Morgunblaðið - 18.07.1987, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1987
27
HÚN VAR AÐ KOMA, aukasendingin af
NI5SAN SUNNY13LX.
Rúmgóður 5 manna fjölskyldubíll á einstöku verði,
NISSAN SUNNY-Bíll ársins 1987 íJapan.
^1957-1987
% 30 §
Kaupmannasamtök
Islands:
Skattur
á mat eyk-
ur þegn-
skylduvinnu
kaupmanna
KAUPMANNASAMTÖK íslands
hafa sent frá sér ályktun þar sem
þeirri ákvrörðun ríkisstjórnar-
innar að leggja 10% skatt á
matvæli er mótmælt. Segja sam-
tökin að með þessari ákvörðun
„sé kaupmönnum enn einu sinni
íþyngt með því að láta þá inna
af hendi meiri þegnskylduvinnu
fyrir ríkissjóð. Þar sem með
þessari ákvörðun eykst vinna og
ábyrgð kaupmanna i verslunum
við innheimtu og uppgjör skatts-
ins.“
Ennfremur segir í ályktuninni:
„Þá skal sérstaklega vakin athygli
á því að með því að leggja sér-
stakan söluskatt á ýmsa þjónustu
sem verslanir og fyrirtæki almennt
þurfa að kaupa, svo sem bókhalds-
þjónustu, tölvuvinnslu eykst kostn-
aður við rekstur verslana sem
endanlega þýðir að almenningur í
landinu þarf að greiða með hærra
vöruverði.“
Morgunblaðið/Sverrir
Séð ofan í grunn að þjónustumiðstöð aldraðra, heilsugæslustöð og bifreiðaskýli sem fyrirhugað er að
rísi við Vesturgötu 7.
NISSAN SUNNY
SEDAN1.3LX
Reykjavík:
Um 177 milljónir
til þjónustumið-
stöðvar aldraðra
REYKJAVÍKURBORG hefur samið við ístak hf. um byggingu þjón-
ustumiðstöðvar aldraðra, heilsugæslutöð og bifreiðastæði við
Vesturgötu 7, og er áætlaður kostnaður við bygginguna 176.752.700
krónur. Miðað er við að húsinu sé skilað tilbúnu undir tréverk og
fúllfrágengnu að utan ásamt lóð.
I frétt frá Davíð Oddsyni borgar-
stjóra segir að verkið sé í tveimur
áföngum og miðast fyrri áfangi við
uppsteypt hús. Miðað við mark-
áætlun er kostnaður við fyrri
áfanga 72.321.874 krónur. Mark-
gildissamningur felur í sér að við
lokauppgjör er verkið gert upp sam-
kvæmt raunkostnað en á verk-
tímanum er greiðir verkkaupi eftir
markáætlun sem byggist upp á
hefðbundnum einingarverðum.
Verktakinn fær þá markþóknun, í
þessum samningi 5%, fyrir yfir-
stjóm áhættu og ágóða. Fari
raunkostnaður fram úr áætlun ber
hann 30% þess kostnaðar, en fær
30% sparnaðar í sinn hlut, ef honum
tekst að halda kostnaði innan
marka.
í fréttinni segir enn fremur að
ístak hf. hafí verið valið sem verk-
taki vegna reynslu sinnar af þessu
samningsformi, auk þess sem það
er eitt þeirra fáu verktakafyrir-
tækja sem talin eru nægilega öflug
til að verða valin til verksins.
I húsinu verður þjónustumiðstöð
aldraðra fyrir miðbæ og vesturbæ
með matsal, hreyfisal og aðstöðu
fyrir ýmsa þjónustu félagsmála-
stofnunar og félagsstarf. Að auki
er gert ráð fyrir fjögurra lækna
heilsugæslustöð fyrir þennan borg-
arhluta.
A efri hæðum verða 26 íbúðir
ætlaðar öldruðum og em þær frá
36 til 82 ferm. að stærð. í kjallara
em 106 bífreiðastæði, sem ekki
munu fylgja íbúðunum nema íbúar
óski eftir að leigja sér stæði. Heild-
arstærð hússins er 8159 ferm., þar
af er bifreiðageymslan 4082 ferm.
á tveimurhæðum og neðanjarðar.
Heilsugæslustöðinni fær 520 ferm.
og íbúðir með geymslum verða á
2500 ferm., en þjónustumiðstöðin
um það bil 1000 ferm. Garður er
ofaná bifreiðageymslunum og er
glerskáli umhverfís hann á þrjá
vegu.
Stefnt er að því að gera húsið
þannig úr garði að viðhald utan-
húss verði sem minnst. Verður
húsið einangrað að utan og klætt
steini og þök lögð eir eða zinki.
Uppsteypu hússins á að ljúka 1.
ágúst árið 1988 og hinu umsamda
verki 1. febrúar 1989 ef borgaryfir-
völd staðfesta framhald verksins.
Er þá miðað við að byggingu húss-
ins ljúki á miðju sumri 1989, en
nú er unnið að hönnun innréttinga
og mun því verki ljúka um áramót.