Morgunblaðið - 18.07.1987, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1987
31
Evrópubandalagið:
Offi’amleiðsla
á búvörum
vex í stað þess
að minnka
BJARTSÝNISMENN halda
því fram, að Evrópubandalag-
ið (EB) hafi náð að skera
útgjöld sín niður um 6 millj-
arða Evrópueininga, ECU,
(nær 6,8 milljarða dollara)
með umbótum í landbúnaði
undanfarin tvö ár. Svartsýnis-
menn segja hins vegar, að
offramleiðslan á búvörum sé
allt eins mikil nú og hún var
fyrir fáum árum.
Báðir hafa rétt fyrir sér. Sameig-
inleg landbúnaðarstefna innan
bandalagsins hefur farið svo úr
böndum, að í núverandi mynd
sinni er með naumindum unnt
að halda henni gangandi, þó að
það tækist að draga úr útgjöld-
um um 6 milljarða ECU. Ef ekki
kæmi til viðleitnin nú til að draga
úr framlögum til landbúnaðarins,
þá væri fjárlagahalli Evrópu-
bandalagsins á þessu fjárhagsári
um 12 milljarðar ECU. í reynd
er hallinn um 6 milljarðar ECU,
sem aðildarríkin 12 í bandalag-
inu reyna að mestu að fela með
klókum reikningsaðferðum.
Sumar af umbótunum til að
draga úr niðurgreiðslum eru
raunhæfar en of nýjar af nálinni
til þess að geta haft nokkur
umtalsverð áhrif að svo komnu.
Það var í desember 1986, sem
ákveðið var að byija að draga
úr hömlulausri framleiðslu á
mjólkurafurðum og nautakjöti.
Meðfylgjandi tafla sýnir, að
dregið hefur úr umframbirgðum
af nautakjöti en umframbirgðir
af mjólkurafurðum hafa haldið
áfram að vaxa. Hinar stórfelldu
niðurgreiðslur gera Evrópu-
bandalaginu kleift að setja mikið
af nautakjöti á niðursettu verði
á heimsmarkaðinn. Erfitt er hins
vegar að losa sig við smjör,
hvaða verð sem sett er á það og
svipaða sögu má raunar segja
um hveiti.
Sú takmarkaða verðlækkun á
komi 1987-88, sem samþykkt
var á fundi landbúnaðarráðherra
EB 1. júlí sl., skiptir miklu minna
máli en mótmælaaðgerðir bænda
að undanfömu gefa til kynna.
Það verð, sem bændum er
tryggt, á að lækka um 5 - 6%.
Ráðherrar bandalagsins hafa
hins vegar komið í veg fyrir verð-
lækkun eins og venjulega með
því að leika sér með gengi þeirra
gjaldmiðla, sem notaðir era til
þess að ákveða verð á heima-
markaði. Það er erfiðar fyrir þau
lönd, sem eiga sterkan gjaldmið-
Búvörufjallið EVRÓPA
Umframbirgðir EB
8oo af búvörum
900
, . . u _ - ✓ Milljón
fra 1. april hvert ar iestir
(Í2) Smjör
Rúgmjöl
.... <© Nautakjöt
/ ■**- (3^5) Bygg
—(Í3) Ölífuolía
(5í) Mjólkur-
rröuft
Hveiti
Heimild: The Economist, 11.7.1987
il, að svindla með þessum hætti.
Þannig verður verðlækkun hjá
hollenzkum bændum 0,5% á
tímabilinu 1987-88 og það mun
þurfa sérstakar niðurgreiðslur
heima fyrir í Vestur-Þýzkalandi
til þess að halda óbreyttu verð-
lagi. Bændur í öðram löndum
EB fá hins vegar verðhækkun í
reynd (í gjaldmiðli síns lands),
sem verður frá 1,6% í Belgíu upp
í 5,1% í Bretlandi og 11,5% í
Grikklandi. Svo virðist því sem
hinar miklu umframbirgðir EB
af komi eigi enn eftir að aukast.
Hvað snertir jurtaolíu og feit-
meti, þá kosta umframbirgðir
vegna heimaframleiddra afurða
Evrópubandalagið næstum 3
milljarða ECU á ári. Á fundi
æðstu manna EB í Brssel í
síðasta mánuði var samþykkt að
hafna hugmyndinni um að taka
upp sérstakan vemdartoll (feit-
metisgjald) til að greiða fyrir
sölu á umframbirgðum af þess-
um vöram. Slíkt hefði leitt til
hærra verðs fyrir neytendur inn-
an bandalagsins og viðskipta-
stríðs við Bandaríkin. Þar sem
menn höfðu hins vegar reitt sig
á, að feitmetisgjaldið yrði inn-
leitt, þá olli höfnun þess því, að
fjárlagahalli EB á enn eftir að
vaxa um 500 millj. ECU á þessu
ári.
Framkvæmdaráð EB hafði
gert sér vonir um, að feitmetis-
gjaldið og strangari reglur um
niðurgreiðslur á komi yrðu til
að spara því útgjöld, sem næmu
1,1 milljaiði ECU á þessu ári og
3 milljörðum ECU á því næsta.
Allt sem eftir er af útgjaldasam-
drættinum era 230 millj. ECU á
þessu ári og 400 millj. ECU á
því næsta miðað við fjárhags-
áætlun fyrir búvörar að íjárhæð
23 milljarðar ECU.
Við getum því vænzt þess
áfram, að enn verði til mála-
mynda dregið úr framleiðslunni,
að enn meiri erfiðleikar sæki að
fátækum bændum innan EB og
að enn meira þrýstingur komi
fram í þá vera að breyta þessu
óréttlætanlega kerfí, sem að lok-
um verður ókleift að halda
gangandi.
