin klesst við
tré við gangstíginn við kirkjugarð-
inn og sögðu sjónarvottar að tveir
menn hefðu stokkið yfír í kirkju-
garðinn. Lögreglan hóf þegar að
elta upp mennina og náði þeim fljót-
lega. Hér reyndist vera um tvo
ölvaða norska ferðamenn að ræða
og reyndist ökumaðurinn einnig
vera réttindalaus. Ökumaðurinn
fékk að gista fangageymslur lög-
reglunnar.
Óljóst er um atburðarás. Öku-
maðurinn virðist hafa farið á
ofsahraða í Melatorg og misst stjóm
á bifreiðinni á móts við hom kirkju-
Morgunblaðið/Júlíus
Danski vegfarandinn við staðinn þar sem hann stóð þegar jeppabif-
reiðin fór hjá.