(Heimild: The Economist)
Sovéskur liðhlaupi:
Fannst eftir
42 ár í felum
Moskvu, Reuter.
UPP KOMAST svik um síðir.
Sovéskur liðhlaupi úr Seinni
heimsstyijöldinni fannst loksins
eftir að hafa hírst í felum undan-
farin 42 ár. Sagt var frá þessu
i sovéska vikuritinu Nedelya í
gær. Hefði liðhlaupinn fundist
fyrr hefði hann eflaust verið
skotinn, eða a.m.k. sendur í Gú-
lagið.
Úkraínubúinn Kuzma Panchenko
komst undan herskyldu í upphafi
stríðsins og þegar Þjóðveijar her-
námu heimaþorp hans, Kiselyovka,
gafst hann upp fyrir þeim. Þetta
tvennt hefði dugað honum til tvö-
falds dauðadóms samkvæmt so-
véskum lögum. Þar er litið á
uppgjöf fyrir óvinum sem liðhlaup.
Þjóðveijar sendu hann í fanga-
búðir í Póllandi og Þýskalandi, en
þegar Rauði herinn sneri vöm í
sókn komst Panchenko undir
manna hendur. Á þessum tíma voru
menn skotnir fyrir minnstu sakir,
en væri mönnum sýnd miskunn
fengu þeir vist í þrælabúðum
Síberíu um óákveðinn tíma. Það
leist Panchenko engan veginn á, svo
hann strauk úr haldi varða sinna á
pólskri brautarstöð og fór heim til
konu sinnar, Önnu. Hún fékk hins-
vegar stríðsekkjulífeyri frá ríkinu,
sem hún þarf nú að endurgréiða,
sagði í Nedelya.
Panchenko var ljós þörfin á að
vera viss, svo að hann útbjó smá-
klefa í húsi sínu og dvaldi þar
lengstum. Klefanum lýsti vikuritið
sem sjálfgerðum einangrunarklefa
þar sem Panchenko hefði tekið út
nokkra refsingu sakbitinn og ótta-
sleginn.
Sovésk yfírvöld hafa náðað Panc-
henko vegna aldurs. Hann er 79
ára gamall. Þegar hann var spurður
af vikuritinu hvort hann hefði aldr-
ei hugleitt að gefa sig fram og játa
syndir sínar fyrir yfírvöldum svar-
aði gamli maðurinn: „Jú, en ég var
hræddur. Og ég er enn hræddur."
Bandaríkin:
Ný meðferð við
húðkrabbameini
San Francisco. Reuter.
VÍSINDAMENN tilkynntu í gær,
að þeir hefðu náð árangri, sem
lofaði góðu, i meðferð ákveðinn-
ar tegundar húðkrabbameins.
Meðferðin er fólgin i inngjöf til-
búinna mótefha og eiturefna,
sem fengin eru úr kryddbauna-
jurt.
Dr. Lynn Spitler, forstöðumaður
krabbameinsdeildar Childrens
Hospital í San Francisco, sagði að
meðferðin hefði gefið góða raun í
baráttunni við illkynja sortuæxli
(melanoma). Krabbamein þetta get-
ur breiðst hratt út frá fæðingar-
bletti til innri líffæra og hefur
reynst erfitt viðureignar með hefð-
bundnum aðferðum, t.d. geislun eða
lyfjagjöf.
Fyrstu tilraunirnar, sem gerðar
voru á mönnum, sýndu, að nýja
mótefna/eiturefna-meðferðin hafði
aðeins minni háttar hliðarverkanir
og meinvörpin minnkuðu eða vöxtur
þeirra stöðvaðist hjá þriðjungi sjúkl-
inganna, að sögn Spidlers.
í annarri lotu tilraunanna voru
43 sjúklingar teknir til meðferðar,
bæði í Evrópu og Bandaríkjunum,
og sást árangur hjá 13 þeirra.
Þriðja lotan hefst á næsta ári og
verður meðferðarsjúklingunum þá
fjölgað veralega.
Gengi gjaldmiðla
Lundúnum, Reuter.
BANDARÍKJADALUR styrkti í
gær stöðu sína eftir fyrra fa.ll,
en talið er að kaup japanskra
spákaupmanna hafi valdið því.
Hagtölur frá Bandaríkjunum ollu
nokkrum vonbrigðum þegar þær
komu út á miðvikudag og féll dalur-
inn við það. Það olli því hins vegar
að Japanir föluðust eftir honum í
auknum mæli svo hann hækkaði á
ný.
Sterlingspundið, sem hækkaði
mjög í verði samstíga hráolíu, stóð
hins vegar í stað eftir að Englands-
banki greip í taumana á fimmtudag.
í gær kostaði Sterlingspundið
1,6225 Bandaríkjadal. Verð Banda-
ríkjadals í öðrum helstu gjaldmiðl-
um á hádegi í gær var sem hér
segir:
1,3190 Kanadadollar;
1,8455 vestur-þýskt mark;
2,0765 hollensk gyllini;
1,5375 svissneskur franki;
38,24 belgískir frankar;
6,1400 franskir frankar;
1335 ítalskar lírur;
151,90 japönskjen;
6,4300 sænskar krónur;
6,7375 norskar krónur;
7,0025 danskar krónur;
Gullúnsan kostaði 452,30 Banda-
ríkjadali.
Kópavogsvöllur
2.deild
BREIÐABLIK - ÞRÓTTUR,
REYKJAVÍK
ídag kl. 14.
BYKO
umbro
umbro